Morgunblaðið - 03.07.1966, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.07.1966, Blaðsíða 21
SunnuÆagur §. Jfftf 1§8® MORGU NBLAÐIÐ 21 - Ölfusborgir Framhald af bls. 23 þóknun sinni á verunni í- Ölfusborgum. ! — Hér er yndislegt að vera. Kyrrðin er einsfcök, þrátt fyrir alla umferðina hér fyr- ir neðan, og útsýnið dásam- legt í góðu skyggni. Húsin eru hifcuð upp með Ihveravatni, sem leitt er frá borholum í Hveragerði, og íhúsveggirnir eru vel einangr- aðir, enda hlýtt og notalegt inni, þrátt fyrir dumbung og kalsaveður úti. Erlendur um- sjónarmaður kvað alla vera sammála um það, að Sig- valdi Thordarson arkitekt Ihefði unnið afrek með teikn- ingum að orlofsheimilum, sem sameina snoturlegt útlit og gjörnýtingu gólfflatarins að innan. Frú Þórdís Eggertsdóttir kona Björgvins Jónssonar vörubílstjóra býr í húsi nr. y 21, ásamt þremur börnum sínum. UTI GRILL Nú geta allir „GRILLAГ, úti á svölum, úti í garði eða úti í sveit. Við höfum fyrirliggjandi 2 gerðir af 18 tommur 23 tommur BAR-B-Q BRIQUETS (RRÚNKOL) sem eru sérstaklega fyrir „ÚTI GRILL“. „ÚTI GRILLUM“: ö Við höfum einnig — Það er indaelt að vera hér á Ölfusborgum, segir Þór dís, — það er eýis að vera heima hjá sér, nema ann- irnar eru minni og hvíldin meiri. Erlendur vekur athygli okk ar á því, að á Ölíusborgum vaeri til öll nauðsynleg áhöld fyrir heimilin, jafnvel borð- búnaður og sængurföt, þann- ig að dvalargestir þurfa ekk- ert að færa með sér til heim- ilanna. Það er oft gestkvæmt hjá dvalargestunum, sem sjá má m.a. af því, að Björgvin vöru bílstjóri hefur brugðið sér til Reykjavíkur til að sækja gesti. Auk þess koma þarna oft í heimsókn vinir og skyld menni dvalargesta, Þórdís tjáir okkur að þau hjónin hafi orðið að bíða tiltölu- lega skamman tíma eftir dvölinni á Ölfusborgum og fengið húsið einmitt þá viku sem þau helzt kusu. — Ég er ekki viss um að fólki sé nógu vel kunnugt Nýkomið Amerískir GREIÐSLU SLOPP AR BLÚSSUR mikið úrval. PEYSUR úr ull, ódelon og bómull. Einnig ljós CRIMPLENE PILS. Hatfabúð Reykjavíkiir Laugavegi 10. Landssamb. veiðifél. gerir ýmsar ólyktonir LANDSSAMBAND veiðifélaga héit aðalfund' sinn í Borgarnesi 25. júní sl. Rædd voru ýms mál varðandi lax- og silungsveiði, og Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri, flutti erindi um ástand og 'horf- ur í fiskeldismálum. Fundurinn gerði ályktanir um ákvæði í frumvarpi um breytingar á lax- veiðilögunum, sem lagt var fyrir eíðasta Alþingi, varðandi hátt á skaðabótagreiðslum og sam- þykkti tillögu um að skora á Al- þingi að taka upp ákvæði um fiskræktarsjóð í frumvarpið. Þá var samlþykkit að.beina tilmælum til ríkisstjórnarinnar um að láta endurskoða lagaákvæði um meng wn á vatni og setja strangari og ákveðnari reglur um meðferð úr- gangsefna frá mannabústöðum eg iðjuverum. Ennfremur var •amiþykkt ályktun um fiskeldis- nái og berkt á mikilvægi eldis lax og silungs fyrir fiskrækt í landinu. Þar er þess getið, að laxfiskaeldi sé á bernskuskeiði hér á landi og þurfi eðlilega nokkurn tíma til að mótast. Fisk- eldi sé margþætt og þurfi því að vanda vel ti! við undirbúning eldisstöðva. Nú þegar hafi komið fram, að mikilsmegi vænta af fiskeldinu. Lagði fundurinn á- herzlu á nauðsyn þess, að hið opinbera styðji og styrki upp- byggingu lax- og silungseldis í landinu með ráðum, sem að mestu gagni komi fyrir fiskeldið, m. a. með því að veita hagkvæm lán til fiskeldisstöðva. Stjórn Landssambands veiði- félaga var endurkjörin, en í henni eiga sæti þeir: Þórir Stein- þórsson, fyrrv. skólastjóri, Reyk- holti, formaður, Hinrik Þórðar- son, Útverkum og Óskar Teits- son, Víðidalstungu. X Það er mikið að gera um borð í Jörundi III, er löndun stendur sem hæst. um orlofsheimilin og þann góða anda, sem hér ríkir segir Guðmundur Þórðarson bókbindari, er við hittum hann og fjölskyldu hans í húsi nr. 13. Hann heldur áfram: — Ég gæti nefnt dæmi til stuðnings, en staðreyndin er sú, að alltof fáum er kunn- ugt um, að hér við Hvera- gerði fyrirfinnist staður sem þessi. Erlendur Guðmundsson tekur í sama streng. Hann segir að fyrir hafi komið, að menn hafi lagt leið sína upp að Ölfusborgum til að for- vitnast um „til hvers þessi undarlegu hús væru eigin- lega.