Morgunblaðið - 21.04.1966, Page 16
16
|||01Q0MMÍrlaMfr
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands.
1 lausasöiu kr. 5.00 eintakið.
SUMRI FAGNAD
ITeturinn er liðinn. Hann
* hefur verið snjóþungur í
einstökum landshlutum og
allkaldur. Afli hefur verið í
rýrara lagi hér við Suðvest-
urland þegar undan er skil-
inn óvenjulega mikil loðnu-
veiði. Þó verður ekki sagt að
þessi vetur hafi verið íslenzku
þjóðinni óhagstæður. Slys-
farir hafa verið í minna lagi,
atvinnulíf og framleiðsla hef-
ur víðast hvar staðið með
blóma og almenn velmegun
og árgæzka ríkir í landinu.
"ÍSnjóar hafa verið þyngstir á
Norðausturlandi og Aust-
fjörðum, en er nú verulega
tekið að leysa.
Enginn dagur er jafn bjart-
ur og fagur í hugum íslend-
inga og Sumardagurinn fyrsti.
Hann er hinn mikli fagnaðar-
dagur. Skáldin hafa ort um
hann og þjóðin tekur honum
jafnan opnum örmum.
„Senn kemur sumarið,
sólin blessuð skín,
víst batnar veðrið,
þá vetúrinn dvín.“
Þessar yfirlætislausu Ijóð-
línur eru fullar af bjartsýni
og trú á lífið, hækkandi sól
og batnandi veður.
Það er engin tilviljun að
íslendingar halda einir þjóða
upp á Sumardaginn fyrsta.
Þessi norræna þjóð hefur um
aldir búið við kulda og snjóa-
lög langra vetra. Leysing og
hækkandi sól er tákn lífs og
gróanda í hugum hennar.
Farfuglarnir, sem koma sunn
an úr löndum og bæjarlæk-
urinn, sem losnar úr klaka-
böndum vetrarins, skapa yl í
sálina og trú á framtíðina.
Græn grös og laufguð tré,
logn um víkur og firði eru
drættir vorsins í ásjónu lands
ins.
Árið 1891 yrkir Matthías
Jochumsson fagnaðarljóð til
Sumardagsins fyrsta. Segir
þar á þessa leið:
„Kom heitur til míns hjarta,
blærinn blíði!
Kom blessaður í dásemd
þinnar prýði!
Kom lífsins engill, nýr og
náðarfagur,
í nafni Drottins, fyrsti sum-
ardagur.“
— ★ —
Þánnig hafa íslendingar
fagnað Sumardeginum fyrsta
og þannig fagna þeir honum
‘enn þann dag í dag. Ofurvaldi
vetrarins hefur að vísu verið
létt af fólkinu. En hinum
fyrsta sumardegi er engu að
síður fagnað jafn heitt og
innilega og áður. Hann er
blessaður dagur, af því hann
kemur með fyrirheit um sum-
ar og sól, um gróðurilm og
fuglakvak í lofti
Morgunblaðið óskar lesend-
um sínum, allri hinni ís-
lenzku þjóð, gleðilegs sum-
ars.
ÚRTÖLU- OG
AFTURHALDS-
MENN
Á reiðanlega furðar megin-
þorra landsmanna á mál-
flutningi stjórnarandstæð-
inga í álmálinu. Þar gætir
svo furðulegs úrtölu- og aft-
urhaldshugsunarháttar, að
ekki verður jafnað við neitt
annað í íslenzkri stjórnmála-
sögu en baráttuna gegn sím-
anum og Bændafundinn
1905.
Fyrir utan hinn geysimikla
beina hagnað sem landámenn
hafa af byggingu álverk-
smiðjunnar, bæði tekjurnar
af • verksmiðjunni og ódýrt
raforkuverð, er hinn óbeini
hagnaður auðvitað geysimik-
ill — og e.t.v. meiri en sá
hagnaður, sem áður er nefnd-
ur. Þannig fáum við inn í
landið mikla tæknikunnáttu,
og við fáum ál á heimsmark-
aðsverði eða undir því verði
sem nemur flutningskostnaði
héðan til Evrópu. Svissneska
fyrirtækið hefur tjáð sig
reiðubúið til að aðstoða ís-
lendinga við að setja upp
verksmiðju, sem ynni úr áli,
og er þegar tekið að athuga
það mál, en hugmyndin er
að þar yrði um að ræða opið
hlutafélag, sem öllum lands-
lýð yrði gefinn kostur á að-
ild að.
