Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.11.1965, Blaðsíða 28
Lang slærsia og íjölbrevtiasta blað landsins 257. tbl. — Miðvikudagw I©. nóvember 1965 MYNDAMÓT RF. MORGUNBLAÐSHÚSNU SbA VK æt síldveiöi og prýöisveðureystra SÆMÍLEGT veður var á síltf.ir- miðunum evstra sólarhringinn i'rá mánudagsmorgni til þriðju- cbgsnrMirgiins. 54 skip fengu þá aí'ía á Seyffiisfjarðardjúpi 44—45 sjémílur undan landi, alls 57.350 nsál og tunniur. Ágætt veffiur var á miðunum í gærmorgun og gær dog, og kl. 18 voru nokkur skip farin affi kasta. #) Löndunarbið er nú allsstað- ar eystra og síldarþrær fullar éða í þann veginn að fyilast. Heildar sildaraflinn á miðunum eystra í sumar var kominn upp í 3.357.250 má log tunnur í gær. #) Sovézk skip eru nú hundruð wn saman undan Austfjörðum, bæði stór „móðurskip", viðgerð- arskip og veiðiskip. Nokkur þeirra voru á Seyðisfjarðardjúpi í gær, en flest eru þau töluvert sunnar. íkviknun á Akureyri Akureyri, 9. nóv. í DAG kh rúmlega tvö kviknaði í íbúðarhúsinu á Vökuvöllum 1, en þar býr Hjörtur Björnsson ásamt fjölskyldu sinni. Eldurinn kom upp í þvottahúsi í námunda við óhreinan þvott, sem þar var á bekk, en ekkert bendir til þess, hvað valdið hafi íkviknuninni. Slökkviliðið þurfti að rjúfa þak- ið yfir þvottahúsinu, þar sem eidurinn var kominn í þekjuna, ®g tókst því að slökkva eldinn á skömmum tíma. Skemmdir urðu uokkrar á rafleiðslum og þakinu, en að öðru leyti litlar, t.d. eng- ar reykjar- og vatnsskemmdir, í íbúðinni. íbúðarhús og viðbyggð skepnuhús eru öll úr timbri og stór heystæða þar fast hjá, svo að þarna hefði getað orðið stór- bruni, ef ekki hefði verið iogn og slökkviliðið komið af mikilli skyndingu. — Sv. P. • Afli síidveiðiskipanna frá mánudegi til þriðjudags var sem hér segir: í tunnum: Björg NK 1100, Arnfirðingur RE 1000 og Jón Garðar GK 2700. — í málum: Grótta RE 1750 (tvær landanir), Hrafn Sveinbjarnarson III. GK 2200 (tvær landanir), Ingvar Guð jónsson GK 1900, Óskar Halldórs son RE 1200, Heiðrún ÍS 450, Hannes Hafstein EA 1200, Sigurð ur Bjarnason EA 1200, Jörundur III. RE 1400, Jörundúr II. RE 1200, Sunnutindur SU 800, Jón Kjartansson SU 1300, Arnar RE 1200, Guðrún Guðleifsdóttir IS Framhaid á bls. 27. Enginn sdttn- iundur boðuður SÁTTAFUNDI þeim, er hófst kl. 20.30 á mánudagskvöld með deiluaðiljum í verkfaili yfir- manna á togurum, lauk ekki fyrr en á fjórða tímanum á þriðju- dagsmorgun. Samkomuiag náð- ist ekki. Annar sáttafundur hef- ur ekki verið boðaður, og er ekki vitað, hvenær það verður. Tveir togarar, bv Geir og bv Hvalfeii, komu til Reykjavíkur í gær, til þess að taka vatn og oiíu, en þeir eru á leíð utan með afla. H jarfasjúkdóma varnir á fslandi ræddar af fuVItrútini og é fundi WHO I LOK nóvember n.k. verffiur I Kaupmannahöfn fundur, þar sem haldinn á vegum Alþjóffiaheil- ! ræddar verða aðferðir sem miða brigffiismálastofnunarinnar í ajJ þvj að koma j veg fyrir kransæðasjúkdóma. Prófessor Trillubáti sökkt í ógáti Akranesi, 9. nóv. Vþ. SÓLFARI fór aftur á veiðar í gær, en sneri aftur vegna hvass austanstorms. Síld- in, sem hann fékk í fyrrinótt í Kolluál, 350 tunnurnar, var gull falieg og söituð. Trillan Villi, 4,5 tonn að stærð sökk í bátakvínni í nótt. Endi spúlunarsiöngunnar lafði út af bátabryggjunni. Einhver hafði í ógáti skrúfað frá, svo að sjórinn rann stanzlaust í triiluna. Fyiiti hana, svo að hún sökk. í morg- un maraði hún í háifu kafi, hékk í böndum frá tveimur triilum. — Oddur. Sigurður Samúelsson mun mæta sem fulltrúi Islands á fundi þess- um. Frá þessu er skýrt í nýút- komnu hefti af ritinu Hjarta- vernd. Myndin er tekin vesiur á Hellnum á Snæfellsnesi fyrir nokkru. bar hefur verið unniffi að hafnarbótum, til þess að bæta aðstöðu bátanna, en framkvæmdum er ekki lokið. Á fundinum í Kaupmannahöfn munu mæta sérfræðingar frá