Morgunblaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 23. júlí 1986
Flutningar á söltunarsíld til
Norðurlandshafna
Flutningur með skipi á síld til
söltunar er mjög aðkallandi mál
fyrir norðurlandshafnirnar og þó
einkum fyrir Siglfirðinga. Sigl-
firðingar bíða í góðu veðri með
tóm síldarplön. Framtaksleysi
virðist ráða þar sem talsvert fé
er til reiðu hjá flutninganefnd
til flutnings á síld til söltunar.
Saltendur þurfa sjálfir að hafa
forgöngu í þessu máli og fara
fram á að síld verði flutt nú
þegar af miðunum við Jan May-
en og víðar því þar fæst allgóð
síld til söltunar eða 40—50% af
þeirri síld er þar hefur veiðst er
söltunarhæf.
Hentugt skip til flutninga
þessara er fyrir hendi, en fjár-
anagn vantar til útbúnaðar. M.s.
Jarlinn, sem er 665 smálesta skip
er hentugur til flutninga þess-
ara og hefur verið boðinn fram
til þeirra. Til þess að sem minnst
um tíma og fé verði eytt, þyrfti
að setja dælu í skipið, sem gæti
dælt síldinni úr nót veiðiskip-
anna á miðunum. Slík dæla er
til hér og stendur til boða. Síld-
inni yrði dælt upp í kassa á
dekki sem þyrfti að taka í einu
allt að 1000 tunnur. Siðan væri
haegt að nota síldartunnur, til
þess að setja síldina í í lestinni,
þar sem annar útbúnaður er
ekki fyrir hendi. Tunnunum
yrði raðað í lest skipsins upp á
endann tómum og svo látið renna
í tunnumar úr kassa, á dekkinu
og þá um leið blandað hæfileg-
— Vietnam
Framhald af bls. 1
en ekki leiðtogum þeirra, sem
þó bæru alla ábyrgð á því sem
orðið hefði. Gerði Nixon það að
tillögu sinni að leiðtogar Norður
Vietnam yrðu dregnir fyrir rétt
og látnir svara til saka sem
stríðsgiæpamenn. „í málum sem
þessum,“ sagði Nixon, „gerði
stjórnin rétt í því að hafa sem
fæst orð um hvað hún hyggst
fyrir“.
Hanoi neitar enn.
Dean Ruak utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði í dag að N-
Vietnam-stjórnin hefði enn einu
sinni vísað á bug tilmælum
Bandaríkjastjórnar um samninga
viðræður, sem gerð hefðu verið
fyrir tveim til þrem vikum.
um ís sem geymdur væri fremst
í lest skipsins í afhólfuðu rúmi.
ísnum yrði blandað í síldina með
þar tilgerðum blástursdreifara.
Einnig þyrfti ef til vill að strá
smá saltskamti með ísnum um
leið og látið væri renna í tunn-
urnar. Þegar búið er að fylla
tunnurnar í neðstu röð yrðu
sett borð yfir þær og raðað nýrri
röð og þannig áfram í 4 — 5 rað
ir og mætti þannig koma í skip-
ið 3 — 4000 tunnum. Síðan yrði
tunnunum skipað upp með síld-
inni í og fluttar á söltunarstöðv-
arnar, þannig að síldin yrði
ekkert hreyfð fyr en hún verður
söltuð. Þessi leið væri fær og
síldin kæmi óskemmd á söltun-
' arstöðvarnar. Söltunarstöðvarn-
ar myndu leggja til tómtunnurn-
ar í skipið og fengju þær aftur
fullar af ferskri síld. Þessi leið
er fær og hægt að grípa til henn
ar þegar í stað.
Þó það sé fær leið að nota
tunnur, sem hægt er að grípa til
fyrirvaralaust, eru þó kassar
sem taka 10 — 15 tunnur úr
galvaniseruðu járni hentugastir.
Slíkir kassar fást til dæmis hjá
innflytjendum hér, er umboðs-
maður fyrir þá heildverzlun
Péturs O. Nikulássonar. Þeir
kassar raðast vel í skip og
skorða hver annan.
Það er hörmulegt- til þess að
vita, að flutningaskip aðeins út-
búin fyrir guanosíld skuli taka
megnið af þeirri síid, sem fisk-
ast á fjarlægum miðum er nota
mætti til söltunar í landi, þar
sem allir eru hungraðir í síld til
söltunar og hafa lagt stórfé í
stofnkostnað, ráðið fólk og allt
sem því fylgir.
Ég vil ekki lengur láta hjá líða
að vekja athygli á þessu mikla
vandamáli því það þolir enga bið
- Leita til íslands
Framh. af bls. 3.
hann hefði fyrir skemmstu
setið fund um matvælaskort
þróunarlandanna í Washing-
ton. Þetta hefði verið mjög
mikilvægur fundur, sem þátt
hefðu tekið í Bandaríkin,
Kanada, Ástralía og fleiri
þjóðir. Sagði dr. Sen, að hug
boð sitt væri, að töluverðra
tíðinda væri að vænta varð-
andi þessi mál á næstunni.
• ' ’
Tölur víxluðust í einu númerinu í happdrætti Landssambands
hestamanna í blaðinu í gær, en það var fyrsta númerið. Vinn
ingarnir eru fjögurra vetra stóðhestur, Stígandi frá Kolkuósi,
sem kom á 984, hryssa, sem kom á 3443 og flugferð til Kaup-
mannahafnar á 5895. Hér er mynd af happdrættishestunum, cn
Stígandi var einn af sýningarhestunum á Landsmótinu.
