Morgunblaðið - 26.01.1966, Page 8

Morgunblaðið - 26.01.1966, Page 8
8 MORGU NBLAÐIÐ Beirut, 24. janúar: Ungrfrú Doris Lundi, flugrfreyja hjá „Air India“, sem varð eftir, að skipan læknis, og fór því ekki með í siðustu ferð þotunnar. Ungfrú Lundi er svissnesk. — AP. — Björgunarmenn Framh. af bls. 1 og fyrr greinir, hefur ekkert tek- izt að upplýsa í því efnL Takist björgunarsveitum ekki að komast á slysstaðinn, fyrr en með vori, eins og nú er talið, þá getur langt um liðið, þar til tekst að varpa nokkru ljósi á, hvað valdið hefur þessu mikla flug- slysi. Að vísu hafa nokkrir hlut- ar úr braki þotunnar fokið niður fjallshlíðar, m.a. taetlur úr pósti vélarinnar, en ólíklegt er talið, að af þeim verði nokkuð ráðið. Þau tvö lík, sem náðust í gaer, hefur ekki tekizt að þekkja. Á öðru þeirra fannst gullhringur, en ekki er vitað, hvort hann var af manni eða konu. Enginn hefur enn borið á hann kennsl. Kvöldráðstefna Heimdallar um fisland og EFTA HEIMDALLUR FUS efnir til kvöldráðstefnu í Félagsheimili Heimdallar annað kvöld, fimmtu dagskvöld og hefst hún kl. 18.00. Fjallað verður um ísland og EFTA og verða frummælendur Höskuldur Jónsson, viðskipta- fræðingur, Guðmundur H. Garð- arsson, viðskiptafræðingur og Þorvaldur Alfonsson, framkvstj. Félags ísl. iðnrekenda. Kvöldráðstefna þessi verður með því sniði, að þegar fyrsta I erindið hefur verið flutt verður gefið matarhlé og eiga fundar- menn þá kost á að kaupa öl og brauð í Félagsheimilinu. Síðari tvö framsöguerindin verða flutt að loknu matarhléi kl. 20.00 og eftir það verða almennar umræð ur. Félagsmenn í Heimdalli eru eindregið hvattir til þess að fjölmenna á kvöldráðstefnuna og tilkynna þátttöku til skrifstofu Heimdallar hið allra fyrsta, sími 17100. SAS keypti af Douglas Kaup fest á 10 þotum af gerðinni DC-9-40 Boeing varð að láta í minni pokann Stokkhólmi, 25. jan. — NTB — TALSMENN norrænu flug vélasamsteypunnar, SAS, skýrðu frá því í Stokk- hólmi í dag, að ákveðið hefði verið að festa kaup á farþegaþotum af gerðinni DC-9-40, frá Douglas-verk- smiðjunum bandarísku. — Verða þoturnar notaðar á skemmri flugleiðum SAS. Mikil samkeppni hefur undanfarið staðið milli Douglas- og Boeing-verk smiðjanna, vegna fyrirhug- aðra kaupa SAS. Að þessu sinni keypti SAS 10 þotur af umræddri gerð, og verða þær afhentar 1968. — Douglas-verksmiðjurnar gátu 1 til skamms tíma aðeins boðið þotur af gerðinni DC-9-30, sem ekki geta flutt fleiri far- þega en 97. DC-9-40 getur hins vegar flutt 107 farþega. Frá því snemma árs 1967, og þar til vélar þær, sem nú hefur verið samið um kaup á, verða afhentar, fær SAS að láni þotur af gerðinni DC-9- 30. — Kaupverð vélanna 10 er um 45 milljónir dala (tæpir 2 milljarðar ísl. kr.). Jafnframt hefur SAS fengið forkaupsrétt að 14 þotum til viðbótar, af gerðinni DC-9-40. SAS og svissneska flugfélag ið „Swissair" hafa haft um flugvélakaup þessi, og fá nýju þoturnar til umráða á undan öðrum flugfélögum. Miðvikudagur 26. janúar 1966 ___________________________i Eldsneytisleiðslum í Boeing 727 breytt — Lokið rannsókn á slysi við Salt Lake City, 11. nóvember sL FLUGRÁÐ Bandaríkjanna, CAB, hefur