Morgunblaðið - 24.03.1965, Side 13

Morgunblaðið - 24.03.1965, Side 13
Miðvikudagur 24. marz 1965 MORGUNBLAÐIÐ 13 Um héraðsmál í Borgarfiröi eftir Asgeir Pétursson sýslumann TIL Borgarfjarðarhéraðs töldust áður Mýrasýsla og Borgarfjarð- arsýsla, þar á meðal Akranes, sem var sveitarfélag innan sýslu félags Borgarfjarðarsýslu. Akra- nes fékk kaupstaðarréttindi á árinu 1941 og gerðist þá sjálf- stætt lögsagnarumdæmi. En þrátt fyrir slíka- skipulagsbreytingu, halda Akurnesingar áfram að líta á sig sem Borgfirðinga, enda eiga þeir margir rætur sínar að rekja til hinna ýmsu byggða Borgarfjarðar og vilja sýna þeim uppruna ræktarsemi. Það eru rammar taugar, sem tengja Akranes við föðurtúnin, aðra hluta hins forna Borgar- fjarðarhéraðs, og þarf tæpast að kvíða því að þær rofni. Margt má hins vegar gera til þess að efla samstarfið, bæði á sviði menningarmála og atvinnumála, öllum til hagsbóta. Verður að hafa í huga þá staðreynd, sem hefur mikla þýðingu um fram- gang ýmissa málefna, að sam- einað átak sýslnanna og Akra- ness getur af augljósum ástæð- um hrundið fram mörgu fram- faramálefni, sem öðrum aðilan- um væri einum um megn að ráða við. Hér á eftir verður rætt um málefni, sem varða Akranes og sýslurnar sameigin- lega, en síðan fjallað um mál- efni sýslnanna og rekstur stofn- ana, sem þær eiga einar eða með öðrum. Baforkumálin Ljósasta dæmið um gildi slíkr- ar samvinnu sýslnanna og Akra- ness er bygging og rekstur orku- versins við Andakílsárfossa, en það er sameign sýslnanna og Ak- urnesinga. Orkuvinnsla við Anda kílsárfossa hófst á árinu 1947 og er nú svo komið að orkuverið er að heita má skuldlaus eign sameignarfélagsins. Lengst af hefur raforkuverðið af eigin orkuvinnslu verið lágt, t.d. var það á árinu 1964, 15 aurar á kíló- vettstund, meðalverð. Er það lægsta raforkuverð í landinu. Orkuverðið þarf þó að endur- skoða, einkum ef til þess kæmi að Andakílsárvirkjunin færði út kvíarnar með nýrri virkjun en einnig vegna þeirrar ráðagerða, sem nú eru uppi í stjórn virkj- unarinnar um það að leggja fram lánsfé frá henni til þess að flýta og greiða fyrir raflínu- lögnum um héraðið. Á árinu 1964 varð orkuvinnslan í Anda- kílsárvirkjuninni tæpar 27 millj. kílóvattstunda og aðkeypt orka 7,7 m. kwst. Er sú viðbótarorka fengin frá Sogsvirkjuninni, en orkuverin hafa nú verið sam- tengd með streng yfir Hval- fjörð. Virkjunaraðstaða við Kláffoss Það hefur komið fram opin- berlega að undanförnu, bæði í fréttum blaða og umsögn for- ráðamanna um rafmagnsmál, að rannsókn hefur farið fram á virkjunaraðstöðu við Kláffoss í Hvítá í Borgarfirði. Af því til- efni þykir rétt að greina frá helztu staðreyndum þess máls. Stjórn Andakílsárvirkjunar- innar lét í ársbyrjun 1963 hefja athugun á virkjunaraðstöðu við Kláffoss í Hvítá, með það fyrir augum, að Andkílsárvirkjunin beitti sér fyrir virkjun þar, til aukningar á raforku á veitusvæð inu, en orkuverið við Andkílsár- fossa er nú fyrir löngu orðið of afkastalítið. Var ljóst að orku- veitusvæðið norðan Hvalfjarðar myndi þó eigi þurfa nema helm- ing þeirrar orku, sem unnt væri að fá úr Kláffossi, eða 7500 kw. af 15.000 kw. Var hins vegar haft í huga að umframorkan yrði þá. hagnýtt í þéttbýlinu við sunn- anverðan Faxaflóa. Nú liggja niðurstöður rann- sóknanna fyrir. í ljós hefur kom- ið að virkjunaraðstaðan er mun betri við Kláffoss, en áður var vitað. Fyrst má geta þess að Hvítá í Borgarfirði hefur meiri lindáreinkenni en talið var áður. ístruflunarhætta er því talin lítil. Rennsli árinnar er all stöðugt, þannig má t.d. geta þess að þeg- ar Þjórsá þvarr á árinu 1962, fór rennsli Hvítár við Kláffoss aldrei niður fyrir 60 m3 á sek. Meðalrennsli þar er annars um 100 m3 á sek. Aðstæður til framkvæmda eru ákjósanlegar. Þjóðvegur liggur um virkjunarsvæðið. Húsakostur er þar fyrir hendi, þ.e. hús Verzl unarfélags Borgarfjarðar og Kaupfélags Borgfirðinga, sem sennilega væri unnt að hagnýta til íbúða fyrir starfsmenn, verk- stæði o.