Morgunblaðið - 03.07.1966, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.1966, Side 2
MORGUNBLAÐID Sunnudagur 3. júlí 1966 í Ungur Akureyringur kristniboði í Afríku EINN hinna fegurstu sam- komu- og sumardvalarstaða sunnan Skarðheiðar leynist bak við hálsinn, uppfrá Saur bæ á Hvalfjarðarströnd, á bökkunum milli Eyrarvatns og Vatnaskógar. Þar hafa lengi verið haldin kristileg landsmót ár hvert, í sumarbúðum K.F.U.M. og í sambandi við þau landsfund- ur Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga, annað hvert ár. í>á hafa verið tek- in til fyrirbæna, rædd og ráð in til lykta mikilsvarðandi málefni kristniboðsstöðvar okkar íslendinga, í Konsó- fylki í Eþíópíu. Vatnaskógsmótið var hald- ið að þessu sinni dagana 25. til 27. júní, og var fjölsótt að vanda. Höfuðviðburður mótsins var vígsla þriggja kristniboðskandidata: Skúla Svavarssonar frá Akureyri, konu háhs Kjellrúnar F. Lang dal frá Örsta í Noregi, og Simonettu Bruvik, hjúkrunar konu frá Reykjavík. Þau fara eftir nokkra daga á tungu- málanámskeið í Englandi og þaðan undir árslokin áfram til Eþíópíu. Þetta skeði í Vatnaskógi nálega samtímis og Gísli Arn kelsson og fjölskylda hans lögðu af stað frá Addis Abeba til Reykjavíkur í verð skuldað orlof eftir fimm ára erfitt starf í Konsó. Ingunn Gísladóttir hjúkr- unarkona kemur heim að á- liðnu sumri, og hefur þá lok- ið tíu ára starfsferli í Konsó. Færeyska hjúkrunarkonan, Else Jacobsen, er leysti Ing- unni af í Konsó, þegar hún kom heim í orlof hið fyrra skiptið, var gestur mótsins, þar sem hún og færeyskir kristniboðsvinir hafa fallizt á að hún taki aftur við hjúkr- unarstörfum í Konsó. Hún var síðan kvödd á samkomu í kristniboðshúsinu Betanía í Reykjavík. - , Um 40 ára skeið hefur frekar fámennur en trúfastur og fórnfús hópur trúaðs fólks á Akureyri haldið uppi kristilegu sjálfboðastarfi í bænuni jafnframt því að vinna bæði leynt og ljóst fyr ir kristniboðsmálið. Skömmu eftir að félagið var stofnað gerðist það aðili Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga, er studdi í mörg ár kristni- boð i Kína og stofnaði síðar íslenzka kristniboðsstöð i Skúli Svavarsson kristniboði. Eþíópíu. Skúli kristniboði er sonur Svavars Björnssonar verk- stjóra á Akureyri og konu hans, Emilíu Kristjánsdóttur. Ungur sótti hann sunnudaga- skóla í kristniboðshúsinu Zíon — jafn reglulega og sjálfan barnaskólann — ásamt tryggðarvini sínum Ingólfi Georgssyni. Hann var einn af stofnendum K.F.U.M. og ötull stuðningsmaður Björgvins kennara Jörgens- sonar þegar hafizt var handa um byggingu sumarbúða við Hólavatn Ég hugsa með fögnuði til kristniboðsvina nyrðra, sem nú fá að lifa það að úr þeirra hóp fer ungur maður — til þess staðar í heiðnu landi, sem okkur hefur verið gefinn Kjellrún Svavarsson til yrkingar fyrir Guðs ríki. Aðkoma í Konsó er nú ger- ólík því sem hún var, þegar fyrstu kristniboðar okkar komu þangað fyrir réttum 12 árum. Þar hafa risið af grunni tólf eða fjórtán hús — allt með talið sum allstór, eins og t.d. sjúkraskýlið nýja með tveim álmum