Morgunblaðið - 13.01.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.1967, Blaðsíða 10
10 MORGOTTBLAÐIÐ, BÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1967. við umsögn um Athugasemd VASABÓK 1967 1 MORGUNBLAÐINU 8. janúar birtist alllöng grein eftir Magnús nokkuirn Óskarsson, lögfræðing, sem vinnur ihjá Reykjiavákur- borg, sem nefnist „Vasalbóik 1967. Athugasemdir um útgá£u“. Hér er um að ræða ýmsar aðfinnslur við almanaksvasabók þá, sem undirritað fyrirtæki hefur gefið út um langt áralbiiL Grein þessi er skrifuð af lítilli sanngirni ,og þar sem ýmsar að- finnslurnar eru beinMnis rangar, þykir rétt vegna þeirra mörgu, aem eiga þessa bók, að leiðrétta íangfærslurnar. Alvarlegasta rangfærslan er sú, að símanúmerum Slysavarna lélagsins sé brenglað, og vitnar höf. í því sambandi til símaskrár innar, sem kom út fyrir nærri þrem árum, án þess að ganga úr skugga um, hvort ekki kunni að hafa orðið breytingar á símum Slysavarnafélagsins á þeim tíma. Er það bjarnargreiði við Slysa- varnafélagið, sem leggur jafnan mikla áherzlu á, að símanúmer þess séu rétt tilfærð þar sem þau eru birt. í>á kvartar Ihöf. undan því, að ekki sé getið einkennisstafa bif- reiða á Sauðárkróki og Húsavik. Hann virðist ekk-i vita, að þess- ir kaupstaðir hafa sömu ein- kennisstafi fyrir bifreiðir og Skagafjarðar- og Þingeyjarsýsl- ur. Ennfremur eru aðfinnslur við töflu um flóðtíma á ýmsum stöð- um á landinu, en tafla þessi er fengin hjá almanaki Þjóðvina- félagsins. Höf. finnast „merkileg- ar athugasemdir" um ýmsa staði á landinu og tilfærir m.a. þessi dæmi: Keflavík (við Faxaflóa), Ísafjörður (kaupst.) og Húsavík (verzlunarst.). Hann virðist ekki vita, að til eru fleiri en ein Kefla vík og ein Húsavík á landinu, og að Ísafjarðarkaupstaður stend ur við Skutulsfjörð, en ekki við ísafjörð. Ýmsar aðfinnslur höf. eru Mtilvægar og aðrar nánast hót- fyndni, svo sem eins og kvart- anir út af efnisyfirlitinu, þar sem hann átelur að ekki skuli getið um vísuna „Ap., jún., sept., nóv.“! Sama má raunar segja um augljósa prentvillu í sambandi við gengi Kanadadollars. ' Um kaflann „Söfn og opiniber- ar stofnanir" hefur höf. ýmis- legt að athuga, m.a. segir hann, að upplýsingar um Borgarbóka- safnið séu úreltar og villandi. Þær voru þó fengnar hjá safn- inu sjálfu á s.l. ári, þegar unnið var að endurskoðun bókarinnar. Sama er að segja um töfluna um ferðir strætisvagnanna. Leiðir 26 og 27, sem vantar í töfluna, voru ekki teknar til starfa, þeg- ar unnið var að bókinni. Loks segir höf. að nýmæli sé yfirleitt ekki að finna í bókinni, að frátöldum kafla um vín, sem honum finnst ómerkilegur, m. a. virðist honum koma það spanskt fyrir sjónir,. að gæði víns séu misjöfn eftir árgöngum, og að fleiri glös fáist úr flösku af „heitum“ vínum en „léttum". Honum er þó óhætt að treysta því, næst þegar hann neitir víns, að þessar upplýsingar eru rétt- ar. En fullyrðing höf. um, að ekki séu önnur nýmæli í bó’k- inni, er alröng. Ef hann hefði Útsala Útsala Hefst á morgun föstudag 13. janúar. HATTA og SKERMABÚÐIN Bankastræti 14. Húsfélagið Sólheimum 23 óskar að ráða reglusaman HÚSVÖRÐ Starfinu fylgir 3 herbergja húsvarðaríbúð á 1. hæð. Æskilegt er að umsækjandi sé eitthvað vanur með- ferð rafvéla, þar eð hann þarf m. a. að annast dag- lega umsjón með lyftum, þvottavélum og kyndi- tækjum. Nánari upplýsingar um starfið gefur for- maður húsfélagsins Einar M. Jóhannsson. Skrifleg- ar umsóknir óskast sendar stjórn Húsfélagsins Sól- heimum 23, Reykjavík. hálf K A S KÓ trygging bætlr: brunatjón Brunatjón á bíliun eru algeng. iiállk.aakóti \ ggingia bætir brunaskemmdir sem kunna aff verða á bifreið- inni í akstri eða i geymslu. Rúðutjón af völdum steinkasts frá öðrum bil eru orðin mjög algeng með hinni vaxandi umferð á malar- vegum okkar. Hálfkaskótryggingin bætir brot á öllum rúðum bílsin3. þjófnaðar- tjón % Bílþjófnaðir Iiafa færst mjög í vöxt undanfarið. Hálfkaskótryggingin bætir skemmdir af völdum þjófn- aðar og einnig vegna tilrauna til þjófnaðar á bíl. ÁBYRGDP Með hiiini ódým HÁLFKASKÓTRYGGINGU ÁBYRGÐAR getið þér leyst yður undan áhyggjum vegna ofangreindra óhappa á mjög hagkvæman hátt. ÁBYRGÐ HF. innleiddi þessa tryggingu þegar 196] og hefur hún notið vaxandi vinsælda. ÁBYRGÐ HF. Uyggii eingöngu