þ.h. Þá er og jarðhiti í nánd, rafmagn og sími er á staðn um og efni til bygginga er nær- tækt. Þess má geta að fyrirsjáanlegt er að innan skamms verður að byggja nýja brú yfir Kláffoss og mætti þá gera ráð fyrir að fyr irstöðugarður yrði jafnframt brú yfir Hvítá. Virkjunarmat hefur verið sam ið samkvæmt ákvörðun fram- kvæmdarstjórnarinnar. Var það Rögnvaldur Þorláksson verkfræð ingur, sem stóð fyrir þvi verki, ásamt Óskari Eggertssyni, fram- kvæmdarstjóra Andakílsárvirkj- unarinnar. Talið er að virkjunarkostnað- ur, miðaður við 15. þús. kw.stöð verði um 154,4 milljónir kr., eða raforkuverð við stöðvarvegg ná- lægt 10.300 kr. fyrir kw. Ef kostnaður við háspennulínu til tengingar við SV-landskerfið er meðtalinn, verður byggingar- kostnaðurinn kr. 11.900 á kw. í þessu sambandi er rétt að geta þess að háspennulínur eru fyrir hendi frá orkuverinu við Anda- kílsfossa út á Akranes og þaðan um Hvalfjörð til Reykjavíkur. Orkuverðið mun sjálfsagt mjög fara eftir þeim lánskjörum, sem til virkjunarframkvæmdanna fengjust. Miðað við 8,2% fjár- magnskostnað verður orkuverðið um 0,20 kr. á kílówattstund, sem er hagstætt verð, miðað við ný- byggt orkuver. Verði orkuverið við Kláffoss rekið í samrekstri við núverandi orkuver við Andakílsárfoss, yrði unnt að selja orkuna á lægra verði, því það orkuver er nú skuldlítið, eins og sagt var. Þeir aðilar, sem gert hafa áætl anirnar um byggingu orkuvers- ins við Kláffoss telja að unnt verði að ljúka smíði þess fyrir 1. desember 1966 eða jafnvel fyrr vegna hagstæðra aðstæðna, á virkjunarstaðnum, ef samið yrði um smíði vélanna nú á næst- unni. Þess má og geta að öllum undirbúningi er lokið, sem til þess þarf að lokaákvarðanir megi taka um þessa framkvæmd. Tilboð hafa borizt í vélar frá mörgum aðilum, þar sem m.a. er greint frá lánskjörum á véla- búnaði öllum. Kunnugt er að nú er mjög í ráði að byggja stárt orkuver i Þjórsá, þar sem orka yrði ódýr- ari þegar til lengdar lætur, en í smærri virkjun. Þrátt fyrir það virðist þó ekki óhugsandi að hagkvæmt þætti að ráðast í byggingu orkuversins við Kláf- foss, einkum sökum þess hve skjótlega það gæti komizt í gagn ið og vegna þess að tilkoma þess myndi aulta rekstraröryggi alls orkuveitusvæðis Suð-Yestur- lands. Það er öryggi í sjálfu sér að fá orkuna frá orkuverum, sem eru í ólíkum landshlutum. Hér er einnig á það að líta að orku- veitusvæði Andakílsvirkjunar- innar notar helmingi meira raf- afl, en virkjunin framleiðir og engin varastöð er á svæðinu. Að Ásgeir Pétursson, vísu er kerfið tengt við Sogs- virkjunarkerfið, en einungis með einum streng. Slíkt er ófullnægj- andi, enda er rekstur Sements- verksmiðju ríkisins í hættu, ef sá strengur bilar. Er því eðli- legt að stefnt verði að því að auka rekstraröryggið með því að auka tiltækt rafafl á svæðinu. Heilbrigðismálin. Sjúkrahúsið á Akranesi hefur nú fengið réttindi sem fjórðungs- sjúkrahús. Hefur tilkoma þess þar verið mikil trygging fyrir heilbrigðisþjónustu í héraðinu og rekstur þess reynzt mjög far- sæll. Til skamms tíma hafa Ak- urnesingar þó staðið einir með ríkinu undir