Morgunblaðið - 13.01.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1967.
5
20 ÁRI 28 STIGA FROSTI
Litið inn hjá síldarvinnsIufóBki í Hafnarfirði
1 HRAÐFRYSTISTÖÐ Bæjar
útgerðar Hafnarfjarðar hefur
silfur hafsins veriS sjaldséð-
ur gripur upp á siðkastið. Jú,
það slæddust að vísu nokkrir
uggar á land um miðjan des-
ember, en það stóð ekki lengi
eins og gengur. Togarinn Maí
hefur þó borið björg í bú og
i
þrir bátar inn í íhöfnina í
Firðinum með hafsilfrið í örm
um sér. Þeir hétu Geirfugl
með 500 tunnur; Arnar með
300 tunnur, og Ögri var einn-
ig með tæpar 300 tunnur af
glænýrri, glóandi síld. Eld-
snemma í gærmorgun opnuðu
þeir lestarlúgur sínar mót
frystihúsinu: Sjáðu hvað ég
hef!
Um jþað leyti var há-
vaxinn maður í hviitum
slopp kominn á sinn stað í
hraðfrystihúsinu. Hann heitir
Pétur KristJbergsson og er
verkstjóri; hann sér um að
ferlíkið sé matað rétt, ekki
of hratt og ógætilega, því þá
verður því óglatt: síldin fer
í flokk C eða fellyr, verður
ekki hæf til útflutnings; ög
ekki of hægt, því ferlíkið
krefst þess að vera ávallt
með fullan gúlann þar til mál
tíð er lokið. Skömmu síðar
tíndist fólkið í salinn, hver
tók sinn stað við vélarnar,
beið eftir síldinni. Þá var
klukkan að verða átta að
morgni. Húsmæðurnar spjöll-
uðu um atburði gærdagsins og
um það sem gerast mundi í
dag. Og í dag mundi mikið
Pétur Kristbergsson, verkstjóri
tilbreytingu og tilþrif tvisvar
sinnum upp á siðkastið, þegar
hann hefur komið belgfullur
af rauðleitum karfanum upp
að bryggju í Firðinum með
sigursæla sjómenn npp við
lunninguna — og þar sem
margir karfar rúmast í belgn-
um á Maá, þurfti marga menn
og konur og ósinkar hendur
til að koma aflanum í verð-
mæti — og vissulega var svo
gert svikalaust. Það hefur
meira að segja aldrei verið
skipað upp jafnmiklum afla
á einum degi úr einu skipi
eins og gert var þegar Maí
kom með 480 tonnin sin að
landi ekki fyrir löngu. En
480 tonn af karfa eru eins og
aðrir hlutir, forgengileg, og
þar kom, að fólkið í hrað-
frystihúsinu var búið að
ganga milli bols og hauss á
þeim fiskinum og ekkert var
eftir nema éta hann.
Þá hljóðnaði á ný í verk-
unarsalnuim stóra. Fisklyktin
rénaði, skellum og skvampi
fækkaði, verkstjórinn blés
ekki lengur í flautuna til að
kalla fólkið úr kaffihléi
klukkan tuttugu mínútur yfir
þrjú. Húsið hljóðnaði og starði
tómum gluggum fram á höfn-
ina. Vélar þess biðu í svelti.
Svo kom síldin. í skjóli
myrkurs í fyrrinótt læddust
Helga Helgadóttir.
komum í heimsókn eftir kaff-
ið í gær, var enn hamast af
óþrjótandi elju. Okkur fannst
það frekar furðulegt. Við höf-
er farið með öskjurnar inn í
frystiklefann sjólfan, þar sem
öskjunum er hlaðið hver ofan
á aðra, og þar sem þær bíða
eftir útflutnihgsleyfi og út-
flutningi. Síldin er skipt nið-
ur í þrjá flokka, eða reyndar
Björgvin
hann svitnar í frostinu.
gerast. Klukkan átta var blás-
ið í flautuna með háa hljóð-
inu og fólk tók að vinna með
tíðum handtdkum og af mik-
ilili snenpu. Þó var þáð aðeins
á tímakaupi.
Þegar við Morgunblaðsmenn
um þekkt bæjarvinnumenn
(þetta var í mesta sakleysi
sagt). Við hittum Pétur verk-
stjóra að máli og bentum á
fólkið og sögðum hikandi:
— Er fólkið — vinnur fólk-
ið alltaf svona vel?
