Morgunblaðið - 24.03.1965, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.03.1965, Qupperneq 8
8 MORC U N BLAÐIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 1 GÆR voru mörg- mál á dagskrá Neðri deildar, en ekki urðu veru- legar umræður þar. Atkvæða- greiðsla fór þá fram um frum- varp Framsóknarmanna varð- andi vaxtalækkun og fl. og var það fellt, en um þetta frumvarp urðu miklar umræður á sínum tíma. 1 Efri deild voru tvö mál á dagskrá, frumv. til jarðræktar- laga, þar sem Bjartmar Guð- mundsson mælti fyrir breyting- artillögu, og frumv. varðandi réttindi og skyldur ríkisstarfs- manna. NEÐRI DEILD Hreppstjórar Jóhann Hafstein dómsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarpi um hreppstjóra, sem þegar hefur verið rætt í Efri deild. Sagði ráð- herrann m. a., að tilgangur frum- varpsins væri einkum að setja heildarákvæði um störf hrepp- stjóra svo og að lagfæra ákvæði um laun hreppstjóra, en þau hafa dregizt verulega aftur úr á síðustu árum. Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og alls- herjarnefndar. Skipti á dánarbúum Jóhann Hafstein dómsmála- ráðherra mælti einnig fyrir frum varpi um breytingu á lögum um skipti á dánarbúum og félagsbú- um varðandi greiðslur til hrepp- stjóra fyrir gerðir, sem þeir ann- ast fyrir hönd sýslumanns samkv. framangreindum lögum, og er þetta frumvarp £ tengslum við frumvarpið um hreppstjóra. Vaxtalækkun I>á fór fram atkvæðagreiðsla um frumvarp Framsóknarmanna varðandi lækkun vaxta, en um- ræðum um það lauk fyrir nokkru. Var frumvarpið fellt með 19 atkv. gegn 15. Nafnskírteini Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra mælti fyrir frumvarpi um nafnskírteini, sem þegar hef- ur verið rætt í Efri deild og hef- ur verið skýrt ýtarlega frá þessu frumvarpi hér áður. Var frum- varpinu vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar. Landamerki Frumvarp um breytingu á lög- um varðandi kostnað af Landa- merkjamálum var til 1. umræðu og var vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar. Dmiferðnrlög Matthías Bjarnason (S) mælti fyrir áliti alls'herjarnefndar um fnxmvarp um breytingu á um- ferðarlögum, sem flutt er að beiðni umferðarlaganefndar. — Rakti Matthías Bjarnason efni frumvarpsins, sem frá hefur ver- ið skýrt hér áður, en það er fólg- ið annars vegar í breytingu á ákvæðum umferðarlaga í þá átt, að heyrnardauft fólk geti fengið ökuskírteini. Matthías gat þess, að umsagnar landlæknis hefði verið leitað um þetta atriði og væri hann því meðmæltur, að slakað verði á heyrnarkröfum við veitingu ökuréttinda á svip- aðan hátt og gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum, en þar hefur verið gengið svo langt að leyfa jafnvel algerlega heyrnar- SÍM I 24113 Sendibílastöðin Borgartúm 21 Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Grundarstig 2 A Simi 15659. Opin kl. 5—7 alla virka daga, nema, laugardaga. lausu fólki að fá ökuskírteini. Hins vegar er efni frumvarps- ins fólgið í hækkun skyldutrygg- inga allra vélknúinna ökutækja, en hún hefur verið óbreytt í lög- um