Morgunblaðið - 15.08.1967, Síða 14

Morgunblaðið - 15.08.1967, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. AGÚST 1967 r rr r- r- -*• —-*■ -* Úitgefahdi: Framkvæmdastjóri: iRitstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn og afgreiðsla: Auglýsingar: í lausasölu: Askriftargjald kr. 105.00 Uf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá.Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími IO-iIOO. Aðalstræti 6. Sími 02-4-80. 7.00 eintakið. á mánuði innanlands. ) STAÐA ÞJÓÐARBÚS- INS FRÁ STYRJALD- ARLOKUM T nýútkomnu hefti af Fjár- málatíðindum birtist grein eftir dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóra, sem bygg- ist á erindi, er hann flutti á fundi í Verzlunarráði íslands 22. apríl s.l. Rekur hann þar þróun gjaldeyrismála Islend- inga allt frá styrjaldarlokum og þá þýðingu, sem öflugur gjaldeyrisvarasjóður hefur. Hann bendir á að fyrsta ára- tuginn eftir styrjöldina hafi íslendingar búið við stöðugan greiðsluhalla, sem hafi verið jafnaður með óafturkræfu framlagi frá Bandaríkjunum, sem nam samtals um 1700 millj. króna á núverandi gengi, en við það er hvar- vetna miðað þar sem tölur eru nefndar. Síðan er að því vikið, að þegar kom fram á árið 1954 hefði mátt heita að tekizt hefði að vinna bug á erfiðleikum eftirstríðsáranna og var á því ári mjög lítill halli á greiðslujöfnuðinum og var nettógjaldeyriseign bank- anna í árslokin 634 milljón króna. Erlendar skuldir voru aðeins rúmar 1000 milljónir svo að áætlað er að nettó- skuldastaðan við útlönd, það er að segja heildarskuldir, bæði opinberra og einkaaðila að frádreginni gjaldeyriseign, hafi aðeins numið 461 millj. króna. Síðan segir orðrétt: „Þessi dýrð stóð þó ekki lengi. Þegar á árinu 1955 snerist greiðslujöfnuðurinn aftur til hins verra og var or- sakanna að leita í verðbólgu- þróun innanlands, bæði vegna óhóflegrar peninga- þenslu og launahækkana. Hófst nú nýtt tímabil mikils greiðsluhalla, er náði yfir ár- in 1955—59 og gjarnan mátti kalla uppbótatímabilið, þar sem það einkenndist af hinu víðtæka uppbótakerfi, sem þá þróaðist ár frá ári, samfara víðtækum höftum. Öll þessi 5 ár var mikill halli á heild- arviðskiptajöfnuðinum við útlönd, það er að segja við- skiptum með vöru og þjón- ustu, og nam hallinn samtals yfir 2000 millj. króna, eða 413 millj. að meðaltali á ári. Þessi halli var jafnaður með tvennu móti. Annars vegar rýrnaði gjaldeyrisstaðan um nær 800 millj. og voru bank- arnir komnir í 144 millj. króna nettóskuld við útlönd í árslok 1959. Hins vegar voru á þessu tímabili tekin mikil erlend lán til langs tíma og þá sérstaklega á vegum ríkis- ins. Hækkuðu opinberar skuldir við útlönd á þessum 5 árum um nærri því 1400 millj. króna, eða um 280 millj. króna á ári. Var hér einkum um að ræða löng lán með hagstæðum kjörum, sem að miklu leyti voru tekin fyr- ir milligöngu Bandaríkja- stjórnar. í árslok 1959 voru nettó- skuldir þjóðarbúsins komnar upp í 2685 millj. króna á móti 461 millj. árið 1954. Rýrnun heildarstöðu þjóðarbúsins út á við varð því samtals 2200 millj. á aðeins 5 árum, enda var nú svo komið, að óhjá- kvæmilegt var að grípa til róttækra ráðstafana til þess að stöðva áframhaldandi greiðsluhalla og bæta stöðuna út á við. Óhugsandi var að brúa bilið lengur með erlend- um lántökum af því tagi, sem stuðzt hafði verið við á þessu tímabili, en jafnframt var gjaldeyrisstaðan orðin svo al- varleg, að nærri lá greiðslu- þroti erlendis, er haft hefði getað ófyrirsjáanlegar afleið- ingar fyrir lánstraust þjóðar- innar. Þetta alvarlega ástand var í rauninni meginástæðan fyrir nauðsyn hinna róttæku aðgerða í efnahagsmálum, sem gerðar voru snemma á árinu 1960.