Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 3
Laugardagur 30. janúar 1965 MORGUNBLAÐIÐ 3 Uppfylling í hina nýju götu er sótt í hraun fyrir ofan Reykjanesbrautina, þar sem hún mætir Hafnarfjarðarveg- inum. Grjót er sprengt í Hval- eyrarholti og því ekið utan á götuna til varnar sjónum. Unnið að framkvæmdum við hina nýju götu, sem mun tengja Reykjavíkurveg og Lækjargötu. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) Þessi gata mun hafa mikla þýðingu fyrir samgöngur inn og út úr Hafnarfirði. Þá mun til dæmis verða greiðfær veg- ur frá hofninni að Fiskiðju- verinu, en um leið færist um- ferðarþunginn af Strandgöt- STAKSTEIMR Ný Strandgata Hafnarfirði UM þessar mundir er verið að vinna að gatnafram- kvæmdum, í Hafnarfirði, sem miða að því að létta á umferðarþunganum á Strandgötu. Hér er um að ræða framhald af Reykja- víkurveginum, sem síðan mætir Lækjargötunni. Mun hin nýja gata liggja í boga fyrir neðan Strandgötuna, en við gerð hennar þarf að gera 4 til 5 metra fyllingu út í sjó. Sem fyrr segir tengir hin nýja gata Reykjavíkurveg og Lækjargötu. Síðar þarf að lag- færa Lækjargötuna og leggja að nýju að Reykjanesbraut. Þá þarf og að leggja nýjan kafla frá Reykjanesbraut að Hringbraut. ☆ Framkvæmdum miðar vel áfr am. ☆ Afkastamikil vinnutæki fs- lenzkra aðalverktaka vinna að gatnagerðinni og hefur henni miðað vel áfram frá því verk- ið var hafið upp úr síðustu áramótum. Blaðamaður og ljós myndari Mbl. fylgdust með framkvæmdum þessum í gær, og voru þá 12 svokallaðir skúffubílar, 12 og 18 tonna, í stöðugum flutningum með fyllingarefni. Á „Strandgötunni“. IMeðri málstofan þakk- ar kveðjur Alþingis FORSETAR Alþingis sendu við lát Sir Winston Churchills skeyti til forseta Neðri mál- stoíu brezka þinigsins, Harry Hylton-Foster, þar sem þeir ilétu í ljós samúð sína vegna fráfalis hins mikla þjóðarleið ■lloiga, sexn verið hefði einn mesti þingskörungur allra tíma. Kópavogur SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa- vogs heldur almennan fund þriðjudaginn 2. febrúar nk. í Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi, og hefst hann kl. 20,30. Fundarefni er stjórnmálavið- horfið. Frummælandi Ingólfur Jónsson, ráðherra. f gær barst forsetum Al- þingis svohljóðandi svar- skeyti frá íorseta Neðri mál- stofunnar: „Neðri málstofan þakkar yður innilega fyrir samúðar- kveðjur yðar fyrir hönd Al- þingis í tilefni af fráfalli Sir Sir Winston Churohids. Það er oss hugigun í raun að vita að Alþingt íslendinga tekur þátt í hinni djúpu sorg vorri. Samúðarkveðjur yðar munu geymast um aldir í þing- skjölum vorum. Harry Hylton-Foster Fbrseti Neðri málstofunnar“ Sérfræðingar ræða um kísilgurverksmiðju HINN 18. febr. feoma hér saman tili fundar sérfræðingar frá Bandaríkjunum og Hbllar.di til að ræða undirbúning kísilgúrverk smiðju við Mývatn. Hafa þeir þegar unnið að undirbúnings- rannsóknum. I Að lokinni þeirri ráðstefnu ! munu fyrir liggja atriði er byggja verður á bæði tæknilega og fjárhagslega til undirbúnings reksturs siíkrar verksmiðju hér á landi. Verður þá fyrst hægt að taka ákvörðun um byggingu verksmiðjunnar. Aðoliundur From í HafnsErilrSi LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Fram í Hafnarfirði heldur aðalfund í Sjálfstæðishúsinu næstkomandi mánudagskvöld kl. 8.30. Auk aðalfundarstarfa verðut fjárhags áætlun bæjarins fyrir árið 1965 til umræðu og verður forseti bæjarstjórnar, Stefán