Morgunblaðið - 24.03.1965, Page 24
r
SERVIS
SERVIS
■ 1; - ’ SERVIS
SERVIS
SERVIS
Servis
Júils IAOGAVEGI
í»iP0iWtIiXa«>iílr
70. tbl. — Miðvikudagur 24. marz 1965
Seðlabankinn kaupir
mynt- og seðlasafn
í því eru um 3000 myntir
og rúmlega 1000 seðlar —
Kaupverð um 330 þús. kr.
SEÐLABANKINN hefur nýlega
keypt mynt- og seSlasafn ólafs
Guðmundssonar, lögregluþjóns,
en í því eru um 3000 myntir og
rúmlega 1000 seðlar. Tók það
Ólaf 30 ár að viða að sér þessu
mikla safna sínu. Heyrzt hefur,
að kaupverðið hafi verið rúm-
lega 330 þúsund krónur.
Safnið nær fyrst og fremst yfir
gjaldmiðil, sem notaður hefur
verið á íslandi í gegnum aldirn-
ar, svo og ýmsa minnispeninga,
sem hér hafa verið gefnir út. Þá
eru í því allir peningaseðlar, sem
hafa verið gefnir út hér og af-
brigði af þeim. Mun vanta aðeins
örfá afbrigði í safnið. í því eru
einnig mynt og seðlar frá fjöl-
mörgum löndum öðrum, m. a.
Norðurlöndum.
Þá eru í því ýmsar tegundir
hinna svonefndu „brauðpeninga"
sem erlend og innlend verzlunar-
félög gáfu út og þjónuðu þeim
tilga.ngi að vera gjaldmiðill.
Seðlabankinn átti mikið mynt-
og seðlasafn fyrir, en með þess-
um kaupum hyggst hann full-
komna það safn sitt. Þá er til
slíkt safn í Þjóðminjasafninu, en
það nær heldur ekki yfir allar
útgáfur og afbrigði.
Þegar Landsbankinn var stofn-
aður árið 1886 gaf Landssjóður
út 500 þúsund krónur í seðlum
og afhenti bankanum sem rekstr-
arfé. Árið 1904 fékk íslandsbanki
seðlaútgáfurétt, en Landsbank-
inn fékk takmarkaðan seðlaút-
gáfurétt árið 1924 en að fullu
árið 1927.
Þegar íslandsbanki hætti starf-
semi sinni 1980 og Útvegsbankinn
tók við hlutverki hans voru seðl-
ar íslandsbanka innleystir.
Frá árinu 1927 starfaði Lands-
bankinn í þrem deildum, seðla-
bankadeild, veðdeild og spari-
sjóðsdeild. Árið 1957 var seðla-
bankadeildin gerð að sérstökum
banka og var það skref stigið til
fulls árlð 1961.
Verzlunarfoankinn mun einnig
hafa keypt einkasafn fyrir
skömmu sem vísi að mynt- og
seðlasafni fyriy bankann, en það
mun ekki hafa verið eins stórt
eða fullkomið og það sem Ólafur
Guðmundsson átti.
Bjarni litli í fanginu á Gíslínu í gær. — Ljósm. Sv. P.
Skyggnifund-
urinn verður
EINS OG skýrt hefir verið frá
í fréttum átti að halda skyggni
lýsingafund í Fríkirkjunni, og
ætlaði Hafsteinn miðill að ann
ast skyggnilýsingar þar, á veg
um Sálarrannsóknarfélags ís-
lands.
Nú hefur þessu verið breytt,
þar scm Fríkirkjan fæst ekki
til þessa, og verður fundurinn
haldinn annað kvöld. Hefir
Sálarrannsóknarfélagið fengið
hinn stóra samkomusal í Lídó
fyrir fundinn.
Rauðmaginn
tregur
Bæ, Höfðaströnd, 22. marz.
STILLT og bjart er í veðri
eins og stendur, en 14 stiga frost
í morgun og snjólaust að kaila.
fsinn rekur sitt á hvað hér um
fjörðinn, en er ekki mjög til traf
ala. Þó hafa þeir, sem. stunda neta
veiðar, þurft a’ð hörfa undan
öðru hverju. Yfirleitt er mjög
tregur afli, bæði af rauðmaga og
þorski. Menn kenna kuldanum
urn það, að rauðmaginn gengur
ekki upp að landinu.
Mér þykir vænst um að ég
gat staðið við skátaheitið
Akureyri, 23. marz.
FRÉTTAMAÐUR Mbl. hitti
Gíslínu Benediktsdóttur heima
hjá henni í dag þegar hún var
nýkomin úr skólanum. Hún
er dóttir hjónanna Hugrúnar
Stefánsdóttur og Benedikts
Benediktssonar, málarameist-
ara, Strandgötu 43. Hjá henni
var þá staddur Bjarni litli
Hallgrímsson, sem henni auðn
aðist að bjarga frá drukknun
í gær og sagt hefur verið frá
hér í blaðinu. Hann var ný-
kominn í heimsókn til frænku
sinnar og hafði fært henni
fallegan rósavönd í þakklætis
skyni, en móðir hans og Gísl-
ína eru systkinadætur.
— Hann á heima hérna í
næsta húsi og heimagangur
hjá okkur, segir Gíslína. —
.Til allrar hamingju varð hon-
um ekki meint af volkinu,
fékk ekki einu sinni hita og
stálsleginn í dag.
