Morgunblaðið - 23.07.1966, Side 7

Morgunblaðið - 23.07.1966, Side 7
Laugardagur 23. jölí ÍWW MORGUNBLAÐIÐ BÁRÐALAUG Margir furðustaðir eru á Snæfellsnesi. Einn af þeim er Bárðarlaug og er hún kennd við Bárð Snaefellsás. Segir sagan að hann hafi laugað sig þar þegar hann kom til ís- lands. Frá Arnarstapa liggur ak- vegurinn vestur með Stapa- felli og síðan upp með því að vestan og yfir hraunkvísl, sem nefnd er Hellnahraun. Er þá komið að norðurendan- um á holti nokkru eða ás, sem kallast Laugarholt. Þar skipt- ast leiðir og liggur önnur fyr ir Jökul, en hin til vinstri handar niður að Hellnum. Nær holtið langleiðis að þorpinu, en fer þó altaf lækkandi. Hæst er holtið nyrad og kallast þar Laugar- höfuð og er þverhnýpt mót norðri. Þarna uppi er Bárðar laug, djúpt ker eða gosgígur með djúpu vatni í botni. Er vatn þetta líklega um löO metra langt og sporöskjulag- að, en um 80-100 metrar á breidd. Er skemmst að ganga að því upp grasi gróna brekku skammt fyrir neðan vegamót- in. í sólskini og sumarblíðu höfum vér ekið um úfin hraun og nemum nú staðar hjá Laug arholti. Brekkan upp á holt- ið er hvorki há né brött, en þegar upp á brún kemur, þá blasir kerið og laugin við nyrzt á holtinu og virðast brúnirnar allar vera nokkurn veginn jafnháar og jafn þykk ar. Minnir holtið því á gríð- armikla skeið, þar sem Laug- arhöfuð er blaðið, en hinn hallandi rani suðureftir er þá skaftið. Þaraa hefir verið heit laug þegar landnámsmenn komu, og af henni eru dregin nöfnin Laugarbrekka, Laug- arvatn, Laugarhöfuð og Laug arholt. En hún hefir kólnað síðan, eins og laugin hjá Lýsu hóli í Staðarsveit. Hliðar gígsins niður að lauginni eru háar, en allar sléttar og grónar grasi og lyngi og einkar fagrar á að sjá. í björtu veðri seinni hluta dags líkist það mest draumsýn að horfa yfir laug- ina. Hún sýnist eins og hvítt »-'!»' M" mi. , . JI<<M<<IMI Þarna eru 3 frændur að spóka sig við Bárðarlaug á Snæfellsnesi. perlukögur umhverfis hana. Þetta heiðbiáa auga, sem horf ir á oss neðan úr gígnum, hef ir einhvern heillandi kraft, því fylgir eitthvert óskiljan- legt seiðmagn, ljúft og lað- andi og stingur þannig í stúf við hrikaleik náttúrunnar allt um kring. Skammt frá gnæfir Snæ- fellsjökull upp í heiðið blátt, nýsnævi snifinn og töfrafag- ur. Það er líka eins og hann viti af því og sé upp með sér af fegurð sinni, því að líkt og hégómleg hispursmey gæg- ist hann niður í Bárðarlaug til þess að spegla sig i henni. Eða er það á hinn veginn, að sjálfur Snæfellsás sé svo hrifinn af fegurð laugarinnar, að harrn leitist við að horfast í augu við hana? Vér horfum einnig í þetta bláa auga og undrumst. En af Laugarhöfðinu er líka víð út- sýn og þaðan má lita marga merka staði. Þar sér niður á grænar tóftir og gamalt tún. Þama var landnámsbærinn Laugarbrekka og mun ein- hvern tíma verða frægasti sögustaður á fslandi. Þarna var fædd Guðríður Þorbjarn- ardóttir, sem giftist Þorfinni karlsefni í Grænlandi og fór með honum að nema land í