Morgunblaðið - 24.03.1965, Qupperneq 15
Miðvikudagur 24. marz 1965
MORCUNBLAÐIÐ
15
•i*
Halldór Sigurðsson:
AÐ UTAIM
ÚRSLIT kosninganna, sem
fram fóru í Chile nú í mán
uðinum, hafa vakið mikla
athygli, og sennilegt er að
þau reynist gleðilegasti
atburðurinn í S-Ameríku
um árabil. Talið var, að
Kristilegi demókrataflokk-
urinn í Chile myndi vinna
nokkuð á við þingkosning-
arnar, en ekki einu sinni
bjartsýnustu menn þorðu
að vona, að flokkur Eduar-
dos Frei, forseta, ynni eins
glæsilegan sigur og raun
bar vitni.
Kristilegir demókratar
vonuðust til að fá þriðja
hluta 147 sæta fulltrúa-
deildarinnar, en fengu
hreinan meirihluta. Áður
höfðu þeir aðeins 24 sæti
í deildinni, svo fylgi þeirra
hefur meira en þrefaldazt.
Hins vegar var tap íhalds-
flokkanna og vinstri banda-
lagsins, þar sem kommúnistar
ráða ríkjum, svo gífurlegt, að
það mun taka flokkana mörg
ár að ná sér eftir það. Úrslit
kosninganna eru í raun og
veru mesti stjórnmálavið-
burðurinn í sögu Chile á síð-
ari tímum.
XXX
Forsetakosningarnar, sem
fram fóru í Chile í september
s.l., vöktu mikla athygli um
allan heim, vegna þess að þá
var í fyrsta skipti útlit fyrir
að kommúnisti yrði valinn
þjóðhöfðingi í lýðræðislandi.
íhaldsflokkarnir voru skelf-
ingu lostnir og komu sér sam
an um að styðja frambjóð-
ana Kristilega demókrata-
flokksins, Eduardo Frei, til
þess að koma í veg fyrir að
atkvæðin skiptust hinum al-
þýðlega og vinsæla kommún-
ista, Salvador Allende, í hag.
í þessum sögulegu kosningum
fór Frei með sigur af hólmi
og hlaut 56% greiddra at-
kvæða.
Á þeim tíma, sem liðinn er
frá forsetakosningunum, hef-
ur stjórn Freis ekki tekizt að
koma neinu í framkvæmd.
íhaldsflokkarnir og vinstri-
flokkarnir, sem höfðu töglin
og halgdirnar í þinginu, voru
sameinaðir í ákvörðun um að
koma í veg fyrir að endur-
bótaáætlun hins nýkjörna for-
seta næði fram að ganga.
Stóru íhaldsflokkarnir tveir
í Chile hafa um áratugabil
fylkt stefnu, sem líklegast
verður bezt lýst með orðum
Ramóns Barros Luco, sem var
forseti í byrjun aldarinnar.
Hann sagði: „Það eru aðeins
til tvennskonar þjóðfélags-
vandamál, þau sem leysast af
sjálfu sér og þau ógleyman-
legu.“
Undir langvarandi stjórn
íhaldsflokkanna hafa vanda-
málin í Chile vaxið landinu
yfir höfuð. Yerðbólgan nemur
35—40% árlega, og skuldir
landsins við erlend ríki eru
nú sambærilegar við svimandi
hæð Andesfjallanna. Nema
þær um 100 milljörðum ísl.
Edouardo Frei,
forseti Chile.
kr. Umhverfis stórborgir
landsins rísa ein ömurlegustu
fátækrahverfi álfunnar og
ólæsi er algengt, þótt landið
eigi miklar auðlindir og mið-
stéttirnar séu hlutfallslega
fjölmennar.
Það má með sanni segja, að
kaþólska kirkjan í landinu sé
frjálslyndari en hin öfluga
landeigendastétt, sem hefur
verið andvíg öllum endurbót-
um á jarðeignalögunum. (Af
öllum landeignum í Chile eru
2800 býli stærri en þúsund
hektarar og þau ná yfir 75%
alls ræktaðs lands.)
Erkibiskupinn í höfuðborg-
inni, Santiago, hefur sent út
hirðisbréf, þar sem hann skor-
ar á hina ríku, að opna augu
sín og gera sér ljóst, að með-
an he-lmingur þjóðarteknanna
renni í vasa tíunda hluta íbú-
anna, búi stór hluti þjóðarinn-
ar við mikinn skort.
Vinstri sósíalistarnir vilja
gera Chile að annarri Kúbu,
en Frei forseti hefur reynt að
sannfæra landa sína um, að
bráðnauðsynlegt sé að endur-
skipuleggja þjóðfélagið án
tafar, en innan takmarka nú-
verandi stjórnarskrár. Ráðu-
neyti hans er skipað fólki,
sem sannað hefur skipulags
og stjórnunarhæfileika sína,
en ekki stjórnmálalegum gæð
ingum, og slíkt er óvenjulegt
í S.-Ameríku í dag.
Fyrir þingkosningarnar var
algerlega vonlaust fyrir Frei
að koma fram hinum nauðsyn
legustu endurbótum og í kosn
ingabaráttunni var kjörorð
flokks forsetans: „Þing fyrir
Frei“.
Með hinum glæsilega kosn-
ingasigri hefur forsetinn nú
við hlið sér þing, sem mun
styðja framkvæmd endurbóta
áætlunarinnar. Og með þess-
um mikla atkvæðafjölda er
kristilegi demókrataflokk-
urinn orðinn sterkara afi inn
an stjórnmála landsins, en
áður hefur þekkzt. Chile verð
ur aldrei sama landið eftir
kosningarnar nú í marz.