frá 2. maí 1958 og sagði Matt- hías Bjarnason, að með tilliti til þess að verðgildi peninga hefur breytzt frá því, að þau lög voru sett, þætti eðlilegt að hækka skyldutryggingar ökutækja veru- lega, enda er í frumvarpinu lagt til, að skyldutrygging fyrir bif- reið hækki úr 500 þús. kr. í 2 millj. kr. og væri talið, að ið- gjald á 1. áhættusvæði muni hækka um 10—14%. Sagði Matt- hías Bjarnason að lokum, að alls- herjarnefnd leggði einróma til, að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Skúli Guðmundsson (F) sagði m. a., að þörf væri á að gera fleiri breytingar á umferðarlög- unum. Einkum þyrfti að herða ákvæðin um ökuleyfissviptingu vegna ölvunar við akstur. Sigurvin Einarsson (F) kvaðst óska upplýsinga um, hvort þeir, sem sviptir hafa verið ökuleyfi ævilangt, gætu fengið ökuleyfi að nýju. Jóhann Hafstein dómsmálaráð- — íþróttir Framhald af bls. 22 Margrét Jónsd. G. Akr. 1,30 Soffía Finnsd. Kvsk. 1,30 Langstökk án atrennu: Sigrún Bjarnad. Miðsk. Stk. 2,39 Sigríður Sigurðard. VerzL 2,39 Sigrún Ólafsd. Kvsk. 2,34 Guðmunda Magn. G. Akr. 2,33 Úrslit í stúlknaflokki: Miðskóli Stykkishólms 8 stig Gagnfræðaskóli Akraness 7 stig Kvennaskólinn, Rvík 7 stig SVEINAFLOKKUR: Langstökk án atrennu: Sigurjón Halld. G. Akr. 2,90 Kári Geirlaugsson G. Akr. 2,76 Gunnar Ólafsson G. Réttarh. 2,74 Arnór Pétursson G. Akr. 2,70 Hástökk með atrennu: Rúnar Steinsson G. Kóp. 1,70 Einar Þorgr. G. AusL 1,65 Vald. Jóh. G. Kóp. 1,60 Úrslit í sveinaflokki: Gagnfrskóli Akraness 11 stig Gagnfrskóli Kópavogs 10 stig Gagnfrsk. Réttarholts 7 stig DRENGIR: Langstökk án atrennu: Guðm. Pétursson ÍMA 3,11 Július Hafstein Verzl. 2,97 Ragnar Guðm. MR 2.88 Bergþór Halldórss. MR 2,87 Hástökk með atrennu: Magnús Magnússon G. Akr. 1,65 Jón Hjaltalín MR 1,65 Júlíus Hafstein Verzl. 1,60 Bergþór Halldórsson MR 1,60 Hástökk án atrennu: Júlíus Hafstein Verzl. 1,45 Bergþór Halld. MR 1,40 Sigurður Jónsson, Kennsk. 1,40 Úrslit í drengjaflokki: Menntaskólinn í Rvík 20 stig Verzlunarskóli fslands 15 stig Menntaskólinn, Akureyri 6 stig Gagnfræðaskóli Akraness 6 stig UNGLINGAFLOKKUR: Langstökk án atrennu: Sig. Magn. Bsk. Hvanneyri 3.03 Stefán Egg. ÍMA 3,00 Þorv. Ben. Iðnsk. 3,00 Reynir Unnst. ÍMA 2,97 Hástökk með atrennu: Skúli Hróbjartss. B. Hvann. 1,70 Jóh. Gunnarsson ÍMA 1,60 Donald F. Rader Kennsk. 1,60 herra skýrði frá því, að í um- ferðarlögunum væri heimild til þess að veita manni, sem sviptur hefur verið ökuleyfi ævilangt, ökuleyfi að nýju eftir 3 ár, ef hann hefði verið reglusamur og annað mælti ekki á móti því og hefði þessi heimild verið notuð. Var frumvarpinu síðan vísað til 3. umræðu. EFRI DEILD Jarðræktarlög Bjartmar Guðmundsson (S) mælti fyrir breytingartill. land- búnaðarnefndar vð frumvarp til jarðræktarlaga, sem nú var til 3. umr. Sagði Bjartmar m.a., að þessi breytingartillaga væri við þá grein frumvarpsins, sem fjall ar um launakjör héraðsráðu- nauta, en í þeirra hópi hefði gætt nokkurrar óánægju út af því, að gert var ráð fyrir, að laun þeirra væru ákveðin af landbúnaðarráð herra eftir tillögum frá Búnaðar félagi íslands. Nú hefði orðið að samkomulagi innan landbúnaðar nefndar að flytja breytingartil- lögu svohljóðandi: Ríkissjóður greiði búnaðarsamböndum 65% af launum héraðsráðunauta, að- stoðarmanna og trúnaðarmanna Hástökk án atrennu: Skúli Hróbjartss. B. Hvann. 