Morgunblaðið - 12.02.1965, Síða 24

Morgunblaðið - 12.02.1965, Síða 24
24 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 12. febrúar 1965 Victoria Holt Höfðingjasetrið Það var þangað, sem Johnny hafði farið með mig, danskvöld- ið. Þama var einhver rakur og þungur þefur, sem var í senn viðbjóðslegur og aðlaðandi — þefur fortíðarinnar. í þessum þröngu klefum höfðu meyjarnar sjö hafzt við. Fætur þeirra höfðu troðið þessa sömu steinganga og hendur þeirra höfðu gripið kað- alinn þegar þær bröltu upp stein- þrepin bröttu. Ég var farin að elska húsið, svo að mér leið nú hreint ekki svo illa, þrátt fyrir ýmsar smá- vægilegar auðmýkingar. Ég hafði fengið æðra sæti i matsal þjónustufólksins, fyrir at- beina Haggetys bryta og það var nú kannski ekki svo undarlegt, því að þó ég væri ekki eins fín- gerð og Mellyora eða frú Judith, þá vakti ég fljótar eftirtekt en þær, og þessu hafði Haggety tekið eftir og því setti mig í sætið næst sjálfum sér, og það vissi ég, að frú Rolt líkaði ekki, og hafði enda sjálf heyrt hana láta það í ljós. — Æ, vertu ekki að því arna, góða mín, sagði hann. — Hún er þó alltaf þerna frúarinnar, eins og þú ættir að vita. Og æði miklu öðruvísi en þær, sem þú hefur yfir að segja. — Og hvaðan er hún, ef ég mætti spyrja? — Hún getur ekki að því gert. Það er meira um vert, hvað hún er nú, og við verðum að taka til- lit til þess. Hvað hún er nú! hugsaði ég með sjálfri mér og strauk hönd- unum niður eftir mjöðmunum. Með degi hverjum undi ég hlut- skipti minu betur. Auðmýking- ar , . . jú, að vísu, en samt yrði nú meira spennandi að vera í Klaustrinu en nokkrum stað öðrum. Og þar var ég nú. - Þegar ég sat við matborðið, fékk ég tækifæri til að athuga þetta fólk, sem þarna bjó í neðri byggðunum. Hr. Haggety sat við endann á borðinu, með litlu grís- augun sín og varir, sem urðu slappar, ef hann sá lostætan mat eða laglegan kvenmann — hann var sá æðsti í þessu hreiðri, enda bryti í Klaustrinu. Næst að tign kom frú Rolt, ráðskonan, síðan frú Salt, eldabuskan og dóttir hennar, Jane Salt, sem var stofu- stúlka og loks Doll og Daisy sem hjálpuðu í stofu og eldhúsi. Allt þetta lið átti heima í hús- inu, en svo var aðkomulið, sem borðaði þarna, Polore og kona hans og Willy sonur þeirra, sem hugsuðu um hestana, en frú Polore var í þvottum. Það var því enginn smáræðis hópUr, sem sat kring um stóra matborðið að máltíðum, eftir að fjölskyldan hafði lokið við- að borða, og þegar allir lögðu sig til, var fátt ókunnugt þarna, sem gerðist í húsinu eða þorpinu. 14 Það var þarna í matsalnum, sem ég komst að því, að Johnny Larnston væri í háskólanum sín- um og mundi ekki verða neitt heima um sinn. Það þótti mér vænt um. Fjarvera hans mundi gefa mér tækifæri til að treysta stöðu mína þarna í húsinu. Ég var fljót að komast inn í ganga mála þarna á heimilinu. Húsmóðir mín var engan veginn neitt slæm við mig, og mér fund ust störf mín ekkert erfið. Ég átti oft miklar frístundir. En Mellyora átti ekki eins náðuga daga. Frú Larnston hafði einsett sér að gjörnýta vinnu- kraft hennar. Hún varð að lesa fyrir hana klukkustundum sam- an á hverjum degi, hita henni te hvað eftir annað á nóttunni, nudda á henni höfuðið, þegar hún hafði höfuðverk, sjá um bréfaskriftir fyrir hana, fara með henni þegar hún ók út í heim- sóknir. Yfirleitt mátti hún sjald- an um frjálst höfuð strjúka. Áður