Morgunblaðið - 28.08.1966, Qupperneq 13
Sunnuclagur 28. ágúst 1966
MUKGUNBLAOIB
13
Lengið sumarið
Vinsælar
utanlandsferðir
Vinsælar utanlandsf crðir.
Eins og sakir standa er uppselt í allar okkar áður aug-
lýstu ferðir. Til þess að gefa fólk tækifæri til að lengja
sumarið bjóðum við eftirfarandi ódýrar haustferðir: Kaup-
mannahöfn — Hamborg — Edinborg 21. september, 10
dagar, verð kr. 6.900,—
Þessi ódýra haustferð hefir verið farin undanfarin haust
við miklar vinsældir. Við leigjum eina a* millilandaflug-
vélum Flugfélags íslands til ferðarinnar og fáum sér-
stakan síðsumars afslátt hjá hótelum, sem við höfum mikil
viðskipti við. í þessa ferð eru nú aðeins innan við 10 sæti
laus af 85.
Mallorca og Kaupmannahöfn.
6. október, 19 dagar, verð kr. 12.600,—
Vegna mikillar eftirspurnar og ákveðinna tilmæla eldri
viðskiptavina förum við þessa aukaferð til Mallorca á
yndislega mildum sumartima þar syðra Hitinn er að
jafnaði 25—28 stig. Þið búið á góðum hóteium hjá stærstu
baðströnd Mallorca aðeins 7 km frá miðri höfuðborginni
Palma. Öll herbergi með sólsvölum og baði og útisundlaug
fyrir hótelgesti. Tvær vikur á Malloca og fjórir dagar
i Kaupmannahfn á heimleiðinni. Pantið timanlega í þessa
ferð, því löngu er uppselt í tvær 85 farþega Mallorca-
ferðir 8. og 22. september. Þetta er iíka kjörið tækifæri
til verulegs sumarauka.
Með skemmtiferðaskipi til Miðjarðarhafsins.
16. september, 20 dagar, verð frá kr. 18.000,—
Vegna samvinnu okkar við norska ferðaskrifstofu, sem
hefir þýzka skemmtiferðaskipið Fritz Hejkett á leigu til
Miðjarðarhafsferðar getum við boðið 16 ísiendingum ferð
með skipinu til Miðjarðarhafsins. Flogið er til Kaupmanna-
hafnar og siglt þaðan með þessu glæsilega skemmtiferða-
skipi til Oslo, Amsterdam — Quernsey — Tanger — Palma
Mailorca — Tunis — Malta — Pireus (Aþenu) — Feneyja.
Þaðan er flogið til Kaupmannahafnar og dvalið þar í þrjá
daga áður en farið er heim. Hægt að framlengja dvölina
í Kaupmannahöfn og, eða koma við í London á heim-
leiðinni.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 4 .september. Þá ráðstafa
Norðmenn sjálfir þeim plússum sem afgangs verða.
Munið að í Sunnuferðum, er ekki boðið rema það bezta.
Góð hótel. Góð skip, góðar flugvélar og góðir farar-
stjórar. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu
gott fyrir okkar farþega. Þessvegna koma mörg hundruð
farþegar ánægðir heim úr SUNNUFEKÐUM og fara með
okkur ár eftir ár.
Ferðaskrifstofan SUMIMA
Bankastræti 7 — Símar 16400 og 12070.
OLLUM ÞESSUM ENDURBOTUM
Meiri þægindi og aukið öryggi.
Jafnvægisstöng á afturöxli, gerir
bíiinn stöðugri í akstri.
Aukinn hraði í 3. gír auðveldar
framúrakstur og þægilegri skipt-
ingu í 4. gír.
Ný öryggislæsing á hurðum og
endurbættar dyralæsingar. Arm-
púði á hurð ökumannsmegin, sem
er eínnig grip.
Allir rofar eru nú úr nælon-plasti,
breiðari og flatari en áður.
Endurbættur rafall, sem framleiðir
120 watt í hægagangi og tryggir
nægjanlegt rafmagn við lélegustu
skilyrði. Sérstaklega í köldu veðri.
Nýir litir og sætaáklæði.
Ný lögun vélarloks.
Vélarhúsið er nú breiðara, en það
auðveldar allan aðgang að vél.
VOLKSWAGEN
ALLTAF FJOLGAR
S'imi 21240 HEILDVFRZLUNIM HEKLA irfl Laugavegi 170 172