Morgunblaðið - 23.07.1966, Qupperneq 24
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
165. tbl. — Laugardagur 23. júlí 1966
Þeir
hér
voru
allir
KEFLi A VÍKURFLU G V ÖIXUR
lokaðist vegna þoku og rigning-
ar aðfaranótt fimmtudags, og olli
það því meðal annars, að allar
Rolls Royce 400 flugvélar Loft-
leiða voru samtímis á vellinum
á fimmtudagsmorgun.
Samkvæmt áætlun áttu tvær
Rolls Royce 400 vélar (frá Lux-4>
emiborg) og ein DC-6 B vél (frá
Helsingfors og Osló) að lenda þá
um nóttina, en aðeins fyrri
Rollsinn gat lent, áður en völlur-
inn lokaðist. Hinn Rollsinn varð
að lenda í Prestwick ásamt DC-
6 B vélinni.
Fimmtudagsmorgun komu tveir
Rollsar að vestan, og gátu Iþeir
lent og haldið áætlun. En um
sama leyti kom Rollsinn, sem
orðið hafði að lenda í Prestwick
nóttina áður. Þá var enn ófarinn
fyrsti Rollsinn, sem lokazt hafði
inni nóttina áður, en hann hélt
vestur um haf um hádegi þennan
dag. Voru þá allar Rolls Royce
400 vélar Loftleiða samtímis á
Keflavíkurflugvelli, og auik
þeirra tvær DC-6 B vélar, sem
fóru til Norðurlanda og Hol-
lands. Fimmtudagsmorgunin var
því einhver mesti annadagur í
sögu Loftleiða á Keflavíkurflug-
velli.
Auk Loftleiðavélanna voru
fyrir á Keflavíkurflugvelli tvær
litlár tíu manna þotur (í einka-
eign) og ein DC-3 vél frá KLM.
„RolLsar" Loftleiða á Keflavíkur flugvelli
fimmtudagsmorg un.
(Ljósm.: Heimir Stígsson).
Samið við
mat reiðslu menn
SAMNINGAR voru undirritaðir
á fimmtudag milli Sam'bands
veitinga og gistihúsaeigenda ann
ars vegar og Félags matreiðslu-
manna hins vegar. Þeir eru gerð-
ir með þeim fyrirvara, að félags
fundir í báðum félögum sam-
þykki þá. Fundirnir verða lík-
lega haldnir upp úr helginni.
Samningarnir gilda ekki lengur
en til 1. október næstkomandi.
Guðjón Teitsson
fótbrotnar
KL. 21:45 í gærkveldi vildi það
slys til á nýja Golfvallarvegin-
um við Orafarholt, að Guðjón
Teitsson, forstjóri Skipaútgerðar
ríkisins, fq!1 af hestbaki og fót-
brotnaði á hægra fæti.
Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja berst
fyrir sjónvarpinu
AUKAFUNDUR var haldinn í
bæjarstjórn Vestmannaeyja í
gær vegna kröfu Landssímans
um, að lokað verði fyrir straum
til þeirra tækja, sem sett hafa
verið upp á Klifinu í Heimaey i
sambandi við tilraunir manna
til þess að ná myndvarpinu frá
Keflavíkurflugvelli á sjónvarps-
tæki sín í Vestmannaeyjum. —
Landssíminn lagði hinn 220 volta
rafstreng upp að Klifi á sínum
tíma.
Bæjarstjórn samþykkti að fela
rafveitustjóra að taka umrædd-
an streng í umsjá og vörzlu Raf-
veitunnar í Vestmannaeyjum og
I eigu hennar sem hluta af dreifi
kerfinu. Telur hæjarstjórn sig
hafa heimild til þess skv. reglu-
gerð rafveitunnar og gjaldskrá.
Þá samþykkti bæjarstjórn enn
fremur að „mótmæla tilkynningu
útvarpsstjcra og menntamála-
ráðherra um bann við ráðstöf-
unum Vestmannaeyinga til að
geta horft á sjónvarp", þar eð
bæjarstjórn telur vafasamt, að í
lögum um Ríkisútvarp sé nokk
urt ákvæði, sem slíkt bann geti
byggzt á.
Þessar tillögur voru samþykkt
ar einróma af öllum níu bæjar-
fulltrúunum í Vestmannaeyjum.
Á fundinum var mættur for-
maður Sjónvarpsnotendafélags-
ins í Vestmannaeyjum, Bragi
Björnsson, lögfræðingur, og
lýsti hann því yfir, að félagið
mundi krefjast úrskurðar dóm-
stólanna um „bonn útvarpsstjóra
og menntamálaráðherra“, ef
þeir héldu fast. við bann sitt.