en fyrsta vikan var liðin, ákvað frúin, að Mellyora, sem áður hafði hjúkrað föður sínum, gæti orðið að liði við að hjúkra Sir Justin, sem var lamaður. Hún varð því að vera hjá sjúklingn- um alla þá stund, sem frúin þurfti ekki sjálf á henni að halda. — Hvernig geturðu þolað þetta, Mellyora, sagði ég við hana einn daginn. Við vorum í herberginu henn- ar og ég hvíldi mig á rúminu en hún sat í stól, og var að gera við kvöldkjól fyrir frúna. — Hvernig getur þú þolað það spurði hún á móti. — Það er allt annað. Ég er ekki svo góðu vön. Og auk þess hef ég ekki eins mikið að gera og þú. — Það sem verður að vera, viljugur skal hver bera, sagði hún. •• Ég leit á hana og furðaði mig á því, að hún, dóttirin á prest- setrinu, sem hafði ráðið sér al- farið sjálf og verið eftirlætis- barn, gæti svona auðveldlega vanizt þessum þrældómi. Melly- ora er eins og dýrlingarnir, hugsaði ég. — Hvað ertu að hugsa um, þegar gamla konan er að þveita þér til og frá sagði ég. — Ég reyni að hugsa um ekki neitt og kæra mig kollóttan. — Ég held ég gæti aldrei leynt tilfinningum mínum eins og þú getur, sagði ég. Ég hef verið heppin. Judith er alls ekki sem verst. — Judith .... sagði Mellyora. — Jæja, ef þú vilt heldur hafa það frú Larnston. Hún er ein- kennileg manneskja. Það er eins og hún sé alltaf í taugaæsingi, rétt eins og lífið væri afskaplega sorglegt . . . rétt eins og hún sé hrædd. . . . — Justin er ekki hamingju- samur með henni, sagði Melly- ora hóglega. — Ætli hann sé ekki eins ham ingjusamur og hann gæti verið með nokkurri annarri sagði ég. — Hvað veizt þú um það? — Ég veit bara, að hann er kaldur eins og fiskur og konan hans er það gagnstæða. — Þú ert að bulla, Kerensa. — Er það nú? Ég sé meira til þeirra en þú gerir. Mundu, að herbergið mitt er við hliðina á þeirra herbergi. — Rífast þau? — Hann færi aldrei að rífast. Til þess er hann of kaldur. Hann kærir sig hvorki um eitt né ann- að og hún kærir sig . . . of mikið. Ég kann ekkert illa við hana. En úr því að honum er alveg sama um hana, hversvegna fór hann þá að giftast henni. Var það bara peningarnir? — Hættu þessu. Þú veizt ekkert hvað þú ert að rugla. Justin er góður maður, en þú skilur hann bara ekki. . . . Hurðinni á herbergi Mellyoru var snögglega hrundið upp og Judith stóð á þröskuldinum og augnaráðið var æðisgengið. Hún leit á mig og Mellyoru, sem hafði þotið upp af stólnum. — ... fyrirgefið þig, sagði Blaðburðarfólk óskast til blaðburðar í eftirtalin hverfi T|amarg;Ötu Lindar&ötu Sími 22-4-80 — Þér megið gjarnan gera hreint hér frú ef þér snertið ekki skjölin min. hún. — Ég bjóst ekki við. . . — Þurfið þér á mér að halda, frú? sagði ég og steig fram úr rúminu. Ofsinn var horfinn úr augna- ráði konunnar og ég sá, að henni létti mjög. — Já, Carlee. .. Ég ætla að biðja yður að koma ofur- lítið fyrr í kvöld. . . Fimm til tíu mínútur fyrir sjö. — Já, frú. Hún kinkaði kolli og gekk út. Mellyora leit á mig steinhissa. — Hvað meinar hún með þessu? hvíslaði hún. — Ég hugsa, að ég viti það, svaraði ég. — Og hún varð hissa, fannst þér ekki? Veiztu hvers vegna. Það var af því að hún fann mig hérna, en bjóst við að finna. . . . — Hvern? — Justin. Mellyora starði á mig, alveg dolfallin. — Áttu við, að hún sé hrædd um Justin fyrir mér. — Hún er afbrýðissöm gagn- vart hverri laglegri kvenpersónu, sem hún kemur auga á. — Það er hreint brjálæði. Þetta er hlægileg vitleysa. Hún sneri sér við og hleypti brúnum. En Mellyora gat ekki dulið mig sannleikanum, frekar en hún hafði sýnilega getað dulið hann fyrir Judith, sem var svo yfir sig tilfinninganæm. Hún var ást- fangin af Justin Larnston, og hafði alltaf verið. Ég var mjög óróleg. 