Morgunblaðið - 13.05.1967, Síða 1
54. árg. — 106. tbl.
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fr&mboðslisti Sjálfstæðisflokksins í IMorðurlandskjördæmi vestra
1. Séra Gunnar Gíslason,
Glaumbæ.
2. Pálmi Jónsson, bóndi, Akri„
3. Eyjóliur Konráð Jónsson,
ritstjóri, R.
4. Óskar Levý, bóndi, Ósum.
5. Þoríinnur Bjarnason,
sveiitarstj. Skagaströnd.
6. Björn Daníelsson, skóla- 7. Jóhannes Guðmundsson, 8. Andrés Hafliðason, 9. Valgarð Björnsson, læknir, 10. Bjarni Halldórsson,
stjóri, Sauðárkróki. bóndi, Auðunnarstöðum. frkvstj. Siglufirði. Hofsósi. bóndi, Uppsölum.
Listamannalaunum úthlutað
samkvæmt nýju lögunum
Bormann fundinn
í S-Ameríku?
Maður, sem svipar til hins fyrrverandi
nazista, handtekinn í Cuatemala
— 8 nýir menn í efsta uthlutunarflokki
ÚTHLUTUNARNEFND íistamannalauna hefur nú úthlutaö
102 listamönnum laun. Er þetta fyrsta úthlutun samkvæmt
lögunum um listamannalaun, sem Alþingi setti á síðastliðn-
um vetri. Hefur flokkaskipun breytzt þannig að nú veitir
nefndin aðeins samkvæmt tveimur flokkum. Nýir launþeg-
ar í 60 þúsund króna flokknum eru: Haraldur Björnsson,
leikari; Jakob Jóhannesson Smári, ljóðskáld; Jóhann Briem,
listmálari; Jón Engilberts, listmálari; Ólafur Jóhann Sig-
urðsson, rithöfundur; Sigurður Þórðarson, tónskáld; Sigur-
jón Ólafsson, myndhöggvari og Snorri Hjartarson, ljóðskáld.
Nefndina skipuðu Helgi Sæm-
undsson ritstjóri (fonmaður),
Halldór Kristjánsson bóndi (rit-
ari), Andrés Björnsson lektor,
Andrés Kristjánsson ritstjóri,
Einar Laxness cand. mag., Hjört-
ur Kristmundsson skólastjóri og
Magnús Þórðarson blaðamaður.
Listamannalaunin 1967 skiptast
þannig:
Veitt af Alþingi:
100 þúsund krónur:
Gunnar Gunnarsson
Halildór Laxness
Jóhannes S. Kjarval
Páll ísólfsson
Tómas Guðmundsson
Veitt aif úthlutunarnefndinni:
60 þúsund krónur:
Ásnaundur Sveinsson
ÍFinnur Jónsson
Guðmundur Böðvarsson
Guatemala, 12. maí — AP-NTB
LEYNILÖGREGLUMENN í
Guatemala í S-Ameríku hand-
tóku í dag aldraðan mann, er
þeir gruna ,að sé hinn illræmdi
stríðsglæpamaður Martin Bor-
mann. Maður þessi hafði að sögn
Iögreglunnar útlendingslegt yfir
bragð, og í ljós kom að plastísk
skurðaðgerð hafði verið gerð á
andliti hans. Þrátt fyrir aðgerð-
ina svipaði honum mjög til Bor-
manns, og er hann nú í vörzlu
lögreglunnar í Guatemala.
Fingraför hans hafa verið send
til Þýzkalands, en ríkissaksókn-
arinn í Frankfurt, Fritz Bauer,
mun rannsaka þau. Bauer hefur
Haraldur Björnsson
Sigurður Þórðarson
staðið fremst í flokki þeirra, er
leitað hafa að Bormann síðustu
árin.
Martin Bormann var hægri
hönd Hitlers á valdadögum hans
og næst æðsti maður þýzka rík-
isins. Var álitið að hann yrði
arftaki Hitlers.
Lögregluforinginn, sem sá um
handtöku mannsins í Guate-
mala, Garcia Gomez, sagði í dag,
að hann hefði verið handtek-
inn í sveitaþorpinu Mariseos 257
km. norðaustur af höfuðíborginni
Guatemala. Starfaði hann á
bóndabýli þar í nágrenninu.
Sagði Gomez, að maðurinn væri
um sjötugt, en Bormann fæddist
árið 1900.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um það, að Bormann færi huldu
höfði í S-Ameríku, en hann hef-
ur aldrei verið staðfestur. Simon
Wiesenthal, sá sem ötulastur
hefur verið við að grafa upp
verustaði fyrrverandi nazista og
stríðsglæpamenn, tjáði frétta-
mönnum í Frankfurt í dag, að
hann áliti, að Bretar hefðu tekið
Bormann höndum í NV-(Þýzka-
land, en hann hafi þá verið dul-
búinn sem þýzkur borgari. Hafi
hann verið í haldi í fangabúðum
um skeið, en einn fyrrverandi
samverkamaður hans hafi
smyglað honum út úr fangabúð
unum og farið með hann til
ftalíu, þar sem hann hafi horfið
sporlaust.
Niðurstaðan í fingrafararann-
sóknum Bauers saksóknara, er
ekki að vænta fyrr en í næstu
viku.