annarri 30 m. og hinni 20 m. langri, Skóla- hús eru tvö er rúma 300 nem- endur samkomuhús, ibúðar- hús o.s.frv. í söfnuðinum eru á þriðja hundrað manns. Trú nemar eru miklu fleiri. Að mögulegt hefur verið að anna því mikla starfi sem síaukin aðsókn á samkomur, námskeið skóla og sjúkrahús hefur í för með sér, er fyrst og fremst því að þakka, að kristniboðarnir hafa nú sér við hlið álitlegan hóp inn- lendra samverkamanna. Kristniboðið á orðið marga vini og velunnara þó að ekki séu þeir félagsbundnir. Marg ir á Akureyri munu leggja leið sína í Zíon þegar þar verða kvödd ungu kristniboð- amir, Skúli og Kjellrún. Nú er beðið eftir þeim í Konso. Þau koma þar að opnum dyr- um og vaxandi verkefnum. sem kalla á síaukna starfs- krafta. Þeim munu fylgja blessunaróskir margra og fyr irheit um að hvorki skuli 'skorta fyrirbæn né heldur fé gjafir til stuðnings sjálfun þeim og hinu góða verki. Ólafur Ólafsson. Engir samningar um löndun erlendra síldveiði- skipa á Siglufirði Siglufirði, 2. júlí. UNDANFARNAR vikur hafa forráðamenn síldarsaltenda hér og síldarverksmiðjunnar Rauðku staðið í sambandi við færeyska og norska útgerðarmenn í sam- bandi vfð löndun afla úr erlend- um síldveiðiskipum. Engar endanlegar niðurstöður eða samningar hafa verið gerðir, enda ættu erlend skip að geta lagt upp hér afla, án þess að á- kveðnir samningar séu gerðir. Vitað er um 5—6 færeysk síld- veiðiskip á miðunum, og munu þau hafa komið með 2—3 farma til Eyjafjarðarhafna. Á hinn bóginn hefur enginn afli úr er- lendum skipum borizt til Siglu- fjarðar ennþá. Örfá norsk síld- veiðiskip munu hafa komið á mið in en munu nú horfin heim aftur enda síldveiðin sögð góð við Noreg núna. — Stefán. Tekst að Ijúka Stráka vegi fyrir haustið? Rúmir 100 m eftir af göngunum Siglufirði, 2. júlí. STÖÐUGT er unnið að gerð Strákaganga hér, og hafa nú verið boraðir milli 630—40 metrar, en alls verða göngin um 750 metrar. Verkið hefur gengið mjög sæmilega þó hefur verið misjáfnt, og sums staðar slæmt. Það var áætlað að bessi Stráka vegur yrði fær til umferðar haustið 1966, og ætti sú áætlun að geta staðizt, ef fullt kapp verður lagt á verkið og ekkert sérstakt tefur. Það er verið að vinna að Strákavegi vestanverðum, og er þar smáspölur eftir að fyrirhug- uðum munna vestan megin, en sá kafli er seinunninn. Ennfremur er eftir að leggja nokkur hundr- uð metra veg út Hvanneyrar- strönd að göngunum Siglufjarð- ar megin, og er gert ráð fyrir að það verk hefjist í þessum mán- uði. Með tilkomu þessa vegar kemst Siglufjörður í næsta ör- uggt vegasamband við þjóðvega- kerfi landsins, sem mun gera hvort tveggja: að stórbæta sam- göngur við bæinn og efla at- vinnulífið á Siglufirði þó sér- staklega iðnað, sem hefir átt hér erfitt uppdráttar vegna sam- gönguerfiðleika við markaðs- svæði innanlands. Ennfremur má gera ráð fyrir að vegurinn um Siglufjarðarskarð muni leggjast niður með tilkomu nýja Stráka- vegsins. . — Stef' Biskup vísiterar Vestfirði föstudaginn 15. m.a. á Hrafns- eyri. Á laugardag 16. júlí tekur biskup þátt