Morgunblaðið - 24.03.1965, Síða 2

Morgunblaðið - 24.03.1965, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 Fyrstui upp d fjallið? Robert Kennedy klífur Kennedy- tindonn í „ÉG HEF aldrei áður klifið sagði Robert Kennedy, „ég hef bara verið í fótbolta og svoleiðis. Og ég er loft- hræddur“. En þrátt fyrir lofthræðsluna og sín 39 ár, ætlar Robert að freista þess í dag, miðvikudag, að verða fyrstur manna til þess að klífa tindinn, sem Kanadastjórn skírði í höfuðið á bróður hans, John F. Kenne- dy, Bandaríkjaforseta, í des- ember í fyrra. Fjallstindur þessi, sem er 4.236 metra hár, er skammt frá landamærum Robert Kennedy. Alaska og Kanada, og hefur ekki áður verið klifinn. Þeir sem leggja á brattann með Robert Kennedy eru svo sem engir aukvisar, heldur reyndir fjallagarpar og fyrir- liðinn sjálfur James W. Whitta ker, sá er varð fyrstur Banda ríkjamanna til þess að klífa Mount Everest. „Þetta verður Kanada ekkert erfitt“, sagði Whitta- J ker, sem er maður mjög hár \ vexti og vörpulegur. „Herra í öldungadeildarþingmaðurinn / getur spássérað þetta í róleg- \ heitum. Við bindum hann á i reipið milii tveggja góðra t manna og þegar við komumst / upp á tindinn verður hann bú i inn að öðlast alla þá reynslu, sem honum kann að vera vant. — Auðvitað geta verið gjár á leiðinni og sitthvað ann að sem tálmað getur förina" bætti fjallagarpurinn við, og ef óveður skeliur á, getum við þurft að dúsa þarna í heila viku, — í allt að 35 stiga frosti" — Robert Kennedy mændi augum upp á risann í Whittaker og leizt augsýnilega / ekki meir en svo á blikuna, en þagði — „en ef allt gengur að óskum komumst við kann- ski upp á tindinn og aftur nið ur samdægurs". „Er þetta ekkert hættu- legt?“ spurði fréttamaður AP. „Nei, enginn vandi“, anzaði Whittaker. „Þeim verður ekki skota- skuld úr þessu lítilræði" bætti annar fjallagairpurinn við, Washburn, sá sem bíða mun í bækistöðinni neðan við tind- inn í um 2.773 metra hæð. „Ég veit ekki hvað segja skal... “, sagði Robert Kenne , dy og leit efablandinn upp til Whittakers. „Hafið þér undirbúið yður eitthvað, herra öldungadeildar þingmaður, æft yður sérstak- lega „Það getur varla heitið“, sagði Kennedy. f „Hvað sagði f jölskyldan við | þessu tiltæki?" í „Elzta barnið mitt sagði i þegar ég fór: „Gæfan fylgi / þér. Ekki veitir þér af-““. J Neitaði að yfirgefa bank- ann í 3 tíma fyrir 30 kr. í GÆR var töluvert um árekstra vegna hálku á götum bæjarins, en engin slys urðu að marki af þeim sökum. Það þótti helzt til tíðinda hjá lögreglunni í gær- kvöldi að sækja varð mann inn í Landsbankann, sem neitaði að fara þaðan út sökum þess að hann vildi ekki greiða kr. 30.00, þrjátíu krónur, af tryggingar- bréfi, sem hann taldi sér enga skyldu til að greiða. Er bankan- um var lokað kl. 3 í gær neitaði hann að fara út, en fór kl. rúm- lega 6 í gærkvöldi í fylgd lög- reglunnar, er næturvörður bank- ans bað um aðstoð hennar. Maðurinn var ódrukkinn og kom eðiilega fram, en taldi hins vegar kröfu bankans um fyrr- greindar 30 kr: óréttmæta. Steypivélin nýja. Hjá henni standa, frá vinstri: Tiercelin, Sigurður Þorláksson, sem vinnur við hana, og Pétur Ólafsson, íorstjóri. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.). Isafold tekur í notkun nýja gerð setjaravéla ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA hefur tekið í notkun nýja setj- aravél, mjög fullkomna, af gerð- inni Monotype. Er hún þannig, að á leturborðinu eru 6 mismun- andi stafróf og við áslátt gatast pappírsstrimill, sem síðan er sett ur í sérstaka steypivél, þar sem hver stafur og hvert tákn er steypt fyrir sig og raðast svo í línur. , Setjaravélar hér á landi eru flestar af gerðinni Linotype, en þær steypa letrið í línur. Hin nýja vél er „stafsetningarvél“ og raðar stöfum og táknum á sama hátt og gert var með