Morgunblaðið - 20.05.1967, Blaðsíða 1
54. árg. — 110. tbl.
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
gær og sýnir, er sendiherra ís raels í Bretlandi. H. E. Ahron Remez tók á móti forsetanum.
Forseti Israels:
Alvarleg hætta á styrjðld
Forsetinn kemur til IsSands 4. júní
Nýjar hernaðarað-
gerðir í Vietnam
Jerúsalem, 19. maí, AP
Einkaskeyti til Mbl.
„ÉG vona, að heimurinn
komi í veg fyrir, að nokkuð
gerist“, sagði Zalman Shaz-
ar, forseti ísraels á Lundúna
flugvelli í gær. Sagði hann,
að ísrael hefði engin áform
um að „gera neina árásar-
tilraun“ vegna hættuástands
þess, sem ríkti fyrir botni
Miðjarðarhafsins, en varaði
við „að stríð á okkar svæði
myndi ekki aðeins þýða
stríð á svæðinu umhverfis
okkur heldur stríð í heimin-
um öllum“. Shazar kvaðst
vona, „að heimurinn myndi
ekki leyfa, að nokkur rask-
aði friði á okkar svæði“
Forsetinn sagði, að hætt-
an á styrjöld nú væri alvar-
legri en nokkru sinni und-
anfarna mánuði, en sagði
enn fremur: „Við erum mjög
öruggir og vongóðir og gæt-
um þess vandlega af okkar
hálfu, að ekkert gerist á
þessu stigi málsins. Það þýð-
ir hins vegar ekki, að við
séum ekki áhyggjufullir
vegna ástandsins".
Forseti fsraels, lagði af
stað í morgun í opinbera
heimsókn til íslands og
Kanada. Öll ríkisstjórn lands-
ins, með Levi Eshkol, forsætis-
og varnarmálaráðherra, í broddi
fylkingar var á flugvellinum til
að kveðja forsetann, þrátt fyrir
miklar annir vegna hættu-
ástandsins í Miðausturlöndun-
uim.
fslandsför Shazars er til að
endurgjalda heimsókn herra Ás
geirs Ásgeirssonar forseta, til
ísraels á síðasta ári.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá utanríkisráðuneyt-
inu, að Shazar forseti væri
væntanlegur til íslands að
kvöldi 4. júní nk. og myndi
hann halda héðan að morgni
7. júni.
Tel Aviv, Kairo, New
York, 19. maí, AP-NTB.
EGYPZKAR hersveitir stóðu í
dag augliti til auglitis við her-
flokka ísraelsmanna á Sinai-
eyðimörkinni á sama tíma og
prestar Múhamnu • itrúarmanna
um gjörvallt Egyptaland hvöttu
hina trúuðu til að undirbúa
„heilagt stríð“ (Jihad) gegn
Gyðingum. Fregnir um þetta bár
ust skömmu eftir að XT Thant,
aðalritari SÞ varð við þeirri
kröfu Egypta að gæzlusveitir
SÞ, sem telja 3.400 her-
menn, yrðu fluttar frá Egypta-
landi og Gaza-svæðinu, sem lýt-
ur yfirráðum Egypta. Fáni Sam-
einuðu þjóðanna var dreginn
niður í bækistöðvum SÞ á Gaza
svæðinu kl. 16 að staðartíma.
Athöfnin var einföld og hátíð-
leg. Hermennirnir yfirgáfu síð-
an stöðvarnar, sem nú standa
auðar í fyrsta sinn í áratug.
Egypzkar fótgönguliðssveitir og
skriðdrekasveitir hafa tekið sér
stöðu á hinni 183 km. löngu
landamæralínu, sem skilur að
ísrael og Arabiska sambandslýð-
veldið, og eru reiðubúnar, að
Hér mun Shazar meðal ann-
ars sitja veizlu forseta íslands,
hitta ráðherra að máli og skoða
sig um í Reykj&vik og fyrir
austan Fjall.
Þar sem Shazar kemur ekki
fyrr en 4. júní mun hann vænt-
anlega fara fyrst vestur um
haf.
sögn yfirhershöfðingjans Abdel
Mortagi, til „heilagra árása á
ísrael“.
Mortagi sagði á blaðamanna-
fundi í Sinai í dag: „Þetta er
Moskvu, 19. maí. NTB.
HINN 52 ára gamli Jurij Andr-
opov, sem talinn er vera í hópi
hinna nýrri æðstu valdamanna
í Sovétríkjunum hefur verið
skipaður yfirmaður leynilög-
reglu Sovétríkjanna. Var skýrt
frá þessu í Moskvu í dag og var
það Pravda, aðalmálgagn komm
únistaflokksins, sem birti frétt-
ina.
Skýrði blaðið frá því, að
Andropov muni taka við af
Vladimir Semisjastnij, sem for-
maður „þeirrar nefndar, sem
fari með öryggismál ríkisins".
Talið er líklegt, að Semisj-
astnij kunni að hafa verið lat-
SAIGON, 19. maí, NTB. —
Bandariskar sprengjuþotur vörp
uðu sprengjum á skotmörk inn-
an borgarmarka Hanoi í dag og
samtímis héldu bandarískar og
suðurvíetnamískar hersveitir inn
á vopnlausa beltið milli Norður-
og Suður-Víetnams.
