Morgunblaðið - 23.07.1966, Síða 23
Laugardagur 23. júlí 1966
MORGU N B LAÐIÐ
23
*
Jeppi veltur ofan
í gilskorning
UM kl. tvö á mánudag varð um-
ferðaróhapp nálægt Valseyri í
Dýrafirði. Jeppi var þar á ferð
og í honum tveir karlmenn og
tvær konur. í krappri beygju
rann jeppinn til í lausamöl. Öku
maðurinn hemlaði, en jeppinn
valt út af veginum og ofan í gil-
skorning. í>akið beyglaðist, en
fólkið komst óslasað út um
glugga. Talið er, að stýrið hafi
ekki verið í fullkomnu lagi, þar
eð boltinn á stýrisendanum var
ekki fastskrúfaður (vantaði tvo
snúinga upp á).
BERLÍN — Willy Brandt,
borgarstjóri V-Berlínar, heldur
til Noregs með fjölskyldu sinni í
tæplega mánaðar sumarleyfi, á
seskuslóðir eiginkonu sinnar, sem
ættuð er frá Hamar.
SJúkrabifreið
í V-Húna-
votnssýslu
Staðarbakka, 21. júlí.
UNDANFARNA daga hafa ver-
ið hér hlýindi og þurrkar, en í
dag er stórrigning. Heyskapur
hefur gengið vel, þar sem tún
eru óskenund, en allvíða ber á
kali og grasleysi.
Kvennaband V-Húnavatnssýslu
beitir sér fyrir að keyptur verði
sjúkrabíll í héraðið, sem er mikið
nauðsynjamál og hefur ákveðið
að verja öllum ágóða af hirini
venjulegu árshátíð, sem
haldin verður um næstu helgi
í Ásbyrgi. Verður þar kvikmynda
sýning og hlutavelta góðra
muna.
Almennur dansleikur verður
á laugardag og fy-rir unglinga
á sunnudag.
— Benedikt.
— Golfið
Framhald af bls. 22.
233 högg, 6 höggum á eftir
Magnúsi.
Vann sig upp um sex sæti
Þeir tveir skera sig úr. Næst-
ur kemur Óttar Yngvason, Rvík,
sem vann sig upp um 6 sæti, fór
völlinn í 36 höggum og 40 högg
um og er með 245 högg saman-
lagt. í sama sæti er Þorbjörn
Kjærbo, sem í dag lék í 44 og
38 höggum og er með 245. 5. er
Sævar Gunnarsson með 246, Páll
Halldórsson með 247, Gunnar Sól
nes 248 og Hermann Ingimarsson
með 252 högg.
1 1. flokki hefur Haraldur Júl
íusson, Vestm.eyjum tekið for-
ystu, lék í gær í 42 og 38 högg-
um oghefur 264 högg, 2. er Þór-
ir Sæmundsson, Suðurnesjum
með 269 högg, 3. Hörður Stein-
bergsson, Ak. og Ársæll Lárus-
son, Vestm.eyium, báðir með
272 högg.
í 2. flokki er Kolbeinn Péturs
son, Akurevri með öruggt for-
skot og viss um sigur. Hann lék
í 40 og 43 og er með 261 högg.
Hannes Hall, Rvík er með 279
högg, Sveinn Eiríksson, Suður-
nesjum með 285 og Adolf Ingi-
marsson með 288.
í unglingaflokki er keppnin
mjög hörð. Þar heíur Hans Ise
barn forystu með 139 högg, Jón
H. Guðlaugsson Ve. er með 140
högg. Jónatan Ólafsson, Rvík og
Björgvin Þorsteir.sson, Ak. með
143 högg.
Mótinu lýkur í dag í öllum
fiokkum og í kvöld er mikið hóf
í Sjálístæðish'isinu þat scrr verð
■aun ver.‘ t afr.?nL og mof:nu slit
ið
Kynþáftciéeirðir
i Cleveland og New York
Fá háf ©g
hákarl, en
lítinn silung
Þorlákshöfn, 22. júlí.
Menn, sem lagt hafa silunga-
net nálægt Norðurvararbryggju,
hafa fengið sáralítinn silungs-
afla, en hins vegar hafa þeirí>
fengið nokkuð mikið af háfi
undanfarið. Á miðvikudag
flæktist beinhákarl í netinu og
eyðilagði það. Mennirnir hirtu
lifrina úr honum, en fleygðu
skrokknum aftur í sjóinnn. Fyr-
ir nokkrum árum sást hákarl
hér á sveimi dag eftir dag í
námunda við höfnina.
— St. E. Sig.
DJAKARTA — Sukarnó Indó-
nesíuforseti mun halda fund með
helztu ráðamönnum öðrum á
morgun, laugardag, að ræða skip
un nýs ráðuneytis. Fregnir
herma að Suharto hershöfðingi
hafi þegar lagt ráðherralista sinn
fyrir Sukarnó og muni togstreit-
an standa um það helzt, hver
veita eigi ráðuneytinu forscöðu.
New York og Cleveland, —
22. júlí — AP-NTB: —
AFTUR brutuít út óeirðir í
Cleveland í Ohio í dag og var
þar blökkumaður skotinn til
bana, þrið'ja fórnarlamb óeirð-
anna, sem þar hafa nú staðið í
fjóra daga.
