Morgunblaðið - 23.07.1966, Síða 20

Morgunblaðið - 23.07.1966, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 23, júlí 1968 FÁLKAFLUG EFTIR DAPHNE DU MAURIER hafði verið hjá þeim I nokkra mánuði. Hún drakk talsvert og nú er lögreglan og fólkið hérna í nágrenninu að láta sér detta í hug, hvort þetta gæti verið hún Marta Zampini, veslingurinn. Hún var enn að tala og krakk- inn að gráta, er ég sneri mér frá og gekk til baka eftir strætinu, með ákafan hjartslátt. 8. kafU. Ég keypti mér blað á Lífstorg- inu og stóð stundarkorn undir súlnagöngunum, og leitaði í því. Þar var ekkl minnzt á morðið. Lögreglan hafði sýnilega farið eftir skýrslum um fólk, sem væri saknað úti í sveitunum, og nú var verið að fara með Gighi- systkinin til Rómar, til þess að láta þau þekkja líkið. Eða ef til vill ekki einu sinni það. Kannski hafði lögreglan í Róm, sent föt, handa þeim að þekkja — sjölin, körfurnar. Það mundi sennilega nægja. Og hvað svo? Ekki yrði hún neitt nær því að upplýsa morð- ið. Hún mundi aldiei komast að því, að skömmu eftir miðnætti hafði maður stungið peninga- seðli 1 höndina á konunni. Nú væri búið að eyða honum, því að nú væri hann búinn að fara frá hinni myrtu til þjófsins og þaðan gegn um margar hendur. Þjófurinn og morðinginn yrðu aldrei gripnir. Og heldur ekki sá, sem stakk seðlinum. Báðir voru sekir. Báðir yrðu að burð- ast með þá sektarbyrði. Þegar ég kom í bókasafnið, voru allir þar löngu komnir úr mat. Það var komið fram á miðjan eftirmiddag. Allir gláptu á mig. Það var alveg eins og þau vissu, að ég hefði farið til kap- ellunnar og svo erindi mitt þang að. Ég lét eins og ég sæi þau ekki en fór á minn stað og hélt áfram að greina þýzku bækurn- ar, sem eftir voru, en nú alveg áhugalaust. Andlitið á Mörtu framliðinni, sem hafði látið mig í friði síðustu daga, kom nú fram aftur. Ég gat ekki afneitað því lengur. Marta frá gamalli tíð mundi aldrei kvelja mig, en það mundi samanhnipraða drukkna konan á tröppunum gera. Og hvers vegna þessi súri þefur? Hún, sem hafði verið svo hreinleg og snyrtileg, alltaf að þvo og pressa, brjóta saman hreinan þvott og koma honusn fyrir í skápnum. Aðeins tvær manneskjur gátu svarað þessu — skóarinn og systir hans — eldabuskan okkar fyrrverandi. Þau mundu vita það. Þau gætu lýst fyrir mér í öl'lum smáatrið- um, hvernig hún fór smámsam- an í hundana, eftir því sem árin liðu. Auðvitað var það allt okkur að kenna. Fyrst og fremst mömmu en svo mér. Þar sem ég átti heima í Torino, hafði ég getað skrifað henni. Og við hefð um getað spurzt fyrir. Eða síðar, frá skrifstofunni í Genúa, hefði ég getað náð símasambandi við Ruffano, og beðið um upplýsing ar. En það gerði ég ekki. Og svo liðu tuttugu ár. Marta var tutt- ugu ár í sífelldri afturför. Seinna um daginn hringdi sím- inn og ungfrú Catti svaraðL Hún talaði í hann nokkra stund með mestu hunangsröddinni sinni, og lagði svo frá sér sím- ann. — Hr. Fossi er enn lasinn, sagði hún snöggt við okkur. — Hann kemur ekki í dag. Hann biður okkur að halda áfram til klukkan sjö. Toni hreyfði þegar andmæl- um. — Það er iaugardagur, mót- mælti hann. — Hann sleppir okk ur alltaf klukkan sex á laugar- dögum. — Kannski, sagði