Alþýðublaðið - 24.07.1920, Page 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
PéturA. Jónsson
Operusöngvari
syngur í Nýja bíó mánudaginn 26. júlí kl. 71/í síðdegis stundvíslega
Ný söng'skrá.
Hr. Páll Isölfsson aðstoðar.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Isafoldar og Sigf. Eymundssonar.
sem eru fyrirliggjandí:
I. flokks piano — liarmonium — íiðlur —-
flautur — guitarar — maiulolin — grammo-
íónar — plötwr, íslenzkar og útlendar, fyrir
gimsteina og nálar — nálar — fjaðrir — plötualbúm
— liarmonikur — munuhörpur — strengir
:: og varahlutir fyrir allskonar strengjahljóðfæri. : :
Aðalútsala á nótum frá Vilhelm Hansen í Kaupmannahöfn o. 11.
Hljóðfærahús Reykjavíkur,
Laugaveg 18 B (við Apotekið).
ISTJ3. Stór verðlækkun á sérstökum plötum. Biðjið
um verðskrá. Kaupið að eins hljóðfæri í sérverzlun.
Xoli konungnr.
Eftir Upton Sinclair.
Fjórða bók:
Erfðaskrá Kola konungs,
(Frh.).
„Þeir eru hópur ræningja og
morðingja! Þeir vökva ekki nám-
urnar, þeir gera oss að örkumla
mönnum, og svo bíta þeir höfuð-
ið af skömminni með því að
ræna okkur skaðabótum þeim, sem
oss bera. Þeir féfletta okkur,
hvert sem við snúum okkur! Eg
er orðinn saddur á þvi, og þið
víst líka ?“
Allir, sem til hans heyrðu,
öskruðu upp: „Jú, við höfum
fengið okkur fullsadda!"
„Gott og vel — berjumst þá
við þá, ubz við njótum réttar
vors! “
Meðan stóð á húrrahrópunum,
sem þessari ræðu fylgdu, kom
Jeff Cotton ásamt Bud Adams og
tveir eða þrír morðvargar með
skammbyssur á hælum þeim.
Manngrúinn snéri áér gegn þeim,
hinir ystu steittu hnefana og
gnístu tönnum, eins og grimmir
hundar. Cotton var eldrauður af
vonsku, en hann sá, að ástandið
var ískyggilegt, og snéri þvf við,
til þess að sækja meiri hjálp, en
fjöldinn æpti af fögnuði. Þeír
höfðu þegar haríð stríðiðl Þeir
voru búnir að vinna fyrsta sig-
urinn!
IV.
Manngrúinn fór niður eftir göt-
unni, æpandi, blótandi og ragn-
andi. Því næst fóru einhverjir að
syngja. Það var Marseillaisen, her-
söngur stjómbyltingarmanna og
síðar Frakka. Það var söngur á
tuttugu tungumálum, en sami
söngurinn þó. Sumir hlupu um
bæinn og sögðu tfðindin, og ekki
leið á löngu, unz allir þorpsbúar
voru saman komnir. Karlmennirnir
veifuðu húfum sfnum, konurnar
veifuðu höndunum og æptu —
eða þær stóðu sem steini lostnar,
er þær mintust þess, að ekki er
-hægt að metta börn með byltinga-
söngvum.
Menn tóku Tim á herðar sér,
«g hann sagði sögu sína einu
sinni enn þá. Þá kom móðir hans
hlaupandi. Þegar hún sá son sinn
og heyrði reiðirödd hans, æpti
hún, svo að yfirgnæfði alian há-
vaðann: „Tim, Tim! Snáfaðu
niður! Hvað er að þér?'' Hún tók
að fórna höndum, slegin skelfing-
ar ótta. Þá kom hún auga á Hall
og hljóp til hans. „Komdu hon-
um í burtu, Joe! Hann hlýtur að
vera vitskertur! Þeir reka okkur
burtu úr héraðinu og láta okkur
ekkert fá — og hvað á þá að
verða um okkur? Drottinn minn
góður, hvað gengur að drengn-
um?“
Hún kallaði aftur á hann, en
Tim kærði sig kollóttann, ef hann
þá heyrði það á annað borð. Tim
var á leiðinni til Versala!
Nú kölluðu einhverjir, að þeir
skyldu fara til spítalans og vernda
þá særðu fyrir „bölvuðum mál-
færslumönnunum*. Þar var tak-
mark, sem jafnskjótt var kept að
Hallur fór á eftir ásamt konum
og börnum og hinum hugdeigari
karlmönnum. Hann sá nokkra af
þjónurii félagsins, og hljóp Cotton
til þeirra og skipaði þeim að
sækja skammbyssur upp á skrif-
stofu.
kaupendur blaðsins, sem hafa bú-
staðaskifti eru beðnir að tilkynna
afgreiðslunni það. Sömuleiðis eru
menn ámintir um að gera að-
vart, ef vanskil eru á blaðinu.
Alþbl. kostar I kr. á mánuðí.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiöjan Gutenberg.