Morgunblaðið - 30.01.1965, Page 23
Laugardagur 30. janúar 1965
MORGUNBLAÐIÐ
23
Maxwell Taylor, sendiherra, og Khanh, hershöíSingi.
hina nýju leiðtx>ga. Afstaða
búddista til Bandarikjjnna og
fyrri stjórnar var að mestu
orsök uppstokkunar þeirrar,
sem átt hefur sér stað á
æðstu stoðum í landinu.
Pilturinn, sem í dag var
tekinn af íífi, var tvítugur.
Hoouum var gefið að sök að
hafa haft á sér handsprengj-
ur skammt frá aðalstöðvum
Búddatrúarmanna í Saigon.
Hann var bundinn við staur á
torginu áður en hann var skot
inn.
Khanh hershöfðingi hefur
fengið fullt umboð annara
hershöfðingja hersins til að
finna lausn á stjórnmálaöng-
þveitinu í landinu. Eitt af
fyrstu verkum Khanhs var
að útnefna Oanh forsætis-
ráðherra, en hann er Búdda-
trúarmaður.
í borginni Hué, norðan Saig
on, lýstu leiðtogar Búddatrú-
Stjórnin, sem féll í
morgun, situr í kvöld
— En skipt um forsætasráH-
herra þó — Aftaka á aðal-
torgi Saigon
Saigon 29. jan. — NTB
HINIB nýju valdhafar i
S-Viet Nam hafa náð föstum
tökum á höfuðborginni Saig-
on, og munu hyggjast halda
þeim. f morgun var ungur
maður, sem sakaður var um
skemmdarverkastarfsemi, tek
inn af lifi á aðaltorgi borgar-
innar. Aftaka þessi mun hafa
átt að vera alvarleg aðvörun
um að nýjar óeirðir í borg-
inni verði e-kki þolaðar. Tbrg
ið var umkringt hermönnum
og stríðsvögnum, er aftakan
fór fram, til að hindra að til
frekari óeirða kæmi vegna
hennar.
t gær tilkynnti Nguyen
Khanh, hershöfðiugi, að her-
inn í S-Viet Nam hefði á-
kveðið að fela sömu rikis-
stjóm og hann steypti af stóli
sama dag, skyldi fara áfram
rr.-ð völd í iandinu, þó með
þeirri breytingu að Tran Van
Huong, forsætisráðherra var
að sjálfsögðu vikið frá, en í
hans stað skipaður dr. Nguy-
en Xuan Oanh, er átti sæti í
ráðuneyti Huongs og gegndi
forsætisráðherraembætti í
eina viku í haust. Hann er 45
ára gamall hagfræðingur og
hefur að mestu dvalið erlend-
is sjl. 17 ár, mest í Banda-
ríkjunum þar sem hann
kenndi við Trinity-háskólann.
Leiðtogar kaþóLskra í S-
Viet Nam eru andvígir hinni
nýju stjórn, en hinsvegar bíða
búddistar átekta, tál að sjá
hverju fram vindur varðandi
armanna meðal stúdenta því
yfir, að búddistar ættu að
halda áfram verkfölluim sín-
um og mótmædaaðgerðum.
Stúdentamir lýstu því yfir að
þeir myndu halda áfram bar-
átfcu sinni þar til Huong-
stjórnin hafi verið gjörsam-
lega þurricuð út, og Maxwell
Taylor, sendiherra Banda-
ríkjanna, hafi farið af landi
brofct. Saka þeir stjórn Hu-
ongs um a'ð hafa stundað trú-
arbraigðaofsóknir og Taylor
um að hafa stutt þær.
í kvöld ræddi Khanh hers-
höfðingi við Maxweli Tayl-
or, sendiherra, í fyrsta sinn í
meira en mánuð. Greindi hers
höfðinginn sendiherranum frá
byltingu nersins s.l. miðviku
dag og því næst ræddi Khanh
við Thieh Tri Quang, helzta
leiðtoga Búddatrúarmanna.