“ Hér er lýst hinu alvarlega ástandi, sem skapaðist á tím- um vinstri stjórnarinnar af stjórnleysi því og uppbóta- stefnu, sem þá var fylgt, svo að lá við greiðsluþroti þjóðar- innar. Síðan víkur banka- stjórinn að því, að góðan mælikvarða á greiðslugetu þjóðarbúsins megi fá með því að nettóskuldir við útlönd á hverjum tíma, séu reiknaðar sem hlutfall af heildartekjum af útflutningi á vörum og þjónustu. Sé það gert, kemur í Ijós að þetta hlutfall var í lok ársins 1959 komið upp í 65,3%. En í árslok 1966 voru nettóskuldirnar komnar nið- ur í 32,2% af gjaldeyristekj- unum. ÞÝÐING GJALD- EYRISVARA- SJÖÐSINS T grein sinni í Fjármálatíð- * indum fjallar dr. Jóhann- es Nordal um gjaldeyrisstöð- una og þá miklu breytingu sem orðið hefur á hlutfallinu Tékknezkur rithöfundur # £ fer til Israels — í mótmœlaskyni við stefnu stjórnar sinnar varðandi deilu ísraels og Araba Vín, 11. ágúst — AP TÉKKNESKUR rithöfundur, Ladislav Mnacko, er lagöur af stað til ísraels í mótmæla- skyni við „and-gyðinglega“ stefnu stjómar sinnar í deil- um landanna fyrir botni Mið- jarðarhafsins og það þótt hann viti að yfir honum kunni að vofa handtaka við heimkomuna, að því er útgef- endur hans í Austurríki segja. Talsmaður útgáfufyrirtæk- isins Fritz Molden í Vín, sem gefur út verk Mnackos, s-agði í dag, að Mnacko hefði lagt upp frá Feneyjum sjóleiðis áleiðis til ísraels á ítölsku skipi og hefði farið með hon- um kona hans fyrrverandi. Kvað Mnacko för sína mót- mæli gegn and-gyðinglegri stefnu og áróðri tékknesku stjórnarinnar og kvaðst gera sér þess ljósa grein að hon- um kynni að verða stefnt fyr ir rétt við heimkomuna. Mnacko ætlar sér að vera um kyrrt í ísrael unz tékkneska stjórnin tekur aftur upp stjórnmálasamband við land- ið, en það var rofið þegar til átaka kom með ísrael og Arabaríkjunum í júní-byrjun. Mnacko var að vinna að bók um styrjöldina í Vietnam eftir að hafa starfað nokkurn tíma sem stríðsfréttamaður fyrir komúnista í Vietnam þegar_ stríðið blossaði upp milli fsrael og Aralbaríkjanna. „Þá neitaði Mnacko að láta gefa út bókina um Vietnam og sagði, að ekki væri rétt að skrifa um Vietnam-stríðið meðan átök væru með þjóð- unum fyrir botni Miðjarðar- hafsins", sagði talsmaður út- gáfufyrirtækisins. Höfundurinn sagði einnig útgefendum sínum að í bók- inni sem hann hyggðist skrifa í ísrael myndi hann setja fram þá kenningu sína að stórveldin hafi gert það að venju sinni að saka smáríki um að vera árásaraðili þegar til átaka komi, og kvaðst myndu bera til baka þá al- mennu skoðun kommúnista að Ísraelsríki væri árásarað- ilinn í stríðinu við Arabarík- in en Arabar fórnarlömíbin. Mnacko kvaðst einnig fjalla um Vietnam-styrjöldina í bók inni um ísrael. í yfirlýsingu sem birt var í v-þýzka blaðinu „Frank- furter Allgemeine Zeitung", sagði Mnacko að hann væri knúinn til þessarar ferðar sinnar af þeirri sannfæringu að ekki væri vegur að styðja stefnu sem miðaði að því að „gjöreyða heilli þjóð og má út af jörðinni". Með skilaboð frá Johnson forseta Kaíró og Amiman 12. ágúst AP—-NTB. DAGBLAÐIÐ A1 Ahram í Kairó bkýrði frá því í dag, að Tító Júgóslavíuforseti hefði fengið mikilvæg skilaboð frá Moskvu 'áður en hann lagði af stað í för Sína til Egyptalands, þar sem hann hefur rætt við Nasser for- seta um leiðir til að leysa deilu Araba og ísraelsmanna. Ekki Segir blaðið hver þessi skila- boð hafi verið. Blaðið hefur eft- ir háttsettum júgóslavneskum embættismanni, að Tító hafi ekki haft tilbúna málamiðlunartillögu er hann kom til Kairó. Þá segir blaðið, að höfuðtilgangur heim- sóknarinnar sé að gera öllum ljóst að Júgóslavía standi með Aröbum í deilum þeirra við fsraelsmenn. Abdel Rahman Aref, forseti Iraks kom til Amman í Jórdaníiu í dag í tveggja daga heimsókn til að ræða við Hussein konung um sameiginlegar aðgerðir Ar- abaþjóðanna gegn ísrael og til að kanna írakskar herstöðvar I Jórdaníu. