Morgunblaðið - 03.07.1966, Page 28
28
MORGU NBLAÐIÐ
Sunnudagur 3. júlí 1966
FÁLKAFLUG
•••••••••••••
EFTIR DAPHNE DU MAURIER
arfullum töfrum, nálgaðist éf
pallinn þar sem líkið lá. Mað-
urinn fletti ábreiðunni frá, svo
að andlitið kom í ljós. Það var
bjart í dauðanum, og yngra en
mér hafði sýnzt kvöldinu áður.
Ég sneri mér frá. — Þakka yð
ur fyrir, sagði ég við leiðsögu-
manninn.
Ég tilkynnti hinum, að kon-
urnar hefðu kannazt við fötin.
Hann þakkaði þeim enn einu
sinni. ^
— Ég get búizt við, sagði ég,
— að þessar dömur þurfi
kannski að koma til frekari yf-
irheyrslu. En við leggjum af stað
ti’l Napólí sennipartinn á morg-
un.
Maðurinn skrifaði þetta hjá
sér til minnis. — Ég býst ekki
við, sagði hann, — að við þurf-
um frekar á þeim að halda. Við
höfum nöfn þeirra og heimilis-
föng, ef I það fer og svo vil
ég óska ykkur öllum góðrar og
ánægjulegrar ferðar.
Ég hefði getað svarið, að hann
deplaði augunum glettnislega
eftir þessi orð, en þó ekki ' til
þeirra heldur til mín.
" — Hefur nokkuð orðið víst
um, hver sú myrta er? spurði
ég.
Hann yppti öxium. — Það eru
mörg hundruð af þessu tagi, sem
koma inn í borgina utan frá.
Það er erfitt að hafa reiður á
þeim. Hún var með engin verð-
mæti á sér. Morðinginn getur
hafa verið annar flækingur, sem
hefði þurft að hefna sín, eða þá
bara umrenningur, • sem hefur
gert þetta að gamni sínu. Við
náum í hann.
Þá vorum við afgreidd. Við
gengum út og yfir húsagarðinn,
út í leigubílinn. Ég kom þeim
fyrir í bílnum. — Til Enska Te-
hússins, sagði ég við ekilinn.
Ég leit á úxið mitt. Ég hafði
reiknað okkur tímann rétt. Skjól
stæðingar mínir gátu setzt fyrir
og fengið sér tebolla, áður en
hópurinn kæmi. Þegar við kom-
. um, borgaði ég eklinum og
fylgdi konunum in í Tehúsið.
Ég kom þeim fyrir við borð úti
í horni.
— Jæja, mínar dömur, sagði
ég. — Nú getið þið hvilt ykkur.
Ég fékk ekkert svar uppá vin-
gjarhlega brosið fnitt, nema of-
urlitla höfuðhreyfingu, sem vart
var sýnileg.
Ég gekk út og inn á bar nokk-
urn við Via Condotti. Ég varð
að hugsa mig um. Ég sá enn
fyrir mér arnarnefið, sem dauð-
inn hafði gert enn hvassara, á
myrtu konunni. Og myrt var
hún vegna þess, að ég hafði
stungið tíu þúsund lírum í hönd
ina á henni.
Nú var ég orðinn alveg viss
um, að mér hefði ekki skjátlast.
Það hafði verið einhver kunnug-
leiki í augunum á henni, kvöld-
inu áður, og hún hafði kallað
Beo, þegar ég hljóp yfir götuna.
Ég hafði ekki séð hana í meira
en tuttugu ár, en þetta var áreið
anlega Marta.
3. kafli.
Þegar lögreglumennirnir voru
að spyrja kennslukonurnar —
þá'hefði ég átt að kveða upp úr.
Ég hafði tækifærið. Þeir höfðu
spurt, hvort við hefðum tekið
eftir konunni, þegar við komum
aftur úr ferðinni, hvort hún
hefði enn verið á tröppunum.
Þetta hafði verið stundin. „Já“,
hefði ég átt að segja. „já, ég gekk
þangað aftur og þá var hún þar
enn og ég gekk til hennar og
stakk tíu þúsund lírum í hönd-
ina á henni.“
Ég gat rétt hugsað mér undr-
unina í spurningu lögreglu-
mannsins: — Tíu þúsund líra
seðil?
— Já.
— Hvað var klukkan þá?
— Rétt yfir miðnætti.
— Sá nokkur af hópnum yð-
ur?
— Nei.
— Voru þetta yðar eigin pen-
ingar, eða voru þeir eign Sól-
skinsferða?
— Það var nýbúið að gefa
mér þá. Fyrir væntanlega þjón-
ustu.
□---------------□
6
□---------------D
— Þér eigið við sem vikafé?
— Já.