Taiið er að ástandið í S-
Viet Nam sé enn mjög ó-
tryggt og kaþólskir menn
telja að til alvarlagra trúar-
legra árekstra kunni að ktoma.
— Erill
Framhald af bls. 1
í feferúar eða í marzbyrjun og
de Gaulle lét í það skína að hon-
um yrði hið feezta tekið þar. Á 50
minútna fundi þeirra tókst því
að gangia frá því, sem fulltrúar
beggja stjórnmálamanna hafa
árangurslitið reynt að koma um
kring siðustu vikurnar. — Ýmsir
segja, að öðrum þræði virðist í
London vera haldinn óopinber
(oppfundur ýmissa aðila úr þvi
þeir voru þar komnir vegna út-
farar Churchills.
Arthur Bottomley, samveldis-
málaráðherra, átti 10 mínútna
viðræður ið Ian Smith, forsætis-
ráðherra Rhódesíu.
Jens Otto Kragh, forsætisráð-
iherra Dana, átti langan iðræðu-
fund með Wilson. Snerust við-
ræður þeirra um efnahags- og
viðskiptamál innan EFTA Hermt
er að Kragh hafi viljað fá
vitneskju um hvenær Bretar
Ihygðust afnema 15% innflutn-
tngstollinn, en hann hafi ekki
©rðið mikils vísari.
Michael Stewart, hinn nýi utan
rikisráðherra Breta, sem tók við
embætti Gordon-Waikers er sá
síðarnefndi féll í aukakosningum
í fyrri viku, snæddi í dag með
I>ean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Rusk gekk einnig
á fund Harold Wilsons í dag og
ræddi við hann í 35 mínútur.
' Fulltrúar samveldislandanna
voru í dag á þönum til og frá
skrifstofu Wilsons í Downing
Streél; 10, Þar komu til stuttra
viðræðna Robert Menzies, for-
sætisráðherra Ástralíu, og Keith
Holyoake, forsætisráðherra Nýja
Sjálanda.
A 19. öld, og jafnvel fyrr, brá
oft svo við, að útfarir merkra
manna urðu vettvangur mikilla
atburða í samskiptum ríkja. Leið
togar þjóða komu þar saman, í
orði kveðnu tii að syrgja, en í
raun og veru til að bera saman
bækur sínar í fylistu alvöru á
þann hátt, að það kostaði hvor-
ugan aðilanna óvirðingu. Þann-
ig gátu menn hitzt án þess að
ótti um ráðabrugg væri undir
niðri.
En tímarnir hafa breytzt. Ut-
anríkisráðherrar nútímans eru
fangar ráðgjafa sinna. Hin flókna
vél utanríkissamskiptanna gerir
einum manni það oft ómögulegt
að vinna á eigin spýtur mikil
afrek á því sviði. Á dögum sjón-
varps og örrar fréttamiðlunar
geta embættismenn vart lengur
treyst fullkonilega á algjöra
leynd.
Bretar hafa því haft mikið fyr-
ir því að láta svo líta út að til
alvarlegra og ítarlegra funda-
halda eigi ekki að koma með
þeim fjölda háttsettra embættis-
manna, sem nú gista London til
að fylgja ChurchiII síðasta spöl-
inn. En hinsvegar er ljóst, að
hinir fjölmörgu fundir, sem þeg-
ar hafa átt sér stað, og munu
enn eiga sér stað, muni ekki
verða árangurslausir.
Alls hefur 113 löndum verið
boðið að senda fuiltrúa til
London til að vera viðstaddir út-
för Churchills. í kvöld höfðu 111
lönd boðað komu fulltrúa sinna
eða höfðu þegar sent þá, en eina
neikvæða svarið kom frá Kína.
Konungborið fólk, sem við at-
höfnina á morgun verður, býr í
Buckinghamhöll í boði Breta-
drottningar.
