Morgunblaðið - 24.03.1965, Side 12

Morgunblaðið - 24.03.1965, Side 12
12 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 Útgefandi: Framkvæmdast j óri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. ORKUFREKUR IÐNAÐ- UR OG STÓR VIRKJUN ¥ merku og ítarlegu erindi eftir dr. Jóhannes Nordal, sem birtist hér í blaðinu í gær, er rakin saga athugana á því, hvaða orkufrekum iðn- aði íslendingar geti komið upp. Þar er í stórum dráttum getið um rannsóknir virkjun- arstaða og gerð grein fyrir þeirri niðurstöðu, að hag- kvæmast sé að virkja Þjórsá við Búrfell. Gerð er grein fyr- ir þeim stórfellda hagnaði, sem íslendingar mundu hafa af alúmínbræðslu, sem byggð yrði í tengslum við Búrfells- virkjun, og hlutlægt yfirlit gefið um alla aðstöðu okkar í þessu efni. Ættu menn að kynna sér þetta erindi Jó- hannesar Nordals sem ræki- legast. í erindinu er það rakið, að naumast komi nú til greina annar orkufrekur iðnaður en alumínbræðsla hér á landi, en síðan á það bent, að á- stæða sé til að ætla, að sam- keppnisaðstaða landa með ódýra raforku muni einnig á þessu sviði fara versnandi eftir því sem fram líða stund ir. Raforkukostnaður frá kolakynntum stöðvum hefur farið sífellt lækkandi og jafnfram hafa komið til ódýr ar gufustöðvar, sem brenna jarðgasi, og loks er svo kjarn- orkan komin fram á sjónar- sviðið og gert ráð fyrir, að ekki líði mjög langur tími, þar til orka frá kjarnorku- stöðvum verður samkeppnis- fær við orku vatnsaflsstöðva. Loks hafa svo orðið tækni- framfarir, sem gera það að verkum, að raforkuþörf við framleiðslu á alúmíni hefur lækkað verulega, þannig að staðsetning alúmínbræðslna er ekki eins háð ódýrri orku nú eins og áður, heldur fer þýðing staðsetningar í nánd við markaði eða hráefni vax- andi. Af þessum staðreyndum er óhætt að draga þá álytkun, að ekki sé seinna vænna fyr- ir okkur Íslendinga, að gera gangsskör að því að reisa stórvirkjun og hefja alúmín- vinnslu.. Annars gæti svo far- ið, að hin miklu auðævi, sem við eigum í fallvötnum lands ins, verði aldrei nýtt. Að hika nú væri því sama og tapa. Um Búrfellsvirkjun segir dr. Jóhannes Nordal m.a. í er- indi sínu: „Ef við lítum á stofnkostn- að, þá mundi 210 þúsund kw. Búrfellsvirkjun ásamt stækk un varastöðva kosta rúmlega 1700 milij. kr., en virkjunin mundi líklega verða byggð í þremur til fjórum áföngum á átta árum. Af framleiðslu- getu stöðvarinnar mundi rúm lega helmingur eða 110 þús. kw. verða notuð í þágu alú- míníumverksmiðjunnar, en árlegar tekjur af sölu raf- orku til hennar mundu sam- kvæmt því verðlagi, sem um hefur verið talað, nema um 100 millj. kr., á ári, en orku- sölusamningurinn mundi verða í erlendum gjaldeyri. Ef við reiknum með því að greiða stofnkostnað raforku- versins niður til fulls á 25 árum með 6% vöxtum mundi slíkur raforkusölusamningur standa undir rúmlega- % stofn kostnaðarins. Það þýðir með öðrum orðum, að íslendingar mundu fá í sinn hlut 100 þús. kw. orkuver fyrir 600 millj. eða tæplega 6 þúsund kr., á hvert kw. Verði farin smá- virkjunarleiðin mundi stofn- kostnaður á kw. miðað við jafnlangan nýtingartíma, vera um það bil tvöfalt hærri, ef miðað er við þær virkjun- aráætlanir, sem fyrir liggja“. Það er þessvegna óumdeil- anlegt, að við íslendingar get um ekki fengið raforku jafn ódýra með neinum öðrum hætti en þeim að gera orku- sölusamning við alúmín- bræðslu eins og nú er fyrir- hugað. ÞÝÐING ALÚMÍNIÐNAÐAR ¥|r. Jóhannes Nordal víkur ** að því í erindi sínu, hve mikla þýðingu þróun íslenzks alúmíniðnaðar gæti haft. Hann bendir á, að Swiss Alu- minium hafi lýst sig reiðu- búið til þess að aðstoða ís- lenzka aðila tæknilega við að koma upp slíkum iðnaði, en hráefnið fengist frá alumín- bræðslunni, og er þess þá að gæta, að það yrði ódýrara hér en í þeim löndum öðrum, þar sem það yrði fullunnið, sem næmi flutningskostnaði héð- an og þangað. Alúmín er sem kunnugt er mjög góður málmur til marg- háttaðra nota, enda eykst alúmínframleiðsla hröðum skrefum, svo að jafnvel er gert ráð fyrir að hún tvöfald- ist á einum áratug. Þannig er nú alúmín notað í vaxandi mæli í byggingariðhaðinum á kostnað stáls og timburs. Auk þess er það