Morgunblaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 23. júlí 1966 Djúpvegurinn hef ur verið ákvæðinn Hálendisvegur um Glámu væri óskynsamlegur, segir Sigurlur Jéhannsson, vegamálastjóri ÞAÐ virðist mjög óskynsam- legt að hefjast nú handa um lagningu hálendisvegar um Glámu sunnan ísafjarðar- djúps, sem sneiðir hjá allri byggð og yrði að líkindum aðeins fær örfáa mánuði árs- ins. Þannig komst Sigurður Jóhannsson, vegamálastjóri, m.a. að orði er Morgunblaðið átti stutt samtal við hann í gær í tilefni af frétt þeirri sem birtist hér í blaðinu um váðagerðir einkaaðila um vegalagningu um Glámuhá- lendið, úr Mjóafirði yfir í Hattardal í Álftafirði. f 500—600 metra hæð „Hefur vegarstæði um Glámu- 'hálendi verið athugað?“ „Það hefur ekki verið gert“, segir vegamálastjóri. „Vitað er að slíkur vegur yrði að mestu í 500—600 metra hæð, eða svip- aðri hæð og vegur er hæstur á Breiðadalsheiði. Yrði ákaflega Slys á Sóleyjargötu Á I>RIÐJA tímanum í gærdag varð harður árekstur á Sóleyjar götu. Við húsið nr. 19 við Sól- eyjargötu stóð bifreið að nokkru leyti uppi á gangstétt. Kom þá bifreið að, og hugðist bílstjóri hennar leggja henni fyrir aftan fyrrnefnda bílinn. Talið er, að han hafi stigið á benzíngjöfina í stað hemlana, svo að bíllinn skall af miklu afli aftan á kyrr stæða bílinn. Köstuðust þeir áfram um tvær bíllengdir. 1 bílnum, sem árekstrinum olli, voru tvær konur. Sú þeirra, sem ók, hlaut taugaáfall og slas- aðist eitthvað. Hún var flutt í Slysavarðstofuna. erfið vegagerð þarna um Glámu- hálendið. Fara yrði fyrir alla fjarða- og dalbotna. Áuk þess yrði slíkur vegur aldrei fær nema um hásumarið, eða álika tíma og nú á sér stað um Breiða- dalsheiðL Ég teldi slfka vegager'ð ekki hyggilega á þessu stigi málsins. Hvað gerist í framtíðinni, er ekki hægt að fullyrða um“. 50 km kafli ólagður „Hvað er eftir að leggja mikið af Djúpveginum, sem liggur um firðina við sunnanvert ísafjarðar djúp?“ „Það er eftir að leggja kaflann frá Skarði í Skötufirði að Eyri í Sig. Jóhannsson. Seyðisfirði, en það er um 50 kíló- metra leíð. Þessi vegarkafli, spm eftir er að leggja liggur í kring- um Skötufjörð og Hestfjörð, og botn Seyðisfjarðar. Það eru því raunverulega tveir firðir, sem eftir er að leggja veg í kringum. Vegur á þeirri leið yrði rétt yfir sjávarmáli þ.e. með sjónum alla leið, og því væntanlega mjög snjó léttur. Hinsvegar er það nokkuð erfið vegagerð, sérstaklega um Fossahlíð í Skötufirði“. „Hvað er gert í Djúpveginum í ár?“ „Þáð er verið að leggja veg um Skarð áleiðis að Hjöllum í Skötu- firði að innanverðu og að utan- verðu er unnið að því að mal- bera veginn frá Hattardal í Álfta firði út fyrir Kambsnes að Eyri í Seyðisfirði. En undirbyggingu þess vegar var lokið á sl. ári“. 5,6 millj. kr. til Djúpvegarins „Er ekki búið að ákveða áð þessum vegi skuli lokið á næst- unni?“ „Jú, þegar vegaáætlun var sam þykkt á Alþingi árið 1965 og Vestfjarðaráætlun í samgöngu- málum gerð, var sú stefna mörk- uð að leggja fyrst áherzlu á að tengja sem bezt þéttbýlið á Vest- fjörðum með góðum og öruggum vetrarvegum. Er þá annars vegar um að ræða að skapa sem bezt samband milli ísafjarðarkaup- staðar og bygg’ðarlaganna við utanvert ísafjarðardjúp og þorp- anna í Vestur-ísafjarðarsýslu, og hinsvegar að tengja saman byggðarlögin við Arnarfjörð, Tálknafjörð og Patreksfjörð. Þessu verki á að verða lokið í árslok 1968. í vegaáætlun eru þó einnig á sama tímabili veittar 5,6 milljón- ir króna til lagningar Djúpvegar- ins meðfram sunnanverðu ísa- fjarðardjúpi. Með því hefur Al- þingi ákveðið að þessi leið skuli farin. Það veltur svo á fjárveit- ingarvaldinu, hve hratt verður unnið að þessari framkvæmd. Þegar á allt er litið virðist það því mjög óskynsamlégt og hæpið að hefjast nú handa um lagningu hálendisvegar sunnan Djúpsins, sem