í hátíðahöldunum á ísafirði í tilefni 100 ára af- mælis bæjarins, sunnudag verð- ur hann á Þingeyri og á Hrauni í Keldudal. Guðsþjónusta verður í hverri kirkju þar sem biskup prédikar. Auk þess fara fram viðræður við sóknarnefnd og söfnuð og skoð- un á kirkjunni. Sérstaklega er óskað eftir því að börn, einkum fermingarbörn ársins, komi til viðtals við biskup. BISKUPINN, herra Sigurbjörn Einarsson vísiterar Norður-ísa- fjarðarprófastsdæmi og Vestur- Isafjarðarprófastsdæmi dagana 5. — 17. júlí n.k. Verður biskup á ísafirði 5. júlí á þriðjudag visiterar hann Hnifs- dal og Bolungarvík næstu. fimm daga vísiterar hann ýmsa staði í Strandasýslu og víð Djúp, mánudaginn 11. júlí verður hann að Stað í Súgandafirði og á Suð- ureyri, þri'ðjudag á Holti í Ön- undarfirði og á Flateyri, miðviku dag m.a. á Mýrum í Dýrafirði, Feit og góð síld við IMoreg — en fer öll í bræðslu; Devold segir hana sambærilega við íslenzku sumarsíldina Harstad, 2. júlí — NTB FINN Devold, fiskifræðingur, hefur lýst því yfir í norska blað- inu „Harstad Tidende“, að hörmu legt sé til þess að vita, hve illa sé nýtt sú síld, sem nú er á mið- unum við N-Tromsö, en hún fer öll í bræsðlu. Segir Devold síldina sérstaka að gæðum, og ekki lakari en ís- landssíld >á, sem íslendingar selja Svíum saltaða fyrir gott verð. Fitumagn síldarinnar sé mikið, 23,5%. Segir Devold, að hann hafði ekki áður vitað um svo feita síld á þessum slóðum Bifreið stolið í FYRRINÓTT var stolið grænni Chevrolet-fólksbifreið, árgerð 1964, R 3792, frá húsi við Grenimel. í gær fannst svo bifreiðin í Langagerði, en ekki var rann- sóknarlögreglunni kunnugt um skemmdir á henni. Biður rann- sóknarlögregln alla þá, er kynnu að hafa orðið bifreiðarinnar var- ir á umrædum tima að láta hana vita. á þessum tíma árs. Sé hér um mikinn mun að ræða, ef borið sé saman við vetrarsíldina við Noreg, sem venjulega sé með um 13% fitu- magn. Síldarrannsóknarskipið „Koh- an Hjort" kom til Harstad í gær- kvöldi, eftir 14 daga leiðangur, en erfitt mun að draga í fljótu bragði upp heildarmynd af nið- urstöðum athugananna. — Rábstefna ATA Framh. af bls. 1 í hátíðasal Háskóla íslands með því að Knútur Hallsson, formað- ur Samtaka um vestræna sam- vinnu flutti ávarp, en síðan fluttu ræður þeir dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Sir Geoffrey de Freitas, forséti Ráðgjafaþings Evrópu, prófessor Maurice Faure, forseti Evrópu- hreyfingarinnar og Edmund N. Poland, yfirmaður við flota- stjórnina á austanverðu Atlants- hafi, en að lokum talaði Glad- wyn lávarður, formaður ATA. Á VESTFJÖRÐUM var logn í gærmorgun, því að þar var þá lítils háttar háþrýstisvæði. Það var á hreyfingu austur á bóginn, svo að í dag má bú- ast við ágætu veðri á Norð- ur- og Austurlandi. Hinsveg- ar mun lægðin á Grænlands- hafinu verða nálægt vestur- ströndinni í dag, og má því ætla að þar verði skýjað og ef til vill lítils háttar rigning. Séð yfir fundarsalinn á fundi ATA í Há&kóla íslands í gær. (Sjá frétt á forsiðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.