Iwert sem þý fárið hvenaer sem þer farið
hvemig sem þer ferölst ■MéÉBT"
■■ —> ferðaslysatrygging
nú eftir að söltunarhæf síld er
farin að veiðast þó hún sé langt
frá landi.
Gunnar Halldórsson.
18. SKÁK
Hvítt: Petrosjan
Svart: Spassky
1. d4, Rf6; 2. c4, e6; 3. Rf3, b6;
4. Rc3, Bb7; 5. a3, Bxf3(?);
6. gxf3, Be7; 7. f4, d5; 8. f5, exf5;
9. Bg2, 0-0; 10. cxd5. Ef 10. Rxdö,
Rxd5; 11. BxdS, c6; 12. Bg2, Bf6;
13. e3, f4! eða 13. dð þá Dc7;
10. — Bd6; 11. Dd3, g6; 12. Bg5,
He8; 13. h4. Hversvegna ekki
13. 0-0-0, t.d. 13. — Rbd7; 14. fi3
með hvítu frumkvæði. 13. —
Rbd7; 14. h5, Hb8; 15. hxg6, fxg6;
16. 0-0-0, b5(!); 17. Rxb5. Sterkt
virðist vera 17. e4, enda er hvít-
ur þá trúr sinni köllun og sækir
kóngsmegin. Nú fær svartur mót-
sókn. 17. — Dc8; 18. Hd2, Db7;
19. Rc3, Db3; 20. Dc2, Kg7;
21. Bf3, h5; 22. Dxb3 Hxb3;
23. Hc2, Heb8; 24. e3, KÍ7;
25. Hdl, Rb6; 26. Bxf6, Kxf6;
27. Be2. Svartur hótaði Rc4, Hxa3
og Bxa3f. 27. — h4; Ef til vill
var 217. — g5 sterkasti leikurinn.
28. t4. Að öðrum kosti leikuc
svartur g5. 28. — He8; 29. Kd2,
Hxc3; Frumkvæði svarts er horf-
ið, og hann velur því að skipta
upp til jafnteflis. 30. Hxc3. Ef
30. bxc3 Rxd5 ásamt Rxe3 og
Bxf4. 30. — Rxd5; 31. Bb5!
Einfaldast. Ef 31. Hlb3, Rxe3;
32. Bb5, He4; 33. Hxe3, Bxf4;
34. Hdel, Hxd4f; 35. Kc3, Bxfi4;
36. Hxe3 og staðan er mjög
vandasöm. En í stað 31. — Rxe3
getur svartur leikið betur með
31. — Hxe3!; 32. Hxe3, Bxf4;
33. Rfi3, Rxe3; 34. Hhl, g5 og
svartur hefur mjög mikla vinn-
ingsmöguleika. 31. — Rxc3; ■
32. Bxe8, Rxdl; 33. Kxdl.
Jafntefli.
LoEccað
Lokað vegna sumarleyfa dagana 25. júlí
til 2. ágúst.
Smith & ÍViorland hf.
Suðurlandsbraut 4.
IJtboð
Kópavogskaupstaður óskar eftir tilboðum i holræsa-
lögn í ónefndri götu meðfram Hafnarfjarðarvegi.
Útboðsgögn afhent í skrifstofu minni gegn 2 þúsund
kr. skilatryggingu. — Tilboð opnuð 2. ágúst 1966.
Kópavogi, 22. júlí 1966.
Bæjarverkfræðingur.
Bílstjóra
karl eða konu, vantar á sendiíerðabíl ritsímans
frá 2. ágúst. — Upplýsingar um staríið eru gefnar
í síma 11000.
Ritsímastjórinn í Reykjavík.
Barðstrendinga-
ið í Reykjavík
Hin árlega sumarsamkoma Baiðstrendingafélagsins
verður í Bjarkarlundi um verzlunarmannahelgina.
D A G S K R Á ;
Laugardagskvöldið 30. júlí: Dansleikur.
Sunnudaginn 31. júlí: Útisamkoma kl. 4 e.h.
Séra Grímur Grímsson flytui erindi.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Dansleikur um kvöldið — MÓNÓ-kvartettinn
frá Reykjavík leikur fyrir dansi bæði kvöldin.
Ferðir frá B. S. f. á laugardag kl. 1,30 e.h.
Nauðsynlegt er að fólk tryggi séi farmiða hið fyrsta.
Stjórn Barðstendingafélagsins.
ALFASKEIÐ
Hin árlega Álfaskeiðsskemmtun verður haldin, sunnudaginn 24.
júlí nk. og hefst með guðsþjónustu kl. 14.00, séra Sveinbjörn Svein-
björnsson, sóknarprestur í Hruna predikar.
DAGSKRÁ:
1. Ræða: Stefán Jónsson, námsstjóri.
2. Ingibjörg Þorbergs og Guðrún Guðmundsdóttir
syngja barnalög o. fl.
3. Skemmtiþættir: Klemenz Jónsson, leikari.
4. Söngur: Magnús Jónsson, óperusöngvari.
5. Gamanþáttur: Alli Rúts.
Lúðrasveit Selfoss undir stjórn Ásgeirs
Sigurðssonar leikur milli atriða.
Sætaferðir á Álfaskeið frá B. S. í. kl. 11,30 og
til Reykjavíkur að lokinni skemmtun í Álfa-
skeiði og loknum dansleik að Flúðum.
Munið sætaferðirnar.
Hljómsveit Óskars
Guðmundssonar
og Arnór
ásamt hinum vin-
sælu Mánum,
skemmta að Flúðum,
laugardagskvöldið
23. og sunnudags-
kvöldið 24. júlí.
U. M. F. Hrunamanna