Morgunblaðið - 21.08.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1968
5
R í ÞÁGU FRIÐAR”
— Enginn hlekkur má bresta í samfélagi sósialiskra bræðraþjóða
— segir Tass um innrásina í Tékkóslóvakíu
NTB-fréttastofan segir, að á-
kvörðunin um að beita her-
valdi gegn Tékkóslóvökum
hafi bersýnilega verið tekin í
gær á fundi miðsitjórnar so-
vézka kommúnistaflokksins.
Margir meðlima voru þá í
leyfi, en voru kvaddir til
Moskvu vegna aukafundar-
ins. Bent er á í Moskvu að
Sovétstjórnin réttlæti gerðir
sínar með sömu útskýringum
og þegar hervaldi var beitt í
Ungverjalandi 1956. í báðum
tilvikum hefur verið sagt, að
herliðið fari inn í landið að
eindreginni ósk stjórnarvald-
anna. Þó sé m.a. sá munur á,
að ókyrrð og ólga hafi verið
í Ungverjalandi, þegar sovézk
ir skriðdrekar ruddust inn í
Búdapest. Nú hafi sovézkir
skriðdrekar ruðzt inn í frið-
sæla og kyrrláta Tékkósló-
vakíu, þar sem hvergi bólaði
á andspyrnu eða andúð við
stefnu stjórnarinnar í Prag.
1956 hafi Sovétríkin verið ei'n
á ferð í Ungverjalandi, en
hafi að þessu sinni fengið til
liðs við sig fjögur önnur ríki
Varsjárbandalagsins.
Blöð í Varsjá í Póllandi
komu út seinna en venjulega
og var í þeim birt mjög svip-
uð yfirlýsing og að ofan er
birt. Sagt er, að íbúar Pól-
lands hafi brugðið á ýmsan
hátt við fréttunum. Sumir
spurðu: „verður stvrjöld“?
Aðrir töldu aðgerðirnar hár-
réttar og sögðu: „það er
aldrei hægt að treysta Tékkó
s]óvöVu'num“. Enn aðrir virt-
ust þrumu lostnir og einn
sagði: „ég á engin orð — “
Myndin var tekin í St. Jakube-kirkjunni í Prag, þar sem þeir biðja fyrir leiðtogum sínum, áð-
ur en þeir héldu til fundarins í Cierna.
við það ástand sem hafi sfcap
azt við það að erlendir herir
hafi farið inn á tékkneskt
land.
Forsætisráðherra Júgó
slavíu Mika Spiljak var
staddur í leyfi í Noregi, er
honum barst frétt frá Bel-
grad um, að innrás hefði ver
ið gerð í Tékkóslóvakíu. Ráð
herrann hafði samband við
ráðamenn í heimalandi sínu og
gerði ráðstafanir til að kom-
ast þangað sem skjótast. Áð-
ur en hann hélt heimleiðis
ræddi hann við Per Bor-
ten, forsætisráðherra Noregs
snemma í morgun.
Allur heimurinn fordæmir innrásina
INNRÁS kommúnistaríkj-
anna í Tékkóslóvakíu kom
sem reiðarslag á alla heims-
^yggðina. Fólk í vestrænum
löndum fylltist skelfingu og
undrun, en ríkisstjórnir
landanna komu saman og
sitja á aukafundum til að
ræða ástandið.
Johnson Bandaríkjaforseta var
tilkynnt um innrásina seint í
gærkvöldi, er Dobrynin sendi-
herra Sovétríkjanna gekk á
fund hans og afhenti honum op-
inbera orðsendingu um málið.
Forsetinn kallaði þegar saman
til fundar bandaríska öryggis-
ráðið og alla helztu ráðgjafa
sína. Þá fól hann Dean Rusk
utanríkisráðherra að ræða nán-
ar við Dobrynin sendiberra en
þær viðræður stóðu aðeins í 10
mínútur. Ekkert hefur verið gef-
ið upp opinberlega um viðbrögð
bandarísku stjórnarinnar, en
fregnir herma að Johnson for-
seti hafi tekið fregninni með
hljóðlátri bræði. Blaðafulltrúi
forsetans sagði við fréttamenn
að honum væri ekki kunnugt um
neinar sérstakar viðbúniaðarfyirir
skipanir til 7. hers Bandaríkj-
anna í V-Þýzkalandi.
Fréttaritarar segja að beina
línan milli Hvíta Hússins og
Kreml hafi ekki verið notuð í
nótt og þeir telja að Rússar hafi
ákveðið að tilkynna Bandaríkja-
stjórn um innrásina á undan um-
heiminum, til þess að koma í veg
fyrir að 7. herinn í V-Þýzka-
landi hæfi hernaðaraðgerðir af
ótta við að innrásinni í Tékkó-
slóvakíu væri beint gegn NATO
löndunum.
Páll páfi, sem er á ferðalagi í
S-Ameríkiu skoraði í dag á alla
ábyrga aðila að forðast ofbeldi
og blóðsúthellingar í Tékkósló-
vakíu. Páfi sagðist felmtri sleg-
inn og fullur angistar og bað
fyrir friði meðal þeirra þjóða
sem hér eiiga hlut að máli.
Brezka stjórnin fékk fyrstu
fregnir af innrásinni, er Smirn-
ovsky sendiherra Sovétríkjanna
í London gekk á fund Chalfont
lávarðar ráðuneytisstjóra í utan
ríkisráðuneytinu með munnlega
orðsendingu til Wilsons forsæt-
isráðherra. Wilson, sem var í
leyfi á Schillyeyjum hélt þegar
í stað til Lundúna og kvaddi
stjórnina saman til aukafundar,
hafði samband við Washington
og herstjórn Atlantshafsbanda-
lagsins.
Um hádegisbilið í dag kvaddi
svo Miohael Steward utanríkis-
ráðherra Bnatlands, Smirnovsky
sendiherra á sinn fund og lýsti
því yfir að brezka stjómin liti
ó innrásina í Tékkóslóvakíu sem
brot á sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna og alvarlegt áfall á við-
leitni undanfarinna ára til að
bæta samskipti austurs og vest-
ui's.Áreiðanlegar heimilldir herrna
að Smirnovsky hafi svarað því
til að herlið Varsjárbandalags-
ins myndi yfirgefa Tékkóslóva-
kíu þeigar er löglieg stjórn lands
ins færi fram á það. Þá ó Stew-
art að hafa ispurt sendiherrann
hvað hann ætti við með „lög-
legri stjórn" hvort það væri
Æðstaráðið, þjóðþingið eða for-
setann. Þessu gat sendiherrann-
ekki svarað.
Sir Alec Douglas Home, fyrr-
um forsætisráðherra Bretlandis
og talsmaður íhaldsflokksins um
utanrífcismál sagði í Dundúnum í
morgun. „Hinn ruddalega vald-
beiting Sovétríkjanna hefur í
einu vettvangi hrint heiminum
út í kalda stríðið á nýjan leiik.
V-Þýzka stjórnin fordæmdi í
morgun innrósina í Tékkóslóv-
afcíu og sagði hana hreint brot
á fu.llveldi Tékkóslóvakíu og gróf
leg íhlutun í innanríkismál lands
ins.
í Niow York var lögregluvörð-
ur stóraukinn við sendiinefndir
Framhald á bls. 7
Götumynd frá Prag í dag.