Morgunblaðið - 23.12.1966, Page 8

Morgunblaðið - 23.12.1966, Page 8
8 MORGUNBLAÖID Föstudagur 23. des. 1966 Guðm. G. Hagalín skrifar um BÓKMENNTIR „Þegar ég tók í hrundar hönd. hins mikla manns, nýtur hún sín með ágætum. En hins veg- ar er síður en svo, að hann varpi með þessu skugga á mik- illleik séra Jóns á hans stóru stitndum. Hann verður aðeins í þættinum mannlegri, drætt- u irnir í skapgerð hans dýpri en þeir hefðu ella orðið og persón- an öll tilkomumeiri og eftir- Sverrir Kristjánsson og Tóm as Guðmundsson: 1 veraldar- volki. islenzkir örlagaþættir. Forni. Reykjavík 1966. Enn er komin bók, sem þeir eru báðir höfundar að, Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur og Tómas Guðmundsson. Og það eru svo sem engir ómerkingar, sem þeir fjalla um, þar eð Sverr ir segir frá Sigurði Breiðfjörð og Tómas frá hinum fræga eld- klerki, séra Jóni Steingrímssyni i Sverrir skrifaði fyrir nokkr- { um árum um Bólu-Hjálmar, og þótti ýmsum þar ekki vera nógu vandlega greindar sannaðar staðreyndir frá þjóðsögnum um skáldið. En víst er um það, að í almælti var, að aldrei hefði verið svo skemmtilega ritað um þennan mann, sem var jafn- stórbrotinn að allri gerð og hann var magnað og myndauð- ugt skáld, og enginn vafi mundi leika á því, að þáttur Sverris um Hjálmar vakti áhuga fjöl- margra af yngri kynslóðinni á örlögum og skáldskap Hjálmars. Hann og Sigurður Breiðfjörð voru um flest ólíkir, en ekki er saga Breiðfjörðs síður harmræn og í fljótu bragði séð minna furðuleg en saga skáldsins, sem kennt er við Bólu. Breiðfjörð var — allt frá því að hann var wm Sverrir Kristjánsson. rúmlega þritugur — mest metna og vinsælasta skáld alls þorra manna á íslandi, og honum var fagnað eins og konungi á síð- ustu ferð sinni út um byggð- ir landsins, þegar hann hafði ekki aðeins verið dæmdur fyr- ir tvíkvæni, heldur líka beið dóms og öruggrar tugthúsvist- ar fyrir ávísanafals og rangan framburð fyrir rétti. I>að var og hans skáldskapur, sem mesti ljóðsnillingur þjóðarinnar, Jón- as Hallgrímsson, valdi þá er hann vildi klekkja á rímnaskáld unum yfirleitt og ryðja braut nýrri skáldskaparstefnu, — >að var Sigurður Breiðfjörð, sem brimalda nýs tíma í bókmennt- um og að nokkru lífsskoðun ís- lendinga skall á — þessi af öll- um rétt og vel hugsandi Reyk- víkingum fyrirlitni brotamaður, drykkjubolti og veraldarlegur ómerkingur. Og á tindi skáld- frægðar sinnar ósigraður af boð- berum hins nýja tíma, lézt hann, þessi Óskmögur Iðunnar og vín- skútinn við rekkjustokkinn og Ijóðstafi á sprungnum vörum. Svo ömurlegt — já, átakan- leg, sém sú mynd er, sem Sverr ir dregur upp í fyrsta kafla þáttarins af skáldinu á dánar- beði — og síðan hverfur að á ný í síðasta kaflanum, er hún eigi að síður skáldlega glæsi- leg, og svo er um margt í þess- um þætti, enda er hann skrúf- aður af mikilli formgáfu, skörp- um skilningi á eðli Sigurðar og djúpri innsýn í aldarhátt og menningarlíf þjóðarinnar — innan þess sviðs, sem höfund- ur hefur markað sér og þætt- inum. Ég er og ekki í neinum vafa um, að þó að sitthvað hafi verið vel ritað um ævi og ör- lög Breiðfjörðs, verði þessi þátt- ur það, sem jafnan þyki geyma gleggri mynd af honum sem manni en annað, sem um hann hefur verið skráð til þessa. Sverrir kemur að því aftur og aftur, hve aðstæður og aldar- háttur hafi valdið miklu um örlög Sigurðar, en hann dregur mun síður en flestir aðrir, sem um hann hafa skrifað eða ort, fjöður yfir það, hve miklu eðli hans og skapgerð hefur valdið um lífskjör hans og ævilok. Mér virðist og, að skapveilur hans Tómas Guðmundsson. hafi verið hans mesti og versti örlögvaldur. Islenzk alþýða dáði hann og virti og var honum vel, eftir því sem efni stóðu til, og margur höfðinginn mat hann og skáldskap hans. Þá virðist mér einnig, að réttarins þjónar á harðri öld hafi ekki tekið á honum miklum mun ómildari höndum en efni stóðu til. „Þeg- ar ég tók í hrundar með hægu glingri, fannst mér, þegar ég var yngri, eldur loga á hverjum fingri“, kvað hann, og víst mundi hann