Morgunblaðið - 20.05.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.05.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAl 1967. 19 áratugi. - BJARNI Framhald af bls. 17 sjúkum. Var þá enginn Suður- nesjavegur kominn í líkingu við það sem nú er. En þetta lýsir Bjarna vel, fórnfýsi hans og skyldurækni og ég vil segja þörf til að hjálpa öðrum. Hann hefur ávallt reynt að yfirstíga hvern erfiðleika til að koma til hjálp- ar sjúkum í nauð. Þá er mér kunnugt um það, að oft lagði hann á sig mikið erfiði og eyddi miklum tíma til að hjálpa fólki frá ofdrykkju, því í þeim þungu errðleikum sem öðrum leituðu hernilin oft til Bjarna Snæ- björnssonar. Bjarna Snæhjörnssyni hefur verið sérstaklega annt um að hugsa um áldraða fólkið og lagt sig fram á margan hátt til að vinna að bættri líðan þess og aðbúnaði. Hafnfirðingar hafa að sjálf- sögðu í ríkustum mæli notið starfa Bjarna Snæbjörnssonar, en þó hefur hann mikið verið sóttur til nágrannabyggðarlaga suður með sjó og allt upp í Kjós. Vil ég nú aftur gefa Lofti Guð- mundssyni orðið, þar sem hann lýsir því er faðir hans sótti Bjarna til sjúklings í Kjósinni: „Faðir minn stóð við borðið og drakk sjóðheitt kaffi. Hann var holdvotur, en gaf sér ekki einu sinni tíma til að setjast, enn siður að hafa fataskipti, enda áttu þeir enn spöl ófarinn, hann og læknirinn, sem hressti sig á kaffisopanum uppi í baðstofu. Ég man að hann hafði við orð, að honum væri ekki fisjað sam- an, þessum unga lækni, sem nú átti sína fyrstu sjúkravitjun í Kjósina. Vélbáturinn hafði hreppt hið versta veður yfir Kollafjörðinn, rok og hauga- brim, en formaðurinn látið svo nmmælt, að lækninum hefði hvergi brugðið. Móðir mín spurði þá hvernig hann hefði reynst eftir að hann var kom- Inn á hestbak. Ég gerði ekki betur en að fylgja honum svar- aði faðir minn rólega. Andar- taki síðar voru þeir báðir horfn- ir út í myrkríð og slagveðrið, síðasta áfangann." Þegar Bjami kom til baka áetlaði hann að gista það sem eftir var nætur á heimili for- eldra Lofts og lét orð falla um það, að nú væri gott að njóta svefns og hvíldar, og Loftur heldur áfram frásögn sinni: „Og honum varð líka að þeirri osk sinni, eða hitt þó heldur. Ljósið á olíulampanum hafði varla verið slökkt, þegar guðað var á baðstofuglugga. Þar var kominn maður langt framan úr sveit. Hafði frétzt þangað um ferðir læknisins, og þar sem móðir bónda var eitthvað veik, þótti ekki nema sjálfsagt að not færa sér það, að læknirinn var á næstu grösum, að kalla. Það var kveikt aftur á olíulampan- nm, læknirinn klæddist í skyndi og að stundarkorni liðnu var hann lagður af stað út í nátt- myrkrið og slagveðrið." Og ég vil gefa fleiri samtiðar- mönnum Bjarna Snæbjörnssonar orðið: Ingólfur Flygenring, fyrrv. alþingismaður, segir í Mofgunblaðinu 8. marz 1959: „Lengi framan af hafði Bjarni fjölmargar ajúkrahúsvitjanir suður með sjó, voru bæði sam- göngutæki og vegir í slæmu ástandi ,og var hann oft vakinn upp um miðjar nætur í misjöfnu veðri til þessara ferða, en slíkt er ekki fýsilegt eftir Iangan vinnudag en aldrei æðraðist læknirinn og lagði í ferðalagið, hvemig sem á stóð.