4. kafli. Þegar við Mellyora vorum setztar að í Klaustrinu, skrifaði ég Davíð Killigrew, eins og ég hafði lofað, sagði honum frá því sem gerzt hafði og hvað við hefð- umst að, og hver staða okkar þarna væri. Hann svaraði um hæl. Bréfið hans var alveg eins og hann væri þarna sjálfur kominn — rólegt, nærgætið, hógvært — allt þetta, sem ég var ekki sjálf. Hann vottaði samúð sína, því að hann vissi vel, hvað við áttum erfitt. En hitt vissi hann ekki, að aðalatriðið fyrir mér var bara það að fá að vera þarna, hver sem svo staða mín þar væri. KALLI KUREKI Teiknari: J. MORA KID, X'M 50RHYI BUMPEDYAÍ X WASM'T LOOKIN’f YA CAN'T ceAWL OUTOF ITf > NOSODY PUSHES OWE-SHOT SCHLASSL OFF TH’WALKf ) I HOLSTERED MY HOGLE&* YOU1.L GETA’EVEN BREMif HAULYOURS AM’ 6-IT ’ER A-SMOKINY y „Taktu byssuna úr hulstrinu." „Hættu þessu. Hvað gengur að þér?“ „Heyrðu vinur, mér þykir leiðinlegt að ég skyldi rekast svona harkalega á þig en ég horfði bara ekki í kring- um mig.“ „Þú sleppur ekki svo auð- veldlega frá þessu. Það mun enginn komaa. upp með að hrinda Schagel skotspara úr vegi“ „Ég hulstra byssuna mína. Lyftu þinni og fáðu hana til að rjúka. Þetta skal verða jafn leikur.“ Hann skrifaði, að hann þættist viss um, að ég mundi sigrast á hvaða erfiðleikum, sem lífið hefði að bjóða, af því að ég hefði nægilegt hugrekki til þess. Það v.ar ekki nema satt, að hann sá bara ekki annað en góðu hlið- arnar á mér. Hann sá þessa vilja- festu, sem hann hafði kallað „hugrekki", en hann vissi ekki um þrákelknislegt stolt mitt. En bréfið hans huggaði mig. Þegar svona stóð á, var gott að vita sig tignaða og elskaða. Mellyora hafði líka fengið bréf frá honum. Hún las mér það og skildi, að Davíð hafði meiri áhyggjur af henni en mér. Þá hlaut hann að þekkja mig vel, úr því hann vissi, að ég var fullfær um að sjá um mig sjálf. — Hann er góður maður, sagði Mellyora, og mér fannst það leitt, að þetta skyldi ekki vera allt öðruvísi en það var. Vinnu- fólkið hafði haft á réttu að standa. Davíð Killigrew hefði orðið ágætis maður handa Melly- oru. Við urðum nú fljótlega hag- vanar þarna í Klaustrinu. Sem þerna hjá Judith Larnston hafði ég ekki allt of mikið annríki og fékk oft^ tóm til að heimsækja ömmu. I einni slíkri heimsókn spurði hún mig, hvort ég gæti tekið fyrir sig nokkrar jurtir til Hetty Pengaster, í bakaleiðinni. Þegar ég kom inn í húsagarð- inn hjá Pengaster, kom Reuben, bróðir Hetty, fyrir hornið á dúfnahúsinu og hélt á fugli í höndunum. Ég hafði alltaf verið dálítið hrædd við Reuben Pengaster. Hann var ekki alveg almenni- legur í höfðinu. Við fyrstu sýn var ekkert sérlegt athugavert við hann — en það var kjálka- svipurinn og slöppu varirnar, sem bentu til þess, að hann væri eitthvað ringlaður. Carðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, sínai 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunblaðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- landi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Eyjaf jörð og víðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.