Alþýðublaðið - 22.04.1930, Blaðsíða 2
6
▲BPVÐHHBAÐIÐ
Bœlarvfnnn^
kauplð.
Hvers vegna hafa þeir menn,
sem vinna hjá bæmim við gatna-
gerð, minna kaup en aðrir hér
í bæ, þar sem gatnagerð er oft
óþrifaleg og sízt hægri en
önnur erfiðisvinna ? Til saman-
burðar: Þeir, sem vinna hjá höfn-
inni, hafa til jafnaðar á viku
hverri 13 krónum meira. Þessir
menn hjá bænum og höfninni
vinna oft hlið við hlið sömu
vinnu og sízt betri hjá þeim fyr
töldu, en þeir fá 13 krónum
minna fyrir viku hverja. Það er
petta, sem mig langar til að gera
aö umræðuefni og spyrja góða
menn, sem lesa þetta, hvort
þeim sýnist ekki sama og mér,
að þetta fyrirkomulag sé rangt
Setjum svo að það liggi í þvi,
að til bæjarins hafi valist ónýtari
menn, sem afkasti minnu en
aðrir. Það er ekki sennilegt. Þó
getur slíkt komið fyrir.
Annað mætti nefna, svo sem
eins og það, að lágmarkskaups-
menn þeir, er hjá bænum vinna,
séu við sveit, svo það þyki ekki
taka því að greiða þeim fult
kaup.
Hvorugt þetta, sem hér hefir
verið nefnt, virðist ráða þessa
gátu, en eitthvað hlýtur þó að
vera þess valdandi, að þessir
menn, sem eru þama í vinnu,
ganga frá með svo gífurlega
skar'ðan hlut.
Mér, sem þetta rita, er vel
kunnugt um að í þessum verka-
mannaflokki em margir barna-
menn, sem hafa á þessum litlu
launum sínum frá fimm upp í
átta og tíu fram aö færa.
Nú má geta þess nærri, hvern-
ig það muni ganga yfir veturinn,
þegar vinnutíminn er til dæmis
6 tímar og vikukaupið 44 kr.,
falli enginn dagur úr.
Það má geta þess, að í vetur
var unnið hjá höfninni og þeim,
sem þar unnu, borgaðar 70 kr.
um viku hverja. Hefir þvi verið
26 króna munur á vikunni hjá
bæjarvinnumanninum á móts við
hina, sem voru hjá höfninni.
Þetta er dálítið til athugunar,
þar sem hvorttveggja var greitt
úr bæjarsjóði eða sama sem.
Það hefir gengið kauphækkun-
ar-„plága“ nú um nokkur und-
anfarin ár yfir þjóðina, en alt
hefir það verið hjá yfirstétta-
mönnum. Þeir góðu menn hafa
þózt fá of lítið hækkaða dýrtíð
og ýms fríðindi, sem þeir hafa
beðið um og fengið. Það er ekki
af því að mér finnist rangt af
þingi né þjóð að veita þeim þess-
ar raunabætur nú, en ég vil
benda vinum mínum og sam-
verkamönmun á þann sannleika,
að við höfum ekki minni á-
stæðu til að kvarta og þurfum
heldur ekki að skammast okkar
fyrir það. Þar hafa okkur meiri
menn gengið á undan og gefið
okkur góða fyrirmynd. Skulum
við því bræður feta drjúgan á
eftir hinum stærri í öllum kaup-
kröfum, haldandi fast á okkar
málum og hvergi víkja frá réttu.
Verkamáður.
Alþingi.
Lðg.
Þessi lög wru afgreidd á mið-
vikudaginn:
Breytingin á áfengisvamalög-
unum var lögtekin (í n. d.). Þar
eru til bóta þau ákvæði, sem
eftir standa úr hinu upphaflega
frv., að ónýta skuli bruggunará-
höld, sem gerð eru upptæk, og
að brot á reglugerðum, sem sett-
ar eru samkvæmt áfengisvarna-
lögunum, varði sektum. Hins veg-
ar kom íhaldslið efri deildar á-
kvæði inn í lögin, sem gerir
bruggurum auðveldari undan-
brögð frá maklegum skellum fyr-
ir klæki sína. Þrátt fyrir það
þótti þessum 7 of mikið bann-
mannabragð að þéim ákvæðum
frv. Stórstúkunnar, sem komust
gegn um þingið, og greiddu þeir
atkvæði gegn lögunum: J. A. J.,
Lárus, Einar á Geldingalæk, ól.