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1958 að írakskur þjóðhöfð- ingi kernur í heimsókn til Jór- daníu. Fregnir frá Amman herma að Hussein Jórdaníukonungur muni heimsækja öll Arabalöndin á næstu tveimur vikum. Tilgang- urinn með heimsóknum þessum er að hitta alla leiðtogana áður en ráðstefna arabískra þjóðhöfð ingja hefst í byrjun næsta mán- aðar. á milli hennar og erlendra skulda. „í fyrsta lagi hefur gjald- eyrisstaðan breytzt úr 144 milljón króna skuld í árslok 1959 í nettóinnstæðu að upp- hæð 1915 milljónir í árslok 1966. Hefur því gjaldeyris- staðan batnað á þessu tíma- bili um nær 2060 milljónir, en hafði rýrnað um nær 780 millj. næstu 5 ár á undan. í öðru lagi hafa skuldir opinberra aðila aukizt um 476 millj. á þessu tímabili, en það er miklu minni aukn- ing en næstu 5 ár á undan, þegar þær jukust um nær 1400 milljónir. í þriðja lagi hafa einkalán, einkum vegna innflutnings skipa og flugvéla aukizt stór- kostlega eða um 1244 millj. enda hafa þau skapað grund- völl hinna stórfelldu upp- byggingar skipa- og flugvéla- flota þjóðarinnar, sem átt hefir sér stað á þessum árum. Loks hafa svo stuttar vöru- kaupaskuldir aukizt á þessu tímabili um rúmar 600 millj. og þó hér sé að formi til um stuttar skuldbindingar að ræða, eru þær það ekki frá sjónarmiði þjóðarbúsins, þar sem þær endurnýjast stöðugt á meðan lánstraust þjóðar- innar er óskert.“ Síðan er að því vikið hvaða þýðingu gjaldeyrisvarasjóð- urinn hefur og svarað þeirri spurningu, hvort ekki væri eðlilegast að nota hann til að greiða skuldir okkar. Er þar vitnað til fordæmis annarra þjóða, sem telja gjaldeyris- varasjóð nauðsynlegan, og er reglan sú að forðinn sé ná- lægt 40% af árlegu innflutn- ingsverðmæti. Bent er á hið almenna öryggi, sem í því er fólgið fyrir þjóðarbúið, á sama hátt og fyrir fyrirtæki og einstaklinga, að eiga ætíð upp á að hlaupa eigin vara- sjóð, en vera ekki öðrum háðir, þegar erfiðleikar steðja að. Þá sé gjaldeyrisforði nauð synlegur til þess að unnt sé að halda uppi frjálsum inn- flutningi og gjaldeyrisvið- skiptum, en minnsti sam- dráttur í gjaldeyristekjum, jafnvel þótt um tímabundnar sveiflur væri að ræða, hlyti að neyða gjaldeyrisyfirvöld til þess að takmarka innflutn- ing og gjaldeyrissölu með beinum höftum, ef ekki væri um að ræða slíkan sjóð. Þá gerir gjaldeyrisvarasjóðurinn stjórnarvöldum mögulegt að reka samfelldari og heilbrigð- ari efnahagsstefnu og loks hafi gjaldeyrisforðinn mikil áhrif á almennt viðskiptalegt traust þjóðarinnar út á við og þá ekki sízt á lánstraust hennar erlendis. Síðan segir: „Mikilvægi góðs lánstrausts kemur enn betur í ljós, ef menn hafa í huga, að afborg- anir af erlendum skuldum nema nú nær 500 millj. króna á ári, svo að nýjar lántökur þurfa að nema að minnsta kosti þeirri fjárhæð árlega til þess að erlendar skuldir séu óbreyttar og íslendingar fari ekki að flytja út fjár- magn í formi afborgana af lánum. Ef þjóðin glatar láns- trausti sínu vegna veikrar gjaldeyrisstöðu, svo að mestu 1:aki fyrir nýjar lántökur, hljóta þessar afborganir að leggjast með miklum þunga á gjaldeyristekjur þjóðarinn- ar. Ég held að við hafi legið að slíkt ástand skapaðist á árinu 1959 með ófyrirsjáan- legum afleiðingum fyrir efna hagslíf þjóðarinnar.“ Vissulega hefur það nú sannazt, þegar við íslend- ingar höfum átt við sérstaka erfiðleika að etja vegna afla- brests og verðfalls, hverja þýðingu gjaldeyrisvarasjóð- urinn hefur haft og hve fár- ánleg hefur verið sú stefna Framsóknarforingjanna að berjast gegn því, að við tryggðum hagsmuni okkar með því að hafa öfluga gjald- eyrisvarasjóði meðan sæmi- lega áraði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.