Morgunblaðið - 10.10.1965, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.10.1965, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 10. október 1965 Einangrun Arneshrepps rofin Fólkið fagnar nýju akvegasambandi I>AÐ BLAKTI varla hár á' höfði um 10 leytið á miðviku- dagsmorguninn, er við lögð- um upp frá Hólmavík í Land- Rover-bifreið prófastsins í Strandasýslu, séra Andrésar Ólafssonar. Með í förinni var Sigurður Bjarnason alþingis- maður og síðar slóst Ásgeir Kristmundsson vegaverkstjóri í Strandasýslu með í föripa. Ferðinni var heitið norður í Djúpuvík, sem stendur við innanverðan Reykjarfjörð, en þangað er nú um þessar mund ir að verða bílfært. Leiðin frá Hólmavík er um 80 km. Unnt hefur verið að aka síðan í fyrrahaust í Veiðileysufjörð, en vantað hefur veg yfir Veiði leysuháls inn Kúvíkurdal og þaðan inn Reykjarfjörð að Djúpuvík. Segja má að skotvegur sé upp á Veiðileysuháls, en þeg ar á hann er komið og halla tekur niður í Kúvíkurnar er vegurinn töluvert blautur enn, en þó sæmilega fær, þar eð víða hefur verið púkkað með stórgrýti. Tókst okkur að varla trúa því enn að vegur- inn væri raunveruleiki. Er við þiggjum höfðingleg ar veitingar í matskála þeirra vegagerðarmanna hjá þeim hjónum Ásgeiri vegaverk- stjóra og konu hans Elísabetu Helgadóttur, segir Ásgeir okk ur, að vinnuflokkurinn hafi byrjað að bera ofan í veginn við Kaldbak hinn 12. júlí og þar hafi þeir í fyrstu haft bækistöð sína, eða_ þar til þeir komu í Veiðileysuna. í vega- vinnuflokknum starfa nú 10 menn, að því er Ásgeir upplýs ir. Þeir hafi til umráða fjórar stórvirkar ýtur og jafnmarga flutningabíla. Þá sé einn mað urinn í flokknum sérmenntað- aður í meðferð sprengiefnis, en er við komum var einmitt verið að sprengja veginn við Djúpuvíkurkleif. Hann kvað Séra Andrés Ólafsson, prófastur í Strandasýslu okkar til póstflutninga og allra samgangna. Það er áber andi, hve litlar skipakomur hafa verið í sumar, en þó hafa komið hingað flugvélar einu sinni í viku og er það einnig mikið til bóta. — Hver eru helztu vanda- málin, er þið eigið við að etja? — Það er nú fyrst og fremst fiskileysið. Afli hefur verið Guðjón Magnússon í Kjörvogi, oddviti í Árneshreppi. — Er langt síðan síidarverk smiðján hér á Djúpuvík var í notkun? — Já, hún hefur ekki verið notuð síðan um 1050 og það þyrfti mikið að lagfæra hana ætti hún að verða starfhæf aftur. Annars er ástand verk- smiðjunnar í Ingólfsfirði mun betra. Við höfum svona beðið og vonað að síldin myndi Fyrstu íbúarnir norðan Veiði- leysu, er fara suður land- veg, bjónin Gunnar Guðjóns- son sýslunefndarmaður og Guðbjörg Pétursdóttir. Ásgeig Kristmundsson, vega- verkstjóri og kona hans Elísabet Helgadóttir. komast á bifreið séra Andrés- ar alla leið til Djúpuvíkur og kvaðst Ásgeir vegaverksjtóri mundu láta ganga frá vegin- um þannig að hann yrði sæmi lega fær þegar vegagerðinni lyki í haust. Okkur var strax ljóst og við sáum verksummerki að um stórfenglegar framkvæmd ir er að ræða. Við Djúpuvík urkleif voru tvær stórvirkar ýtur að verki, og voru þær að ýta við björgum er losnað höfðu við sprengingu er ný- lega var búið að gera. Var stórvel unnið og miðaði vega- gerðinni furðu fljótt áfram. Skammt fyrir innan Seljaá í Veiðileysufirði mættum við tveimur Ingólfsfirðingum, sem voru á leið suður til Reykja- víkur. Þetta voru þau Gunnar Guðjónsson, sýslunefndarmað ur í Árneshreppi, er býr á Eyri í Ingólfsfirði og kona hans Guðbjörg Pétursdóttir. Munu þau vera fyrstu íbúar norðan Veiðileysu, er fara landveg suður. Aðspurður sagði Gunnar að það væri stórkostlegur munur fyrir íbúa Árneshrepps að fá veginn og kona hans kvaðst Sigurður Bjarnason, alþingismaður og prófasturinn í Strandasýslu, séra Andrés Olafsson í hópi vegagerðarmanna við Djúpuvík urkleif. nýja veginn sem lagður hef ur verið í sumar munu vera um 10 km. í Djúpuvík kom til móts við okkur Guðjón Magnússon odd viti í Árneshreppi og bóndi í Kjörvogi. Við ræddum við hann um málefni hreppsins og hann segir: — Nú er þessum langþráða áfanga náð. Vegurinn mun rjúfa einangrun þá er við höf um orðið við að búa til þessa. Vegurinn mun breyta viðhorfi mjög lítill undanfarin ár, nema grásleppuveiðin. Bú- skapur hefur hins vegar geng ið vel. Fallþungi dilka er hér koma, en svo hefur ekki orðið enn. Hins vegar er mikill rækt unaráhugi meðal bænda hér um slóðir, verið er að ræsa Hallbert Guðbrandsson og Þorlákur Guðbrandsson báðir gamlirbændur úr Veiðileysu. Djúpavík séð frá nýja akveginum. um 17—18 kg að meðaltali og má það teljast gott. — Hve margir íbúar eru í hreppnum? íbúarnir voru við síðasta manntal 256, en þeim hefur nú eitthvað farið fækkandi síð an. Annars fer fólksfjöldinn eftir atvinnuhorfum hér sem annars staðar. fram mýrar og yfirleitt stór- hugur í mönnum. — Vildir þú taka eitthvað fram að lokum? — Já, ég þakka þeim aðil- um, sem unnið hafa að því að. koma veginum á. Hann er langt kominn og auðséð er að ekki vantar nema herzlumun Framh. á bls. 10 un i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.