Thors, Hákon, Gunnar og Ben.
Sv.
Þessir vegir voru teknir í pjóð-
vegatölu (afgreitt í e. d.): Skeiða-
braut í Árnesssýslu, Landbraut i
Rangárvallasýslu, Borgarfjarðar-
braut frá Gljúfurá að Kláffoss-
brú, Laxárdalsvegur frá Búðardal
og áfram yfir Laxárdalsheiði,
Vestfjarðavegurinn frá Hnífsdal
að Gemlufalli við Dýráfjörð,
Vesturhópsvegur og Skagastrand-
arvegur í Húnaþingi, Hofsóss-
braut, Eyjafjarðarbraut frá Ak-
ureyri að Saurbæ, Kópaskers-
braut, Llthéraðsvegur austan Lag-
arfljóts og Hafnarbraut við
Hornafjörð. Þá komi og Fljóts-
hlíðarvegur að Teigi og þar yfir
Þverá í stað Landeyjavegar. og
í stað Tunguheiðarvegar milli
Húsavíkur og Kelduhverfis verði
þjóðvegurinn umhverfis Tjörnes.
Heimildarlög til skurðgröfu-
kgupa (afgreitt í e. d.): Heimild-
nær til að kaupa eina skurð-
gröfu á ári fyrst um sinn. Einn-
ig er stjórninni heimilt að láta
gera tilraunir um smíði á þeim.
Skurðgröfurnar skulu lánaðar
landþurkunar- og áveitu-félögum.
Fjárlög.
Á skirdagsnótt voru fjárlögin
afgreidd og gekk meiri hlutinn í
neðri deild að þeim óbreyttum,
en feldi allar breytingatillögur.
Um þenna bræðing „Framsókn-
ar“ og hluta af íhaldsliðinu og
hvað hann kostaði verður getið
bráðlega.
Meðal tillágna þeirra, sem þá
voru feldar, voru þessar tvær,
er Haraldur Guðmundsson flutti:
l)Framlag til taugakerfa í raf-
orkuveitum til almenningsþarfa
70 þús. kr. og 2) ábyrgð fjrir
alt að 900 þús. kr. láni fyrir
Siglufjarðarkaupstað til raforku-
veitu. Jón á Reynistað og Pétur
Ottesen, flutningsmenn rafmagns-
veitufrv. íhaldsmanna, greiddu
atkvœði gegn fjárveitingunni til
rgforkuveitanna, og þriðji flutn-
ingsmaður rafmagnsfrv., Magnús
Guðmundsson, greiddi ekki at-
kvœði. — Ábyrgðin fyrir Sigl-
firðinga til raforkuveitu þar hafði
áður verið samþykt í neðri deild,
en síðan feld í efri deild.
Einar á Geldingalæk flutti tií-
lögu run, að styrkurinn til Stór-
stúkunnar yrði aftur lækkaður úr
10 þús. í 8 þús. kr„ en þegar
hann sá, að allar breytingatillög-
ur voru feldar, hætti hann við
að láta þetta áhugamál sitt koma
til atkvæða. —
I stað þess að lögleiða einka-
sölu ríkisins á tóbaki og afla rík*
inu þar með tekna, hafa áætlun-
arliðir fjárlaganna verið hækk-
aðir, til þess að lögin líti betur
en ella út á pappírnum, en auð-
vitað hækka tekjurnar ekkert við
það. Gjöld samkvæmt fjárlögum
eru ákveðin kr. 12 821 744,25, en
■tekjur áætlaðar 12 816 600 kr. og
er þá sú áætlun tæplega í jafn-
vægi, — rúmlega 5 þús. kr. halli.
Auk þess eru lögboðin útgjöld,
sem ekki eru tekin upp í fjár-
lögin, sennilega um 1/2 miljón kr„
þar af fara 360 þús. kr. í vexti'
og afborganir af því fé, sem
,,Framsókn“ og íhald samþykti
að ríkið legði fram til íslands-
banka sáluga. Af tekjum ríkisins
eru beinir skattar, tekju- og
eigna-skattur og fasteigna-skatt-
ur, að eins tæpur fjórði hluti á
móts við tollana. — Framlag rík-
isins til verklegra framkvæmda
er 3 260 þús. kr.
