Morgunblaðið - 21.08.1968, Síða 1

Morgunblaðið - 21.08.1968, Síða 1
 8 SIÐIJR — SIÐDEGISUTGAFA 179. tbl. 55. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. AGtJST 19C8 Prentsniiðja Morgunblaðsins Pragbúar grétu ú götum úti — meðan sovézkir skriðdrekar geystust inn í borgina — Dubcek og uðrir leiðtcgor í stofufungelsi Prag, 21. ágúst (AP-NTB) 0 Hersveitir frá Sovét- ríkjunum, Austur-Þýzka- landi, Póllandi, Ungverja- landi og Búlgaríu réðust í nótt inn í Tékkóslóvakíu. — Beittu innrásarsveitirnar skriðdrekum og flugvélum í sókninni, en tékknesk yfir- völd bönnuðu hermönnum sínum að verjast. £ Sókn innrásarsveitanna sóttist vel, og er landið allt hernumið, landamærum þess og Vestur-Þýzkalands og Austurríkis hefur verið lok- að, og helztu leiðtogar frjáls- ræðisstefnu Tékka hafa ver- ið hnepptir í stofufangelsi, þeirra á meðal Alexander Dubcek. 0 Moskvuútvarpið gefur þá afsökun fyrir innrásinni að tékkneskir leiðtogar hafi óskað eftir stuðningi Varsjár bandalagsríkjanna. Þessari staðhæfingu er mótmælt harðlega í Prag. Segir Prag- útvarpið að innrásin hafi ver ið gerð „án vitundar forseta lýðveldisins, forseta þingsins, forsætisráðherrans og aðalrit ara miðstjórnar tékkneska kommúnistaflokksins. % Að minnsta kosti sex Tékkar hafa verið drepnir í Sovézkir brynvagnar fyrir fr.’tnan adalstöðvar miðstjórnar tékkneska kommúnistaflokksins í dag. átökum við innrásarhermenn og 35 hafa særzt svo vitað sé. Sovézkir hermenn hafa lagt undir sig útvarpsstöðina í Prag eftir nokur átök, og um tíma stóð útvarpsstöðin í björtu báli. Féllu tveir Tékk- anna þar, en margir særðust. 0 Fimmtán klukkustund- um eftir að innrásin hófst hafði enn engin skýring feng izt á því hver ástæðan væri fyrir innrásinni, né heldur hver væri reiðubúinn að taka að sér það Quislings-hlutverk að setjast í valdastól Alexand ers Dubceks. Það var klukkan tvö í nótt eftir staðartíma, sem útvarpið í Prag tilkynnti að hersveitir frá Sovétríkjunum, Póllanidi, Austur Þýzíkalandi, Ungverjalandi og Búligaríu hefðu gert innrás í Tékkóslóvakíu, án þess að tékkr, eskum leiðtogum hafi verið skýrt frá innrásinni fyrirfram, eða þeir spurðir ráða. Skoraði útvarpið á bongarbúa og landsmenn alla að sýna stiMingu og vieita inn- rásarsveitum enga mótspymu. Skömmu seinna sagði svo útvarp ið, að hópur borgarbúa vserisam an kominn á Wenoeslas-torgi. Væru þeir að reyna að stöðva \Bjarni Benediktsson, forsœtisráðherra í viðtali við Mbl í morgun: Lýsi fyllstu samúð með hinni tékkóslóvakísku þjóð |— Atburðirnir hljóta að treysta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins Morgunblaðið sneri sér í morgun til Bjarna Bene- diktssonar, forsætisráð- herra og leitaði álits hans á atburðunum í Tékkóslóv akíu síðustu klukkutíma. Bjarni Benediktsson sagði: „Ég lýsi miklum von- brigðum yfir því, sem gerzt hefur í Tékkóslóvak íu og ljóst er, að vonir manna um bætt andrúms- loft hafa því miður ekki haft við rök að styðjast. Enn er atburðarásin svo ó- ljós, að ekki er hægt að gera sér grein fyrir henni í einstökum atriðum en síð ustu fregnir frá Rússlandi benda til þess, að þar sé nokkur skoðanamunur og er því enn ekki séð fyrir endann á þessari atburða- rás. Þess vegna tel ég ekki tímabært, að ég fjölyrði frekar um þetta að sinni. En ég lýsi fyllstu samúð minni með hinni tékkósló- vakísku þjóð. Bjami Benediktsson Hitt er ljósara en að eyða þurfi að því orðum, að þessir atburðir hljóta að festa og tryggja sam- starfið innan Atlantshafs- bandalagsins“. 1 sókn sovézkra skriðdreka að út- varpsstöðinni með því að teggjajst á götuna fyrir framan drekana. í morgun mættu borgarbúar til vinnu og voru margir þeirra með tár í augunum, að sögn Prag- útvarpsins. Þegar fyrstu fréttirnar bárust af innrásinni, var kirkjuklukk- um hringt og ökumenn óku bif- reiðum sínum um bongina og þeyttu horn þeirra í sífellu. Vökn uðu flestir borgarbúar við glymj andann og kveiktu á útvarps- tækju.m sínum. Fjöldi borgarbúa streymdi út á götur miðborgar- innar. Undir morgun ávarpaði J,- Smrkovsky þingforseti mann- fjöidann, sem saman var kominn á torgi í miðborginni. „Haldið til vinnu ykkar“, sagði Smrköv- sky, „það er það eina, sem við getum gert á þessu stigi máls- ins.“ Meðan á þessu gekk í Tékkó- slóvakíu var íbúum sovétríkj- anna tiikynntu um inmrásina. Var þar saigt að kommúnistaríkin 5 hefðu gripið í taumana sam- kvæmt ósk tékkneskra ieið- toga til að bæla niður „ógn- unina“ við laiþjóða komm- únismann, sem upp væri ris- inn í Tékkóslóvakíu. Er þetta sama afsökun og Sovétrík- in báru fram 1956, þegar þau sendu hersveitir sínar inn í Ung vierjaland til að bæla niður frelsis tþrá Ungverja. Pragútvarpið hélt áfram útsend ingum sínum í nótf og Skýrði frá sókn innrásarherjanna. Fyrsta inn rásarliðið, sem kom til höfuð- borgarinnar, var sovézkt fallhlífa lið, og kom það með fktgvélum til flugvallarins rétt utan við borgina. Flutti liðið með sér skrið dreka og fallbyssur, og istöðvaði allt fflug frá vellinum. „Herniámssveitirnar bafa stöðv Framhald á bls. 7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.