Morgunblaðið - 23.12.1966, Page 2

Morgunblaðið - 23.12.1966, Page 2
2 MORGUNBLADÍÐ Fðsfuðagu? 23. des. 1969 ^ Ráðherranefnd Evrópu- ráðsins ræðir efnahagsmál RÁÐHEIRiRANEFN D Evrópu- ráðsins hélt fundi í París 12. og 13. desémber. Fundarstjóri var Lujo Toncic-Sorinj, utanrfikis- ráðherra Austuríkis. Fulltrúar íslands á fundinum voru Henrik Sv. Björnsson ambassador og Sigurður Hafstað sendiráðunaut ur. Samskiptin við ríki ntan Evrópuráðsins voru ýtarlega raedd, og tóku 15 ráðherrar til máls um tengsl ríkjanna í Vest- ur og Austur-Evrópu. Var það álit allra ráðherranna, að þau hefðu aukizt, og bentu þeir því til sönnunar á, að á þessu ári haf a verið gerðir fleiri samningar en áður um menningarmál, taekni og viðskipti milli ríkja, sem eru hvort í sínum hluta álfunnar. Ráðherrarnir töldu, að hér væri um að ræða mikilsvert framlag Evrópu til að bæta alþjóðlegt samstarf. Framkvæmdastjóri Evrópuráðs ins, Peter Smithers, gaf ráðherra nefndinni skýrslu um þátttöku nikja utan ráðsinis í vissum störf- um þess. Féllust ráðherrarnir í, að heimila mætti siíka þátttöku í samvinnu, sem Evrópuráðið stendur að og varðar tiltekin menningar-, laga- og tæknimál- efni. Pólitísk atriði varðandi efna- hagssamvinnu Evrópurikja var næsti málaflokkur, sem um var fjalla'ð. Dr. Josepih Luns, utan- ríkisráðherra Hollands og for- maður ráðherranefndar Efna- hagabandalagsins, skýrði frá starfsemi þess að undanförnu. Gunnar Lange, viðskiptamála- ráðherra Svtíþjóðar, og varafor- maður ráðherranefndar EFTA, sagði frá þróun mála innan þess bandalags. Báðir þessir ráðherr- ar töldu þann árangur, sem náðst hefur, fu'linægjandi, en jafn- framt lögðu þeir áherzlu á, að 'þess yrði að gæta, að tengsl ríkj- anna í bandalögunum tveimur rofnúðu ekki Þeir lýstu ánægju með nýlegar gerðir Breta varð- andi Efnalhagábandalagið og töidu, að unnt væri að binda von ir við, að þær myndu flýta fyrir samræmingu á sviði efnahags- mála í álfunni Brezki ráðherrann George Thomson, sem fjallar um Evr- ópumál, lét svo um mælt, að ibrezka stjórnin teldi tímalbært, að fram kæmi, hvort unnt væri að fá fleiri aðildarríki tekin í Efnahagsbandalagið. — Hann minnti á, að í janiúar eiga að hefjast heimsóknir forsætis- og utanríkisráðlherra Bretíands til Iþjóðhöfðingja og rákisstjórna í þeim sex ríkjum, sem eru í Efnahagsbandalaginu. Þess er vænzt, að í marz hafi þeir lokið viðræðum þessum. Thiamson sagði, að brezka stjómin myndi skýra ríkisstjórnum annarra EiFTA-landa frá árangri við- ræðnanna. Á ráðberrafundmium lýstu ýms ir fundarmanna skoðunum sán- um á því, hvernig æskilegt væri að vinna að nánara samstarfi Bvróipuríkja. Nokkrir ráðherranna lýstu á- hyggjum af tæknimálum í Evr- ópu. Kom fram, að Bandaríkin og Sovétríkin hefðu æ meiri yfir Iburði á þessu sviðL Ástæðan var ekki talin vera sú, áð vtísindaleg þekking í þessum stóru ríkjum væri meiri en í Vestur-Evrópu, heldur hin, að hin einstöku rfki þar væru ekki nægHega stórar efnahagslegar einingar til að unnt væri að nýta þá visinda- þekkingu, sem fyrir hendi 'er. Fram kom sú skoðun, að úr iþessu mætti foæta með mun nán- ari samstarfi ríkjanna í Evrópu- ráðinu. Framkvæmdastjóri Evrópuráðs ins skýrði frá samvinnu ráðsins og Sameinuðu þjóðanna. Þessi samvinna hefur farið vaxandi, einkum eftir heimsókn U Thants til Strasslborgar í maí sl. Aðgerðir vegna náttúruham- fara voru ræddar að frumkvæði utanríkisráðherra Austurríkis. — Ráðherrarnir fóru vi'ðurkenning- arorðum um starf Rauða kross- ins, Rauða hálfmánans og fleiri al'þjóðlegra samtaka á þessu sviði, og voru þeirrar skoðunar, að til viðbótar þeim væru fram- lög frá einstiökum ríkjum æski- iegri en sameiginlegar hjálpar- ráðstafanir margra ríkja. Fram- kvæmdastjóri ráðsins taldi þó tilefni til að kanna, hivort sam- ræma mætti lög og venjur um framlög af þessu tagi til að ■tryggja skjótari hjálp, þegar hennar verður skyndilega þörf. Sem kunnugt er varð nýlega gífurlegt tjón af völdum flóða á ítaiM'U, og þökkuðu ítölsku fulltrú arnir á ráðherrafundinum hjálp, sem borizt hafði eftir þær nátt- úruhamfarir. — (Frétt frá upp- lýsingadeild Evrópuráðsins, 19. desember 1ÖÖ6). — Þ. V. 1ÓLAGJAFIR! SPEGLAR eru kœrkomnar og nytsamar fólagjafir Vér bjóðum yður mesta SPEGLA-ÚRVAL, sem sézt hefir hérlendis. SPEGLAR og verð við allra hæfi. SPEGLABÚÐIN Sími 1-9635. Uinrik Sv. Björnsson, sendiherra, og Sigurður Hafstað, sendi- ráðunautur, á fundi ráðherran efndar Evrópuráðsins í Parfis 12. desember sl. Einkaritari Óskum eftir að ráða einkaritara til starfa hálfan eða allan daginn. Stúdentspróf eða önnur hlið- stæð menntun nauðsynleg. Eiginhandarumsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, svo og meðmæli ef fyrir hendi eru sendist skrifstofu okkar fyrir 31. desember 1966. Hagtrygglng hf. Eiriksgötu 5, Reykjavík. n -í /j L—í FRYSTIKISTUR frá hinu heimsþekkta BELL TELEPHONE Mfg. Co. 200 lítra 330 lítra 400 lítra Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. ELDHÚSIÐ sf Laugaveg 133. — Sími 11785.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.