— Stofnlánadeild
Framhald af bls. 1
stjórnarnefnd. Að öðru leyti er
umsjón og starfsemi lánaflokk-
anna í höndum Stofnlánadeildar
sjávarútvegsins, sem er deild- í
Seðlabankanum.
Tilgangur hinna nýju Iána-
flokka Stofnlánadeildarinnar er
að stuðla að aukinni framleiðslu
og framleiðni í fiskiðriaði og
skyldri starfsemi. Er með þessari
nýju lánastarfsemi reynt að bæta
úr brýntti þörf fyriir aukin lán tii
fiskiðnáðar og fiskvinnslu. Er
það einnig ætlun þeirra þriggja
banka, sem að lánaflokkunum
standa, að vinna að betiri undir-
búningi og samræmingu útlána
til fiskiðnaðarins íheild, og munu
þeir um það leita samvinnu við
aðra aðila, er stunda lánastajcf-
semi á sama sviði, svo sem Fram-
kvæmdabanka íslands, Atvinnu-
leysistryggingasjóð og Fiskveiða-
sjóð íslands. Nánar mun verða
sagt frá starfsemi Stofnlána-
deildarinnar, þegar hin nýja
stjórnarnefnd hefur tekið til
starfa og mörkuð hefur verið út-
lánastefna deildarinnar, og til-
kynnt um fyrirkomulag iánsum-
sókna og fleira.“
Slys á Selfossi
FIMM ára gömul telpa varð fyrir
bíl á Selfossi laust fyrir kl. 4 í
fyrradag. 2 bílar, áætlunarbifreið
og station-vagn, mættust á Aust-
urvegi. Um leið skauzt telpan út
á götuna fyrir aftan áætlunarbíl-
inn. Lenti hún framan á hinum
bílnum, féll í götuna og varð und-
ir bílnum, milli hjólanna. Telpan
var flutt í sjúkrahúsið, en hún er
ekki talin hafa meiðzt neitt að
ráði.
UM KLUKKAN hálf níu í gær
varð kona nokkur, Svava Árna-
dóttir, Hátúni 27, fyrir bifreið
fyrir utan heimili sitt. Svava var
flutt í Slysavarðstofuna, en
meiðsli hennar virtust smávægi-
leg og fékk hún að fara heim.
— Hugðist fá
Framhald af bls. 24
draga í efa, að réttlætið hér
á landi sé til fyrirmyndar og
saklausir menn hafi hér neitt
að óttast.
— Hvemig varð yður við,
þegar þér heyrðuð skamm-
byssuskotið?
— Ég hef nú aldrei á æfi
minni orðið fyrir slíku áður,
en ég var rólegur. Það voru
annars skrambans háir hvell-
ir. Ég geri ekki ráð fyrir, áð
það hafi verið annað en púður
skot. Veit það þó ekki. Ég
þakka bara fyrir, áð þeir
skyldu ekki nota fallbyssum
ar líka en við því bjóst ég,
satt að segja.
— Voruð þið búnir að vera
lengi á veiðum?
— Við vorum á * heimleið.
Vorum búnir að veiða í 10
daga og fá gúðan afia, aðal-
lega út af Horai. Þegar við
vorum komnir austur fyrir
Grímsey, heyrði ég í brezk-
urn togaraskipstjóra, sem
sagði, að góður fiskur væri
við eyna, en Óðin væri þar
óneitanlega líka. Ég ákvað
samt að snúa við og fá mér
nokkrar bröndur í viðbót, áð-
ur en ég færi heim, en þær
ætla að verða nokkuð dýrar,
ef ég þarf áð liggja hér lengi.
— Eruð þér bjartsýnn á
úrslit málsins?
— Já, því ekki það.
I því brá Richard Tavlor
upp derhúfunni sinni og gekk
hægum og föstum skrefum til
dyra, en tvírætt bros lék um
varir hans. — Sv. P.
— Jarlinn
Framhald af bls. 24
dimmt sé orðið.
Morgunblaðið átti í geet
samtal við Gunnar Halldórs-
son, forstjóra Jarlsins h.f.