Vínlandi. Hún varð því fyrsta hvíta landnámskonan 1 þeirri heimsálfu og ól þar fyrsta hvíta barnið, sem fæddist í Ameríku. En íslenzkt landnám þar var þá enn eigi tímabært, og hurfu þau Karlsefni heim til fslands. Frá þeim Guðríði er margt stórmenni komið, en merkust allra er Guðríður sjálf. Hún mun einhvem tíma verða frægust allra islenzkra kvenna, og þá verður fæðing- arstaður hennar, Laugar- brekka einnig frægur, þótt nú sjái þar ekki annað en tófta- brot. Vér sitjum í sóiskini og blíðviðri uppi á Laugarhöfði og virðum fyrir oss útsýnið, sem er ólikt útsýni frá öllum stöðum. En starsýnast verð- ur oss þó á Bárðarlaug, djásn ið, sem stingur í stúf við allt annað, er við augum blasir. Hér er friður og helgiblær á öllu. Mjúklega seitlast áhrif- in inn í sálir vorar og færa með sér vellíðan, eins og góð öfl gera alls staðar, ef menn eru sem kunna að veita þeim viðtöku. — Árni Óla. ÞEKKIRÐIJ LANDIÐ ÞITT? AkranesferStr með áætlunarbilum 1*ÞÞ frá Akranesi kl. 12. alla daga nema laugardaga kl. S að morgnl og sunnuðaga kl. 17:30. Frá Rvik (llm- ferðamiðstöðin) kl. 6 alla daga nema laugardaga kl. 2 og sunnudaga kl. *1 og 23:30. Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka- foss fer frá Antwerpen 25. til Rvikur. Brúarfoss fór frá Keflavik i dag til Hanarfjarðar, Akraness og Rvíkur. Dettifoss fer frá Rotterdam I dag 22. til Rvíkur. Fjallfoas fór frá NY 20.‘ til Rvíkur. Goðafoss kom til Rvíkur 20. frá Kaupmannahöfn. Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn á morgun 23. til Leith og Rvíkur. Lagarfoss kom tU Rvikur 20. frá Keflavik. Mánafoss kom tU Rvikur 20. frá Akranesi. Reykja- foss fer frá Leningrad 26. tU Gdynia, Kaupmannahafnar og Rvíkur. Selfoss fór frá Rvík 16. til Gloucester, Cam- bridge og NY. Skógafoss fer frá Seyð isfirði í dag 22. tU Þorláksftafnar og Rvikur. Tungufose fór frá Norðfirði 20. til Grimsby, Hi\ll, Hamborgar og London. Askja fer frá Hamborg 23. til Rotterdam og HuU. Rannö fór frá Seyðisfirði í dag 22. til Raufarhafnar og Rvíkur. Golzwardersand fer frá Bíldudal i dag 22. tU Súgandafjarðar og Hornafjarðar. Utan skrifstofutíma eru skipafréttir lesnar i sjáHvirkum íimsvara 2-14-66. H.f. Jöklar: Drangajökuil er i New- eastle. HofsjökuU er i Callao, Peru. LangjökuU kemur i kvöld til Gloucest er frá NY. VatnajökuU kom i morgun til Rvíkur frá Hamborg, Rotterdam og London. Hafskip h.f.j Langá er i Gdynia Laxá er i Cardiff. Rangá er i HtUl. Selá er i Rík. Knud Sif er i Rvik. Skipadeild 8.1.8.: Arnarfeli losar á Austfjörðum. Jökuifell fór frá Camd- en 21. þjn. tU íslands. Dísarfell er á Þingeyri, fer þaðan tU Borgarness og Rvíkur. Litlafell er væntanlegt tU Rvíkur i dag. Helgafell losar. á Aust- fjörðum. HamrafeU fór frá Hafnar- firði 16. þ.m. áleiðis tU Vexlur-Indíu. Stapafell er á leiðinni frá Austfjörð- um tU Rvíkur. Mætkfell fór frá Arkhangelsk 18. þ.m. til Antwerpen. Flugfélag íslands h.f.: MUUlanda- flug: Gullfaxi fer tU Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 