“ — Finnst ykkur ekki þröngt um ykkur, þegar slíkur fjöldi gesta er hér sem raun ber vitni nú? — Nei, alls ekki. Þrátt við nábýlið allan þennan hóp lif um við hér eins og í einangr- im. Það stafar af þeim góða sambýlisanda, sem hér ríkir og ef til vill einnig því, að bifreiðum er ekki leyft að aka um „þorpið“, sem er nauðsynleg ráðstöfun vegna allra þeirra barna, sem hér dvelja að jafnaði. — Hvað gerið þið ykkur helzt til dundurs hér í Ölfus- borgum, Guðmundur? — Við liggjum í sólbaði þegar yel viðrar, eða göng- um á Reykjafell, en það er hæfileg fjallganga fyrir menn, sem hafa miklar innisetur. Það kemur fram í rabbi okkar, að Reykjafell er kennt við Reyki í Ölfusi, sem varð ríkisjörð á sínum tíma fyrir tilstilli Jónasar Jónssonar á Hriflu, en það auðveldaði all- ar framkvæmdir, þegar or- lofsheimilunum var valinn staður að Ölfusborgum, að því er Erlendur tjáði okkur. Á leiðinni frá Ölfusborg- um að 'Hveragerði skýrir Er- lendur frá aðdraganda og framkvæmdum við uppbygg- ingu orlofsheimilanna og seg- ir að lokum: — Ég tel brýna nauðsyn bera til að koma á fót fleiri orlofsheimilum víðar lun land. Þegar hefur verið stig- ið spor í rétta átt, þar sem aukning orlofsheimilasjóðs við síðusfcu samninga atvinnu rekenda og verkalýðsfélag- anna. Valdahafarnir hafa sýnt þessum málum skilning og velvild, og vonandi rísa staðir á borð við Ölfusborg- ir um land allt á vegum allra verkalýðsfélaga á komandi ár um. e.t. — -------------------------,---- Sildin Framhald af bls. 12 — Það var skrítið fyrst, en þetta venst. Réttast er auðvit- að að telja hann í tonnum, því að þetta er vigtað hvort eð er. Einnig hefur mönnum komið saman um að hætta ví$ málin, þar eð ekki var samkomulag um, hve mikið ætti að vera í hverju máli. — Hvenær fóruð þið í þessa veiðiferð? — Við fórum aðfaranótt mánudagsins. Við lönduðum 320 tonnum í Síldina, svo við erum búnir að vera úti í tæpa viku og höfum í þessari ferð veitt um 500 tonn. Nú kom- um við með að landi um 200 tonn. — Er ekki mikill munur á að geta losnáð við aflánn á staðnum, þ. e. a. s. í skip? — Það er gott að geta losn- að við aflann, það sparar stím- ið inn á hafnirnar, sérstaklega þegar veiðisvæðin eru svo langt í burtu sem nú. — Hvar veidduð þið þetta? — Það var 130 mílur AaS frá Dalatanga. — Og hvenær ætlið þið út aftur? — Skipið fer út aftur, þegar búið er að landa. Ég fer hins vegar ekki með skipið nú. Ég ætla að taka mér örlítið frí, maður verður líka að lifa, sagði Halldór brosandi um Halldór Benediktsson, skipstjóri á Ásbirni. leið og við kvöddum hann. Og nú höldum við aftur af stað yfir Fjarðarheiði. Það er orðið nokkuð áliðið dags og sólin er brátt áð hverfa af kaupstaðnum. Það kvöldar fljótt inni á þessum mjóu fjörðum Austfijarða. Við höld- um á brattann og við, sem aldrei höfum dregið bein úr sjó, svo að heitið geti, erum fullir aðdáunar eftir að hafa rætt við hina dugmiklu full- trúa íslenzkrar sjómannastétt- ar. — — mf. Peking — Kínastjórn hefur til- kynnt að fjöldi skipa liggi nú við festar í höfnum þar í landi þess albúin að sækja suður til Indónesíu tugþúsundix kín- verskra borgara sem að sögn fréttastofunnar „Nýja Kína“ búa þar við sult og seyru, hund- eltir og ofsóttir. í mótmælaorð- sendingu Kínastjórnar vegna þessa segir að Kínverjar hafi þegar beðið Indónesíustjórn að senda heimleiðis alla Kínverja sem í landinu séu ellegar heimila kínverskum skipum að koma að sækja þá og allar fullyrðingar Indónésíustjórnar um að Kin- verjar í Indónesíu óski engan veginn að hverfa heim sagðar 'hreinn, uppspuni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.