gefið út til- kynningu, þar sem segir, að farþegaþotan Boeing 727 sé „hugsanleg eldgildra“. Þotan, sem hér um ræðir, hefur notið mikilla vin- sælda. Sérfræðingar ráðsins um öryggi í lofti segja, að elds- neytisleiðslur þotunnar séu þannig úr garði gerðar, að þeim sé hætt við að rofna, sé um harða lendingu að ræða. Þá sé farþegaklefi þotunnar klæddur efnum, sem séu allt of eldfim. Sú harða gagnrýni, sem kemur fram í tilkynningu ráðsins, er niðurstaða af rann- sókn á slysi, sem varð 11. nóv- ember sl., við Salt Lake City. Þá skall þota af gerðinni Boe- ing 727 á flugbraut, í lendingu, með fjórum sinnum meiri þunga, en eðlilegt er taltð í leiðbeiningum framleiðenda. Við höggið skall lendingarút- búnaður á búki þotunnar, og rauf eldsneytisleiðslur. Eldur gaus þegar upp í búkn um, og létust 43 af 91, sem í þotunni voru. Þeir, sem lífi týndu, brunnu inni í vélinni, eða köfnuðu, en um lífshættu- lega áverka var ekki að ræða, skv. því, sem þeir, er að frum- rannsókn unnu, segja. Forstöðumaður flugráðsins, B. R. Allen, hefur sent frá sér greinargerð um Boeing 727 þoturnar, þar sem hann legg- ur til að gerðar verði sérstak- ar ráðstafanir til að tryggja öryggi þeirra, sem ferðast með þotum af þessari gerð. Tillög- ur hans eru í stuttu máli á þessa leið: • Eldsneytisleiðslur, sem liggja frá hólfum í vængjum til hreyfla aftast á búk, verði fluttar, og liggi framvegis undir miðju farþegarýminu. Telja sérfræðingar, að þannig megi betur verja leiðslurnar fyrir höggum, ef um óeðlilega harkalegar lendingar er að ræða. • Klæðningum farþega- rýmis verði breytt, og verði framvegis notuð óeldfim efnL að svo miklu leyti, sem kostur er á. í umræðum um slysið 11. nóvember, sagði Allen: „Nið- urstöður frumrannsóknar hafa leitt í ljós, að klæðning Boeing 727 þotunnar, sem fórst við Salt Lake City, á mik inn þátt í því, hve margir fór- ust, vegna elds og reyks“. Allen sagði enn fremur, að óeldfimari efni væru fyrir hendi, og ætti að krefjast þess, að þau yrðu notuð framvegis í nýjum gerðum flugvéla. Þá þyrfti að „hvetja mjög“ flug- félög til að skipta um klæðn- ingu í þeim farþegaflugvélum, sem nú eru í notkun. Enn eitt flugslys Friðrik og Vasjúkov gerðu Saigon, 25. janúar. AP, NTB BANDARÍSK herflutningaflug- vél hrapaði í morgun til jarðar í S-Vietnam, skömmu eftir flug- tak. Með flugvélinni voru 46 her- menn, og biðu þeir allir bana. Af þeim fregnum, sem borizt hafa af slysinu, er vitað, að flug- vélin hrapaði skammt frá flug- velli, sem er um 350 km fyrir norðaustan Saigon. Var hún það lágt á lofti, er hún tók að hrapa, að engurn, sem um borð var, gafst tóm til að bjarga sér í fall- hlif. Nánari fregnir frá slysi þessu hafa ekki borizt frá bandarísk- um hernaðaryfirvöldum í S.