Morgunblaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 22
oo áu *-> MQRGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 f___£1___í' Samskot FH-inga til að fá Sigurlinu í úrslitaleikinn En FH fær ekki svör um hvort slíkt er lögBegt SPENNINGURINN í íslandsmót- inu i handknattleik er að mestu horfinn. FH þarf að ná 1 stigi í tveim síðustu leikjum sínum við Ármann og Fram til að hafa sigrað í 1. deild karla og Valur er kominn í 1. deild og Víkingar fallnir í 2. deild. En í kvenna- flokki er spennan mikil — svo mikil að FH-ingar hafa skotið saman fé til að fá heim frá Nor- egi Sigurlínu Björgvinsdóttur, eina af liðsins beztu stoðum í þeirri von að það megi enn frekar styrkja sigurvonir FH í keppninni um fslandsmeistara- titil í meistaraflokki kvenna. Tvísýn staða. Staðan í meistaraflokki kvenna er nú þannjg að þrjú félög FH, Valur og Ármann eru jöfn að stigum. Komið hefur í ljós að þessi þrjú félög skera sig nokkuð úr í keppni kvenna og virðast mjög jöfn að styrkleika innbyrð- is. Það var þó ekki fyrr en FH sigraði íslandsmeistara Vals fyrir skömmu að FH komst í þann hóp „hinna stóru“. Markahlutfall FH er lakara en hinna félaganna, en markahlutfallið skiptir ekki máli. Nú á FH eftir að leika við Breiða- Sigurgeirsmótið í kvöld í KVÖLD fer fram í Sundhöll- inni úrslitaleikur hins svonefnda Sigurgeirsmóts í sundknattleik, sem haldið er til minningar um Sigurgeir Guðjónsson, KR. Einnig verður keppt í 200 m skriðsundi, 200 m bringusundi, 200 m skriðsundi kvenna og 200 m bringusundi kvenna. blik og þar má telja FH vlsan sig- ur, en Ármann og Valur eiga eftir leik sín á milli og þar getur allt skeð. Verði jafntefli í þeim leik Qg FH vinni Breiðablik er FH íslandsmeistrar. Vinni annað hvort Valur eða Ármann verður sigurvegarinn jafn FH að stigum og þá þarf aukaleik um úrslitin. Sem sagt sem stendur hefur FH einna mesta möguleika, því jafn- teflið milli Ármanns og Vals er ekki óhugsandi þó það sé „veik- ur“ möguleiki. Möguleikar FH Siigurlína Björgvinsdóttir ein af styrkustu stoðum FH-liðsins hefur dvalið í Osló í vetur og starfað þar í lyfjaverzlun. Hún hefur æft handknattleik og eitt- hvað leikið. FH-menn telja það mikinn styrk að fá hana heim til að leika með liðinu —' einkum ef til aukaúrslitaleiks kemur. Það ásamt miklum sigurmögu- leikum FH hefur hleypt ham í stuðningsmenn FH og nú mun hafa verið skotið saman nægu fé til að kosta snögga heimferð Sigurlínu. En þá munu FH-menn hafa rekið sig á enn einn vanda. Upp kom einhver vafi um það hvort Sigurlína mætti leika með. HSÍ vísaði málinu til ÍSÍ og þar mun málið bíða svars. Vera má að einhverjir ann- markar séu á að ísl. íþrótta- fólk geti leikið bæði erlendis pg heima á sama keppnistíma- hili, en það mun þó oft hafa skeið áður, einkum í frjálsum íþróttum. Meistaraflokkur ÍR í körfuknattleik. Þorsteism lék með 3. f/. og vann Hólmara 729:79 Ánægjuleg heimsókn ÍR-inga til Stykkishólms SUNNUDAGINN 7. marz s.l. komu tveir körfuknattleiksflokk- ar frá ÍR í heimsókn til Stykkis- hólms og léku við Umf. Snæfell. Keppnin hófst kl. 3 síðdegis og var íþróttahúsið troðfullt af áhugasömum áhorfendum. Fyrst lék III. flokkur ÍR við jafnaldra sína úr Snæfelli. Hafði Snæfell yfir í hálfleik, 20:11, en í síðari hálfleik hafði ÍR algera yfirburði og sigraði með 43:19 stigum. Næst lék meistaraflokkur ÍR við II. flokk Snæfells í kvennaflokki. bæði þessi lið eru skráð í íslands- mótið 1965, en hafa ekki fengið að leika, þar sem þau eru einu liðin, sem skráð eru til keppni. Vonandi kemur ekki til þess oft- ar, að keppni falli niður í kvenna flokkum á Íslandsmótum í