Morgunblaðið - 30.01.1965, Blaðsíða 17
Laugardagur 30. janúar 1965
MORCUNBLAÐIl
17
Vesfmannaeyingar
muna Pál Kolka
ÞAÐ kom mér mjög á óvart, er
ég heyrði það, að hinn ágæti líf-
læknir okkar hjóna um skeið,
Páll Y.G. Kolka héraðslæknir,
væri í þann vegfnn áð verða sjö-
tugur að aldri. Það var ekki lanigt
eíðan ég hafði hitt hann jafn frá-
an á fæti og fullan af andlegu
fjöri og snerpu og jafnan áður
fyrr. En það er ekki um að vil'l-
ast ,kirkjubækurnar verða naum
ast vefengdar.
Páll Kolka varð ungur að aldri,
mýkominn frá prófborðinu haust
ið 1920, starfandi læknir í Vest-
mannaeyjum. Þá var þar vaxandi
bær eins og nú mikill fólksfjöldi
saman komin um vertíðir. Þar
var því ærið að starfa fyrir tvo
lækna. Um þær mundir var
Halldór Gunnlaugsson héraðs-
læknir þar, kunnur læknir, sér-
6taklega annálaður skurðlæknir,
og gott skáld bæði á gaman og
alvöru.
Páll Kolka gat sér fljótt orð
sem læknir og hlaut almennar
vinsældir í Vestmannaeyjum,
enda var maðurinn glæsilegur
og læknislegur fullur af fjöri og
andríki. Hann hafði ekki dvalið
lengi í Eyjum, er hann tók sig
upp til þess að öðlast meiri
Ikunnáttu. Hélt hann til Banda-
ríkjanna otg dvaldist þar frá
hausti 1922 til vors 1923, og starf-
aði á sjúkrahúsum í New York.
Lagði hann einfcum stund á hand-
lækningar og vann um skeið í
miklu sjúkrahúsi þar í borg að
skurðaraðgerðum annan hvern
dag á eigin spýtur. Öðlaðist
ihann þar mikinn lærdóm í þeirri
grein, enda átti hann eftir að
geta sér góðan orðstír fyrir hand-
læknisaðgerðir sínar.
Skömmu eftir að hann kom
heim setti hann upp ljóslæfcn-
inigastofnun í eigin húsakynnum
og rak hana um margra ára skeið
með góðum árangri í baráttu
sinni gegn berklaveikinni.
Árið 1930 var Kolka ráðinn
læknir við sjúkrahús Vestmanna-
eyja og gegndi hann því starfi
þangað til hann var skipaður
héraðslæknir í Blönduósshéraði
árið 1934. Svo miklar voru vin-
sældir Páls Kolka í Vest-
mannaeyjum, að nær 1100 manns
skoruðu á bæjarstjórn Vest-
mannaeyjum að sjá ráð til þess
að Kolka flyttist ekki burtu, og
þökkuðu honum jafnframt störf
hans sem læknis í Eyjum.
Þó Pál-1 Kolka hefði ærið að
starfa við lækningar og það svo,
að nægt hefði hverjum meðal-
manni, lét hann siig margt ann-
að skipta. Starfsorkan var mikil
og er enn, enda hefur maðurinn
ekki verði einhamur.
Fljótlega eftir að hann kom
til Eyja fór hann í atvinnurekst-
ur í félagi við nokkra mann.
Ráku þeir fiskverzlun og fisk-
verkun og byggðu á þeim árum
fyrsta fullkomna fiskþurrkunar-
húsið í Eyjum. Var þetta blóm-
legur rekstur um tíma, en þá skall
heimskreppan yfir og lamaði at-
vinnureksturinn. Aðrir tóku við
fiskþurrkunarhúsinu og kom það
um skeið í mjog góðar þarfir.
Páll Kolka hefur jafnan verið
mikill áhugamaður um heimsmál
og landsmál, og iðulega tekið rík-
an þátt í hinni pólitísku baráttu.