sneiðir hjá allri byggð og yrði að líkindum aðeins fær ör- fáa mánuði ársins“, segir Sigurð- ur Jóhannsson, vegamálastjóri, áð lokum. Heimdallarferð að Hvítcarvatni í dag 1 DAG efnir Heimdallur FUS til ferðar að Hvítárvatni. Lagt verð ur af stað kl. 3 í dag frá Val- LÆGÐIN, sem sést á kortinu hvass A til, en hægari V til. fyrir norðaustan land, á sér Rigning á laugardag. ekki langan aldur. Loftvogin NA-land og miðin: NV átt. byrjaði að falla milli Græn- Allhvasst á nnðunum og an- Iands og Vestfjarða aðfaranótt nesjum. fimmtudags, og á hádegi í gær Austf. og miðin: N og NV mátti segja, að hún réði veðri stinningskaldi. Dálítil rigning innan 1000 km. geisla frá lægð norðan' til. armiðju, eða á svæði, sem er s.A-land og miðin: NV um 30 sinnum stærra en Is- BjartviðrL land. Furðulega hlýtt var í Ang- magsalik, 20 stiga hiti, og þó var þar ekki sólskin. Veðurspá fvrir laugardag kl. 22 á föstudagskvöld: SV-land, Faxaflói og miðin: NV og síðan NA kaldi. Létt- skýjað Breiðafj., Vestf. og miðin: NA gola og síðan stinnings- kaldi. Þykknar upp. N-land og miðin: N átt. All NA-djúp: AUhvass og síðar hvass norðan. Kalsarigning. Austurdjúp og Færeyja- djúp: NV stinningkaldi eða allhvasst. Skúrir. Horfur á sunnudag: Norðiæg átt. Rigning og kalsaveður á Norðaustur- landi, en þurrt á Vesturlandi og sólskin sunnanlands. höll v/Suðurgötu, en komið til baka á sunnudagskvöld. Þátttak endur þurfa að hafa með sér við leguútbúnað. Þátttaka tilkynnist í síma 17100. Þetta er fyrsta ferð Heimdall- ar á þessu sumri og eru Heim- dallarfélagar eindregið hvattir til að fjölmenna og taka með sér vini sína og kunningja. Enn læknislaust á Patreksfirði Læknislaust er ennþá á Patreksfirði. Horfir til vand- ræða vegna þessa ástands. í fyrrinótt veiktist kona í Tálknafirði og var þá það ráð tekið að hafa samband við lækni á Siglufirði, sem fólkið þekkti. Var sjúkdóminum lýst fyrir honum og síðan fengin meðul frá lækninum á Bíldudal. En Bíldudalslæknir hefur öðru hverju verið sótt- ur til Patreksfjarðar. Enn- fremur hefur læknir frá Þingeyri komið til Patreks- fjarðar í sjúkravitjanir. Heildbrigðisstjórnin vinnur nú að því eftir fremsta megni að fá lækni til Patreksfjarð- ar. En þess má geta að sjúkra hús hefur um alllangt skeið verið rekið þar í byggðarlag- inu með myndarbraf Nýr Sandgerðisbátur í GÆR kom til Sandgerðis nýtt og glæsilegt fiskiskip, Kristján Valgeir, eign hins kunna útgerð- armanns Guðmundar Jónssonar frá Rafnkelsstöðum. Kristján Valgeir er 356 rúmlestir að stærð og mun í dag vera stærsta fiski- skip í eigu fslendinga. Talið er að skipið geti tekið ca. 3300 tunnur af síld i lest og 700 tunn- ur á dekk. Þetta skip er af sömu stærð og m/b Gísli Árni, en fyrir cokkru kom hann með 4000 tunnur af síld af mið- unum við Jan Mayen. Skipstjóri á Kristjáni Valgeir er Hafsteinn Guðnason. Skipið er búið öllum helztu skipstjórnar- og fiskileitartækj- um og var hraði þess 11,7 mílur í reynsluferð. Aðalvél skipsins er Wichman 6ACAT 900/960 hest- afla. í því eru einnig tvær Volvo Penta hjálparvélar. Togspilið er af nýrri gerð frá Norwinch, um það bil 18 tonn og auk þess all- ur venjulegur spilútbúnaður. Þá er í skipinu síldardæla og stærsta gerð af Hov nó-tavindu, fullkomnustu gerðir af Simrad fiskiieitartækjum, radar og radíó útbúnaði og má segja í heild að allur útbúnaður skipsins er eins fullkominn og frekast er unnt. M/b Kristján Valgeir er byggð ur hjá Kaarbös Mek. Verksted Vistarverur eru fyrir 18 manns. A/S og er þetta áttunda skipið, sem skipasmíðastöðin hefur selt hingað til lands á tiltölulega stutt um tíma, en hún afhenti fyrir Glímusýning í Arbæ í dag FÆREYJAFARAR og fiokkur drengja úr glímudeild Ármanns halda sýningu að Árbæ í dag, laugardag, kl. 4 e h. Tíðir árekstrar á mótum Háaleitisbr. og Miklubr. Á HÁDEGI í gær varð