“ Og Erlendur Magnússon, bóndi á Kálfatjörn, segir í Morg- unblaðinu sama dag: „Strax varð Bjarni aðsóttur læknir ekki aðeins í Hafnarfirði, heldur og um alla Gullbringu- sýslu. Skömmu eftir að hann settist að í Hafnarfirði eða haustið 1918 barst hingað til lands sú hin mikla sótt, spánska veikin, og breiddist óðfluga um byggðir landsins. Má segja um þá tíma eins og stendur í kvæð- inu Þorgeir í Vík: „f minni er enn sú eymd og fár, sem yfir gekk þá tíð“. Eldra fólki hér í Vatnsleysustrandahreppi eru enn í fersku minni, þau miklu veikindi er þá dundu yfir og allt heimilisfólk veiktist á mörg um bæjum. En ekki verða þær minningar svo raktar, að menn minnist ekki með þakklæti og virðingu Bjarna Snæbjömsson- ar. Með slíkri ósérhlífni og fórn fýsi vann hann sín læknisstörf á þessum erfiðu tímum að fá og fátækleg orð fá því ekki lýst. Þá var erfiðara að ferðast en nú er, mjór vegur og ógreiðfær, og hvergi bílfærir afleggjarar heim á bæina eða milli bæja og varð Bjarni að fara það allt fót- gangandi oft í slæmri færð og misjöfnum veðrum. Allar þess- ar torfærur og erfiðleika yfir- steig hann með karlmennsku og dugnaði og var á ferðinni jafnt á nóttu sem degi. Var þrek hans og úthald nær óskiljanlegt. En það var sjúklingum og öðrum ómetanlegur styrkur og öryggi, sú vissa, að Bjarni læknir brást aldrei, en gegndi ávallt kalli svo fljótt, sem auðið var. Sú kynslóð, sem nú er að alast upp lærir og festir sér í minni frásagnir þessa tíma, og sagan um læknisafrek Bjarna læknis á hörmungartímum spönsku veik- innar mun lengi í minnum höfð á Vatnsleysuströnd." Afrekum Bjarna 1 spönsku veikinn hefur verið viðbrugðið. Og honum var ljóst, að hann gat lítið hjálpað ef hann færi sjálfur í rúmið, tók hann þá það ráð að reykja vindla og gerði það stöðugt í sjúkravitjunum — og víst er um það að ekki fór Bjarni í rúmið, heldur stóð hann allan tímann og leysti ótrúlega mikið og erfitt starf af hendi. Þrátt fyrir ærið starf sem læknir og langan vinnudag í þeim efnum hefur Bjarni tekið mikinn þátt í félagslífi í bæn- um og oft verið þar í forystu. Honum þykir vænt um bæinn sinn og hefur mikinn áhuga á að varðveita sögu hans sem bezt. Þótt oft væri búið að tala um verndun húss Bjarna riddara Sívertsen, þá var það fyrir for- göngu og framtaks'semi Bjarna Snæbjörnssonar, að félagssam- tök í bænum tóku höndum sam- an um endurbætur og varð- veizlu á því húsL En auk margvfslegra starfa í menningar- og líknarfélögum hefur Bjarni tekið mikinn þátt í stjórnmálum. Hefur hann unn- ið þar eins og annars staðar af alúð, samvizkusemi og dreng- skap. Hann var þrívegiis kjörinn þingmaður Hafnfirðinga og sæti átti hann í bæjarstjórn um margra ára skeið svo og í ýms- um nefndum. Hafði hann mik- inn og raunhæfan áhuga á batn- andi hag og aukinni velferð bæj arbúa og lagði þá mikla vinnu til úrlausnar mála eins og t.d. menningarmála, heilbrigð- i'S- og félagsmála, atvinnumála o.fl. Á Alþingi var sama sagan. Hann vann heilsteyptur að hverju máli, málsins vegna, án tillits til þess hverjum hlotn- aðist heiðurinn af því starfi. Hann hefur verið mikils metinn af samflokksmönnum 'sínum svo og andstæðingum, enda gjör- hugull og rökfastur í málflutn- ingi sínum. Jafnframt því sem hann gegndi trúnaðarstörfum á Al- þingi og í bæjarstjórn, var hann forystumaður í Sjálfstæðis- flokknum í Hafnarfirði og sæti átti hann í miðstjórn Sjálfstæðis flokksins. Vissi ég það persónu- lega að Ólafur Thors, sem þá var formaður flokksins, mat Bjarna mjög mikils sem mann, lækni og stjórnmálamann. Ég vil enn leiða fram orð samtíðarmannanna. Ingólfur Flygenring segir í fyrrnefndri grein sinni: „Stjórnmálin eru tímafrek og þar sem Bjarni hefur um mörg ár verði þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og setið í bæjarstjórn fyrir hann og einnig unnið mik- ið annað starf í þágu flokksins mætti ætla að Bjarni sé farinn að þreytast, en áhugi hans á þeim málum er æ hinn sami og telur