Morgunblaðið - 03.07.1966, Síða 12

Morgunblaðið - 03.07.1966, Síða 12
12 MORGU NBLAÐIÐ Sunnudagur 3. júlí 1966 Vigri GK 41 ketnur að landi með 150 tonn. Reykurinn á myndinni er frá bræðslunum binum megin fjarðarins. (Ljósm. Mbl.: mf.) ÞAÐ var fagurt og bjart veður, þegar við lögðum af stað frá Egilsstöðum áleiðis til Seyðisfjarðar á laugar- daginn í fyrri viku. Af Fjarðarheiði var fagurt um að litast yfir Héraðið. Lag- arfljót hlykkjaðist grálitað eftir Fljótsdalshéraði og lengst til vinstri trónaði Snæfellið eins og drottn- ing, fagurt og tignarlegt. Ofarlega Héraðsmegin stóð gamall snjóbíll, sem augsýni- lega var kominn mjög til ára sinna. Hann mun hafa verið, er hann var í broddi lífsins notaður til að flytja fólk til og frá Fornahvammi, yfir Holtavörðuheiði, en síðar til þess að flytja fólk yfir Fjarð- arheiði eða þar til honum var lagt þarna fyrir um það bil tveimur árum. Við skoðuðum þennan forngrip og leituðum að merki hans, en okkur tókst ekki að finna það, en fróðir menn sögðu okltur að þetta væri Citroen. í stað aftur- hjóla voru á honum belti, en framhjól hafði hann og skíði undir þeim. Öllu lauslegu hafði verið stolið úr honum og við sannfærðumst um að hann myndi fífil sinn fegri. Vegurinn yfir Fjarðarheiði var allsæmilegur. Á stöku stað voru skaflarnir meðfram veginum þó tvöföld hæð bif- reiðarinnar, sem við vorum í og flest öll aðvörunarskilti meðfram veginum voru brot- in eða brömlu'ð eftir ýturnar, Sigurður Guðmundsson, 1. stýrimaður á Jörundi III. sem rutt höfðu veginn. Ó- skemmd skilti voru varla fleiri en telja mætti á fingrum sér, svo að végagerðin . á þarna mikið verk fyrir hönd- um að endurnýja skiltin, því að vegurinn er á köflum hættulegur og óforsvaranlegt er að hafa hann ómerktan. Seyðisfjörður er eins og kunnugt er ákaflega mjór fjörður og undravert er, hversu flugmenn gátu lent þar á dögum Katalínuflugbátanna, a.m.k. finnst manni það ærið bíræfið, þegar maður horfir niður á fjörðinn ofan af heið- inni. Þegar í miðjum hlíðutn heið arinnar fór hin kunna síldar- lykt að gera vart við sig og jókst hún við hvern metra, sem neðar dró. Yfir kaupstaðn um lá mistur úr bræðslunum, svo að sums staðar í þorpinu naut ekki sólar þótt skafheið- ríkt væri. Sjórinn var spegil- sléttur og reykurinn úr bræðsl unum speglaðist í haffletinum. Söltun var ekki hafin, svo að friðsælt var á staðnum, sölt- unarfólkið vart komið, og hið eina sem minnti á síld voru bræðslurnar, lyktin, au'ð sölt- unarplönin og nokkrir síldar- bátar, sem voru að landa. Við Síldarverksmiðju ríkis- ins lá Jörundur III RE 300, og var verið að landa úr honum. Þegar við komum þar að stendur 1. stýrimaður, Sigurð- ur Guðmundsson, í sjógalla og er að moka úr lestinni. Við köllum á hann og hann kemur og rabbar við okkur, fer úr sjóstakknum og segir um leið: — Það er nú meiri bölvaður hitinn! Og hann hlær. — Hvað eruð þið með mikið af síld? — Þetta eru um 320 tonn, sem við fengum SAaA. — Og í hve mörgum köst- um fenguð þið þetta? — í seinasta kastinu fengum við 240 tonn, sem telja má með beztu köstum. Afganginn fengum við í þremur köstum. Annars hefur