Gunnar kvað ljósavél skipsins
hafa bilað á leið frá Svíþjóð
til Kaupmannahafnar og hefði
aðeins átt að gera við vélina
í Höfn og taka olíu og vistir.
Viðgerðin hefði gengið seint,
þar sem fá hefði þurft vara-
hluti frá Englandi og gera
einnig við kýrauga og spil
skipsins. Eftir það átti að
halda til Gravarna og taka
tunnufarm til íslands.
Gunnar sagði, að vistir
hefðu þegar farið um borð í
Jarlinn í Kaupmannahöfn og
auk þess hefðu skipverjar
tekið út úr tolli það áfengi,
sem tilskilið er að megi taka
út úr landinu. Hins vegar
kvaðst Gunnar hafa lagt bánn
við því að skipverjum • væru
afhentir peningar, þar sem
kvartanir hefðu borizt frá
umboðsmönnum Jarlsins í
öðrum höfnum, einkum í
Grikklandi, vegna ölvunar og
illrar hegðunar þar. Gunnar
sagði, að skipverja hefði ekki
átt að vanhaga um neitt, þar
sem nóg hefði verið um mat
um borð.
f gærdag kvaðst Gunnar
hafa átt símtal við Hallgrím
Thomsen, lögfræðing í Kaup-
mannahöfn, sem fenginn hefði
verið sem dómtúlkur við
réttarrannsóknina. Hafði hann
eftir Hallgrími að 10 tollverð-
ir hefðu gert mjög umfangs-
mikLa leit í Jarlinum og hefði
henni verið hætt í gær eftir
að flöskurnar voru orðnar
600 talsins. Hallgrímur hefði
sagt, að málið yrði tekið fyr-
ir 3. febrúar og að því er virð-
ist, mætti reikna með áð 3
mannanoa hlytu fangelsis-
dóm, ef þeir reyndust satmir
að sök.
*
Astæður til þess að
Humphrey mætir ekki?
Washington 29. jan. — AP
MENN hafa mjög veit því
fyrir sér hverjar hafi veriff
ástæffur til þess aff Johnson
forseti hafi ekki sent Hubert
Humphrey, varaforseta, tii
London til þess aff vera viff-
staddan útför Sir Winston
Churchills. Betty Beale, sem
aff jafnaði ritar í Washington-
blaffið Evening Star, gaf í dag
eftirfarandi skýringar á mái-
inu:
„Samkvæmt orðrómi, sem á
sveimi er, hafði Johnson for-
seti gildar ástæður til þess
að senda Humphrey ekki,
þrátt fyrir að pkkert í heilsu-
fari hins síðarnefnda né starf
hans hefði hindrað það.
„Sagan segir að forsetinn,
sem sjálfur hefur nokkra
reynslu af því að gegna
embætti varaforseta, vildi
ekki setja Humphrey í þá
aðstöðu í fyrstu ferð sinni er-
lendis sem varaforseti, að
honum yrði eklci sýnd fyllsta
virðing. Það er eitt að utan-
ríldsráðherra okkar sé skipað
á bekk með öðrum utanríkis-
ráðherrum, en það ér allt ann-
að ef varaforseti okkar yrði
að tign lægra settur í virð-
ingastiganum en æðstu sendi-
menn annarra ríkja, sem
senda forsætisráðherra, jafn-
vel forseta. Þar sem Hump-
Hubert Humphrey
hrey er hvorki æðsti embættis
maður ríkisstjórnar eða ríkis,
mynd hann hafa lent aftur
í virðingastiganum en for-
sætisráðherra hvaða smáríkis
sem væri, eða svo segir orð-
rómurinn.
„Það hefur einnig verið
sagt, að Bretar hafi mótmælt
því að siðaskrá drottningar
skyldi gilda í þetta sinn, en
þá hafi allt verið um seinan,
því búið var að tilkynna
hverjir skipuðu sendinefnd
Bandaríkj anna. “