harður þar úr hraða. Stöðvunarskylda hvílir á þeim, sem koma eftir Háaleitisbraut, en margir sinna henni ekki, og er það ein orsök árekstra þarna. Þá ber það líka við, að menn taka of sriemma af stað, af því að þeir vanmeta hraða og ofmeta fjarlægð þeirra bíla, sem eftir Miklubrautinni koma. Oft þarf ekki annað til að valda árekstri en að bíll, sem numið hefur staðar við gatna- mótin, hikstar eða drepur á sér, þegar honum er ekið aftur af stað. Þá kemur bíll e.t.v. á svif- hraða ofan af hæðinni á Miklu- braut, bílstjórinn sér Háaleitis- brautarbílinn standa þversum á Miklubraut og snarhemlar, en vegna hraða eða hálku af völd- um rigningar tekst honum ekki að koma í veg fyrir árekstur. Þrátt fyrir þessi tiltölulega „auðveldu“ gatnamót, er brýnt fyrir bílstjórum að aka um þau méð fullri gát og sérstakri að- gæzlu. Hinir tíðu árekstrar þar sýna, að þess er full þörf. áxekstur tveggja fólksbifreiða á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar, en árekstrar ger- ast þar nú alltíðir. Annar bíll- inn var að koma inn Miklubraut og beygði til hægri norður á Háaleitisbraut. f sömu svifum bar hina bifreiðina að, en hún var á leið austur Miklubraut. Skullu þær saman og skemmd- ust töluvert. Geysimikil umferð er um þessi gatnamót’ oft tvö- eða þrefaldar bílaraðir þar mikinn hluta dags, og vegna þess aðallega, hve greitt er ekið, verða þar oft á- rekstrar. Báðar göturnar eru mjög greiðfærar hraðbrautir, og aka bílstjórar yfirleitt allt of hratt yfir gatnamótin. 60 km. há- markshraði á kls. er á Miklu- braut, og aka fæstir undir þeim hraða á henni. Margir virðast halda, að þeir megi halda fullum hraða, þegar farið er yfir gatna- mótin, en skv. lögum ber bíl- stjórum skylda til þess að draga rúmu ári m/b Jón Garðar, en hann er einnig í eigu Guðmundar á Rafnkelsstöðum og hefur reynst mikið aflaskip. Umboðsmaður Kaarbös Mek. Verksted á íslandi er Eggert Kristjánsson og Co. Reykjavík. Er blaðamaður Mbl. kom til Sandgerðis í gær var mikið fjöl- menni á hafnanbakkanum til að fagna hinu nýja skipi. Binda Sandgerðingar mi'klar atvinnu- vonir við skipið, en ætlunin er síðar í sumar, að það sigli með síld af Austfjarðamiðum til vinnslu í Sandgerði, en sem kunn ugt er fluttu Jón Garðar og Sigur páll þannig samtals um 28000 tunnur af síld til Sandgerðis í fyrra og varð af því mikil at- vinnubót. Skipið fer til síldveiða fyrir Austurlandi næstu daga. g*r- varð Bílslys á Laufásvegi Á TÍUNDA tímanum í kvöldi (föstudagskvöld) bílslys við Laufásveg 41. Bifreiða var að koma niður Baldursgötu- brekkuna, en vegna bilaðra hemla, að því er talið er, lenti bíllinn á húsveggi. Kristveig Þórhallsdóttir, Háaleitisbraut 30, hlaut höfuðhögg og var flutt í Landsspítalann, en telpa, sem með henni var í bílnum, Ágústa Málfríður Pálsdóttir, mun lítið sem ekkert hafa slasazt. Árekstur í Rjúpnadalshlíð KL. RÚMLEGA fjögur í gær- dag varð árekstur milli tveggja fólksbifreiða á Vatnsendavegi í Rjúpnadalshlíð. Þriðji bíllinn skall á bílunum rétt á eftir, og skemmdust þeir allir mikið. Gömul kona, sem var farþegi í einum bílanna, slasaðist og var ekið í Slysavarðstofuna. Einn ökumannanna meiddist eitthvað. Drengur verður fyrlr bíl RÉTT fyrir klukkan eitt í gær- dag varð þriggja ára gamall drengur fyrir bíl á Hrísateigi. Drengurinn, Friðrik Jósafatsson. til heimilis á Hrísateigi 29, kom fram undan bíl ,sem stóð við gangstétt fyrir framan heimili drengsins. Lenti hann framan á bíl, sem kom eftir götunni, barst með honum rúmlega bíllengd og féll síðan aftur yfir sig í götuna. Hann slasaðist eitthvað á höfðL en að öllum líkindum ekki al- varlega. Á NÍUNDA tímanum á föstu- dagskvöld rákust tvær fólks'bif- reiðar á við Vífilstaðavatn. Nokkrar skemmdir urðu á bíl- unum, en ekki slys á fólkL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.