verið mun betra að eiga við síldina nú en oft áður. — Hvað eruð þið búnir að veiða mikið alls til þessa? — Með þessu mun þáð vera um 1700 tonn, og erum við búnir að vera á veiðum í rúm- an mánuð. — Er skipshöfnin öll reyk- vísk? _ — Ég er úr Reykjavík, en helmingur áhafnarinnar eru Vestfirðingar. Skipstjórinn er t.d. Vestfirðingur, Magnús Guðmundsson, segir hann um leið og hann bregður sér upp í brú. Við síldarverksmiðjuna liggja þrír bátar og einn er að koma hlaðinn að landi, Vigri GK 41. Snaggaralegur maður á blárri skyrtu, þunnhærður og með sólgleraugu kemur frá borði. Þetta er skipstjórinn, Gísli Jón Hermannsson, og vi'ð spyrjum hann, hvar hann hafi fengið þessa síld, og hann svarar: — 120 mílur í austur og þetta eru um 150 tonn. — Hafið þið veitt vel, það sem af er? — Já, blessaður, þetta er svona sæmilegt. — Svo að þú e*t ánæg'ður með lífið? — Ja, þú getur sagt þeim það fyrir sunnan, að síldar- verðið sé til háborinnar skammar, það sé allt of lágt og saltsíldarverðið líka, segir hann um leið og hann stekkur um borð aftur til þess að færa skipi'ð að öðrum löndunartækj um, þar eð komið hafði í ljós. að þau er hann var lagstur við voru ekki í lagi. Okkur er nú litið út á fjörð- inn og sjáum við þá, hvar bát- ur kemur siglandi inn. Hann virtist vera með mikla síld því að hann er æði djúp- skreiður. Við bíðum átekta, en þegar hann gerir sig lík- legan til þess að landa hinum megin við fjörðinn, er ekki um annað að ræ'ða, en að flýta sér yfir að Síldarverk- smiðjunni Hafsíld hf. Þegar þangað kemur, kemur í ljós að báturinn er Ásbjörn RE 400. Það stirnir á síldina í bátn- um og forvitnir áhorfendur safnast saman til þess að dást að þessum fagurgljáandi fisk, sem nú á að fara að landa. Löndunartækin eru sett í gang og skipverjar standa í síld upp að mitti og moka henni að löndunartækjunum, og nú bregður fyrir roða á hvítgljáandi kösinni. Okkur er tjáð að skipstjórinn hafi brugðið sér í land til þess að síma suður, svo að við höldum í humátt að næstu byggingum, þar sem við hittum samanrek- inn, snaggaralegan mann í blá köflóttri skyrtu. Hann segist heita Halldór Benediktsson og vera skipstjóri á Ásbirni. — Okkur er tjáð að þið haf- ið verið í vaðandi síld? — Já, í fyrsta sinn í tvö-ár hef ég séð' síld vaða. Það hef ég ekki orðið var við sfðap í hitteðfyrra, þá bar það við einn dag. — Og var mikið af síld þarna? — Já, það var mikið af síld, en hún var dálítið smá og þar af leiðandi ekki söltunarhæf, en fitumagnið er alltaf að auk ast að því er ég held. — Er ekki spennandi að vera á sildveiðum, þegar síld- in veður? — Það er ef til vill ekki mikið. meiri spenningur fyrir okkur skipstjórnarmennina, sem sjáum þetta alltaf á tækj- unum, en fyrir allan mann- skapinn er þetta a'ð sjálfsögðu miklu skemmtilegra. — Eruð þið ekki með afla- hæstu bátum? — Á síðustu skýrslu vorum við í áttunda sæti, en nú er- um við með tæp 2100 tonn, þ. e. a. s. um 21.000 tunnur. — Kanntu betur við að telja aflann í tonnum, eins og nú er gert? Framhald á bls. 21 Gísli Jón Hermannsson, skipstjóri á Vigra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.