útgjöldum af rekstri og stofnkostnaði. Nú hefur orðið á þessu nokkur breyting og hafa sýslubúar í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslum sýnt hug sinn til sjúkrahúsmálsins með þeim hætti, að menn þurfa ekki að vera í vafa um hvað héraðsbúar telja rétta stefnu í heilbrigðis- málum sýslunnar. En svo sem áð- ur hefur verið skýrt frá söfnuðu sýslubúar með frjálsum framlög- um um einni milljón króna, á sl. ári og afhentu forráðamönnum sjúkrahússins það fé í júnímán- uði sl. og skyldi það notað til greiðslu stofnkostnaðar. Kaup- félag Borgfirðinga í Borgarnesi Framhald á bls. 16. Sigfínnur Sigurðsson, hagfræðingur ritar Vettvanginn í dag. Hann fjallar m. a. um Áburðarverksmiðjuna h.f. —þjóðnýtingu — verðbólguna — ráðstöf- unarfrelsi einstaklingsins yfir sparifé sínu — aðskilnað ríkisvalds og fram- leiðslu — reynsluna af opinberum rekstri — hagfræði og hagstjórn. Þ E S S A dagana spyrja menn sjálfa sig_ og aðra, hvort þjóð- nýting Áburðarverksmiðjunnar h.f. sé nauðsynleg ráðstöfun ein- mitt núna á meðan verðbólgan læðist yfir landið. Rökin, sem færð eru fyrir þjóðnýtingará- forminu, eru þau, að verksmiðjan sé ekki arðberandi fyrirtæki, en nauðsynlegt sé að leggja í miklar framkvæmdir til stækkunar og endurbóta, svo mikið fjármagn, ca. 200 millj., kr. geti hvorki hlut- Ihafarnir í sameiningu, né aðrir einkaaðiljar í landinu lagt fram, þetta sé aðeins á færi ríkissjóðs, og ríkisvaldið eitt sé því fært um evo stórfelldar framkvæmdir. En ríkissjóður þarf um leið að kaupa upp hluti meðeigenda sinna og greiða þá í reiðufé að frádreign- um skuldum. Þetta gæti orðið élitleg fjárupphæð. Hún myndi a.m.k. ekki draga úr verðbólg- unni. Tiltölulega meinlaus myndi þessi fjárupphæð verða, ef að sama skapi yrði dregið úr útgjöld iim ríkissjóðs annarsstaðar, en þá mætti spyrja, hvort því fjár- magni yrði ekki betur varið á öðrum sviðum. Að uppkaupunum loknum þarf svo að afla ca. 200 millj. kr., sem samkvæmt rök- unum er ófáanlegt frá einkaað- iljum innanlands, þar með má því einnig útiloka skuldabréfakaup einstaklinga. Tæplega er ríkis- sjóður þess heldur megnugur að taka þetta fé úr eigin hendi, nema með því að afla fjárins bráðlega í formi skatta eða tolla. Ekki myndi draga úr verðbólgunni við það. Yfirdráttur hjá Seðlabank- anum í formi láns til langs tíma og lán úr Framkvæmdabankan- um vegna fjármunamyndunar og framleiðsluaukningar ásamt er- lendum lánum til véla- og tækja- kaupa eru sennilegar leiðir. Inn- lendar og erlendar lántökur eru einnig leiðir, sem hlutafélatgið hefði valið, enda innan þess ramma, sem yfirstjórn peninga- markaðsins ákveður. En hvernig myndi fara, ef Al- þingi afsalaði sér öllum eignar- rétti að verksmiðjunni? Ríkissjóð ur yrði látinn kaupa upp hluti meðeigenda sinna, til þess að selja þá síðan aftur í smáum hlutum. Alþingi myndi því hugsa fyrst til þeirra, sem eiga mestra hagsmuna að gæta um hagkvæm- an rekstur verksmiðjunnar þ.e. bændanna, en teldi þá vafalaust of lítið fjáða til þess að þeir gætu keypt svo manga hluti sem þá langði til, og ákvæði þess vegna að bændur skyldu njóta forkaupsréttar að ákveðnum fjölda 1000 kr. hlutabréfa, sem greiddist upp með jöfnum af- borgunum á e.t.v. 5 árum. Síðan yrði áhugasömum einstaklingum og félagasamtökum boðin bréfin, sem eftir yrðu, að settum skil- yrðum til hagstoóta fyrir fram- tíðarþróun heilbrigðis verðbréfa- markaðar í landinu. Fjárhags- örðugleikarnir leysast við þetta á ákjósanlagri hátt en við flótt- ann í ríkisreksturinn. Þessi að- ferð myndi, er frá