1,50 Gestur Þorst. ÍMA 1,45 Kristján Eir. ÍMA 1,40 Jóh. Gunnarsson ÍMA 1,40 Þrístökk án atrennu: Skúli Hróbjartss. B. Hvann. 9,25 Sig. Magnúss. B. Hvanneyri 9,18 Stefán Eggertsson ÍMA 9,17 Kristján Eiríkss. ÍMA 8,83 Úrslit í unglingaflokki: Menntaskólinn, Akureyri 39 stig Bændaskólinn, Hvanneyri 29 stig Kennaraskóli íslands 7 stig FULLORÐNIR: Langstökk án atrennu: Kári Ólfjörð Kennarask. 3,15 Jón Ö. Þorm. Hásk. ísL 3,09 Guðbr. Ben. Iðnsk. 2,93 Ari Stefánsson Iðnsk. 2,84 Hástökk með atrennu: Kjartan Guðjónsson, ÍMA 1,90 Kristján Stefánss. H.L 1,75 Páll Eiríksson H.í. 1,70 Jón Hauksson H.í. 1,70 Hástökk án atrennu: Jón Ö. Þorm. H.í. 9,07 Kári Ólfjörð, Kennarask. 8,87 Kristján Eyj. H. í. 8,55 Viktor Guðl. Kennarask. 8,52 Keppni er ólokið í stangar- stökki fullorðinna, en hún fer fram í íþróttahúsi KR á morgun. Telja má víst, að Háskólinn sigri í flokki fullorðinna en hann hef- ur langflest stig nú, 39, næstur er Kennaraskólinn með 18. — Mér þykir Framhald af bls. 24 það ekki, enda var ég ekkert að hugsa um það. Ég fann fyrst til kulda og fór að skjálfa, þegar ég var komin heim og mamma var að drífa mig í heitt bað. Þá gnötruðu í mér tennurnar. — Þú ert mikil lánsmann- eskja að geta bjargað lífi litla frænda þíns. — Mér þykir ósegjanlega vænt um það, en það mátti ekki miklu muna. Hann var sokkinn a.m.k. í annað sinn, þegar ég náði honum. Ég gat haldið honum uppi úr sjónum, en ekki komið honum upp á ísinn. Hann brotnaði alltaf undan þunganum. Svo allt í einu stóð maður hjá okkur, eins og honum hefði skotið upp úr jörðinnL Hann var og skulu laun þeirra, sem sá hundraðshluti miðast við, sam- þykkt af landbúnaðarráðherra að fengnum tiliögum frá Búnaðar- félagi íslands. Breytingin, sem í þessu felst frá því, sem frumvarpið gerir ráð fyrir er sú, að búnaðarsam böndin semji við ráðunautana um launakjör. Hins vegar þar sem lögin gera ráð fyrir því, að ríkis sjóður greiði 65% af launum ráðu nautanna, en búnaðarsambönd- in 35%, þá er talið eðlilegt, að landbúnaðarráðherra, hafi íhlut un um hver launin verða og greiði ekki nema 65% af því, sem hann getur fallist á, að laun in verði að fengnum tillögum Búnaðarfélagsins. Var breytingartillagan síðan samþykkt samhljóða og frum- varpið afgreitt til Neðri deildar. Réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Frumvarp um breytingu á lög um um réttind og skyldur starfs- manna ríkisins um, að orlof rík- isstarfsmanna verði lengt, var einnig til 3. umræðu og var af- greitt tli Neðri deildar. líka frændi minn, Ottó Snæ- björnsson. Hann óð svo með Bjarna litla í land og kom honum heim. Þar var hann drifinn úr bleytunni, þveginn úr heitu vatni og dúðaður of- an í rúm, svo lét Ottó hann selja upp, svo að honum yrði ekki illt í maganum af sjón- um, sem hann hafði