Morgunblaðið - 06.06.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1967.
BILALEIGAN
-FERÐ-
Da^gjald kr. 350,*
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDU M
BILA
LEIGfl
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
Hverfisgötn 103.
Siml eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifaliÖ í ieigugjaldL
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
SMRIfl TÍMA
OG FYRIRDOFN
f-j==*B/UUfrSAM
RAUDARARSTlG 31 SlMI 22022
Fjaffrir. fjaffrablöff. hijóffkótar
púströr oJfl. varahlutlr
I margar gerffir bifreiffa
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sum 24180.
PILTAR, .=
EFÞIÐ EIGIOUNNUSTUHA
ÞÁ Á ÉG HRINCrANA /
Æ/á'fd/7 /ÍSWt/f7é(S'ÍOf7_
! /fJ<Tter/-aer/ 8 \ ' \>C=r:
J(royd
on,
GOLFKYLFUR
heimsþekktar
í meir en 50 ár
af reynslu
og gæffum.
Keðjubréfafaraldur
„Móðir” skrifar:
„Herra Velvakandi!
Mér til sárrar hrellingar
sá ég dótftur mína vera að
skrifa ótal „keðjubréf“ í gær.
Ég man það vel, þegar ég var
ung, að þá voru alltaf að gjósa
upp svona keðjubréfafaraldur,
og maður þorði varla annað
en að hlýða þeim skipunum,
sean í þessum fíflabréifium stóðu,
því að annars átti maður á
hættu skjótan dauðdaga,
hryllilegan sjúlkdóm; alls kon-
ar ógæfu yifir sjálifan sig og
sína nánustu, Þetta voru ógeðs-
leg bréf með hótunum, og
ætti auðvitað að kæra slíkar
bréfasendingar og draga bréf-
ritarana íyrir lög og dóm fyrir
hótanaskrif, jafnvel þótt þeir
geri ebki annað en endurrita
þeim send bréf. í>eir setja þó
alla vegna nöfn sín undir þau
og gerast þar með ábyrgir að-
iljar lögum samikvæmf. Nú er
lengra gengið en áður, þannig
að krafizt er peninga.
Nú vil ég i fylistu alvöru
Skora á alla, sem siík brétf fá,
að senda umsvifalaust kæru á
sendanda til sakadómara, þar
sem krafizt er málrannsóknar
og opinberrar ákæru á hendur
sendanda vegna hótana og
fjárkúgunar. í>ó að ekki kæmi
annað til en frímerkjakostnað-
ur, þá er það „peningaplokk-
ení“ og „blaok-mail“ af svört-
usbu gráðu.
Virðingarfyllst,
Húsmóffir".
Unglingavandamál
og hlöðuballatízkan
„Móðir“ skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Það er mikið talað um
unglinga og unglingavandamól.
Og mörg eru vandamálin. En
eru ekki mörg þeim fullorðnu
að kenna?
Ég hef töluvert umgengizt
unglinga og séð til þeirra.
Þetta eru yfirleitt myndarlegir
einstaklingar og mjög sjálf-
stæffir. En yfirleitt góðir ungl-
ingar, sé rétt að þeim fiarið.
Ég las ályktun barnaverndar-
nefndar um unglingatizku. Ég
átti þess ekki kost að sjá þá
sýningu. En þótt ég sé nokkuð
við aldur, finnst mér margt af
þessum nútíma klæðaburði
mjög fallegur ög klæðilegur.
En það er annað, sem mér
finnst, að barnavenndarnefnd
ætti miklu fremur að beita sér
fyrir. Það er að unglingar
komi efcki í gallabuxum og
peysum á dansleiki. Ég hef séð,
að í flestuim ef ekki öllum bús-
um hór austan fjalls eru tölu-
vert margir í slíkum föitum,
ungar stúlkur jafnvel í stígvél-
um. Svona búnum er þeim
hleypt inn, hvað sem annars
félagsbeimilin eru falleg og
nýtízíkuleg. Er ekki óhollt að
venja unglinga á slíkt hirðu-.
leysi? Fylgir því hirðuleysi
ekki fleira? Þarna ættu þeir
fullorðnu, sem þessum húsum
ráða, að koma til.
Svo er annað: Engar auglýs-
ingar um aldurttakmark, sem
einungis er til blekkingar og til
þess eins að kenna ungiingun-
um virðingarleysi ifyrir lögun-
um. >ví aldurstakmarkið er
næstum undantekningarlaust
bara auglýsingin.
Með þakklæti,
Móðir".
Hvernig ná krakkar
í brennivín?
„Héiðraði V-elvakandi!
í pistium þínum hefur oft
verið drepið á vín og vín-
neyzlu í okkar ágæta landi,
svo að það er ef til viH að
bera í bakkafullan lækinn að
bæta þar við, en ég ætla nú
samt að láta verða af þvL
Laust eftir siðustu áramót
var opnuð vínútsala hér í bœ
og varð það mikið fagnaðar-
efni fyrir ýmsa Eyjabúa og
gesti Eyjanna. Hrifning
manna var svo mikil, að frá
föstudagsmorgni til hádegis á
laugardag (fyrstu helgina) var
selt áfengi fyrir rúmlega hálfa
milljón króna, og þegar
þessi blöð eru rituð, er búið að
selja áfengi fyrir rúmar fimm
milljónir.
Menn eiga ef til viU ekki að
vera að skipta sér af, þótt íull-
orðið fóik drekki frá sér vitið,
eh í þessum bæ, sem og annars
Staðar, hafa verið brögð að því,
að unglingar drekki áfenga
drykki, og hefur mönnum þótt
þetta far.a mjög vaxandi hér,
síðan þetta hof Bakkusar var
opnað.