Fjárveiting til Vestmanna-
eyjahafnar, 110 þús. kr„ fjárauka-
lög fyrir árið 1928, að upphæð
kr. 1,252 946,49, fjáráukalög fyrir
árið 1929, upphæð kr. 606118,28,
.og sampykt á landsreikningnum
1928 fengu einnig laga-afgreiðslu
(í e. d.). — Niðurstöðutölur lands-
reikningsins eru rúml. 14 400 þús.
kr.
Önnur pingmál.
Y firskoðunarmenn landsreikn-
inga voru kosnir: Pétur Þórðar-
son í Hjörsey, Hannes Jónsson
alþm. og Magnús Guðmundsson.
Þingsályktunartillaga Alþýðu-
flokksfulltrúanna um nýja kjör-
dœmaskipun var tekin út af dag-
skrá í sameinuðu þingi og los-
uðu „Framsóknar“-mennirmr sig
þar með við að greiða afkvæði
um hana; en hugur þeirra og í-
haldsmanna til réttlátrar' kjör-
dæmaskipúnar komu ótvírætt í
ljós við umræður þær, sem áður
urðu um málið, svo sem frá hefir
verið sagt hér í blaðinu.
Tóbakseinkasalan komst gegn
um 2. umræðu i e. d„ en stjóm-
in sá svo um, að frv. kom ekki
til síðustu umræðu, heldur léf
hún málið daga uppi.
Hafnargerðirnar þrjár vom
einnig samþyktar við 2. umræð*
í e. d„ en nógu margir „Fram-
sóknar“-flokksmenn neituðu unt
afbrigði til þess, að þær kæmw
sama dag til 8. umræðu. Við Z,
urnræðu voru þau frv. samræmd
þannig að tillögu Erlings Frið-
jónssonar, að héruðin leggi jafn-
óðum fram 1/5. hluta kostnaðar,
eins og jafnan var gert ráð fyrii
í frv. um hafnargerð á Dalvík,
en var nokkni minna hlutfalls-
Jega í frv. um hafnargerð á Akra-
nesi og næstum ekkert í frv. um
hafnargerð á Sauðárkróki.
Sauðnautakaupin fóm gegn um
aðra umræðu af tveimur í e. d.
og dagaði tillagan þar með uppL
Frv. um breytingar á lögum um
Byggingar- og landnáms-sjóð
fóru gegn um 2. og 3. umr„ var
breytt og komu aftur til neöri
deildar. Þar var neitað um af-
brigði til þess að frv. væri af-
greitt þá um nóttina.
Fundi í neðri deild lauk kl.
að ganga 5 á skirdagsmorgun.
Endaði hann á því, að ekki náð-
ist ályktun um jarðræktarstyrk-
inn, — komu ekki fram nógu
mörg atkvæði til þess.
Þingi frestað.
Á laugardaginn var þingi^m
frestað þangað til á alþingishátiðí-
inni. Var það 93. dagur þess að
helgidögum með töldxun. Haldn-
ir voru samtals 178 þingfundir,
þar af 85 í neðri deild, 83 í efri
deild og 10 í sameinuðu þingi.
Fyrir þingið komu samtals 143
mál, þar af 118 frumvörp og af
þeim 31 stjórnarfrv. Þingsálykt-
unartillögur komu fram 22 og
3 fyrirspurnir.
Afgreidd voru 51 lög og vons
fjárlögin þau síðustu. Feld voru
6 frv., 3 afgreidd með dagskrá,
2 vísað til stjómarinnar, en 56
dagaði uppi, þar af 11 stjómar-
frumv.
Gerðar voru 9 þingsályktanir
og auk þess lofaði stjómin að
taka tillöguna um miðunarvita til
greina, þótt hún kæmi ekki til
atkvæða. Svo var talið, að 6
þingsályktunartillögur hafi verið
feldar. Aðrar 6 dagaði uppi.
Verkfall.
London (UP.) 19. apríl, FB. Frá
Tokio er simað: Félag flutninga-
verkamanna borgarinnar hefir
lýst yfir allsherjarverkfalli, er
hefst á sunnudagsmorgun.
200 hreindýr.
Or Vopnafirði er FB. skrifað,
að hart hafíverið til hálendisins í
vetur og hafi hreindýr flúið tíl
bygða; þannig hafi 200 hreindýr
sést nálægt Fossvöllum í vetur
og víðar hafi sést hópar af þeim,
einkanlega um nýjársleytið.