bindíndisfólk •g býður þesavegna H;’ ' ; '1'1 Leitið upplýsinga þegai í dag. ÁBYRGDP Tryggingaféldq íyrir bindindismenn Skúlaqötu 83 . Riykiavtk . Símar 17455 Of 17847 gert sér það ómak að bera sam- an bækurnar fyrir 1966 og 1967, mundi hann hafa séð, að öll kort af gatnakerfi Reykjavíkur eru ný og eirau fleira en árið áður, að nýtt kort í litum er af Evrópu og nýtt kort í litum af íslandi; einnig að bætt hefur verið í bókina „vísitölu bygg- ingarkostnaðar'* og „Hjálp í við- lögum. Blástursaðferðin". Höf. minnist raunar á þann kafla og varar menn við að treysta hon- um án þess að hirða um að at- buga, hvort þar er rangt með farið eða ekki, og verður það að teljast ábyrgðarhluti. Þó að ýmsar rangfærslur höf. hafa verið leiðréttar hér að fram an, skal það fúslega játað, að bókin er ekki villulaus, enda mun seint hjá því komizt að vill- ur slæðiát inn, þótt þeir sem að bókinni vinna séu allir af vilja Gerðir að ha|a hana sem réttasta. En hafi tilgangur höf. verið sá einn að benda notendum bókar- innar á villurnar í henni, svo að þeir gætu varað sig á þeim, þá hefði hann ekki sjáifur átt að gerast sekur um það, sem hann ásakar útgefendur Vasabókarinn ar fyrir. Steindórsprent h.f. - Úr öllum áftum Framhaild af Ibls. 3 Það var rétt. Maðurinn vann sér til hita og meira en það. Undirritaður heldur það sjaldgæft að fólk svitni í 28 stiga gaddi. — Hvað ertu búinn að vinna hérna lengi? — Ég er ekki búinn að vinna hérna nema í raokikur ár. Annars er ég búinn að vinna í frystiklefum í 20 ár. — Og þú unir þér vel í kuld anum? — O, jiá, j<á. — Þú hlýtur að bregða þér til sumar- og sólarlanda þeg- ar færi gefst! — Nei, það læt ég vera. Maður venst þessu. Mér finnst þetta ágætt. Við lítum í kringum okkur og undrumst að fólk skuli deyja úr ’hungri í heiminum. Þarna eru fleiri tugir tonna af karfa, ’komnum alla leið frá Nýfundnalandi. Þarna er síld í þúsundum pakka. Og ef vel er að gætt, má sjá á hlíðar smjörfjallsins milli síld arinnar og karfans. Frammi í stóra salnum, þar sem síldin ef þvegin og henni pakkað í öskjurnar, hittum við Helgu Helgadóttur, stóra konu og glaðlega, með gula gúmmívettlinga á höndunum. — Hvort er skemmtilegra að vinna í síld eða karfa? spyrjum við í fátfræði okkar. — Ég vil nú ekkert gera upp á milU þeirra. — Síldin er ólíkt skemmtl- legri, segir konan við borðið andspænis Helgu. Og svo virð ist sem flestir séu henni sam- mála. Svo komumst við að því, að Helga er elzta starfs- kona fyrirtækisins, hefur unn ið þarna síðan fyrirtækið var sett á laggirnar fyrir 35 árum. Tveir synir hennar unnu eintx ig í gær við að koma síld- inni í verðmæti. Og það kemur til mín kona og biður mig að koma á fram- færi leiðréttingu á ranghermi sem hatfnfirzk æska varð að sæta á þrettándanum. Hún sagði, að það væri alls ekki rétt að kerana hafnfirzkum unglingum um þau ölæti, setn áttu sér stað í Hafnarfirði á þrettándanum. Táningar frá Reykjaví'k, Kópavogi og Siltf- urtúni koma þá til Hafnar- fjarðar, segir konan, og um- turna öllu þar, vitandi, að skuldinni verður skellt á Hafn firðinga. Ég keim þessu á fram færi, þótt þetta sé grein um síld í Hafnarfirði en ekki Vel- vakandi. En ferlíkið heimtar meira. Við megum ekki trufla fólkið otf lengi — sú voru boð verk- stjórans; Ferlí’kið rymur að baki okkar, þegar við göng- um niður stigana. í forstof- unni slær ammoníakslykt- inni fyrir vit okkar. Þetta er gallið. Aldrei hefur þótt af þvi sæt lyktin. — brandur. Tilboð óskast í íslenzka ísaða síld 4 — 12 stk. pr. kg. CIF CUXHAVEN HUSSMANN AND HAHN GMBH, CUXHAVEN, WESTERN GERMANY, TELEP- HONE: 23081 — TELEX: 0232151/2. Skrifstofustarf Karl eða kona óskast til skrifstofustarfa í heild- verzlun í Kópavogi. Bókhalds og vélritunarkunn- átta nauðsynleg. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 17. þ.m. merkt: „Nú þegar — 8643“. HÚSNÆÐI til leigu nú þegar, í vel staðsettu verzlunar og iðnaðarhverfi í Reykjavík. Heppilegt fyrir teikni- stofu, skrifstofu, saumastofu, eða ýmsan smærri iðnað og föndur, svo og félagsstarfsemi. Þurr og rúmgóður kjallari. Afgirt lóð og góð bílastæði. Kaup geta komið til mála. Upplýsingar gefur GÚSTAF A. SVEINSSON, hæstaréttarlögmaSur Laufásvegi 8, Reykjavík — Sími 1 11 71.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.