Nú spyr ég: Hvar fá ungl-
ingar, á aldrinum 15—18 ára,
vín? Hvaðan? Getur það ver-
ið, að einhverjir séu svo lúa-
legir að kaupa vin fyrir þetta
æskufólk? Skyldi svo nú vera,
þá þarf að hafa hendur í hári
þeirra og draga þá fyrir dóm-
stólana. Gæti það skeð, að af-
greiðslumenn þessarar stofnun
ar veigri sér við að biðja há-
vaxinn, stæðilegan, ungan
mann um að sýna nafnskír-
teini, eða ef um unga konu
væri að ræða, sem bæri gift-
ingarhring, og þeir í vafa um
aldur hennar, að frekar en að
eiga á hættu að móðga hana,
þá láti þeir eins og ekkert sé?
Með þessu er ég alis ekki að
luliyrða, að þetta sé svona, en
ef svo skyldi vera, þá þarf hér
úrbóta hið bréðasta. Mæður
og feður, eruð þið ánægð með,
að böm ykkar geti óhindrað
fiengið áfiengi með einhverjum
leiðum og þannig áitt á hættu
að eyðileggja iíf siitt áður en
það er raunverulega byrjað?
Það er ykkar réttur, að lögun-
um sé framfylgt og börn ybk-
ar vernduð gegn þessu böli, og
þið eigið hekntingu á, að
þeir menn, sem hugsanlega
gerðu sig seka um ofanskráð
afbrot, verði látnir finna, að
þeir geta ekki breytt lögunum
eftir vild sinni
Með þakklæti fyrir birtinguna,
Kennari í Vestmannaeyju«n“.
Enn um G- og I-listana
í pistlinium á laugardag
reyndi Velvakandi að skýra að
gefnu tilefni, hvernig laga-
flækjur leiða til þess, að þeir,
sem greiða Hannibalslistanum í
Reyk j avík (I-listanum) at-
kvæði á sunnudaginn, eru með
því að stuðla að finamgangi
annars lista, G-listans, sem
Magnús Kjartansson er etfstur
á. Lesendur hafa taiað við Vel-
vakanda og spurt um það, á
hvern hátt Alþingi sjólft geti
haft áhrif á það, bvernig upp-
bótarsætum er úthlutað. Vel-
vakandi á ekki sérlega létt
með að greiða úr lagaflækjum,
en þar sem þetta er mikilvætgt
mái, vill hann mega segja
þetta:
1) Við kosningarnar 1
Reykjavik 11. júní er kosið
beint um 12 þingsæti. Þeim
verður skipt eftir venjulegum
regílum milli þeirra 6 lista, sem
eru í 'kjöri.
2) Að kosningum loknum út-
hluitar landskjörstjórn 11 upp-
bótarsætum til jöfnunar milli
þingflokka. Ljóst er að land-
kjörstjórn mun ákveða, hve
marga af þessum 11 uppbótar-
þingmönnum Alþýðubaindalag-
ið fær, á þennan háitt: Hún
leggur saman atkvæðabölur,
sem G-lietarnir fiá í öilum 8
kjördæmum landsins. Við þá
útkomu leggur hún atkvæðatöl
ur I-listans í Reyfcjavílk. Al-
þýðubandalagið fær síðan upp-
bótarþingsæti miðað við þessa
tölu. Þvi hærri, sem útkoman
hjá 1-listanum hans Hannibaia
verður, því fleiri uppbótar-
menn tfær þess vegna Alþýðu-
bandalagið.
3) Þegar Alþingi kemur
saman að loknum kosningum,
verða kjörbréf lögð fram, þar
á meðal kjönbréf uppbótar-
manna. Hið nýja Alþingi sker
síffan sjálft úr því, hvort þess-
ir menn séu Iöglegir Alþingis-
menn. Þeir þingmenn, sem
hafa umdeild kjörbréf, svo
sem verða kann um einhverja
af uppbótarþingmönnum Al-
þýðubandalagsins, mega taka
þátt í atkvæðagreiðslu um rétt
sjálfna sín til að sitja AlþingL
Má Velvakandi enn lengja
þetta tal sitt um hið dularfuila
samband G- og I-listanna með
því að minna á, að G-listamenn
afneita öllum lista Hannibala.
Aðstandendur þess lista báru
hann hins vegar fram í nafni
Alþýðubaiidaiagsins, og Hanni-
bal er hvorki meira né minna
en formaður þess. Efflilegt
hefffi veriff, aff hann hefði feng
iff hluta af tíma Alþýffubanda-
lagsins í umræðum í hljóff-
varpi og sjónvarpi. Það varð
efcfci, en um það er við að-
standendur G-listans eina að
sakast, því að þeir réðu þvi,
hverjir kornu fram í natfni Al-
þýðubandalagsins.
íbúð til leigu
nú þegar. 5 herb. íbúð í Hlíðahverfi. Tilboð sendist
Mbl. merkt: „2282“.
íbúð óskast!
2ja—3ja herbergja íbúð óskast til leigu strax eða
1. júlí. Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. júní merkt:
„Nauðsyn — 8624“.
Skíðaskóhnn
í Kerlmgafjöllum
Simi 10470
mánud. — föstud. kl. 4—6,
taugard. kl. 1—3.
Bjarni Beinteinssom
LÖGFR/EÐINGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (SIU1.I » VALMf
sImi i3sa«
-♦