Einnig samþykkti bæjarstjórn
að heimila rafveitustjóra, þegar
strengurinn væri kominn í vörzlu
Rafveitunnar í Vestmannaeyjum
að leyfa Sjónvarpsnotendafélag-
inu í Vestmannaeyjum afnot af
fyrrnefndum rafstreng í sam-
bandi við tilraunir þess til að
skapa Vestmannaeyingum að-
stöðu til að hcrfa á sjónvarp.
Gerðardómur
skipaður
SAMKVÆMT bráðalbirgðalögun-
um, sem sett voru 16. júlí s.l.
vegna deilu Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda og Félags
framreiðslumanna, skyldi Hæsti-
réttur íslands skipa 3ja manna
gerðardóm til þess að ákveða
'kaup og kjör faglærðra fram-
reiðslumanna og banþjóna í
veitingahúsum.
S.l. þriðjudag skipaði Hæsti-
réttur íslands Svavar Pálsson,
löggildan endurskoðanda, Emil
Ágústsson, borgardómara, og
Halldór Þorbjörnsson, sakadóm-
ara, í dóminn, og er Halldór
Þorbjörnsson formaður hans.
Reynt að selja ms.
Skjaldbreið og Esju
og afia nýs skipakosts fyrir haust
Nýtt hverasvæði að myndast
e5a gos í aðsigi á Þeistareykjum?
Húsavík, 22. júlí.
BREYTING og stækkun virð-
ist vera að gerast á hvera-
svæðinu að Þeistareykjum á
Reykjaheiði austan Húsavík-
ur. —
Undanfarið hefur Eysteinn
Tryggvason, jarðfræðingur, ver-
ið að sprungumælingum í Þeista-
reykjalandi. Fyrir nokkrum dög-
um fór bróðir hans, Hjörtur,
bæjargjaldkeri á Húsavík, þang-
að upp eftir að gamni sínu, en
Hjörtur hefur undanfarin ár
gert jarðhitamælingar á þessu
svæ'ði sem áhugamaður eingöngu.
Hann ætlaði í gufubað ásamt
bróður sínum, Eysteini, í helli,
sem hann hefur oft komið í sl.
fimmtán ár.
Þegar að hellinum kom, var
svo mikill hiti þar inni, að ekki
var farandi þangað inn, svo að
þeir bræður sáu, að þarna mundi
um einhverjar breytingar að
ræða. Hins vegar tóku þeir sér
gufubað utan hellisins.
Athug'Uðu þeir siðan hvera-
svæðið nánar og komust að raun
um, að gró'ður frá því í vor hef-
ur visnað á nokkuð stóru svæði.
Var hann sums staðar alveg
dauður. Hjörtur segir, að sér
virðist blóðberg þola hitann
einna bezt af þeim jurtum, sem
þarna eru. Svæði þetta er nokkur
hundruð fermetra að stærð, og
er það fyrir norðan aðalhita-
svæðið, en það er jafnheitt enn
og það var. Virðist því ekki vera
um tilfærslu hvera að ræða enn
sem komið er að minnsta kosti.
— Fréttaritari.
» Dr. Sigurður Þórarinsson:
Tilfærsla líkleg
Mbl. hafði samiband við dr. Sig-
urð Þórarinsson, jarðfræðing,
um þetta mál. Hann kvaðst telja
Mklegt, að um tilfærslu á hvera-
svæði sé áð ræða, þar sem hið
umrædda svæði er svo nálægt
hverum, en þetta þyrfti að at-
huga nánar. Hann sagðist hafa
reynt að ná sambandi við dr. Guð
mund Sigvaldason, jarðefnafræð-
ing, sem er við störf í Öskju, svo
að hann gæti athugað svæðið og
tekið þar sýnishorn til efnagrein-
ingar.
Sigurður sagði, að auðvitáð
væri ekki enn hægt að segja neitt
ákveðið um það, hvað þarna
kynna að vera á ferðinni. Þetta
væri á sprungusvæðinu norður
af Mývatni og á móbergssvæði,
þar sem alltaf gæti gosið. Engin
gos hefðu orðið þarna áður, *vo
áð sögur fari af
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfarandi fréttatilkynning
frá Stjórnarnefnd Skipaútgerðar
ríkisins:
Svo sem kunnugt er, eru strand
ferðaskip Skipaútgerðar ríkisins
allgömul orðin og eigi lengur
hentug miðáð við ríkjandi að
sitæður. Þar við bætist, að stór-
au'knir fanþegaflutningar í lofti
og bætt og lengt vegakerfi
mynda miklar árstíðasveiflur í
rekstrinum og gera hann sífellt
kostnaðarsamari. Er því endur-
nýjun skipastólsins orðin mjög
aðkallandi, ef unnt á að reynast
að halda uppi viðunandi þjón-
ustu við landsbyggðina með við-
ráðanlegum tilkostnaði.