hann ekki eftir sér að leggja enn á sig erfiði fyrir hin ýmsu hugðarefni sín“. Og Jón Pálmason fyrrv. al- þingismaður og forseti sam- einaðs Alþingis segir í Morgun- blaðinu 8. marz 1949: „Ég kynntist Bjarna Snæ- björnssyni ekki verulega fyrr en samvinna okkar byrjaði á Al- þingi 1933, en síðan hafa kynni okkar farið vaxandi. Hann er einn af þeim tiltölulega fáu mönnum, sem aldrei fellur skuggi á við náin kynni og sem maður treystir því betur sem viðkynningin verður lengri og nánari. Maðurinn er stilltur og prúður í allri framgöngu orð- fár og alvörugefinn, en þó glað- lyndur, ljúfur og alúðlegur hvar sem hann er að hitta. Hann er mjög greindur maður og gjör- hugull, rökfastur ræðumaður, sróðviljaður og traustur í allri starfsemi. í stuttu máli er hann maður sem á í ríkum mæli hin fornu, góðu einkunnarorð: „Hann er hvers manns hug- ljúfi.!‘ Á Alþingi naut Bjarni Snæ- björnsson óskoraðs trausts og vinsælda samflokkmanna og meðal andstæðinga var hann mjög vel metinn. Hann lagði ævinlega gott til mála og gerði sér far um að fylgja þvi einu og beita sér fyrir þvi einu sem al- þjóðarhag mætti verða til fram- dráttar. Honum er fullkomlega ljós sú ógæfa er hlýtur að leiða af ofstjórn og þjóðnýtingu. Þess vegna er hann einlægur og ein- beittur Sjálfstæðismaður og meðal frjálslyndustu manna flokksing í skoðunum." Þegar minnst er 50 ára starfs- sögu Bjarna Snæbjörnssonar þá gefur að skilja að fátt eitt er hægt að taka fram í stuttri grein. En þessi hálfa öld hefur verið viðburðarík og mikil saga skapazt meðal íslenzku þjóðar- innar og einstakra byggðarlaga. Og víst er um það að saga Hafn arfjarðar þetta tímabil verður ekki skráð ná þess að Bjarna Snæbjörnssonar læknis sé getið. Bjarni Snæbjörnsson og frú dveljast erlendis um þessar mundir. c J I c Fil sölu Jérlega glæsilegur Ford Zodiac ’60. Són Loftsson hf. iringbraut 121. — Sími 10600. Dpið í dag. ( r 1 ( 3óður vélbátur neð togveiðiútbúnaði, 35—50 smálestir óskast á eigu nú þegar í 5—6 mánuði. Upplýsingar $Btípaviðskipti Egisgötu 10 — Sími 24041. YFIR 30 METRAR AF SNÚRU SEM SNÝST Á SAMA PUNKTI. FJOLVIRKINN HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN ríkisins Mœmm í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar frá 28. júlí 1965, er hafin í Reykjavík bygg- ing 312 íbúða í fjölbýlishúsum í Breiðholti. Gert er ráð fyrir að íbúðir þessar verði af- hentar fullbúnar á tímabilinu 15. desember 1967 til 15. júlí 1968. Ennfremur verða byggð 23 einbýlishús (innflutt timburhús) sem gert er ráð fyrir að verði til afhendingar í desem- bermánuði, og janúar-mánuði 1968. Sam- kvæmt 15. gr. reglugerða sem Félagsmála- ráðuneytið hefur hinn 28. apríl 1967 sett um ofangreindar íbúðabyggingar skulu 260 íbúð- ir, sem Húsnæðismálastofnun ríkisins ráð- stafar, seldar láglaunafólki sem er í verka- lýðsfélögunum í Reykjavík auk 23 einbýlis- húsa. Ennfremur er heimilt að gefa kvænt- um iðnnemum kost á íbúðum þessum. Þeir sem telja sig eiga rétt til kaupa á íbúð- um þeim, sem að framan greinir, geta sótt umsóknareyðublöð í skrifstofu Húsnæðis- málastofnunar ríkisins, Laugavegi 77, ásamt teikningu og lýsingu á íbúðunum, upplýsingum um sölu- og greiðsluskilmála. Verða gögn þessi til afhendingar eftir þriðjudaginn 23. n.k. Umsóknir skulu ber- ast Húsnæðismálastofnun ríkisins eigi síð- ar en fyrir kl. 17.00 hinn 15. júní n.k. Reykjavík 20. maí 1967. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKiSINS LAUGAVEGI77, SÍIVll 224J53

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.