Morgunblaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 28
D KELVINATOR KÆLISKAPAR Júkls LAUGAVEGI E LE KTROLUX UMBOÐIÐ Í.AUOAVEGI 4* sTmÍ 21800 Uppselt á 15 mín.i í GÆR kl. 2 var tekið að selja aðgöngumiða á leiksýningu þá í Iðnó á laugardagskvöld, sem helguð er 40 ára leikafmæli Brynjólfs Jóhannessonar. Mið- j arnir seldust upp á stundar- fjórðungi. Sýnt verður Ie^ik- ritið „Hart í bak“ eftir Jökul Jakobsson, sem slegið hefur öll met í aðsókn, og hefjast nú sýningar á því að nýju hjá Leikfélaginu. 258 tonn Tveir nýir 250 t. bcáfcar lcomnir VON VAR á tveimur nýjum 250 tonna fiskibátum til íslands í nótt er leið. Annar þeirra er Þorsteinn RE 303, eign Leifs h.f. smíðaður í Austur-Þýzkalandi. Aðaleigend- ur Leifs h.f. eru Guðbjörn Þor- steinsson, sem nú situr á skóla- bekk ásamt nokkrum öðrum afla kóngum, en hyggst síðar vera skipstjóri á bátnum og Gunnar Friðriksson. Skipstjóri á Þor- steini 1 vetur mun verða hinn frægi aflamaður Eggert Gíslason og sigldi hann bátnum til lands- ins. Akranesi, 25. febrúar: — SIGURBORG, hinn nýi 250 tonna bátur Þráins Sigurðssonar og Þórðar Guðjónssonar, er vænt- Bjorg fellu a bæinn Lamba fell í Austur-Eyjafjallahreppi sl. mánudagsmorgun. Hið I stærsta lenti þó ekki á bæjar- | húsunum, en það munaði litlu , eins og myndin sýnir. Björg lentu á fjósinu, skúr og bíl á I hlaðinu og ollu stórtjóni. Sjá | viðtal við bóndann, svo og , fleiri myndir, á bls. 12. Ljósm.: Markús Jónsson. anlegur hingað til Akraness skömmu eftir miðnætti. Skip- stjóri er Þórður Guðjónsson. Þetta er stálbátur, smíðaður í Scheveningen í Hollandi og bú- inn 630 hestafla Kromhut-vél. sem róa með þorskanet, fengu mjög góðan afla í fyrradag. ______ Sextán bátar lögðu í fyrrinótt upp í Reykjavik tæplega 258 tonn. Hæstir voru Björgúlfur með 34,5 tonn og Hannes lóðs með 33,2. Aflinn var annars mjög misjafn og fengu flestir frá 6 og upp í 15 tonn. INIýtt radartæki I Óðin — muri auka nákvæmnina SÍÐASTLIÐNA tvo daga hefur verið unnið að því að koma fyrir um borð í varðskipinu Óðni við- bót við Kelvin-Hughes-radartæki skipsins. Er þetta sérstök gerð radartækis, sem nýlega er tekið að nota í skip. Verða eftir viðbót þessa 3 radarskífur í Óðni í stað tveggja áður og mun þetta auka nákvæmni staðarákvarðana, sem gerðar eru um borð í varðskip- inu. Viðbótartækinu við radarinn var komið fyrir í kortaklefa Óð- ins í gær, en það verður ekki tengt við skerminn og tekið í notkun, fyrr en eftir að skipið kemur úr næstu ferð sinni. Tækið er svo stórt, að það komst ekki inn um dyrnar, heldur varð að rjúfa gat á hliðina á brúnni. 40 þús. tunnur af loðnu Frá Aðþingi: Stórauknar aðgeróir í hús- næðismálum Akranesi 25. febrúar. FJÖRUTÍU þúsund tunnum af loðnu hefur Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjan tekið á móti síðan hrotan hófst. Unnið er þar nótt og dag. Á 4. þúsund tunnum hefur þegar verið ekið í haug vestur á Bræðrapartstún. I 40 þús. tunnunum eru innifaldar 6.400 tunnur, sem bátarnir fengu I gær. Aflahæstur í gær var Höfrungur III. með 2.500 tunnur, þá Óskar Halldórsson 2.100 og Haraldur 1.800. Ekkert lát er á loðnunni, segja kunnugir. Á þorskanetaveiðunum var Sigurvon aflahæst með 32,5 