— Var það frá einum af ferða
mannahópnum?
— Já. En ef þér spyrjið hann
um það, þrætir hann fyrir það.
Þá hefði lögreglumaðurinh
beðið konurnar að víkja sér til
hliðar. Og spurningunum hefði
haldið áfram, með enn meiri
ýtni. í fyrsta lagi hefði ég aldrei
getað leitt vitni að því, að ein-
mana trosverji hefði gefið mér
þessa peninga og beðið mig að
koma í herbergi sitt, heldur
hefði ég orðið í vandræðum að
sanna tilgang minn með því að
gefa peningana aftur, þannig að
lögreglumaður hefði fundið vit
út úr því. Það var yfirleitt ekki
vit að finna út úr neinu.
— Þér sögðust hafa minnzt
altarisbríkur, sem þér voruð
hræddur við á barnsaldri?
— Já.
— Og þessvegna ákváðuð þér
að stinga peningunum í hönd-
ina á óþekktri konu?
— Þetta gerðist svo fljótt, að
ég hafði engan tíma til að hugsa
mig um.
— Ég vil meina, að þér hafið
aldrei verið með tíu þúsund líra
seðil í "higu yðar og séuð nú að
koma með þessa sögu, af bví að
þér haldið, að það gæti gefið
yður einhverskonar fjarveru-
sönnun.
— Fjarverusönnun frá
hverju?
— Frá morðinu sjálfu.
Ég borgaði drykkinn og gekk
út á götuna. Það var farið að
rigna. Regnhlífar þutu upp eins
og gorkúlur, til hægri og vinstri.
Stúlkur með slettótta fótleggi
rákust á mig. Skemmtiferða-
menn, sem rigningin hafði kom-
ið að óvörum, hnipruðu sig ínn
í húsadyr. Kerlingunum mínum
var óhætt inni í tesalnum, og í
svona veðri, sem hafði verið yf-
irvofandi allan seinni partinn,
mundi hr. Hiram Bloom hafa
safnað saman hjörð sinni að
bílnum hjá Beppo.
Ég bretti upp kragann, dró
hattinn niður í augu og smaug
áleiðis til skrifstofu Sólskins-
ferða. Klukkan var langt geng-
in fjögur og ef heppnin væri
með, mundi Giovanni, kunningi
minn verða kominn að skrif-
borðinu sínu, enda þótt honum
hætti til að teygja úr eftirmið-
dagshléinu. Heppnin var með
mér. Hann var á sínum vana-
stað í horninu lengst í burtu og
að tala í hinn óumflýjanlega
síma. Hann sá mig, lyfti hendi
í kveðju skyni og benti mér á
stól. Skrifstofan var tiltölulega
manntóm — aðeins nokkrir ferða
menn voru að víxla peningum
og láta panta fyrir sig herbergL
Það var þetta venjulega.
Giovanni lagði frá sér símann,-
heilsaði mér með handabandi og
brosti. — Átt þú ekki að vera
í Napólí? sagði hann. — Nei,
hvernig læt ég.....það er ekki
fyrr en á morgun.......þú ert
heppinn og hópurinn þinn líka.
Róm hríðversnar með hverjum
deginum. Hafið þið haft góða
ferð?
— Svona nokkum veginn. Ég
er ekki neitt að kvarta. ístrur
og tros — ósköp viðkunnanlegt
allt saman.
— Fallegar stelpur?
Orðsending til HUDSON viðskiptavina
Fram til þessa hafa vegna leyfatakmarkana, aðeins verið
seldar tvær tegundir perlonsokka, sem hafa líkað sérstaklega vel.
Teg. 50/30 den.
Teg. 53/60 den.
Vegna síaukinnar eftirspurnar á HUDSON-sokkum og þar með
auknum leyfum, getum við nú boðið neðangreindar nýjar gerðir:
Teg. 31, Áferðarfallegir sokkar, með tvöföldum sóla.
Sérstaklega ætlaðir fyrir ungu stúlkurnar.
Teg. 35, STRETCH-sokkar í þrem stærðum, sem falla
vel að fæti.
Teg. 51/30 den. Sokkar með sléttri lykkju, sérstakri
crepfit, og ótrúlega tey gjanlegir.
Litir: sumartízkuliturinn Solera, Bronze og Antelope.
HUDSON-sokkarnir eru nú framleiddir í 14 verksmiðjum, í
Vestur-Þýzkalandi, Svíþjóð, U.S.A. og Japan.
Þeirra gífurlega sokkaframleiðsla og sala, er vegna þess að ein-
göngu er framleidd úrvalsvara, en verði stillt í hóf.
ÁFERÐARFEGURÐ - MARGFÖLD ENDING
Heildsölubir gðir:
DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO. HF.
sími 24-333.