Morgunblaðið - 03.07.1966, Síða 31
Sunnuðagur 3. Júlí 1966
MORGUNBLAÐtD
31
Alþjóðlegur sam-
vinnudagur í gær
Alþjóðasamband samvinnu-
manna hefur kjörið laugardag-
inn 2. júlí, sem alþjóðlegan sam-
vinnudag og er þetta í 44. sinn,
sem sambandið kýs sérstakan
dag til að minna á og kynna
starfsemi samvinnufélaga á breið
um grundvelli og þýðingu þeirra
fyrir mannkynið.
í tilefni dagsins hefur sam-
bandið sent frá sér ávarp og
segir þar m.a.:
Alþjóðasamband samvinnu-
manna staðfestir þá sannfser-
ingu sína að friður sé frum-
skilyrði til þess að fjárhagsleg-
ar og þjóðfélagslegar framfarir
geti átt sér stað, og grundvallar
skilyrði fyrir öllum framförum
mannkynsins og lýsir yfir því
að það muni beita þeim siðferði
lega styrk, sem því berst frá
hundruðum milljóna samvinnu-
manna víðsvegar um heiminn
til þess að örva baráttuna fyrir
íriði í heiminum.
Sambandið lýsir yfir þvl, að
1 ljósi alþjóðlegrar ábyrgðar
sinnar eigi samvinnumenn án
tillits til kynþáttar, hörundslit-
ar, trúarbragða eða stjórnmála-
skoðana að láta í ljós þann ásetn
ing sinn að hjálpa bræðrum og
systrum sínum í mannlegu sam-
félagi til að útrýma fátækt
hungri og vanrækslu með því að
beita til þess sjáifhjálp samvinnu
Samið á
INIorðfirði
SKV. upplýsingum, sem Mbl.
Ihefur aflað sér munu samingar
hafa tekizt um kaup og kjör
milli atvinnurekenda og verka-
lýðsfélagsins á Norðfirði. Fund-
ur var boðaður í verkalýðsfé-
laginu á Norðfirði síðari hluta
dags í gær til þess að fjalla um
samningana en ekki var Mbl
kunnugt um efni þeirra, er biað-
ið fór í prentun.
stefnunnar og þá bað samband-
ið samvinnumenn að nota tæki-
færið á samvinnudaginn til að
auka og efla stuðning sinn við
málstað hinnar alþjóðlegu sam-
vinnuihreyfingar og leita eftir
leiðum og tækifærum til að efla
enn framfara og styrktarsjóð
alþjóðasamvinnusambandsins til
hjálpar þróunarlöndunum.
Samkomu-
lag á
Vestfjörðum
SAMKOMULAG náðist milli
Alþýðusarrrbands Vestfjarða og
Vinnuveitendafélags Vestfjarða
um samninga landverkafólks sl.
föstudag.
Samkomulagið er gert á grund
velli þess leiðbeinandi ramma-
samnings, sem gerður var af
framkvæmdastjórn Verkamanna
sambands íslands 23. júlí sl., og
með tilsvarandi breytingum og
umsamdist annars staðar.
Sá fyrirvari var af beggja
hálfu að viðkomandi verkalýðs-
félög og atvinnurekendur sam-
þykktu samkomulagið. Ekki var
full frá gengið um kaup og kjör
vélgæzlumanna í frystihúsum,
og við vinnu í síldar- og fiski-
m j öls verksmið j unni.
Bonn, 2. júlí — NTB —
Einn þingmanna sósíaldemo
krata í V-Þýzkalandi hefur
ákært varnarmálaráðherra
landsins, Kai Uwe von Hass-
el, fyrir manndráp af gáleysi,
í sambandi við flugslys þau,
sem orðið hafa 32 flugmönn-
um að bana. Allir fórust
mennirnir, er þotur þeirra af
Starfighter-gerð féilu til jarð
ar. Alls hefur þýzki flugher-
inn nú misst 38 slíkar þotur.
Stúlkurnar fimm, sem keppa um titilinn fegurð'ardrottning
íslands 1966.
Feg u rða rsa m kepp n i
(JNDANÚRSLIT fegurðarsam-
keppninnar fóru fram í veit-
ingahúsinu Lídó sl. föstudags-
kvöld. Stjórnandi keppninnar
er frú Sigríður Gunnarsdóttir,
en kynnir Ólafur Gaukur hljóm-
sveitarstjóri. Stúlkurnar fimm,
sem keppa til úrslita eru þess-
ar: Guðfinna Jóhannsdóttir, 17
ára, Svanhvít Árnadóttir, 19 ára,
Erla Traustadóttir, 22 ára, Kol-
brún Einarsdóttir, 17 ára og
Auður Harðardóttir, 22 ára.