drukkið, en það var talsvert. — Gaztu komizt sjálf upp úr vökinni? — Það kom einhver og kippti í höndina á mér og svo hljóp ég heim. Það er nú bara yfir Strandgötuna að fara. í þessu kom móðir Gíslínu inn í stofuna. — Hvað sagði dóttir þín, þegar hún kom heim eftir sjávarbaðið, spyr ég frú Hug- rúnu. — Hún var fjarska glöð og sæl og sagði við mig milli verstu skjálftakviðanna þegar ég var að hjálpa henni í bað- ið: „Mér þykir svo vænt um að ég gat staðið við skátaheit- ið mitt og verið viðbúin, þeg- ar svona mikið lá við“. Hún er mjög áhugasamur skáti og er foringi fyrir hópi 12 skáta- stúlkna í vetur, fer.oft í úti- legur og starfar mikið í skáta- félaginu. — Hafa ekki margir óskað ykkur til hamingju? — Það hefur ekki linnt símahringingum og heillaósk- unum hefur rignt yfir okkur. Við þökkum Guði fyrir að svona vel tókst til. Bjarni litli hefur verið hljóð ur meðan ég stóð við og tók fast utan um hálsinn á frænku sinni og lífgjafa þegar ég kvaddi. Honum þykir sýni- lega undur vænt um hana. Sv. P. Allharður árekstur AKRANESI, 23. marz. — Árekst- ur allharður varð s.l. mánudags- mongun milli langferðabíls og lítils fólksbíls rétt fyrir utan Mógilsá í Kollafirði. Fólksbíllinn ók á þann stóra og gereyðilagði aurbretti hans að framan og öku- maðurinn skall með höfuðið á framrúðuna svo hún sprakk. Langferðabíllinn sakaði ekki og hinn gat ekið leiðar sinnar. — Oddur. Vaidiiuar Björnsson takf um Atlantshaís- samfélagið VALDIMAR Björnsson, fjármála- málaráðherra Minesótarikis, seru hér dvelur í boði íslenzk-amer- iska félagsins, mun mæta á kvöidfundi, sem Varðberg og Samtök um vestræna samvinnu efna til um „Atlantshafssamfélag- ið“. Fundurinn verður haldinn 1 Glaumbæ við Fríkirkjuveg n.k. fimmtudag og hefst kl. 8,30 síð- degis. Mun Valdimar Björnsson ræða ýmsa þætti í samstarfi Atlantshafsríkjanna að fornu og nýju, en síðan svara fyrirspurn- um þeirra sem fundinn sækja. Auk félagsmanna í Varðbergl og Samtökum um vestræna sam- vinnu er almenningi heimill að- gangur, eftir því sem húsrúm leyfir. Eins og kunnugt er hefur Valdimar Björnsson um árabil verið ötull talsmaður náinna tengsla þjóðanna beggja vegna Atlantshafs. Gefst hér ákjósan- legt tækifæri til þess að heyra Valdimar fjalla um þessi mál. Páll Pampichler Páisson. Hljomleikar í Garðahrejir i FYRSTU hljómleikar Tónlistar- félags Garðahrepps verða haldnir í Barnaskóla Garðahrepps í kvöld kl. 9. Sinfóníuhljómsveit íslands mun leika undir stjórn Páls Pampichler Pálssonar og Guðmundur Jónsson, óperusöng- vari, mun syngja einsöng með hljómsveitinn. Á efnisskránni er eingöngu létt tónlist: Forleikur að Orfeus í undirheimum eftir Offenbach, Ungverskir dansar nr. 5 og 6 eftir Brahms, „Wherever you walk“ eftir Hándel, „Ég lít í anda liðna tíð“ eftir Kaldalóns, „Sverrir konungur" eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, „Credo“ úr óperunni Othello eftir Verdi, „Keisaravalsinn“ eftir Strauss, „Liebeslied“. eftir Grysler og 3 dansar úr Hnotubrjótnum eftir Tsjakovsky.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.