hún, — en það er bara þegar hann er hérna sjálfur. En í dag er öðru máli að gegna. Hr. Fossi er rúmliggj- andi. Hún sneri aftur að skránni sinni, en Toni greip höndum um magann og gerði sér upp maga- verk. — Þegar maður er kominn yfir fertugt, sagði hann, — ætti hann að hafa hemil á líkamleg- um girndum sínum. □---------------n 23 □---------------□ — Þegar maður er innan við tuttugu og þriggja ára, svaraði ungfrúin, — ætti hann að bera virðingu fyrir yfirboðurum sín- um. Hún heyrði þá betur en hafði haldið, og kannski var hún líka fyndnari. Við vorum aftur að verki okkar, en ég held, að við höfum öll orðið hissa þegar sjúk dómsorsök Fossis kom inn um dyrnar, skömmu fyrir klukkan sjö. Hún var í rauðri dragt, sem fór henni vel. Litlir gullhringir voru í eyrunum, og svört kápa hékk á öxlum hennar. Carla Raspa kinkaði kolli kæruleysis- lega til skrifarans, lét sem hún sæi ekki ungu mennina, en tók strikið beint til min. — HaHó, sagði hún. — Halló, svaraði ég. — Hvernig gengur hjá þér? — Það er allt í lagi — Kanntu vel við vinnuna? — Það er tilbreyting frá túrist unum. — Það datt mér einmitt I hug. Það verður aldrei allt fengið. Hún leit upp eftir bókahillun- um og raulaði eitthvað við sjálfa sig. Ungfrúin, sem laut fram yf- ir bókina sína, hefði getað verið úr steini. — Hvað ætlarðu að gera í kvöld? sagði Carla Raspa. — Hvað ég ætla að gera? — Já, það var það, sem ég sagði. Augu hennar, sem voru eins og beizkar möndlur, mældu mig allan. Ég reyndi að muna, hvort það var einhver fugl eða skrið- dýr, þar sem ástarbrögðin end- uðu alltaf á því, að kvendýrið át karldýrið. Nei, það var víst skor- dýr. — Ég er sammældur við tvo stúdenta, sem búa á sama stað og ég, var ég fljótur að ljúga upp. — Við förum öll á bió eftir mat. — Hvar býrðu? spurði hún. — Hjá henni frú SilvanL sagði ég eftir nokkurt hik. — í Mikjálsgötu 24? Nú, þá erum við bara nágrannar! — Já, það erum við víst. Hún brosti og brosið gaf ta kynna, að við værum bæði aðiil- ar að einhverju samsæri. — Fer vel um þig þar? spurði hún? — Já, ágætlega. Stúdentarnir eru fjörugur hópur. Þetta er allt V og H. — V og H? Þá vorkenni ég þér. Þá geturðu ekki mikið sof- ið fyrir hávaðanum. Þetta eru svoddan óhemjur. — Þeir gerðu engan hávaða 1 nótt sem leið, sagði ég. íSLENDINGAR, sem ferðast til FÆREYJA, athugið: Farið til B R O N X til þess að kaupa fatnað. TINGANES NOTIÐ LYFTUNA Símar: 1200 1204 1201 1202 1203 1205 1206 TELEX: 37 SÍMNEFNI: GUNSTCKK, THORSHAVN Yið bjóðum yður í mörgum tilfellum lægsta verð, sem um getur á heimsmarkaðnum á nýtízku dömu- og herrafatnaði og það í næsta nágrenni við íslands- strendur. — Þetta getið þér kynnt yður af eigin raun, hjá verzluninni KUUR - TAILORING í ÞÓRSHÖFN í FÆREYJUM. Notið tækifærið þegar þér komið næst til Tórshavn og lítið inn í verzlun vora, rétt ofan við höfnina, í Jonas Broncksgötu 27, á 3. hæð. Þér gangið tvo stiga upp og verðið fer tvö stig niður. Verðinu hér er ekki íþyngt með stórum gluggaauglýs ingum, en stórborgarúrval munuð þér finna. Við hlökkum til að s|á yðttr í Torshavn h]á KIJLR - TAILORING í TÓR8HAVN OLAFSVOKUFARAR!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.