Fjöldi raanna eða nokkuð á
fjórða tug hafa særzt í átökum
þessum og mikið tjón hefur orð
ið á eignum. Hundruð manna úr
þjóðvarnarliðinu hafa verið send
á vettvang lögreglu og slökkvi-
liði borgarinnar til aðstoðar.
í Brooklyn í New York hafa
einnig verið ir.iklar kynþátta-
óeirðir og þar beið 11 ára dreng
ur bana 5 gær, féll fyrir skoti
leyniskyttu. Ekki er vitað, hver
þar var að verki, en sjónarvottar
segja skotíð hafa komið frá bif
reið sem síðan hafi horfið hið
bráðasta. Mikil ólga er í Brook
lyn vegna máls þessa og mikill
viðbúnaður lögreglu.
Þá hafa einnig orðið kynþátta
óeirðir í Jacksonville í Florida
en ekki eins alvarlegar og í
Cleveland og Brooklyn.
Karl Hermannsson skorar annað mark Keflvíkinganna með skalla eftir góða sendingu fra
Sigurði Alhertssyni.
— Leikurinn
Framhald af bls. 22
var fallegur. Hermann lék upp
að vítateig, gaf til baka til Berg-
steins, sem lagði knöttinn fyrir
fætur Ingvars inn á teig ÍBK og
Ingvar gat ekki annað en skorað.
Á 18. mín. skora Valsmenn
annað fallegt mark. Reynir lék
upp hægri kant, gaf vel fyrir.
Vörn Keflavíkur blinduð af sól
Frá kynþáttaóeirðunum í Clev eland
sá ekki hvað var að gerast og
Ingvar stendur óvaldaður með
knöttinn fáa metra frá marki og
átti auðvelt með að skora.
Á 28. mín. kom vítaspyrna, sem
vægast sagt var harður dómur
eða að minnsta kosti heppni fyr-
ir Val að fá. Reynir skoraði með
þrumuskoti.
Á 41. mín. kemur 4. markið.
Leikið var upp miðjuna og Reyn-
ir sendir út á vinstri kant til
Hermanns, sem leikur að og skor
ar af stuttu en þröngu færi fal-
legt mark. 4-0 í hálfleik og þó
hafði leikurinn alls ekki verið
svo ójafn, en sóknarleikur Vals-
manna þó alltaf svo beittur að
ógn stafaði af í hverju upp-
hlaupi.
Fyrir utan mörkin áttu Vals-
menn fleiri færi og eitt skiptið
bjargaði Sig. Albertsson á mark-
línu.
Keflvíkngar áttu einnig upp-
hlaup, en í þau vantaði festu og
ákveðni við markið.
★ Við Valsmarkið
En er frá hléi kom var annar
svipur á Keflavíkurliðinu. Það
tók völdin í sínar hendur, leik-
menn höfðu hrist af sér slenið
og komu nú baráttuglaðir og
ákveðnir til leiks. Og nu tóku
hlutirnir að gerast við Vals-
markið.
Það byrjaði með fallegu skoti
Magnúsar Torfasonar af 25 m
færi sem Sig. Dagssyni tókst
meistaralega að lyfta yfir. Upp
úr hornspyrnu bjargaði Þor-
steinn bakvörður á marklínu.
Litlu síðar óð Jón Ólafur gegn-
um Valsvörnina en átti skot í
hliðarnet. Það var eins og ekkart
ætlaði að takast.
En svo opnuðust flóðgáttirnar
Á 9. mín sækir Karl Hermanns
son upp h. kantinn og gefur fyr-
ir. Jón Ólafur er vel staðsettur
— og reyndar fleiri ÍBK menn
— og Jón Ólafur skorar með
skalla.
, Á 16, min framkv. Jón Jó-
hannsson aukaspyrnu út undir
miðju, sendir upp að marki og
þar breytir Karl Hermansson
stefnu knattarins með skalla og
í netinu lá knötturinn.
Og svo misstu Keflvíkingar af
upplögðum tækifærum. Jón
komst í gott færi en var stöðv-
aður og Magnús Torfason átti
gott skot rétt utan stangar.
A 27. mín. skorar Magnús
Torfason með skalla eftir þunga
sókn á miðjunni og út á vinstri
kant og þaðan fyrir markið. Fall-
egur aðdragandi.
Það var fyrst á 31. mín. að
Kjartan markvörður ÍBK fékk
knöttinn frá Valsmanni, því Vals
menn höfðu aldrei megnað að
brjóta sóknarpressu Keflvík-
inga á bak aftur. En síðasta
stundarfjórðunginn var leikur-
inn jafnari með tækifæri á báða
bóga og þó opnari fyrir Kefla-
vík.
Valsmenn máttu því bakka fyr
ir bæði stigin í þessum skemmti
lega og baráttumikla leik.
Framherjar Vals áttu mjög
góðan leik í fyrri hálfleik og
þá var sem Valsmenn væru
helmingi fleiri á vellinum. Þeir
höfðu tögl og hagldir, notuðu
kantana í upphlaupum og ógn-
uðu mjög alls staðar til taks að
byggja upp sókn og áttu sem
fyrr segir mörg tækifæri sem
ónýttust.
Bezti maður vallarins var
Magnús Torfason, átti mjög góð-
an leik, svo og Sigurður Al-
bertsson og Jón Jóhannsson. Hjá
Val voru Þorsteinn í vörninni, og
framherjarnir í fyrri hálfleik.