körfu- knattleik, vegna þátttökuleysis. ÍR stúlkurnar höfðu yfirburði í fyrri hálfleik, sem þær unnu með 20:10. Síðari hálfleikur var öllu jafnari eða 14:12 og sigraði því ÍR með 34:22 stigum. Síðasti leikurinn var sá Cóður árangur á skóla- móti í frjálsum íþróttum MEISTARAMÓT skóla í frjáls- um íþróttum var haldið á sunnu- daginn í íþróttahúsi Háskólans og sáu þeir Benedikt Jakobsson, sem m.a. setti mótið með ræðu, og Þorkell St. Ellertsson íþrótta- kennari um framkvæmd móts- ins, sem var erfið en tókst vel. Mörg góð og athyglisverð af- rek voru unnin. Sérstaka athygli vakti t.d. Skúli Hróbjartsson, Bændaskólanum, Hvanneyri, en hann sigraði í 3 greinum ungl- inga með ágætum afrekum. Þá varð t.d. hin nafntogaða Sigríð- ur Sigurðardóttir að lúta í lægra haldi fyrir Sigrúnu Bjarnadótt- ur, Stykkishólmi, í langstökki án atrennu. Mikla athygli vakti og Guðmundur Pétursson, MA, í langstökki drengja og einnig hversu Bændaskólanemar á Hvanneyri voru framúrskararídi í unglingaflokki. Úrslit mótsins urðu þessi: STÚLKNAFLOKKUR: Hástökk með atrennu: Lína Gunnarsd. G. Vesturb. 1.30 María Hauksd. G. Réttarh. 1,30 Framhald á bls. 8 Skemmtilegasti, enda voru skor- uð samtals 200 stig í honum. III. flokkur pilta úr ÍR ásamt hinum ágæta Þorsteini Hallgrímssyni, lék gegn Snæfelli. Höfðu liðs- menn ÍR mikla yfirburði í fyrri hálfleik, sem þeir unnu með 63:29 stigum. Var samleikur þeirra mjög hraður oig öruggur, byggður upp af Þorsteini, sem eins og svo oft áður var „kon- ungur vallarins". Hittni þeirra ÍR-inganna var og frábær. í síð- ari hálfleik sóttu Snæfellsmenn í sig veðrið og lauk honum svo að ÍR skoraði 58 stig en Snæfell 50. Lokatölurnar urðu því 121:79. í lok keppninnar afhenti Þor- steinn Hallgrímsson 40 ungling- um úr Barna- og Miðskólanum í Stykkishólmi hæfnismerki KKÍ, sem þeir höfðu nýlega unnið til. Heimsókn þessi var til hins mesta gagns fyrir okkur hér vestra. Leikni og kunnátta þess- ara íþróttaflokka var lærdómsrík fyrir okkur og framkoma íþrótta- fólksins til fyrirmyndar. Sigurður Helgason. Einn bezti skíðomaðm heiznsins ÞETTA er V-Þjóðverjinn Georg Thoma — einn fræg- asti skiðamaður síðari tíma. Hann vann norræna tvíkeppni (göngu og stökk) á Ilolmen- kollenmótinu á dögunum, enda áður Olympíumeistari í Squaw Valley og þriðji í Innsbruck 1964. Hans sterkari hlið er stökkið, en hann er einnig góður göngumaður — þó hann á þýzka meistaramót- inu yrði 3. í göngukeppni norrænu tvíkeppninnar. Samt bar hann sigur út býtum í samanlagt og hlaut „gullskíð- ið“ sem veitt er sem verðlaun í 8. sinn. Skúli Hróbjartsson — vann 3 greinar. Christenseits- keppni Skct- félngsins Á miðvikudagskvöld nk. 24. marz verður Christensens-keppni hjá Skotfélagi Reykjavíkur. — Verður þar keppt í annað sinn um styttu þá sem frú Sesselja Christensen gaf til minningar um mann sinn Hans Christen- sen, sem var um langt skeið einn ötulasti og snjallasti skotmaður félagsins. Þessi keppni verður á- reiðanlega hörð og spennandi ef dæma skal eftir síðasta móti. —. Keppt er í öllum fjórum skot- stellingum: liggjandi, sitjandi, á hné og standandi. — í síðustu keppni tóku 10 keppendur þátt og varð þá hlutskarpastur Sverr- ir Magnússon, sem hlaut 100-87- 89-70=355 stig af 400 möguleg- um. Skotfélagið hefur haldið eitt mót sem af er þessu keppnisári og tóku 17 þátttakendur þátt í mótinu. Þar sigraði Robert Schmidt og hlaut 498 stig af 500 mögulegum, sem er afburðaár- angur. Skotið var þá einungis 1 liggjandi stellingu. Æfingar hafa verið ágætlega sóttar í vetur og búast má við spennandi keppni í vor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.