handsetn- ingu. Þetta þýðir m.a. að prófarka- lestur verður allur miklu auð- veldari vðfangs, því ekki þarf að setja upp heilar línur þótt stafvilla komi fyrir og fá ef til vill tvær eða fleiri villur í lín- una í stað þeirrar einu sem leið- rétt var. Með þessu fyrirkomu- lagi er ekki leiðrétt á setjara- vélinni heldur er hver stafur sem er rangur tekinn upp og sá rétti settur inn, þar sem umbrot fer fram. Gert er ráð fyrir, að monotype vél af þessari gerð sé þrefalt af- kastameiri en gömlu linusetning arvélarnar. Vélsetjari vinnur við Ieturborðið, sem gatar strimi'- inn og einn maður við steypivél- ina, en hún steypir 200 tákn á mínútu eða um 12 þúsund á klukkustund. ísafold hefur tvær setjaravélar sem gata strimla fyrir steypivél- ina. Önnur er þannig, sð sarntím is getur hún gatað tvo strimla með mismunandi letrum, þannig að ísafold getur t.d. gefið út venjulega skáldsögu með s‘óru letri og í góðu bandi og geymt svo hinn strimilinn, sem samtím is er gataður fyrir smærra letur, og gefið út „pocketbók“ nokkr- um árum síðar án þess að þurfa að kosta setningu til á nýjan leik. Á leturborði setjaravélarirmar eru 272 tákn og er hægt að gata strimlana með mikium hraða, þar sem ekki þarf að bíða eftir því að stafirnir steypist, en steypivélin hefur undan báðum setjaravélunum, enda heldur hún þindarlaust áfram, þarf ekki að skreppa frá eða slappa af eins og mennirnir þurfa í vinnu sinni. Þó kemur hraði, og kostir, þessarar vélar fyrst verulega í ijós, þegar setja þarf flóknar bæk ur, t.d. orðabækur, reikningsbæk ur og hvers kyns töflur, sem eru mjög seinunnin verk. Og þær eru ómetanlegar þar sem ná- kvæmrar setningar þarf við eins og t.d. við handritaútgáíur. Franskur maður, Tiercelin að nafni, hefur annazt uppsetningu vélanna fyrir ísafold, en þær eru framleiddar af ensku fyrirtæki. Pétur Ólafsson, forstjóri, sagðl Mbl., að vélar, sem þessar kost- uðu ca. 2 milljónir króna upp komnar og með tollum. Sagði hann að ísafold ætti 8 Linoíype vélar fyrir og hefði Isafold eign- ast sína fyrstu árið 1916. Það væri skemmtilegt, að nú væri hver stafur steyptur fyrir sig með nýju vélunum og væri það i raun inni sama fyrirkomulag og þegar prentsmiðjan tók til starfa í upp hafi, þótt þá hafi hendur raðað táknunum í stað véla. Þá gat hann þess, að með til- komu vélanna nýju væri hægt að geyma strimlana af þeim bókum, Fram/hald á bls. 23 Jóns Sigurðs- sonar-pening- urinn upp- seldur MINNISPENINGUR um Jón Sigurðsson, sem gcfinn var út til söfnunar fyrir uppbyggingu Hrafnseyrar við Arnarfjörð mun nú vera uppseldur hér í Reykjavík. Ókunnugt er hvort peningurinn mun enn fáanleg- ur hjá bönkum, sparisjóðum og pósthúsum úti á landi, sem höfðu sölu hans með höndum. Mikið hefir verið selt af pen- ingnum erlendis gegnum ís- lenzku sendiráðin og þá eink- 'im í London. Hrafnseyrar.söfn- uninni er ætlað að hafa á þriðju milljón króna tekjur af sölu þessa penings, þegar kostnaður útgáfu hans og sölu hefir verið greiddur. Þessir köldu karlar af Seltjamar nesinu, leikbræðurnir, Kristinn, Stefán og Sigurfinnur, láta það ekki á sig fá þó snjórinn blási og allir kvarti um kulda. Þeir klæð a sig bara í úlpurnar sínar og halda út t veðrið, enda nóg að gera. í GÆR var sama A og NA áttin og undanfarið, með 10 til 15 stiga frosti norðanlands en 5—10 stiga frosti sunnan lands. Ekki langt suður af Reykja- nesi var 5 stiga hiti og snjó- slitringur á suðvesturhorni á mörkum kaida loftsins, sem komið hefur norðan af Jan Mayen-svæðinu og yfir ísland ’ | og mildara lofts, sem að vísu kemur norðan að en hefur l farið yfir sjó suður undir Fær eyjar og svo vestur með suður strönd íslands. Breytingar á | veðurkortinu eru hægfara og 1 hafísinn ætti að haldast hér við norðurströndina svipaður og veríð hetilr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.