Fegurðarsamkeppnin er með
líku sniði og undanfarin ár. All-
ar stúlkurnar hljóta verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru ferð til
Langasands, þar sem fegurðar-
drottning íslands keppir um titil
inn Miss Universe, auk 100
dolara farax’eyiis.
Myiidin er frá vígslu Há teigskirkju 19. des. s..l
Fjársöfnun til Háteigskirkju
ALMENN fjársöfnun stendur nú
yfir til Háteigskirkju. í tilefni
af því sneru sóknarnefndarfor-
maður, Þorbjörn Jóhannesson,
og gjaldkeri Háteigssóknar, Guð
mundur Halldórsson ,sér til Mbl.
Tjáðu þeir því að enda þótt heita
megi að kirkjan sjálf sé fullgerð
séu nokkur verkefni enn óleyst.
Má þar t. d. nefna útvegun kirkju
klukkna, pípuorgels og hótalara-
kerfis í kirkjuna, auk þess má
gera ráð fyrir töluverðum kostn-
aði við frágang kirkjulóðarinn-
Orlofsdvöl
að Langa-
gerðissköla
ORLOFSNEFNDIR húsmœðra í
Gullbringu og Kjósarsýslu, Kópa
vogi og Keflavík starfrækja
orlofsheimili að Laugagerðis-
skóla Snæfellsnesi í ágústimán-
uði, og skiptist tímabilið þannig:
Orlof Kópavogs 30. júlí til 9.
ágúst. Nánari upplýsingar gefa
Eygló Jónsdóttir, Víghólastíg 20,
sími 41382, Helga Þorsteinsdóttir,
Kastalagerði 5, sfmi 41129 og
Guðrún Einarsdóttir Kópavogs-
braut 9, sími 41002.
Orlof Suðurnesja 9.—19. ágúst.
Grindavík: Sigrún Guðmunds-
dóttir, sími 8101, Njarðvíkur:
Sigurbjörg Magnúsdótir sími
2093, Gerðar: Auður Tryggva-
dóttir, Miðneshreppur: Halldórá
Ingibjartsdóttir Orlof Keflavíkur
9.—19. ágúst: Kristjana Magnús-
dóttir sími 2072, 1. orlofssvæði:
19.—29. ágúst. Upplýsingar gefa:
Fyrir Kjósarhrepp: Unnur Her-
mannsdóttir Hjalli. Kjalarnes-
hreppur: Sigríður Gísladóttir,
Esjuberg Mosfellsihreppur og
Seltjarnarneshreppur: Bjarnveig
Ingimimdardóttir, Bjarkarholti,
og í sími 17218. Fyrir Bessastaða-
hrepp: Margrét Sveinsdóttir, Sól-
bakka, Garðahrepp: Signhild
Konráðsson sími 51991.
(Fréttatilkynning frá 0»úafs-
nefndum húsmæðra í Gull-
bringu, — og Kjósarsýslu, Kópa-
vogi og Keflavík).
Styrkur til rann-
sókna í íslenzk-
um fræðum
STJÓRN Minningarsjóðs dr.
Rögnvalds Péturssonar til efling
ar íslenzkum fræðum veitir styrk
væntanlega að fjárhæð þrjátíu
og fimm þúsund krónur, til
kandídats í íslenzkum fræðum
til þess að fást við rannsóknar-
verkefni í fræðigrein sinni.
Umsóknir ásamt rækilegri
greinargerð fyrir rannsóknar-
verkefni skulu hafa borizt skrif-
stofu Háskólans eigi siðar en
1 31. júlí n.k.
ar, sem nauðsyniegt er að gerð-
ur verði sem fyrst.
Sóknarnefndin leitar nú til
almennings í sókninni með
þeirri ósk að hyer og einn sýni
hug sinn til kirkju sinnar og
leggi henni fjárhagslegt lið eftir
því sem ástæður leyfa. Væri
mjög ánægjulegt ef almenn þátt-
taka gæti tekist um söfnun þessa,
þótt framlög yrðu ekki stór.
Mundi slikt flýta fyrir þeim
framkvæmdum sem eftir eru,
Þrðija verksmiðj-
an
að
nsa a
Seyðisfirði
SEYÐISFIRÐI, 2. júlí.