liði gera sitt til að draga úr verðbólguþróun- inni — og það meir en margan grunar í dag. Með þessari að- ferð yrði sparendum gert kleift að leggja sparifé sitt fyrir í fast- eignum, að svo miklu leyti sem fólk kærði sig um. Sparnaður myndi aftur hefjast upp til dyggða. Verði þanniig á málunum haldið, að ekki verði raskað þeim lögmálum hagsýninnar, sem flest um mönnum eru í blóð borin og grundvalla frelsi einstaklingsins í hverri efnahagsheild, innan ramma fastmótaðs hagkerfis, þá er ekki að éfa, að rekstur slíks fyrirtækis yrði til fyrirmyndar og leiddi til áframhalds á þessari braut þannig, að einnig Sements- verksmiðjunni, útgerðarfélögum oig fiskvinnslustöðvum bæjar- og sveitarfélaga svo og framtíð ann- arrar stóriðju yrði betur borgið undir stjórn þeirra einstaklinga, sem vilja sjálfir leggja á sig erfiðið vegna eignarmyndunar, og geta þannig ákveðið um af- drif sparifjárins, heldur en und- ir margvíslegum duttlunigum op- inberra stjórnaraðila, sem oftast þurfa ekki að taka á sig ábyrgð af vafasömum rekstri og rekstrar fyrirkomulagi framleiðslufyrir- tækjanna. Þeim er ríkiskassinn og bæjarsjóðir alltaf til hægri handar. Margir verða enn um árabil að finna fyrir misheppnuðum rekstri opinberra útgerðarfyrirtækja, sem vanþroska efnahagsstjórn eftirstríðsáranna gerði með kunn- áttuleysi að knýjandi nauðsyn. Reynslan af þeim atvinnurekstri er orðin nokkuð dýrkeypt, en hana má m.a. nota til að forðast það, að sama sagan endurtaki siig í landbúnaðinum og iðnaðinum. Reynsla þeirra lýðræðisþjóða, sem hafa fylgzt með og notfært sér nýjungar á_ sviði hagfræði og hagstjórnar sýnir ótvírætt, að ör hagvöxtur og jöfn tekjuskipting Ssamt félagslegu öryggi þegn- anna eru bezt tryggð með sem allra víðtækustu aðskilnaði ríkis- valdsins og framleiðslunnar. Lög- gjafar- og framkvæmdavaldið hafa þá aðeins yfirstjórn efna- hagsmálanna í hendi sér með hjálp fjölda stjórntækja, sem mörg eru óþekkt hér á landi. Með þeirra hjálp verður tryggð sem jöfnust samkeppnisaðstaða framleiðslunnar bæði innan lands og í útflutningsverzluninni, þannig að heildarþróuninni verði beint inn á þær ■*" lutir, sem æskilegastar eru heildinni hverju sinni. Skattstjóm og tollstjórn verða þá ekki lengur notuð eingöngu til þess eins að afla hinu opin- bera tekna á sem hagkvæmastan hátt. Eftir því sem hagkerfið og stjórn þess er traustara þeim mun minni áherzla er smám sam an lögð á tolltekjur. Heldur verð- ur skattstjórnin þeim mun fjöl- breyttari, til þess að tryggja í fyrsta lagi, að sem hlutfallslega jafnastar byrðar verði lagðar á skattþegana, s.s. mismunandi skattstigar eftir teknaupphæð og skattstofnum t.d. launatekjur og eignatekjur. f öðm lagi sam- kvæmt æskilegum stefnubreyting um í framleiðsluháttum. Þá er stjórn peningamálanna einnig hreifanleg. Vaxtafóturinn er ekki neitt óumbreytanlegt náttúrulög- mál. Frysting viss hluta innláns- fjárins er nýlega orðið virkt stjórntæki í peningamálum okk- ar. Gildi þessa tækis er óumdeilt af fagmönnum, sé það notað í samræmi við önnur s.s. vexti og skuldabréfaverzlun ríkissjóðs, Seðlabankans og lánastofnana. Auk nefndra stjórntækja koma fjölmörg önnur misjafnlega áhrifamikil til greina. En öllum er það sameiginlegt, að virkni þeirra er undir löggjafarvaldinu komin, er það setur leikreglurn- ar, en þær þurfa mikillar ná- kvæmni og undirbúnings við. í þeim tilgangi meðal annars eru gerðar víðtækar hagrannsóknir og hagskýrslur, en ekki til þesa að vera sagnfræðileg gögn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.