Morgunblaðið - 29.01.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1967. n' I l ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ John Steinbeck STUNDUM er sagt, að orð- færi íslenzkra blaða sé mun kurteislegra nú hin síðari ár, en áður var. Má vel taka und ir þessa skoðun margra, þótt hinu sé ekki að leyna, að taugaveiklunar kennir stundum í orðfæri hinna beztu manna. Slík taugaveikl un náði hámarki í Þjóðvilj- anum í gær. Engum sem fylgist með skrifum kommúnista um menningarmál dylst, að þeir hafa ríka tilhneigingu til að dæma verk höfunda eftir pólitískri afstöðu þeirra. Þeg- ar þjónustulund höfunda við „málstaðinn" bregzt tekur Þjóðviljinn til sinna alkunnu ráða gegn þeim. Steinbeck hefur skrifað unt Vietnam að undanförnu og greinar hans m.a. birzt í Morgunblaðinu. Hann hef- ur reynt að kynna sér ástand mála þar í landi af eigin raun og skrifar þaðan án milliliða, en af því getur Þjóðviljinn ekki státað. Steinbeck er einn merkasti ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■ Tauga- veikiun skáldsagnahöfundur sem nú er uppi. Hann hefur aldrei lát ið segja sér fyrir verkum. Fft ir heimsókn hans til Sovét- ríkjanna fyrir nokkrum ár- um, þótti hörðustu andstæð- ingum Sovétskipulagsins hann skrifa svo sanngjam- lega um ferð sína þangað, að TarsLs þótti rétt að gagnrýna hann allharkalega í bók sinni Deild 7. Þá talaði Þjóðviljinn ekki um „siðferðilega niður- Iægingu“ Steinbecks. Þessar hugleiðingar eru sprottnar af gefnu tilefni, orðum Austra um Steinbeck í Þjóðviljanum í gær. Þau sýna allt annað en það, að kurteisi hafi aukizt í skrifum íslenzkra blaða. Orðrétt segir Austri um Steinbeck: „nú skilur hann ekki neitt nema fögnuð veiðigleðinnar innan um hinar skækjurnar í trússi innrásarhers- ins“. Var einhver að tala um Söm Lidman? s Framlhald af bls. 1. 1965, en sú för var liður í þjálf- un þeirra fyrir Apollo tilraunirn ar. * • Geimfaramir þrír era hinir fyrstu í Bandaríkjunum, sem Iáta lífið í geimvísindatilraun. I fyrra fórust tveir aðrir geim- farar — í flugslysi skammt frá MacDonnel flugvélaverksmiðj- unum í St. Louis í Missouri — en þeir voru ekki að vinna við geimvísindatilraunir. Geimfararnir höfð'U verið nokkrar klukkustun-dir í geim- farinu, þegar slysið bar að hönd um — og gert ýmsar atlhuganir rétt eins og þeir væru í tilrauna flugi. Höfðu þeir haft samband við vísindamenn í geimstöðinni nokkrum sekúndum áður en eid- urinn kom uipp. Heyrðist aldrei neitt frá þeim, sem gefið gat til kynna, að þeir hefðu orðið varir bilunar. Eru sérfræðingar sann- * færðir um að slysið hafi gerzt á augabragði og mennirnir lát- izt samstundis. Ekki varð sprengimg í geim- farinu og sakaði engan annan. Hundruð manna voru í nánd v-.