Hér hefur undanfarna daga
verið unnið af miklum krafti að
undirbúningsframkvæmdum fyr-
ir nýja síldarverksmiðju, sem
taka á til starfa á næsta sumri.
Hluthafarnir eru héðan frá Seyð
isfirði og frá Vestmannaeyjum.
Með tilkomu þessarar verk-
smiðju verða síldarverksmiðj-
unnar orðnar þrjár, og hvað af-
köst snertir, verður hún önnur
stærsta. Stærsta verksmiðjan er
Síldarverksmiðja ríkisins, sem
afkastar 7000 málum á sólar-
hring, nýja verksmiðjan mun af-
kasta 5000 málum, og loks er
það síddarverksmiðjan Hafsíld
með 3000 mál. — Bjarni.
jafnhliða því sem fjármál kirkj- *'
unnar mundu leysast almennt.
Háeigskirkja sem er mjög
falleg kirkja, hefur að sjálf-
sögðu kostað mikið fé. Hefur fé
það fyrst og fremst komið frá
safnaðarmeðlimunum sjálfum í
formi kirkjugjalda, eða með
frjálsum framlögum, auk þess
sem mikilsverður fjárhagsstuðn-
ingar hefur borizt frá Reykja-
víkurborg. Nú hefur fé þetta
hvergi nærri hrokkið til og
óskar því sóknarnefndin eftir
góðri samvinnu og stuðningi
safnaðarfólks.
Tilraun USA
mistökst
Kennedyhöfði, 2. júlí — NTB.
SKOTIÐ var á loft í gær,
föstudag, frá Kennedyhöfða
ómönnuðu geimfari, sem ætl-
unin var að kæmist á braut
umhverfis tungl. Tilraunin
mistókst þó.
Segja vísindamenn á
Kennedyhöfða, að í stað þess
að fara á braut umhverfis
tungl, muni geimfarið fara á
braut umhverfis jörðu.
Það mun hafa verið annað
þrep eldflaugarinnar, sem
brást.
Skólaslit Gagnfræða-
skólans á ísafirði
G AGNFRÆÐ A SKÓL ANUM á
ísafirði var slitið 31. maí.
í skólanum voru í vetur 186
nemendur í 8 deildum. Fastir
kennarar voru 10, auk skóla-
stjóra, og 5 stundakennarar.
Undir unglingapróf gengu 52
nemendur, en undir landspróf
miðskóla 18 og stóðust 14 þeirra
prófið. Gagnfræðapróf tóku 26
nemendur. Þeir stóðust allir
próf, og einnig nemendur fram-
haldsdeildarinnar, en hún er með
námsefni 1. bekkjar mennta-
skóla.
Auk verðlauna frá skólanum,
var úthlutað verðlaunum, sem
Oddfellow-deildin í bænum
veitti nú eins og í fyrra.
Þá veitti og Þýzka sendiráðið
í Reykjavík verðiaun fyrir bezta
frammistöðu í þýzku.
Efstar og jafnar á unglinga-
prófi urðu Kolbrún Leifsdóttir
og Sigríður Jónsdóttir og fengu
8,16 í aðaleinkunn.
Hæstu einkunn á landsprófi
hlaut Eyrún Gísladóttir 7,58.
Á gagnfræðaprófi varð efstur
Guðmundur Kjartansson og fékk
8,93.
Efst í framhaldsdeildinni varð
Sigríður Ragnarsdóttir. Hún fékk
8.84.
Hæstu einkunn í skólanum
hlaut Hjálmar Helgi Ragnarsson
í 1. bekk 9,01.
Nemendur, sem brautskráðust
fyrir 15 árum gáfu skólanum
málverk af látnum kénnara
skólans Haraldi Leóssyni.
Árgangurinn, sem útskrifaðist
fyrir 20 árum, gaf 20 þúsund
krónum til kaupa á tækjum í
eðlisfræðistofu skólans.
Gunnlaugur Jónasson, bók-
sali, hafði orð fyrir þeim nem-
endum og gat þess að upphæðin
væri gefin í rr-inningu þriggja
látinni bekkjar.systra.
Skólastjóri þakkaði þessum ár-
göngum tryggð og höfðingsskap
í garð skólans.
Hið árlega skólaferðalag gagn-
fræðinga og landsprófsnemenda
stendur yfir. — Högni.