Jónsson, frummælandi. Eins og kunnugt er, hafa farið frarn lagfæringar og breytingar á Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði og af þeim sökum hefir starfsemi Sjálfstæ'ðisfélaganna legið niðri. En nú er þess að mestu lokið, og hefst starfsemi félaganna nú af fullum krafti á ný. Eru Fram-félagar hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn á mánudagskvöldið. Hagspeki Tímans Eftirfarandi ritstjórnargrein birtist í gær í Tímanum: „Morgunblaðið skýrir frá því, að Bjarni Benediktsson, forsæt- isráðherra, hafi nýlega flutt er- indi á Varðarfundi og gert þar eins konar yfirlit um seinasta ár. Samkvæmt útdrætti Morgun- w blaðsins, virðist Bjarni hafa tal- ið það ríkisstjórninni til gildis, að ekki hafi þurft að lækka gengi krónunnar á síðasta ári. Það er eins og Bjarni telji það kraftaverk að krónan sé ekki felld árlega. Annars er rangt hjá Bjarna, að krónan hafi ekkert verið skert á síðastliðnu ári. Söluskatturinn var tvíliækkaður á árinu, eða alls um 5(4% og hækkun hans eyk- ur dýrtíðina alveg eins og geng- islækkun. Vegna þessara hækk- ana hans er hver króna nú raun- verulega 514% verðminni en fyr- ir ári síðan.“ Það eru raunar aðeins minni- háttar ósannindi — á Tímavísn að segja söluskattinn hafa hækkað um 514%, þegar hann hefur hækkað um 414%. Hitt er athyglisverð kenning að hækkun söluskatts sé sama og gengisfell- ing. Víða hefði gengisfelling þá átt sér stað, og víða um lönd væri gengið eitt í þessari borg og annað í hinni, og svo fram- vegis. Það er ekki furða þótt Framsóknarmenn hneykslist á álitsgerðum eins og þeim, sem Efnahags- og framfarastofnunin gerir, og aðrar alþjóðlegar hag- vísindastofnanir, úr því að þeir telja söluskatt sama og gengis- fellingu. Reynum aítur Alþýðublaðið birtir í gær for- ustugrein, þar sem það m.a. segir: „tslenzka þjóðin varð allshug- ar fegin, þegar ríkisstjórnin, verkalýðshreyfingin og atvinnu- rekendur gerðu júnísamkomu- lagið í fyrrasúmar. Það átti að tryggja vinnufrið í ár, nokkrar kjarabætur fyrir hina lægstlaun- uðu, en aukin íbúðalán og fleiri félagslegar ráðstafanir til að- stoðar allri alþýðu. Fegnast varð fólk þeirri hughreystingu, sem það fann í þeirri staðreynd, að þessir þrír aðilar gætu tekið saman höndum í stað þess að eiga í sífelldum ófriði. Júnísamkomulagið hefur reynzt þjóðinni mikils virði. Það dró mjög úr verðbólguskrúfunni og átti þátt í að varðveita gengi krónunnar.“ Hefjum samninga Síðar í ritstjórnargrein AI- þýðublaðsins segir: „Ljóst er að á þessu ári verð- ur mun erfiðara að ná samkomu- lagi, en ekki dugir að gefast upp fyrirfram. Þvert á móti væri ráð legt að hef ja samningana nú þeg- ar og ætla sér góðan tíma til þeirra. Alþýðuflokkurinn lagði á flokksþingi sínu á síðastliðnu ári sérstaka áherzlu á, að ríkisstjórn inni bæri að gera víðtækt sam- komulag við verkalýðshreyfing- una um þessi mál og ganga eins langt og framast væri unnt í kjarabótum, ekki sízt að því er vinnutíma varðar. Hefur komið fram af hálfu stjórnarinnar, að hún hefur í hyggju að fara þessa leið og sjálfsagt stendur ekki á verkalýðssamtökunum. Takist ekki að ná skynsam- legu heildarsamkomulagi, má bú ast við stöðugum vinnudeilum og vaxandi dýrtíð. Það getur leitt til óvissu í stjórnmálum og vaxandi átaka þar, svo að aðstaða þjóð- arinnar til að hafa vald í efna- hagsmálum sínum versnaði stór- um.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.