— Það er ekkert sem lífgar
fólkið upp eins og síldin. Það
vinnur meira og betur en
áður, og er ánægðara. Þetta
hlýtur að vera eitfihvað sál-
rænt, þetta með síldina.
— Er þetta stór síld? (Vor
helztu kynni af síld eru frá
kokteilbitum og niðursuðu-
dósum).
— Hún er frekar smá. Það
af henni sem er frá 100 og
upp í 170 grömm er talið smá-
síld og fer í rauðu pakkana.
Þú sérð að pakkarnir eru í
tveimur litúm. Öskjurnar eru
að meðaltali 9 kíló hver. Þær
eru dagsettar af konunni, sem
þú sérð þarna fraimmi. Svo,
þegar búið er að því, þá er
farið með þær fullar fram til
hraðfrystitækjanna og þær
settar í þau og látin vera þar
í tvo klukkutima, eða þangað
til síldin er orðin fryst. Þá
Séð yfir salinn.
fjóra, A, B, C, flokka og svo
D flokk, en í honum lendir
sú sfld sem öhæf er talin til
útflutnings.
— Hvað verður unnið lengi
í dag?
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
— Við vinnum þar til síldin
er búin. Það verður ekki fyrr
en seint í kvöld.
Það er kalt inni í salnum,
þar sem frystitækin eru. Þó
er enn kaldara inni 1 sjálfum
fiystiklefanum, þar sem fisk-
urinn er geymdur. Þar á að
vera — og efalaust er, a.m.k.
í gær, 26 stiga frost. Við
hættum okkur inn í þennan
Norðurpól Bæjarútgerðarinn-
ar, því við vorum eindregið
hvattir til að heilsa upp á
Björgyin Einar Jónsson, sem
hefur yfirumsjón með því,
sem fram fer þarna inni í
kuldanum. Við hittum hann
þar sem hann var í óða önn
að hlaða öskjunum í stafla.
Hann var úlpuklæddur og
rjóðleitur í framan.
— Verður þér ekki kalt að
vinna hérna inni allan dag-
inn?
— Nei, blessaður vertu, ég
er sveittur núna!
Framfhald á bls. 10
ALJLTMEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Skógafoss
Seeadler
Mánafoss
Skógafoss
HAMBORG:
Goðafoss
Bakkafoss
Skógafoss
Askja
Goðafoss
Bakkafoss
Skógafoss
ROTTERDAM:
Bakkafoss
Skógafoss
Askja
Goðafoss
Bakkafoss
Skógafoss
LEITH
Marjetje Böihmer 28. jan.
Mánafoss 13. febr. **
LONDON:
Mánafoss 13. janúar
Marjetje Böhmer 23. jan.
Seeadler 1. febrúar
Mánafoss 10. febrúar**
Marjetje Bölhmer 20. febr.
HULL:
20. janúar
30. janúar
7. febr. **
16. febr.
13. janúar
10. janúar**
23. janúar
31. janúar
10. febr.
11. febr. **
20. febr.
13. janúar**
19. janúar
27. janúar
6. febr.
8. febr. **
17. febr.
Bakhafoss 18. janúar**
Marjetje Böhmer 26. jan.
Seeadler 3. febr.
Bakkafoss 13. febr. **
Marjetje Böhmer 23. febr.
NEW YORK:
Reykjafoss 20. janúar *
Brúarfoss 3. febr.
Fjallfoss 17 febrúar*
GAUTABORG:
Fjallfoss 16. janúar**
Lagarfoss 1. febr.
Tungufoss 16. febr. **
KAUPMANNAHÖFN:
Tungufoss 16. janúar**
Lagarfoss 30. janúar
Tungufoss 13. febr. **
KRISTIANSAND :
Tungufoss 19. janúar**
Lagarfoss 2. febr.
Tungufoss 16. febr. **
BERGEN:
Fjallfoss 17. janúar
Rannö 1. febr.
Tungufoss 17. febr.
KOTKA:
Dettifoss 1(2. janúar
Dettifoss um 18. febr.
VENTSPILS:
Dettifoss 13. janúar
Dettifoss um 16. febr.
GDYNIA:
Fjallfoss 13. janúar
Rannö um 28. janúar
* Skipið losar á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
** Skipið losar á öllum aðal-
höfnum; auk þess
Vestmannaeyjum, Siglu-
firði, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa í Reykja-
vik.
AULTMEÐ
EIMSKIP