- Vietnam. jafntefli TtUNDA umferð Reykjavíkur mótsins í skák var tefld í Lido I í gærkvöldi. Friðrik Ólafsson og Vasjukov gerðu jafntefli, Böök vann Jón Hálfdánarson, Guð- mundur Sigurjónsson og Wade gerðu jafntefli, Jón Kristinsson og Björn Þorsteinsson gerðu jafntefli. Ilinar skákirnar fóru í bið. Biðskákir verða tefldar í Lido í kvóld, en að þeim loknum held ur finnski skákmeistarinn Böök fyrirlestur um skák og er aðgang ur ókeypis. Morgunblaðið birtir hér á eft- ir jafnteflisskák þeirra Friðriks og Vasjukovs: Holdanautin komin til Bessastaðabúsins HOLDANAUT frá Gunnarsholti voru flutt að Bessastöðum sl. sunnudag, en, þar á að taka upp hold.anautarækt. Voru flutt til búsins 20 kýr og kvigur á aldr- inum frá veturgömlu til fjögurra vetra, svo og eitt naut. Er blaðið hafði í gær sam- band við Ólaf Stefánsson, naut- griparæktarráðunaut, sagði hann, að mjólkurframleiðsla hafi verið lögð niður á Bessastöðum sl. sumar, en þá hafi jafnframt verið ákveðið að koma þar upp holda- nautabúi og fá nautin frá Gunn- arsholti. Samkvæmt búfjárrækt- arlögum frá sl. ári eigi landbún- aðarráðuneytið að skapa aðstöðu á ríkisbúi til að rækta holdanaut af Galloway-blendingastofninum, sem fyrir er í landinu. Sagði Ólafur, að búið á Bessa- stöðum heyri undir forsætisráðu- neytið, en Gunnarsholt undir Landgræðslu ríkisins, en þar hafi verið ræktuð holdanaut sl. 20 ár og stofninn þar sé nú um 330 gripir. Ólafur sagði, að forsætisráðu- I neytið og landbúnaðarráðuneytið I hafi komið sér saman um að 1 holdanautaræktin yrði tekin upp að Bessastöðum, en samkvæmt búfjárræktarlögunum eigi rækt- unin að vera undir forsjá Búnað- arfélags íslands. Hafði stjórn þess falið honum að hafa umsjón með ræktuninni. Að sögn Ólafs Stefánssonar valdi hann og Hjalti Gestsson gripina, sem fluttir hafa verið að Bessastöðum, en holdanauta- ræktina að Gunnarsholti hóf Runólfur heitinn Sveinsson, en síðari árin hefur annazt hana Páíl Sveinsson, landgræðslustjóri. Bústjóri að Bessastöðum er Ingvi Antonsson. Þá má geta þess, að þegar mjólkurframleiðslan hætti að Bessastöðum var hænsnabúið stækkað úr 800 í allt að 2000 hænsni. HVlTT: Friðrik Ólafsson. SVART: Vasjukov. 12. a3, Rb6 1. d4, Rf6 13. Dd3, a5 2. c4, g6 14. b3, Bd7 3. g3, Bg7 15. Hbl, Hec8 4. Bg2, 0--0 16. Hel, Ha6 5. Rf3, d6 17. Bg5, h6 6. 0—0, Rbd7 18. Bd2, Re8 7. Dc2, e5 19. Rdl, Rf6 8. Hdl, He8 20. h3, Be8 9. e4, c6 21. Re3, Haa8 10. Rc3, De7 22. Rh4, Bd7 11. d5, c5 JAFNTEFLL Vegir spillast vegna hríðar og snjófoks ALLGÓÐ færð var í gær um Suðurlandsveg um Þrengsli, en Hellisheiði var hins vegar ófær. Þá var fært austur að Seljalandsá en hún flæðir yfir veginn, svo hann er ekki fær smábílum að sinni. Austur i Vík í Mýrdal var blindbylur í gærmorgun og ekki ferðaveður, en þegar á daginn leið létti. Þá kom í ljós, að stór- um bílum var fært til Víkur og yfir Mýrdalssand. Vesturlandsvegur var ágætur upp í Borgarfjörð, en mikil hríð var í gærmorgun á Snæfellsnesi og í Dalasýslu. Þar hefur ekki verið ferðaveður og búizt við að vegurinn sé ófær öllum smærri bílum. Á Vestfjörðum er aðeins fært innan sveita, en þar hefur færð verið sæmileg að undanförnu. Skafrenningshríð var á Holta- vörðuheiði í gær, en Vegagerðin hafði þar snjóbíl, sem hélt leið- inni opinni fyrir stærri bíla. Því var fært norður til Hólmavíkur og Akureyrar og Húsavíkur. Á norðausturlandi var ófært. Á Austfjörðum hafa fjallvegir lokazt. Fært var tun Fljótsdals- hérað og um Fagradal til Reyðar fjarðar og Eskifjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.