Það er óhjákvæmilegt, að
straumhvörfin í stjórnmál-
um Chile hafi áhrif á önnur
lönd í S.-Ameríku. Fyrir rúm
um 10 árum, 1953, hlaut Kristi
legi demókrataflokkurinn að-
eins 2,9% atkvæða í kosning-
unum í Chile. Þótt flokkurinn
sé starfandi í öllum ríkjum
S.-Ameríku nema fjórum, er
þetta í fyrsta skipti, sem mað
ur úr flokknum er kjörinn for
seti og flokkurinn hefur unn-
ið svona mikinn hluta þing-
sæta.
. Það hefur lengi verið ljóst,
að Kristilegir demókratar eru
fulltrúar lýðræðishreyfingar-
innar, sem fer ört vaxandi í
þessum heimshluta. Og í Vene
zuela og Brasilíu hafa þeir
þegar nokk;ur áhrif. í and-
stöðu við gömlu flokkana í
S.-Ameríku, er hugmynda-
fræði Kristilega demókrata-
flokksins byggð á hinum fram
farasinnuðu umburðarbréfum
kaþólsku kirkjunnar.
Kristilegir demókratar eru
mjög andvígir kommúnistum,
og margir líta á þá sem eina
aflið, er unnið geti gegn áhrif
um þeirra. Þarf víst engan
að undra þótt Fidel Castro
hafi oftar en einu sinni lýst
óánægju sinni með fylgisaukn
ingu Kristilegra demókrata í
S.-Ameríku.
Ekki er ólíklegt, að innan
tíðar standi Fi-ei og aðrir leið-
togar Kristlegra demókrata í
S.-Ameríku jafnfætis leiðtog-
um hinna stóru bræðraflokka
í Ítalíu og V.-Þýzkalandi.
Athyglisveröar
kosningar í Chile
Kristilegir demókratar bjóða
hægri- og vinstrimönrtum
birginn i 8"Ameríku
— BRIDCE —
EFTIRFARANDI spil var spilað
í bridge-keppni í Bandaríkjun-
um nýlega og gengu sagnir:
Suður Vestur Norður Austur
2 A pass 3 4 pass
3 A pass 4 ♦ pass
7 A pass pass pass
A 9
4 DG1062
4- ÁK 10 8 43
* 2
A G 10 5 A 8
V 973 4 K 8 5 4
❖ D G 4 9 7 6 52
* K 9 7 4 3 4 865
A ÁKD76432
4 Á
* ÁDG10
Vestur lét í byrjun út spaða-
gosa og spilið tapaðist, því sagn-
hafi varð að gefa slag á laufa-
kóng.
Allir spilarar kannast við spil
eins og þetta, þar sem suður hef-
ur nær örugga 12 slagi, en vant-
ar upplýsingar um hvort félagi
hans á laufa-kónginn.
Mörg sagnkerfi gera alls ekki
ráð fyrir spilaskiptingu sem þess
ari, þegar aðeins vantar upplýs-
ingar um eitt eða tvö ákveðin
spil. Sagnkerfi það, sem kennt
er við hinn kunna bandaríska
spilara Schenken, gerir ráð fyrir
þessu með sérstökum spurnar-
sögnum, sem er í stuttu máli
þannig:
Þegar spilari hefur skiptingu
eins og suður í spilinu hér að
ofan, þá er opnað á 2 tíglum. Er
þetta spurning um ása og segir
-----............... ....—---------
félagi frá ásum á eftirfarandi
hátt. Ef hann á engan ás þá. segir
hann 2 hjörtu, en ef hann á
hjartaásinn segir hann 2 grönd.
Ef hann á einhvern annan ás þá
segir hann í þeim lit. Eigi hann
2 ása stekkur hann í þeim lit er
lægri ásinn er í.
í næstu umferð segir sagnhafi
lægsta lit yfir svarinu og er þá
spurt um kónga á sama hátt.
Nú skulum við athuga hvernig
sagnir hefðu gengið ef Schenken
kerfið hefði verið notað í spilinu
hér að ofan:
Suð'ur Norður
2 4 3 4
3 V 4 4
6 A pass
Norður segist ekki eiga laufa-
kóng og því er ráðlegt að segja
aðeins hálf-slemmu.
Sálarrannsóknafélag
*
Islands
heldur skyggnilýsingafund með miðlinum Haf-
steini Björnssyni í samkomuhúsinu Lídó fimmtu-
daginn 25. þ.m. kl. 20:30.
Avarp flytur séra Sveinn Víkingur.
Hljóðfærasláttur.
Aðgöngumiðar fyrir félagsmenn meðan húsrúm
leyfir, afgreiddir á skrifstofu félagsins, Garða-
stræti 8, kl. 16—19 dagana 24. og 25. marz.
F ramkvæmdanef ndin.
Spilakvöld Sjálfstæöisfélaganna
VERÐUR í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU N.K. MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL. 20,30.
SR. GUNNAR GÍSLASON,
alþingismaður flytur ávarp
kvöldsins.
Y VÖRÐUR, HVÖT, ÓÐINN, HEIMDALLUR.
Húsið opnað kl. 20.00 — Lokað kl. 20.30.
Veitt verða góð spilaverðlaun og happdrætti verður
að vanda. — Sýnd verður kvikmynd „Stjarnan
í Norðri“ með ísl. tali. — Sætamiðar afhentir á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins á venjulegum skrifstofu-
tíma.
8 jálf stæðisf ólk!
Takið þátt í góðri skemmtun.
SKEMMTINEFNDIN.