Skömmu eftir að hann kom til
Eyja urðu þar mikil átök í póli-
tíkinni. Gerðist hann þá um
skeið (1923—1924) ritstjóri blaðs
flokksmanna sinna. Skrifaði
hann það að miklu leyti einsam-
all meðan harðasta hríðin stóð,
enda vel ritfær og rökhygginn.
Kolka hefur ætíð verið mikill
bardagamaður og verið ótrauður
að berjast fyrir áhugamálum sín-
um og aldrei látið sér erfiðleika
vaxa í augum. Hann skrifaði
jafnan mikið í Eyjablöðin um
áhugamál sín, en hann hefur
alltaf látið sér allt mannlegt
F armall
F Y R I R
V I Ð
ALLRA HÆFI
FARMALL kostlr t. d.
A Vönduð aukatæki
A Fullkomið beizli
A Mismunadrifslás
A Vönduð stjórntæki
Óháð vökvalyfta sem
hentar yður
if Góð varahlutaþjónusta
Hvort sem þér eruð með 10 eða
200 ha. ræktaða — getið þér
fengið FARMALX. draga, sem
hentar yður.
Kaupfélögin um allt land veita upplýsingar.
Vér erum ávallt reiðubúnar að aðstoða yður við val
á búvélum.
S. í. S. VÉLADEILD
Ármúla 3 — Sími 38900.
MTERKATIONAL
HARVKSTC*
viðkomandi, og þegar honum
fannst hann ekki hafa nægileigt
olnbogarúm hóf hann sjálfur
blaðaútgáfu.
Páll Kolka átti sæti í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja á árunum
1926—1934 og sópaði þar að
honum eins og annars staðar.
Hann var forseti bæjarstjórnar
1930—1934. Á þeim árum hófust
kynni okkar, en ég varð bæjar-
stjóri í ársbyrjun 1929. Mér er
minnisstætt hversu gott vit Páll
Kolka hafði á öllum bæjarmál-
um og hve tillögugóður hann var.
Hann starfaði á þessum árum
mikið í bygginganefnd kaupstað-
arins, enda var byggingameistar-
inn ofarlega í hontrm. Á þessum
árum var verið að vinna að því
að koma skipulagi kaupstaðarins
í fastar skorður og voru mörg
ljón á veginum. En ég hygg, að
þau mál hafi fengið farssællega
lausn og átti Kolka mikinn þátt
í því. Páll Kolka var röggsamur
fundarstjóri og reyndi mjög á
það á þessum árum, því bæjar-
stjórnarfundir voru stundum
ærið róstusamir.
Kolka hefur verið afkastamik
ill rithöfundur og skáld, og
furðar mann, hversu miklu hann
hefur komið í verk, en hann
hlýtur að hafa jafnan lagt nótt
með degi. Hann minnir í áhuga
sínum, hugkvæmni o’g gáfna-
fari á hinn ljóngáfaða og fjöl-
hæfa frænda sinn Guðmund
Björnsson landlækni. Páll Kolka
hefur með störfum sínum skip-
að sér á bekk með hinum frægu
Guðmundum, húnvetnsku lækn-
unum þremur Björnssyni, Magn-
ússyni og Hannessyni, svo er
margt lífct með þeim öllum.
Það er alltaf ánægjulegt og
hressandi að eiga viðræður við
Pál Kolka, hann kemur svo víða
við og hefur svo mangt spaklegt
að segja.
Páll Kolka er með málsnjöll-
ustu mönnum og minnist ég frá
fornu fari mangra ágætra ræðna
hans við ýmis tækifæri.
Á þessum tímamótum vil ég
nota tækifærið til þess að óska
honum og konu hans allra heilla
og þakka honum margar
skemmtilegar samverustundir
við spjall um lífið og tilveruna.
ísafirði, 24. janúar
Jóhann Gunnar Ólafsson.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 12
ingar þeirrar skoðunar að ef
hinum fræga Grossteste, bisk-
up af Lincoln, fyrrum prófess-
or við Oxford og leiðandi
stjórnmálamanni, hefði enzt
til þess aldur, hefði hann
kvatt þingið saman í staðinn
fyrir de Montfort.
