Morgunblaðið - 28.08.1966, Blaðsíða 1
32 síður og Lesbólt
53. árgangur
195. tbl. — Sunnudagur 28. ágúst 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
50.000 manns dóu úr
hungri í Indónesíu
Djakarta, 27. ágúst
__ NTB ___ AP.
KAÞÓLSKA dagblaðið
„Kompásinn“ í Djakarta,
skrifar í dag, að um það bil
fimmtíu þúsund manns hafi
farizt úr hungri á eynni
Lombok austan við eyna Bali.
Segir blaðið, að nefnd, sem
skipuð hafði verið til að rann
saka ástandið þar, hafi þegar
fundir 28.467 lík. Orsök hung-
ursneyðarinnar segir blaðið
langvarandi þurrka, en fyrr
á þessu ári höfðu farsóttir
herjað á þessu svæði m.a.
malaría.
>á segir í AP frétt frá Dja-
karta, að hin nýskipaði upplýs-
ingamálaráðherra landsins, B.
M. Diah, hafi lýst því yfir að
ræður og yfirlýsingar Súkarnos
hafi engin áhrif á stefnu stjórn-
ar landsins. Sagði ráðherrann
þetta, er hann var spurður álits
á tveimur ræðum Súkarnos 1
síðustu viku, sem sumir telja
að hafi orðið til þess að korna
á óeirðum, er urðu þá skömmu _
síðar. Diah bætti því við. að
Súkarno væri óumdeilanlegui^
byltingarleiðtogi landsins og
hefði rétt til að segja hvað sem
honum sýndist. Hinsvegai væri
það þingið og ríkisstjórnin. sem
tæki allar ákvarðanir.
De Gaulle fölur
og þreytulegur
— við komuna til Addis Abeba
Við sýndum þessa mynd tveimur ungum sjómö nnum á millilandaskipum okkar, og báðir ráku upp
etór augu. Annar hélt að hér væri um að ræða nýtt listaverk eftir Ásgrím. Svo var þó ekki. Mynd
in er listaverk Ólafs K. Magnússonar tekin upp í reiðann á þýzka skólaskipinu Gorch Fock.
Addis Abeba, 27. ágúst
NTB — AP.
• De Gaulle, forseti Frakk-
lands, kom í morgun til Addis
Abeba í Eþíopiu, þar sem hann
mun dveljast í þrjá daga í opin-
berri heimsókn. Kom hann flug-
leiðis frá Dipouti í Franska
Somalilandi, þar sem til blóð-
Herferð Rauðu varðliðanna í Kína:
„Ofiugur straumur sem ekkert fær staöizt"
— Útlendingar svivirtir, síðbuxur styttar, karlmenn snoð-
l.lipptir, gömul listaverk eyðilögð og þorpið Hunan heitir
nú „Austrið er rautt
//
//
Peking, Tokíó, 27. ágúst
NTB — AP.
KÍNVERSKA fréttastofan
Nýja-Kína segir í dag, að sú
ráðstöfun Rauðu varðliðanna
þ.e. meðlima æskulýðshreyf-
ingar kínverska kommúnista-
flokksins, að gerast sjálfskip-
aðir boðberar kenninga og
hugsunarháttar Muo Tze
tungs og útrýma öllum göml-
um siðvenjum og hugmynd-
um, hafi mælzt mjög vel fyr-
ir og njóti stuðnings
um gervallt landið. Rauðu
varðliðarnir, sem séu fyrst
og fremst ungir bylting-
armenn, synir verkamanna og
bænda, séu nú sem öflugur
straumur og ekkert fái staðið
gegn honum.
Þá segir fréttastofan, að menn
ingarbyltingin hafi nú náð til
Tíbet, þar sem öll merki um
lénskipulagið gamla, kapítalisma
og endurskoðunarsinnun verði
þurrkuð út. Leiðtogi æskulýðs-
félags í bæ einum tíbetskum, hef
ur birt yfirlýsingu, þar sem
hann segir, að samtök hans. muni
gerast framvörður byltingarinn-
ar. Muni þeir félagar ráðast á
alla gamla hjátrú og gamlar sið-
spillandi venjur og önnur úrelt
fyrirbrigði, sem séu fordæman-
leg. „Við munum gera bæinn okk
ar að stórum skóla í kenning-
um og hugsanagangi Mao Tse
tungs“, segir í yfirlýsingunni.