— Var ekki hrein tilviljun
að þú komst auga á hann í
vökinni?
— Jú, eiginlega. Ég hafði
skroppið yfir um til mömmu
hans og sá þá tvo litla stráka,
Bjarna og annan til, vera að
leika sér á ísnum, Bjarna á
þríhjólinu sínu. Krakkarnir
hérna í kring eru alltaf úti á
ísnum þessa dagana. Halla
frænka mín hafði iagt sig og
svaf þegar ég kom, svo að ég
fór rakleitt til baka. Þegar ég
kom út á götuna sá ég annan
drenginn vera að brölta á vak
arbarminum, en höfuðið á
Bjarna var að sökkva í sjó-
inn.
— Og þá tókstu til fótanna.
— Já, ég rauk af stað með
þá einu hugsun í kollinum að
komast til hans nógu snemma,
en vissi ekki fyrr til, en ísinn
brotnaði undan mér og ég
stóð í mitti í sjó, enda var há-
flóð.
— Var ekki kalt að lenda
í sjónum?
— Ég veit það ekki, fann
Framhald á bls. 8
M.s. Dronning Alexandrine lagði upp í síðustu IsKmdsferð sína
frá Kaupmannahöfn sl. fimmtudagskvöld. Var mynd þessi tekio
við það tækifæri, og sýnir tvo hafnarverkamenn skála fyrir
„Drine“, eins og Danir nefna skipið. „Drottningin" er væntanleg
til Reykjavíkur á fimmtudag, og fer héðan í síöasta sinn á mánu
dag. — Tekur svo ,Kronprins 01av“ við.
IVHsjafn iifli Hornafjarðarbáta
Höfn, Hornafirði, 23. marz:
HÉR HEFIR afli báta verið mis-
jafn að undan^jjrnu þetta upp í
30 tonn eftir 2 lagnir, en bátarn
ir hér eru með um 7 trossur. Ekki
hefir daglega gefið til að vitja
um.
Aflinn hefir farið niður í 10
tonn éftir tvær lagnir og þykir
ekki mikill afli á bátana hér
Stræfisvagns-
farþegi varð
fyrir bifreið
f GÆR kl. 13:10 varð stúlka fyr
ir bifreið hjá stæði Landleiða við
Kársnesbraut í Kópavogi. Rétt
eftir að slysið varð fór stúlkan
upp í strætisvagn og hélt til
Reykjavíkur. Bifreið sú er hún
varð fyrir var Ijós að lit. Stúlk-
an hafði sagt bílstjóranum á
Ijósu bifreiðinni að hún hefði
ekki meitt sig að marki, en síð
ar kom í Ijós að um meiðsli var
að ræða.
Ökumaður hinnar ljósu bifreið
ar er beðinn að hafa samband
við lögregluna í Hafnarfirði og
einnig sjónarvottar er kynnu að
hafa verið að slysi þessu.
Verkalýðsráð-
stefna 26. marz
BOÐAÐ hefir verið til verka-
lýðsmálaráðstefnu hinn 26. marz
nk. og verður hún í Lindarbæ.
Þar koma saman fulltrúar frá
hinum ýmsu samböndum og fé-
lagasamtökum verkamanna víðs-
vegar um landið, ennfremur full«
trúar iðnaðarstéttanna.
Gert er ráð fyrir að fundur
þessi fjalli um kjarasamninga á
vori komanda.
yfirleitt, þótt eipstaka skeri sig
úr. Svo virðist sem aflabrögð fari
heldur batnandi.
Bátarnir verða hins vegar aðl
sækja langt, allt vestur um Ing
ólfshöfða og einn fór allt vestur
í Meðallandsbugt, en fékk tóman
ufsa.
Einn bátur hér hefir verið rrieð
ýsunet og haft sæmilegan afla,
komizt hæst í 30 tonn í lögn.
Færabátar verða ekki varir.
Alls eru 10 bátar gerðir út héð
an á vetrarvertíð.
Þistilfjörður
ftfillur af Isi
Þórshöfn, 23. marz.
EKKI er annað að sjá en |
Þistilfjörður fé fullur af ísi,.
svo langt sem séð verður héð- '
an. Svo virtist í kvöld sem I
hvalavaða væri unðan Sauða-1
nesi að brjóta sér op upp um (
krapann milli ísjakanna,
Heyrðust blástrar og ískur-'
hljóð og hljóð er líktust mest |
þungum stunum. Töldu kunn-
ugir að þarna væri aðallega'
um hnísur að ræða eða höfr- '
jnga, því hvalfiskar þessir |
stukku hátt í loft upp, er þeir |
komu upp úr krapanum.
Selur er allur horfinn héðan ]
og var~ löngu áður en ísinn!
kom. — Birgir.
Málverkasýninp;
á. Skjaldbreið
Helgi M. S. Bergmann opnaði
málverkasýningu á Hótel Skjald
breið sfðastliðinn laugardag.
Helgi sýnir 20 olíumálverk og
tempera-myndir. Sýningin verð-
ur opin þessa viku og er aðgang-
ur ókeypis. Næstkomandi laugar
dag kl. 4 mun Kristján Guð-
mundsson bjóða upp miyndirnar
á staðnum.
Sjálfstæðisfúlk! IHunið spila-
kvöld Sjálfstæðisféleganna
í kvöld