Framleiðsla þessa fyrirtæk
is yrði svo aftur undirstaða
margháttaðs minni iðnaðar
úr þessum mjklvæga málmi,
sem stöðugt ryður sér meir
og meir til rúms um heim all-
an. Þar með eru íslendingar
orðin iðnaðarþjóð, og í kjöl-
farið mun margt áreiðanlega
fyigja-
Ekki er ólíklegt að fljót-
lega yrði hafinn undirbúning-
ur að því að reisa aðra ál-
verksmiðju norðanlands,
enda verður Landsvirkjun
fljótlega svo fjárhagslega öfl-
ug, að hún getur af eigin fé
lagt fram verulegar upphæð-
ir til Dettifossvirkjunar, og
stóriðjuframkvæmdir styrkja
og efla lánstraust okkar,
þannig að vafalaust gætum
við fengið stórlán til að ráð-
ast einir í nýja stóriðju, þeg-
við höfum öðlazt nægiléga
tækniþekkingu.
Baráttan gegn þessu máli
er því sannkallað afturhald.
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. aprfl 1966
Fimmtudagur 21. apríl 1966
MORGUNBLABBÐ
17
GEIR HALLGRÍMSSON BORGARSTJÓRI BOÐAR TIL SEX
FUNDA MEÐ ÍBÚUM REYKJAVÍKUR I NÆSTU VIKU
Borgarstjóri flytur ræðu á öflum fundunum
og svarar fyrirspurnum fundargesta
1.
FUMDUR í Smáíbúða-, Árbæjar- og Háaleitis-
hverfi sunnudaginn 24. apríl kl. 3 í Lidó
Ávarp: Frú Auður
Auðuns Forseti
borgarstjórnar.
Fundarstjóri: Arin-
björn Kolbeinsson
læknir.
Fundarritarar: Han
nes Þ. Sigurðsson
fulltrúi og Ragna
Ragnars húsfrú.
Auður Auðuns
Kolbeinsson Kagna Ragnars Hannes Þ. Sigurðsson
FUMDUR í IViela- og Vesturbæjarhverfi mánu-
daginn 25. apríl kl. 8,30 á Hótel Sögu
Ávarp: Úlfar
Þórðarson læknir
Fundarstjóri: Bald-
ur Möller ráðuneyt
isstjóri.
Fundarritarar: Geir
þrúður Bernhöft
fulltrúi og Gísli
Sigurðsson raf-
virkjameistarL
Úlfar Þórðarson Baldur Möller Geirþrúður Bernhöft
Gísli Sigurðsson
3.
FUMDUR i Miðbæjar- og Austurbæjarhverfi
þriðjudaginn 26. apríl kl. 8,30 í Sigtúni
Ávarp: Birgir fsl.
Gunnarsson lög-
fræðingur.
Fundarstjóri: Krist
ján Guðlaugsson
hrl.
Fundarritarar:
Gerður Hjörleifs-
dóttir kennari og
Þorkell Þorkelsson
bifreiðastjórL
Birgir ísl. Gunnarsson Kristján Guðlaugsson Gerður Hjörleifsdóttir Þorkell Þorkelsson
4
. FUMDUR í Hlíða-, Holta- og Morðurmýrahverfi
miðvikudaginn 27. apríl kl. 8,30 í Lídó
Ávarp: Gísli Hall-
dórsson arkitekt.
Fundarstjóri: Guð-
mundur H. Garðars
son viðskiptafræð-
ingur.
Fundarritarar: Geir
Þórðarson prent-
myndasmiður og
Sigþrúður Guðjóns
dóttir hústfrú.
Gísli Halldórsson Guðmund H. Garðarsson Sigþrúður Guðjónsdóttir Geir Þórðarson
5.
FUMDUR í
fimmtud.
Laugarnes- og Laugaráshverfi
28. apríl kl. 8,30 I Laugarásbíó
Ávarp: Styrmir
Gunnarsson lög-
fræðingur.
Fundarstjóri:
Sveinn Björnsson
verkfræðingur.
Fundarritarar: Har
aldur Sumarliða-
son trésmiður og
Sigurlaug Bjarna-
dóttir húsfrú.
Styrmir Gunnarsson Sveinn Björnsson Sigurlaug Bjarnadóttir Haraldur Sumarliðason
6
. FUMDUR í Langholts-, Voga- og Heimahverfi
föstudaginn 29. apríl kl. 8,30 í Laugarásbiö SwhH
Ávarp: Þórir Kr.
Þórðarson próf-
essor.
Fundarstjóri: Ágúst
Geirsson símvirki.
Fundarritafar:
Hulda Valtýsaóttir
húsfrú og Jón Árna
son yfirkennafi.
Þorir Kr. Þorðarson Agúst Geirsson Hulda Valtýsdóttir Jón Árnason
I Reyk- I
■ ■
I vík- I
■ ■
■ m
■ ■
■ ■
I ingar |
; f jölmennið j
■ JJ
á fundi
■ ■
■ v "
borgar-
stjóra
•s Wíí"
'M'/h
Vi>i*t&fó
>..r:Xv,r.Tv:;
Lb-Luie'
/KU^ÍVÍ Kú R Fimv0uiC
* u h þ A
'•
7/ v-v.
■
JP* <* í j>-
n