Norðurlöndum. Einn liður dag- skrárinnar verður sérstaklega heigaður hinum fyrirhuguðu rannsóknum á hjarta- og æða- sjúkdómum meðal almennings á íslandi. Fulltrúar heilbrigðisstofnunar- innar á Íslandi Einnig er frá þvi skýrt að i ágústmánuði sl. hafi komið hing- að tveir fulltrúar frá Alþjóða- heilbrigðismálastofnuninni (WH Framhald á bls. 27. Miðfjarðará leigð á 1.300,000 Verkalýðsráðstefna Sjálfstæðis- manna í Valhöll um næstu helgi Rætt um viðhorfin í verkalýðs- og atvinnumálum VERKALÝÖRÁÐSTEFNA Sjálf- stæðisflokksins befur ákveðið að efna til verkalýðsráðstefnu, sem jafnframt verður aðalfundur ráðsins um næstu helgi. Ráðstefn an verður haldin í Valhöll við Suðurgötu og hefst á föstudags- kvöld kl. 8,30. Formaöur Sjálf- stæðisflokksins dr. Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra mun ávarpa ráðstefmina í upphafi, en síðan flytur Gunnar Helgason, form. Verkalýðsráðs skýrslu stjórnarinnar fyrir síðasta starfs- tímabil, en að henni lokinni verða frjálsar umræður og að Bjarni Birgir Pétur Gunnar síðustu fer fram kosning nefnda. Ráðstefnunni verður svo hald- ið áfram á laugardag kl. 2 e.h. Birgir Kjaran, hagfræðingur flyt ur erindi um efnahagsmál, en að ræ'ðu hans lokinrii gefst fundar- mönnum tækifæri til a'ð bera fram fyrirspurnir til framsögu- manns. Þá varður gert kaffihlé, en að því loknu talar Pétur Sig- urðsson alþm. um vandamál inn- lendrar og erlendrar verkalýðs- hreyfingar. Að ræðu hans lokinni hefjast umræður um álit nefnda. Á sunnudag hefst fundur kl. 2 e.h. Verða þá tekin fyrir álit nefnda og afgrei'ðsla mála og að síðustu stjórnarkosning. Þess er fastiega vænzt að sem flestir af forystumönnum Sjálfstæðis- manna i launþegasamtökunum mæti á ráðstefnunni, en allar nán ari upplýsingar um dagskrá henn ar eru gefnar á skrifstofu Verka lýðsráðs í Valhöll, sími 17100. Slaðarbakka í Miðfirði, 9. nóv. GERÐUR hefur verið leigusamn- ingur um Miðfjarðará. Leigutak- ar eru þeir Jóhannes Magnússon, Óskar Sveinbjörnsson, Reykja- vík, og fleiri veiðifélagar. Hafa þeir haft ána á ieigu undanfarin ár. Ársleigan er 1.300.000 krón- ur. þar af 200.000 til greiðslu vegna veiðihúss, sem leigutakar byggðu, en verður eign veiðifé- lagsins eftir tvö ár. Samningur- inn gildir í eitt ár, en framleng- ist um annað ár, ef honum verð- ur ekki sagt upp. — B. G. Banaslysið í Álftá MORGUNBLAÐIÐ hefur nú fengið nánari fregnir af bana- slysinu í Álftá á Mýrum, sem sagt var frá í blaðinu í gær. Sá, sem drukknaði hét Pétur Þórs- son, átján ára gamall piltur frá Akureyri, sem verið hefur vinnu maður á Arnarstapa á Mýrum umJ.anfarin sumur og ætlaði að dveljast þar í vetur. Foreldrar hans voru Þór Pétursson, sem lézt af slysförum á Akureyri ár- ið 1953, og ísafold Jónatansdóttir. Um kl. 18,30 á mánudagskvöld var Pétur heitinn á leið vestur Mýrar í jeppabifreið, sem annar maður ók. Þegar þeir komu að brúnni yfir Álftá, missti bílstjór- inn vald á jeppanum, en þarna er kröpp beygja. Mikil aurbleyta var á veginum við brúna. Ætl- aði bílstjórinn að koma í veg fyrir, að jeppinn ylti, en hann rann þá framhjá brúarsporðin- um, stakkst á nefið niður um sex metra háan bakka, valt yfir um sig ,svo að hann skall á þak- inu ofan í ána. Yfirbygigingin lagðist saman að mestu, og fest- ist Pétur í flakinu við það, að framrúðukarmurinn þrýstist að honum. Hurðin hrökk upp hægra megin, -þeim megin, sem Pétur sat. og komst bílstjórinn þar út ómeiddur. Hann reyndi að losa Pétur úr flakinu, en tókst ekki. Hljóp hann þá heim að Hrafn- kelsstöðum og sótti hjálp, en ekki tókst að losa um Pétur, fyrr en vélarafli var beitt. Var hann þá látinn, enda hafði höfuð hans þá lengi verið undir vatni. Áverkar voru á honuim, og er ekki full- víst, hvort hann lézt af völdum þeirra, eða hvort um drukknun var að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.