í samræmi við þetta hefur
stjórnarnefnd Skipaútgerðar-
innar ákveðið að segja upp
með samningsbundnum fyrir-
vara, skipverjum á tveimur skip
um útgerðarinnar, og hafa þær
þegar komið til framkivæmda
gagnvart yfirmönnum samsvar-
andi tölu yfirmanna á m.s.
Skjaldbreið” ag m.s. „Esju” og
gagnvart undirmönnum á m.s.
„Skjaldibreið”, enda hafa þeir
skemmri uppsagnarfrest. Hofðu
skip þessi áður verið sett á sölu-
lista hjá erlendu skipasölufyrir-
tæki, en aðgengileg tilboð hafa
eigi borizt enn sem komið er.
Með hliðsjón af mjög óhagkvæm-
um rekstursgrundvelli m.s.
Skjaldbreiðar, sem að undan-
förnu hefur fyrst og fremst verið
notuð til flutninga til Vestur- og
Norðurlandshafna, en þangáð eru
vegir nú færir, hefur verið
ákveðið að leggja skipinu. Hafa
að undanförnu verið gerðar
athuganir á því, að afla hentugs
skipakosts til leigu eða kaups,
sem koma skyldi i stað þeirra
þeirra tveggja skipa, sem áður
eru nefnd, og að því er stefnt,
að hann verði til reiðu, áður
en flutningaþörf fer aftur vax-
andi me'ð haust og vetrar
mánuðum Hefur stjórnarnefnd
aflað tilboða í þessu skyni og
skoðað skip, sem tilboð hefur
borist um, siðastliðinn fimtu-
dag. Mun stjórnarnefnd útgerð-
arinnar væntanlega taka ákvörð-
un um það innan skamms, hvort
leita skuli samþykkis ríkisstjórn-
arinnar fyrir því að taka hinu
umrædda tilboði, eða vinna
áfram að öflun annars, sem hag-
stæðara þætti, meðan einnig
er unnið að nánari athugun á
hentugu framtíðarskipulagi
strandferðanna.
Reykjavik, 22. júlí 1966
Stjórnarnefnd Skipaútgerðar
ríldsins.
^ ■
Gku á stolnum
bíl til
logreglunnar
1
.
Akureyri, 22. júlí.
TVEIR góðglaðir aðkomu-
menn gerðust fulldjaxftækir
til vöru'bíls, sem stóð við Sól-
velli hér í bæ í fyrrinótt. Óku
þeir sem leið Mggur suður
Glerárgötu, en þegar komið
var á móts við útidyrnar á
lögreglustöðinni, vildi svo
hastarlega til, að annað aftur-
hjól bílsins lenti uppi á ný-
steyptri steinbrún við göt-
una. Sundraðist hjóllbarðinn
þar með háum hvelli, og lauk
þar með ökuferðinni. Vakthaf
andi lögreglumenn spruttu
upp hart og títt er 'þeir
heyrðu harkið, þustu út og
fengu handsamað annan öku-
þórinn þá þegar, er hann valt
ærið óstyrkur út úr bílnum.
Hinn var á bak og burt, eii
náðist þó fljótlega. Sjaldgæft
er, að lögreglunni séu borin
viðfangsefni á silfurba'kka
heim að dyrum.
— Sv. P.
Malbikun Hafnarf jarðar-
vegar lýkur á miðnætti
VEGNA malbikunarfram-
kvæma á Hafnarfjarðarvegi má
búast við þrengslum við Kópa-
vogsbrú fram að hádegi í dag.
Fram að hádegi er vegurinn því
ekki opinn til yfirferðar litlum
bílum, en umferð þeirra beint
á meðan um Elliðavatnsveg,
Breiðholtsveg og Vífilsstaðaveg.
í gær var eystri akrein Hafn-
arfjarðarvegar malbikuð á Arn-
arneshálsi að Fífuhvammsvegi.
í gærkveldi var sú eystri mal-
bikuð að Kópavogslæk. Þá var
og malbikað frá Engidal að Fífu
hvammsvegi í Kópavogi, eja á
þeirri malbikun var byrjað á
föstudaginn í fyrri viku.
Alls verða malbikaðar í þess-
ari lotu um 3,4 km, og er kostn-
ur áætlaður um 5,5 millj. kr.
Upp úr hádegi í dag verður
öll umferð, stórra bifreiða og
lítilla, leyfð um veginn, en taf-
ir geta orðið fram eftir degi
við Kópavogsbrú.
Um miðnætti í nótt á öllum
framkvæmdum að verða lokið
á veginum, ef ekkert óvænt kem
ur fyrir, og á umferð þá að vera
orðin hincLrunarlaus.