i dag. Vél in er væntanieg aftur tU Rvíkur kl. 21:50 í kvöld. Skýfaxi fer tU London kl. 09:00 i dag. Vélin er væntanleg aftur til Rvíkur kl. 21:06 í kvöld. Flugvélin fer tU Oslo og Kaupmanna- hafnar kl. 14:00 i fyrramálið. Sólfaxi fer tU Kaupmannahafnar kl. K»:00 i dag. Vélin er væntanleg aftur til Rvík ur kl. 22:10 í kvöld Flugvélin fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið. Innanlandsf lug: í dag er áætlað að fljúga tU Akureyrar (4 ferðir), Vestmannaeyja (2 ferðir), ísafjarðar, Hornafjarðar og EgUsstaða (2 ferðir). Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar( 3 ferðar), Vest- mannaeyja (3 ferðir), Hornafjarðar, ísafjarðar, Kópaskers, Þórshafnar, Egilsstaða (2 ferðir) og Sauðárkróks. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá Rvík kl. 18.00 á morgun 1 Norður- landaferð. Esja kemur til Vopnafjarð- ar ki. 15:00 i dag á suðurleið. Her- jólfur fer frá Hornafírði kl. 16:00 i dag tU Vestmannaeyja. Skjaldbreið er í Rvík. Herðubreið er á Austfjörð- um á norðurleið. VISIIKORN Aö ganga lifsins gleðibraut til góðrar fyrirmyndar, Þar om margur þegninn hnaut þröskuld eigin synda, Skalli. Breiðfjröingabúð DANSLEIKUR í KVÖLD KL. 9. SIÐAST SELDIST UPP á 19 mín. 30,6 sek. Minningarspjöld Minningarkort Sjálfsbjargar j fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Bókabúð ísafoldar, Austurstræti 8, bókabúðinni, Laugarnesvegi 52, bókabúð Helga fells, Laugaveg 100, bókabúð Stefáns Stefánssonar, Laugavegi 8, Skóverzl. Sigurbjörns Þorgeirs sonar, Miðbæ, Háaleitisbraut 58 — 60 Davíð Garðarson, orthp. skósm., Bergstaðastræti 48, Reykjavíkur Apótek, Holtsapó- tek, Garðsapótek, Vesturbæjar- apótek og í skrifstofu Sjálfs- bjargar, Bræðraborgarstíg 9. Kópavogur: Hjá Sigurjóni Björns syni, Pósthúsi Kópavogs. Hafnar fjörður: Hjá Valtý Sæmunds- syni, öldugötu 9. Bltið 09 tímarit Tímaritið Hjartavernd, 1. tölublað 3. árgangs hefur nýlega borist blaðinu. Af efni þess má nefna grein Þorkels Jóhannes- sonar læknis um Nitróglycerín og notkun þess við hjartaöng (Angina pectoris.) Óskar Jóns- son í hafnarfirði skrifar grein- ina: Frá sjónarhóli leikmanns séð, birtur er kafli úr ræðu Johnsons Bandaríkja forssta jákvæð viðhorf til heilbrigðis- mála. Þá er skýrslur stjórnar Hjartaverndar og reikningar fé- lagsins. Ritstjóri blaðsins er Snorri P. Snorrason læknir, en útgefandi eru samtök Hjarta- og æðavarnarfélaga. Strengir og Fjarkar sjá um fjörið. Mætið tímanlega. Hiiðasala frá kl 8 TJARNARBÚÐ DAMSLEIKUR 5 pens Aldurstakmark 18 ára. Hirtir R. S. Sölumennsl.a — Skrifstofustarf Iðnfyrirtæki úti á landi óskar að ráða til sín ungan áhugasaman mann á aldrinum 25—35 ára, er gæti unnið sjálfstætt að sölu á framleiðsluvörum fyrir- tækisins. Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur, reglusamur og hafa góða framkomu — Enskukunn- átta. nauðsynleg. — Upplýsingar veittar á skrif- stofu Félags íslenzkra iðnrekenda, Iðnaðarbankahús- inu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.