tonn í gær, en afli bátanna var mjög misjafn, stiglækkandi allt niður í 4 tonn. í dag fengu 4 bátar héðan 6.350 tunnur af loðnu. Höfrungur III. var hæstur með 2.250 tunnur, Óskar Halldórsson 1.900, Har- aldur 1.800 og Heimaskagi, sem byrjaði í dag, 400 tunnur. t UMRÆÐUM í Efri deild Al- þingis í gær, upplýsti Þorvaldur I Garðar Kristjánsson, a3 veiga- I miklar aðgerðir væru eftir og senn vaentanlegar af þeim heild- araðgerðum ,sem hafnar voru á sl. ári í því skyni að auðvelda fólki íbúðabyggingar. Meðai þess má nefna frumvarp, sem lagt verði fyrir þetta þing, um 40 millj. kr. óafturkræft framlag frá ríkinu til byggingarsjóðs rík- isins, að komið verði á fót nýju kerfi ibúðarlána fyrir lífeyris- sjóða, þannig að útlánastarfsemi þeirra verði færð til samræmis við þær reglur, sem g'ilda um lán húsnæðismálastjórnar og að rikisframlag til atvinnuleysis- trygingasjóðs gangi árlega til kaupa á ibúðalánsbréfum hús- næðismálastjórnar til þess að efla veðlánakerfið, en þessi tekjustofn gefur um 40 millj- kr. á ári. Ekki ástæða til f rekari að- gerða vegna inf lúenzunnar Framh. á bls. 8 Mísstu net undir ísinn Rætt við dr. Jón Sigurðs' son, borgarlækni í VIÐTALI við Mbl. i gær sagði dr. Jón Sigurðsson borg arlæknir, að ekki væri ráð- gert að gera neinar opinber- ax ráðstafanir hér á landi vegna A2 inflúnenzu þeirrar, sem nú geisar á meginlandi Evrópu. Sú inflúenza væri af sama veirustofni og Asíuinflú- enzan svonefnda, sem borizt Ihefði hingað til lands 1967 og 1963. Þeir, sem þá hefðu tek- ið veikina eða verið bólusett- ir gegn henni, væru í minni Ihættu með að fá A2 inflúenzu en aðrir. Inflúenza þessi væri nú orðin mikið útbreidd í Evrópu og hefði einnig borizt til Bandaríkjanna. Veikin væri meðalþungur faraldur og ekki væri vitað um nein dauðsföll af hennar völdum enn sem komið er. Hefu.j- A2 infiúenzu orðið hér vart, svo vita'ð sé? — Nei, ekki svo vitað sé. 1957 gekk inflúenza hér eins og annars staðar, en hún mun þá hafa farið um allan •heim undir nafninu Asíu-in- fliúenza. Veiran sem henni olii Framhald á bls. 2 Dr. Jón SigurSæon ísafirði, 25. febrúar: — TALSVERT mikið ísrek er nú út af m.vnni ísaf jarðardjúps og hefur valdið erfiðlcikum hjá netabátun um, sem lagt hafa í Djúpál um svokallaðar Eldingar lít af Rit. Svanur frá Súðavik missti í dag tvær trossur undir ísinn, en gat náð annarri. Straumnes frá ísa- firði missti einnig tvær trossur undir ísinn og ís rak yfir netin hjá Gylfa ÍS, en þeir á Gylfa settu út stangalausa belgi í þeirri von að ná netunum, þegar ísinn ræki frá. í dag hefur lagt þokuslæðing frá ísnum inn yfir ísafjarðar- djúp. Ef mikil brögð verða að ísreki má búast við, að netabátarnir verði að hopa af þessum miðum og sækja vestur á Breiðafjörð. -H.T. 5 bátar teknir FIMM togbátar voru teknir og kærðir fyrir veiðar með botn- vörpu innan fiskveiðimark- anna austan við Vestmanna- eyjar í fyrradag. Ægir tók Sævald og færði til Eyja, þar sem réttarhöld hófust fyrir hádegi í gær, en áhöfn TF-SIF, flugvélar Land- helgisgæzlunnar, staðsetti Vest mannaeyjabátana Farsæl, Faxa, Skúla fógeta og Atla. Munu mál þeirra koma fyrir í Reykjavík. I | í 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.