>á hafa Rauðliðarnir nú auk-
ið herferðina gegn siðspilling-
unni frá Vestrinu og ráðizt í æ
meira mæli á erlenda menn.
Kínverjar, sem koma frá Hong
Kong hafa orðið mjög fyrir barð
inu á þessum ofstopamönnum.
Framhald á bls. 31
ugra óeirða kom meðan á heim-
sókn forsetans stóð. Málgagn inn
anríkisráðuney tisins í Franska
Somalilandi staðhæfir í dag, að
fyrir óeirðunum hafi staðið er-
lendir menn.
Heiðursvörður var á flugvell-
inum í Dibouti þegar de Gaulle*
fór þaðan. Nokkrir menn af
Evrópskum ættum voru á flug-
vellinum til að kveðja forsetann
en innfæddum var ekki leyft að
fara inn á völlinn. öflugur lög-
regluvörður var hvarvetna og
Framhald á bls. 2
New York:
Somið við prent
nrn N.Y.H.T.
New York, 27. ágúst — NTB
1 MORGIJN var frá því skýrt,
að aðstandendur blaðanna New
York Herald Tribune, „World
Telegram And Sun“ og „The
Journal American“ hefðu í nótt
komizt að samkomulagi við
prentara og yrði því eftir allt
ráðizt í hina nýju útgáfu blað-
anna sameinaðra undir nafn-
Framh. á bls. 2
8 Sovétmenn líflátnir
— fyrir samvinnu við Þjóðverja
DAGBLAÐIÐ „Rauða stjarn-
an“ í Moskvu skýrir svo frá
í dag, að nýlega hafi átta sov-
ézkir borgarar verið skotn-
ir fyrir að hafa samvinnu við
Þjóðverja í heimsstyrjöld-
inni síðari.
Segir blaðið, að menn þessir
hafi tekið pátt i fjöldaaftökum
sovézkra borgara, sem Þjóðverj-
ar skipulögðu árið 1942. Hafi þá
verið drepr.ir 3.600 Rússar og
ótilgreindur fjöldi manna frá
öðrum ríkjum, m, a. Rúmeníu
Framhald á bls. 31
Flugsýningu
frestað
SÖKUM slæmra veðurskilyrða
verður flugsýningu á Keflavík-
urflugvelli, sem verða átti sunnu
daginn 28. ágúst nk. frestað um
óákveðinn tíma.
Vinur Mihailovs flýr
— professor Nikola Cölak biðst hœlis
í Ítalíu sem pólitískur flóttamaður ...
Róm, 27. ágúst NTB.
JÚGÓSLAVNESKUR pró-
fessor, Nikola Colak, hefur
beðið um hæli í Ítalíu sem
pólitískur flóttamaður. Er
hann vinur rithöfundarins,
Mihailo Mihailovs, sem nú
situr í fangelsi í heimalandi
sínu — og einn þeirra sem
ætluðu að stofna óháð stjórn-
mála- og bókmenntatímarit í
Júgóslavíu. Telur hann ólík-
legt að nokkuð verði úr því.
Að sögn ítalskra stjórnar-
valda hafði Colak leitað til
lögreglunnar í Padua 5 morg-
un og óskað hælis sem póli-
tískur flóttamaður. í viðtali
við ítalskt dagblað, kvaðst
hann hafa farið til Ítalíu þeg-
ar, er sér hefði verið sagt upp '
starfi sínu sem fyrirlesarx
við skóla þann í Zagreb, er
fjallar sérstaklega um
sögu verkalýðshreyfingarinn-
ar. Var honum sagt upp af
stjórnmálaástæðum.
Colak er einn þeirra sex
manna, sem undir forystu