í sarnkeppni við plast og ýmsar efnistegundir í öðrum greinum. Þar sem okkur skortir bæði JSsS liF UTAN ÚR HEIMI Þyrlur opna nýja mögo leika fyrir Grænland, sem ferðamannaland DANSKA blaðið Berlingske Tidende s©gir sl. laugardag, aff aldrei sé of snemmt aff leggja drög aff skipulagi ferðamála í Grænlandi. Æ meira sé nú um landiff raett sem ferffa- mannaland, og sé ástæffan fyrst og fremst sá feiknalegi áhugi sem ferðamenn hafa á aff kanna nýjar slóðir. Blaðiff segir og aff tilkoma þyrla í Grænlandi ryðji nú veginn fyrir ferffamenn, og innan- landsflugið í landinu opni þar gjörsamlega nýja möguleika fyrir það sem ferðamannaland. Svo sem kunnugt er hafa Danir á prjónunum að taka upp þyrluflug í Grænlandi, en samgöngur þar í landi eru ákaf lega erfiðar. Sjórinn hefur um aldaraðir verið eina samgöngu leiðin, bæði'til Grænlands og milli staða þar í landi. Um suma staði er þó að segja, að þangað hefur verið 1-2 skips- ferð á ári, og stundum engin, vegna ísa. Með tilkomu flugsins batn- aði ástandið stórum, en hins- vegar er svo enn í dag að far- þegaflugvélar geta aðeins lent á örfáum flugvöllum í landinu. Sjórinn er enn helzta sam- gönguleiðin innanlands. Á fundi ferðamálaráðs Dan- merkur, sem haldinn var í sl. viku, skýrði Sven Acker frá því, að þegar þyrlurnar til innanlandsflugs í Grænlandi væru komnar í gagnið, sé leið in opin. Þá skipti hinir við- sjálu þokubakkar í Grænlandi ekki lengur höfuðmáli, en þeir hafa löngum verið flug- inu þar erfiður ljár í þúfu. Sven Acker sagði að meðal þeirra svæða, sem líklegt mætti telja að fyrst opnuðust að ráði fyrir ferðamenrt, væri Narssarssuaq- og Juliane-hér- uð (þ.e. Eiríksfjarðarsvæðið og nágrenni), Godthaabshérað, en þar er höfuðstaður landsins, Syðri Straumfjörður, Kulusuk og Diskoflói. Um 500 Danir ferðuðust til Grænlands á sl. sumri, og jafn framt fór Flugfélag íslands sex ferðir til Kulusuk, og nokkrar fjögurra daga ferðir til Narssarssuaq, svo sem kunnugt er. í laugardagsblaði Berlingske Tidende er haft eftir Sven Acker að „enda þótt ferða- kostnaðurinn sjálfur hafi að- eins leyft ferðamönnum í lúx- usklassa Grænlandsferðir, sýni reynslan að hin fremur lélegu hótel, sem kostur er á í Græn landi, verði ekki til þess að fæla menn frá ferðinni. Með þetta að bakhjarli munu nú þeir aðilar, sem áhuga hafa á Grænlandi og ferðamanna- málum þar í landi, setjast við og ræða rnálin." fsinn viff Grænland er tign- arlegur ásýndum, en hefur reynzt mörg-u kaupfarini skæffur. Á næstu árum er tal- iff aff hann, og margt þaff ann- aff, sem í Grænlandi er aff málma og timbur er vissulega ekki lítils um vert, ef við gæt- um fengið slíkt ódýrt hrá- efni frá alúmínbræðslu til að efla hér iðnaðarframleiðslu, og er það ekki þýðingar- minnst í sambandi við fyrir- hugaða stórvirkjun og bygg- ingu alúmínbræðslunnar. Um þetta mál segir dr. Jóhannes Nordal síðan: „Nú er að sjálfsögðu öllum ljóst, sem til þekkja, að það er hvergi nærri auðvelt að koma á alúmíniumiðnaði í stórum stíl. Til þess þarf bæði mikið fé, tækniþekk- ingu og greiðan aðgang að mörkuðum. Hér er þó um miklu auðveldara verkefni að ræða en byggingu alúmínium bræðslu, og ég tel því fulla ástæðu til þess, að íslenzkir iðnrekendur taki sem fyrst til athugunar, hvaða aðgerðir séu líklegastar til þess" að stuðla að því að bygging alú- míniumbræðslu geti orðið til þess, að upp rísi hér á landi verulegur alúmíniumiðnað- ur“. íslenzkir iðnrekendur hafa þegar markað afstöðu sína til alúmínbræðslu með ske- leggri yfirlýsingu, þar sem þeir lýsa yfir stuðningi sínum finna, muni laffa til sín sívax-1 andi fjölda ferðamanna. við framkomnar hugmyndir um stórvirkjanir, og telja eðlilegt, að í því sambandi þurfi að tryggja sölu væntan- legrar orku og ástæðulaust sé að ætla að sjálfstæði þjóðar- innar stafi hætta af því, þótt erlendum fyrirtækjum verði heimilað að reisa alúmínverk smiðju á íslandi. Það er heldur engin ástæða til annars en ætla, að iðnrek- endur muni hefja undirbún- ing að því að koma upp stór- fyrirtæki á íslenzkan mæli- kvarða til að vinna úr því hrá efni, sem fæst frá alúmín- bræðslunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.