Báðar þessar aðgerðir tákna
nýtt mikilvægt skref í styrjöld-
inni í Víetnam. Af bandarískri
hálfu er samt sem áður lögð á-
herzla á það, að innrásin inn í
vopnlausa heltið þýði ekki á
neinn hátt innrás í Norður-
Víetnam.
Fyrr í dag var skýrt frá því,
að bandarískar og suðurvíetnam-
ískar hersveitir hefðu hafið
fyrstu umfangsmestu árás sína
inn í vopnlausa beltið miili
Suður- og Norður-Víetnam. Her-
sveitirnar héldu inn í hinn sér-
staka hluta hins 10 km breiða
Átök Indveijo
og Pokistnna
Nýju Dehli, 19. mai, AP.
TTL átaka kom milli hersveita
frá Indlandi og Pakistan á landa
mærum Kashmir og Pakistan í
dag. Notuðu Pakistanar sprengju
vörpur og Indverjar svöruðu í
sömu mynt.
Indverska utanríkásráðuneytið
sagði í kvöld, að ástæðan til bar
dagana hafi verið sú, að Pak-
istanar hefðu skotið á indverska
gæzlumenn á indversku lands-
svæðL
dagurinn, sem við höfum beðið
eftir. . . . sérhver hermaður í
hersveitum mínum brennur í
skinninu eftir að taka þátt í
þessu heilaga stríði".
inn víkja úr starfi sínu, vegna
þess að Svetlana, dóttir Jóseps
Stalíns, fyrrum einræðisherra,
gerðist pólitískur flóttamaður,
eftir að hafa fengið fararleyfi til
Indlands. Hún dvelur nú 1
Bandaríkjunum.
Það er öryggisnefndin, sem
ábyrgð ber á því, að slíkt far-
arleyfi er veitt. Franska frétta-
stofan AFP er þeirrar skoðunar
að þessi yfirmannaskipti í
leynilögreglunni, muni leiða til
frekari breytinga í helzta valda-
stöðum innan leynilögreglunnar
og muni ef til vill hafa í för með
sér breytingar á flokksstjórn-
inni og ríkisstjórninni
beltis á fimmtudagskvöld, en
beltið nær fimm km á hvora
vegu frá 17. breiddargráðunnL
í Hanoi var það raforkuver,
1,7 km frá miðbiki borgarinnar,
sem loftárás var gerð á. Tals-
maður bandarísfca hersins skýrði
svo frá, að flugvélar bandaríska
flotans hefðu skotið niður þrjár
MIG-orrustuþotur frá Norður-
Víetnam, á meðan árásinni stóð.
Raforkuverið fnamleiðir rafmagn
fyrir miðhluta Hanoi og til hern-
aðarlegra stöðva í höfuðborginnL
Bankarán
■ Portúgal
LISSABON, 18. maí, AP. —
Fimm hankaræningjar rænda
um 43 milljónum ísl. króna í úti-
búi Portúgalsbanka í strand-
bænum Figueira da Foz á mið-
vikudag. Er þetta mesta banka-
rán, sem framið hefur verið í
Portúgal. Ræningjarnir voru
vopnaðir og einn þeirra sagði við
bankastarfsmann skömmu áður
en þeir hurfu með þýfið, að
hann ætti eftir að heyra meira
frá þeim áður en lyki, þar sem
stjórnmálalegar ástæður lægju á
hak við ránið.
Portúgalska lögreglan hefur
sett upp vegatálmanir á öllum
þjóðvegum landsins og gætir
flugvalla og járnbrautarstöðva.
Hefur hún beðið um aðstoð
Interpol til að hafa upp á Þjóf-
unum.
Vesturveldin hafa verið vör-
uð við af hálfu israelskra stjórn-
valda, að þau muni leggja til
bardaga, ef Egyptar reyna á ein-
hvern hátt að loka Akaba-flóan-
um og hindra þannig siglingar
til ísraelsku hafnarborgarinnar
Eilath, en til þess hafa Egyptar
aðstöðu nú, og ýmislegt bendir
til að þeir muni notfæra sér
hana. Þessi afstaða fsraels hef-
ur vakið miklar áhyggjur vest-
rænna diplómata, sem hafa í dag
ráðfært sig hverjir við aðra um
ástandið við ósa Akaba-flóans.
Ef Egyptar loka flóanu-m þýðir
það, að siglingar ísraelsmanna
til Afríku og Asíu stöðvast.
Herstyrkur Egypta og Gyðinga
Þróun atburða bendir til að
Egyptar hafi náð fyrsta takmarki
sínu, sem er að sýna, að þeir séu
þess albúnir að ráðast á ísrael
hvenær sem er. Enginn vafi
er á því, að Egyptar eru betur
vopnum búnir og betur þjálfað-
ir en í Suez-deilunni. í her
þeirra eru rúmlega 160.000
manns, sem hafa yfir að ráða
1200 skrlðdrekum og nýtízku
Framhald á bls. 31
Egyptar undirbúa „heil-
agt stríð“ gegn Gyðingum
Hvatt til flutninga gæzlusveita SÞ til Israels
Nýr yfirmaður sovézku
leynilögreglunnar
*
r
i
4f