ð ' slysstaðinn, þar á meðal ljós- myndarar og fréttamenn, en svæðið var þegar girt af og tekið Edward White á gönguferð sinni um himingeiminn í júní 1965. i Slysið kvikmyndað í NTB frétt segir, að eldurinn — Geimfararnir fyrir alla umferð. Bannað var að birta myndir fyrst um sinn. BLAÐBURÐARFÓLK 1 EFTIRTALIN HVERFI: VANTAR Skerjafjörður — sunnan flugv. Túngat.a Lambastaðahverfi Síafnar<*ata Miðbær Blesugróf Snorrabraut Selás Talið við aígrciCsluna, sími 22430 hafi sennilega kviknað í geymi, rétt undir klefa geimfaranna, þar sem voru súrefnisbirgðir þeirra, rafhlöður og fleira. Hafi reyk leitt um súrefnistækin og geim- fararnir kafnað, áður en þeir næðu til björgunartækjanna í geimfarinu. Síðari fréttir benda til þess, að mennirnir hafi bók- staflega stiknað á augabragði af hinum gífurlega hita, er varð í klefa þeirra, þegar eldurinn komst í súrefnið. Yfirmenn í geimistöðinni ákváðu að fjarlægja ekki lík geimfaranna úr geimfarinu, þeg ar í stað. Voru þau höfð þar í sjö klukkustundir, til þess að auðvelda rannsókji á slysi þessu. Ein af þeim tilraunum, sem geimfararnir áttu að gera var að yfirgefa geimfarið í skyndi með hugsanlegt óhapp í huga. Almenn sorg ríkti á Kennedy- höfða í dag. Þar voru margir, sem misst höfðu nána samstarfsmenn og persónulega vini. Þar við bætt ist að margra mánaða starf var að engu gert. Að sögn talsmanns geimvísinda stöðvarinnar í Houston var slys- ið kvikmyndað. Auk þess eru all Virgil Grissom er hann kom úr geimferðinni í marz 1965. ar samræður við geimfarana til á segulbandsspólum, að venju. — Gögn þessi voru innsigluð og verða afhent opinberri rannsókn arnefnd. Johnson forseta barst fregnin um slysið á Kennedy-höfða skömmu eftir að hann hafði und irritað samkomulagið um frið- samlega nýtingu himingeimsins. Var hann í hópi rúmlega sextíu sendiherra, í Hvíta húsinu og höfðu ekki allir lokið við að skrifa undir. Varpaði fregnin dökkum skugga á gleðina, sem ríkt.i yfir samkomulaginu — hin um nýja áfanga í batnandi sam- skiptum stórveldanna. í yfirlýsingu forsetans, sem birt var skömmu síðar, lét hann í ljós djúpa sorg yfir fráfalli geimfaranna „Þrir hughraustir, ungir menn hafa látið líf sitt í þjónustu bandarísku þjóðarinn- ar. Við syrgjum þá og hugsum til fjölskyldna þeirra", sagði hann. Sennilegt er talið, að for- setinn verði viðstaddur útför geimfaranna. Roger Schaffe á íslenzkum h esti. Myndina tók Ólafur K. Magnússon ljósm. Mbl. Apollo farsins að nýju. Einnig skiptir miklu máli hvort geim- farið er algerlega ónýtt eða hversu miklar skemmdirnar á því urðu. Alla vega v%rður að fresta því að senda Apollo geimfar á braut umhverfis jörðu. Þegar hefur þeirri tilraun verið frest- að nokkrum sinnum en nú átti að gera hana 21. febrúar n.k. Þjálfa verður nýja menn til far- arinnar og segir Thompson, að þeir Walter M. Schirra, Don F. Eisele og Walter Cunningham taki við. Þeir hafa þegar fengið margra mánaða þjálfun. Upphaf lega stóð til, að þeir færu með „Apollo 2“ sem senda átti á loft í haust, en vegna bilana var ákveðið að fresta þeirri tilraun og voru geimfararnir þá settir sem varamenn fyrir áhöfn „Ap- ollo 1“. Geimförin voru á hinn bóginn í mörgum atriðum frá- brugðin hvort öðru og þarfnast varamennirnir því ýtarlegri þjálfunar. Önnur AP-frétt frá Kennedy- höfða hermir, að allt frá því fyrst var farið að reyna „Ap- ollo 1“, hafi komið fram ótal vandamál. Hafi framkvæmda- stjóri Apolloáætlunarinnar, Dr. Joseph Shea, skýrt svo frá á fundi nýlega, að alls hefðu orð- ið rúmlega tvö