hafa sagt það með sanni. Ókærni hans í kvenna- málum og veikleiki hans gagn- vart Bakkusi mundu hafa reynzt ærið örlögþrungar veilur, hvernig sem lífið hefði annars við hann leikið. Þáttur Tómasar skálds Guð- mundssonar í þessari bók fjall- ar um mann, sem er engu síð- ur þjóðkunnur en Sigurður Breiðfjörð, þar sem er einn af þeim fáu íslenzku klerkum, sem öll alþýða manna á íslandi hef- ur talið hafa unnið kraftaverk, sem vart mundi eiga sinn líka og hvað sem því líður, er hitt víst, að séra Jón gerðist slíkur bjargvættur hrjáðra sóknar- barna sinna í sárum nauðum þeirra, að dæmi slíks munu ekki mörg í sögu íslenzkra afreks- manna. Þá hefur hann og rit- að ævisögu sína af slíkri snilli, að hún er sérstæð í íslenzkum bókmenntum og skipar honum á bekk með mestu merkisrit- höfundum okkar á síðari öld- um. Loks hefur Jón Trausti frægt séra Jón í Sögum frá Skaftáreldi, sem unnu sér mikla og almenna hylli þegar þær komu fyrst út, þær hafa þús- undir manna um allt ísland lesið og lesa enn, þar eð Ritsafn Jóns Trausta mundi til á fleiri ís- lenzkum heimilum en nokkur önnur rit að íslendingasögun- um undanteknum. Það er því ærinn vandi, sem Tómas skáld Guðmundsson tekst á hendur, þegar hann ræðst í að rita þáttinn Guðs- maður í veraldarvolki, enda fór mér svo, að ég las þann þátt á undan hinum, sem þó er hinn minnilegri. En vandgert hefði þetta verið, ef þarna hefðu átt að koma til bersöglir dómar í stað kímninnar. Að minni hyggju er þetta bezta bók þeirra þriggja, sem komið hafa frá henni þessaia „samvinnumanna.“ Guðm. Gíslason Hagalín. ' fyrri í bókinni. Mætti í fljótu bragði ætla, að Tómasi hefði ekki orðið annað meira úr efn- inu en að rita skilmerkilegan og læsilegan útdrátt úr sögu hins sérstæða og merkilega klerks. En Tómasi tekst að fjalla þannig um efnið, að fyrir mörg- um, sem lesið hefur um séra Jón, mundi hann standa í enn skýrara Ijósi en áður, að lokn- um lestri þáttarins, auk þess sem glöggum lesanda á fram- setningu, sem er ærið persónu- leg, en lætur þó lítið yfir sér, munu verða tök Tómasar á efn- inu alleftirminnileg. Séra Sigurjón varð bæði fyrr og síðar á ævinni að þola ill- mælgi, róg og lygar misjafnra manna, jafnvel eiár að hann stóð frammi fyrir þjóð sinni í þeirri birtu, sem eldmessan og fórnarstarf hans í þágu bág- staddra sóknarbarna sinna, vörpuðu yfir hann, voru of- sóknirar á hendur honum hvað mestar. Hann skrifar og sögu sína, sem varnarrit, sakir eftir- komenda sinna, en ýmsum mundi dyljast, að hann ritar hana einnig til að verjast áleit- inni samvizku sinni, þá er hann hugsar til þess, hvað honum hefur veitzt á ævinni og hvað hann hefur orðið að þola. Hann var sem sé eins og flestir menn mikillar gerðar og þá ekki sízt þeir, sem hafa unnið slík and- leg afrek, að þeir hafa staðið eftir dauða sinn í dýrðarljóma, hafa verið allmiklir heimsmenn og átt í stríði við fýsnir og ver- aldarhyggju. Og það leynir sér lítt, að tvennt hefur það verið, sem sérlega hefur sótt á séra Jón Steingrímsson, allmikil auðshyggja og blátt áfram fá- gætlega þrásækin og endingar- góð kvensemi. Hann hefði sann- arlega getað tekið undir með Sigurði Breiðfjörð; „Þegar ég tók í hrundar hönd með hægu glingri", — en fella hefði hann mátt niður orðin: „fannst mér, þegar ég var yngri“. En yfir bæði gröðahyggjuna og kven- semina varnar hann í sögu sinni því skini, að þar hafi forsjón guðs verið með í verki — bæði í vörn og sókn. Tómas er aikunnur að hóf- samri, en eigi að síður ærið virkri kímni, og þar sem hann rekur þræði brestanna í fari Vörubíll Höfum verið beðnir að selja Ford Trader vörubíl 7 tonna árg. 1964. Góð grexðslukjör. FORD umboðið Sveinn Egilsson lif. ANGLI-SKYRTUR COTTON-X og RESPI SUPER NÆLON. ALLAR STÆRÐIR og MARGAR GERÐIR. GEYSIR H. F. URVAL JOLAGJAFA ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR VERZLIÐ T SIÆRSJÖ LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUN BORGARINNAR . . GEVAFOTO h.f. AUSTURSTRÆTI 6 - SÍMI 22955

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.