En þetta varð ekki. Simon
de Montfort beið ósigur og
var dreþinn í orrustunni við
Evesham ári síðar, en þó ekki
fyrr en hann hafði komizt í
slíka aðstöðu að nánasta var
á hann litið sem píslarvott af
þeim, sem börðust fyrir end-
urbótum í Bretlandi, og hann
var dýrkaður sem dýrlingur.
Það var ekki fyrr en öldum
seinna, er þingið hafði vaxið
í það, sem það er í dag, að
farið var að líta á hann sem
föður þess og stofnanda.
Það virðist tilhlýðilegt að
afrekum de Montforts sé hald-
ið á lofti og þeim sungið lof
um ókomnar aldir, um leið og
við búumst til að syrgja mesta
þingmann aldarinnar, sem átti
sæti í Neðri málstofunni nær
1/10 allrar sögu hennar.
(Observer —
öll réttindi áskilin).
LEIÐRÉTTING
MEINLEGAR villur urðu í grein
Jóhanns Hjálmarssonar: Nýjar
sænskar ljcðabækur, sem birtist
í blaðinu í gær.
í fyrsta dálki 26. línu að ofan
stendur: þegar þess er gætt hve
mörg ljóð Aspenström færir okk-
ur. Á að vera: hve mörg góð ljóð
o. s. frv.
í öðrum dálki ofarlega hefur
komið inn skökk lína, en hin
rétta fallið niður. Rétt er setning-
in þannig: Og hver þekkir ekki
sjálfan sig í gerfi mannsins í
stiganum?
Blaðið biður velvirðingar á
þessum mistökum.
Já! Nei! Hvenœr?
Þúsundir kvenna um heim allan nota nú C. D.
Indicator, svissneskt reikningstæki, sem reiknar ná-
kvæmlega út hina fáu frjóu daga í mánuði hverjum.
Læknavísindi 56 landa ráðleggja C. D. Indicator
fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband, jafnt ef barn-
eigna er óskað sem við takmarkanir þeirra. —
Ódýrt — Afar auðvelt í notkun — íslenzkur leiðar-
vísir.
Vinsamlega sendið eftirfarandi afklippu ásamt svar-
merki til C. D. Indicator, Pósthólf 1238, Rvík og
vér sendum yður að kostnaðarlausu allar upplýs-
ingar.
Nafn: .......
Heimilisfang:
(Vinsamlega skrifið með prentstöfum).
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútax
púströr o. fl. varahlutir
margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖDRIN
Laugavegi 168. — Sími 241.30.
AKIÐ
SJÁLF
NÝJUM BlL
Almenna
bifreiðaleigan hf.
Klapparstíg 40. — Simi 13776.
KEFLAVIK
Iiringbraut 106. — Siml 1513.
*
AKRANES
Suðurgala 64. — Sími 1170.
BILALEIGA
í MIÐBÆNUM
Nýir bílar — Hreinir bílar.
V.W. kr. 250,00 á dag.
— kr. 2,70 pr.km.
Sími 20800
LÖND & LEIÐIR
Aðalstræti 8.
LITLA
biireiðuleigan
Ingólfsstræti 11.
VW 1500 - Volkswagen 1200
Sími 14970
,—-—>BILAl£fGJUÍ
ER ELZTA
REYNDASTA
OC ÓDÝRASTA
bílaleigan í Reykjavík.
Sími 22-0-22
ö
BILALEICAN BILLINN
RENT-AN - ICECAR
SÍMI 18 833
o
BILALEIGAN BILLINN
RENT-AN - ICECAR
SÍMI 18833
o
BILALEIGAN BILLINN
RENT-AN - ICECAR
SÍMI 18 83 3
3
bílaleiga
magnúsai
skipholti 21
CONSUL sjrni evvgo
CORTINA
Hópferdabilar
allar stærðir
Simi 32716 og 34307.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Grundarstíg 2 A
Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla
virka daga, nema laugardaga.