hundruð bilan- ir auk mörg hundraða atriða, sem breytt hefði verið þegai verið var að reyna geimfarið. Þá komu fram margskonar vandamál í stjórntækjum, svo að fresta varð tilrauninni fram í janúar. Nokkrum vikum síðar töfðust tilraunir á jörðu enn vegna bilunar og þá ákveðið að gera tilraunina í febrúar. Frá Sjálfsfæðis- félögum í M»rð- urlandskjörd. eystra Sjálfstæðisfélag Árskógsstrand- ar ^Aalfundmr Sjálfstæðisifléla.gis Árskógsstrandar verður haldinn næstkomandi þriðjudagskvöld klukkan 8.30. Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, ræðir stjórnmálaviðhorf- ið. Sjálfstæðisfél Einar þveræingur Sjálfstæðisfélagið Einar þver- æingur heldur aðalfund sinn næstkomandi miðvikudag klukk an fjögur síðdegis í fundarsal íslenzk-Ameríska félagsins, Bún aðarbankahúsinu Akureyri, Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra ræðir stjómmálaviðhorf- ið. Tefur tunglferðaáætlunina. í AP-frétt frá geimvísinda- stöðinni í Houston í Texas skrif- ar Ronald Thompson, að slys þetta sé bandarískum geimvís- indum þungt áfall og mikill hnekkir fyrir tunglferðaáætlun- ina. Bæði hafi þarna farizt þrír af bezt þjálfuðu og reyndustu geimvísindamönnum Bandaríkj- anna og geimfarið sjálft, sem gerðar höfðu verið á margs- konar endurbætur. Telur Thomp son einsýnt, að slysið muni valda margra mánaða töf á tungl ferðaáætluninni, en segir, að sérfræðingar telji of snemmt að slá nokkru föstu þar um. Það verði ekki ljóst fyrr en orsalz- ir slyssins hafi verið nákvæm- lega rannsakaðar. Mikið veltur á því, hvort slysið á rót að rekja til eðlilegrar bilunar á þessu einstaka geimfari eða hvort um er að ræða galla á byggingu þess þannig að gera verði breyting- i ar á teikningum og hefja smíði Upphaflega var fyrirhugað að skjóta fyrsta Apollo geimfarinu á loft fyrir árslok 1966. Vr fyrst ráðgert að reyna í nóvember en síðan frestað fram í desember. Fiskimjöls^ram- Eeilfendurá fundi FUNDUR var haldinn í gær- morgun í Félagi íslenzkra fiski mjölsframleiðenda og hófst hann kl. 10 árdegis. Til umræðu voru markaðs- horfur á sölu lýsis og mjöls. A fundinum skýrði dr. Þórður Þor bjarnarson frá fundi alþjóða- samtaka fiskimjölsframleiðenda, sem haldinn var í París fyrir nokkru. A fundinum í gær var stjóm félagsins falið, að gera þær ráðstafanir, sem hún tel- ur nauðsynlegar í þessum efn- um. Sjálfstæðisfél. Drangur Sj álf stæðisf élagið Drangur heldur aðalfund sinn næstkom- andi miðvikudag í fundarsal ís- lenzk-Ameríska félagsins klukk an fjögur síðdegis í Búnaðar- bankahúsinu Aknreyri. Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, ræð ir stjórnmálaviðhorfið. Sjálfstæðisfél. Akureyrar Sjálfstæðisfélag Akureyrair boðar til almenns stjórnmála- fundar næstkomandi miðviku- dagskvöld klukkan átta þrjátíu í Bjargi, félagsheimili Sjálfs- bjargar. Frummælandi Ma.gnús Jónsson, alþingismaður. Vörður F.U.S. Vörður F.U.S. Akureyri boðar til kvöldverðarfundar n.k. fimmtudagskvöld klukkan 7.30 í Sjálfstæðishúsinu (litla sal). Ath. breyttan fundardag. Magn- ús Jónsson, fjármálaráðherra ræðir stjómmálaviðhorfið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.