Morgunblaðið - 14.11.1968, Síða 4

Morgunblaðið - 14.11.1968, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1968 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaupavegi 12. Simi 3513S. Eftir lokun 34936 og 36217. 350,- kr. daggjald. 3,50 kr. hver kílómetri. Hárgrciðslustofa salon KieópATfZA TÝSGÖTIJ <1. “"20695 Hesthúsa- eða skúreigendur Trésmiður óskar eftir að taka hesthús eða skúr á leigu í vetur, má þurfa lagfæringar við, þarf að rúma 6 hesta. Uppl. í síma 19084 eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld. MORGUNBLADSHUSINU að BEZT er að auglýsa í Morgunblaðinu 0 „Þá það, prestur minn“ Bárður Jakobsson á tsafirði send ir Velvakanda bréf, sem hann nefnir „Þá það, prestur minn.“ ,Mér kom þetta ortak í hug þegar ég las smágrein, Guðmund ur góði heim að Hólum eftir séra Árelíus Níelsson í Morgun- blaðinu 25 sept. s.l.“, segir bréf- ritari. Segist hann hafa búizt við „að einhver gegn maður léti sig skipta það, sem segir í grein- inni“, en svo hafi ekki orðið. Síðan segir bréfritari: „Við, sem búum við fásinni út- nesjanna, höfum meira ráðrúm til þess að velta fyrir okkur ýmsu, sem þéttbýlisfólk hefur hvorki tíma né nenningu til þess að sinna, jafnvel þótt við vitum að hvergi sér þess stað, sem við hugsum, ekki frekar en hola verð ur eftir í fötu fullri af vatni þótt hendi sé stungið niður og tekin upp aftur. f umræddu greinarkorni séra Árelíusar Níelssonar segir: „Vel má segja að ekki hafi undirritaður vit á listum. Hann nýtur þeirra aðeins af eigin „brjóst viti“ sem er- nú nánast talið broslegt af sérfræðingum og sér- ÓDÝRU ENSKU alullarpeysurnar KOMNAR AFTUR. Hentugar skólapeysm-, verð kr. 435.— einnig Cashmere ullarpeysur á kr. 300.— og kr. 325.— Peysusett kr. 590.— Verzlunin KATARÍNA, á homi Kringlumýrarbrautar og Hamrahlíðar, sími 81920. Óskum að ráða mann við aðstoðarstörf í bókhalds- deild. Enskukunnátta nauðsynleg. Æskilegt, að um- sækjandi hafi starfað við IBM götunarkerfi, Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist til íslenzka Álfélagsins h.f., pósthólf 244, Hafnarfirði. fslenzka Álfélagið h.f. Óskum að ráða starfsmann í framleiðsludeild vora við álverið í Straumsvík. Starfið er fólgið í útreikningum á málmblöndum og skipulagningu framleiðslunnar í samræmi við fyrir- liggjandi pantanir á hverjum tíma. Uppsetning á skýrsluformum og önnur störf í þessu sambandi. Um framtíðarstarf er að ræða. Málakunnátta og tækniþekking nauðsynleg. Starfið hefst með sérþjáifun erlends. Skriflegar umsóknir sendist til íslenzka Álfélagsins h.f., pósthóf 244, Hafnarfirði, eigi síðar en 2. desem- ber 1968. gæðingum meðal listdómenda. Réttur og sléttur alþýðumaður á því sviði. En hvar stæði listin án þess fólks, sem hefur tilfinningu sína að mælikvarða?" Mér varð á að hugsa ókristi- lega: Sælir eru þeir sem heyra orð séra Árelíusar, o.s.frv. Heldur þykir mér þó hnútur þær óklerk- legar, sem sérfróðum mönnum á sviði lista almennt og án undan- tekningar eru sendar og þar við bætist hin „hógværa" ábending greinarhöfundar, um að listin stæði líklega höllum fæti án fólks, sem ekki hefur vit á listum." 0 Heggur nærri sjálfum sér? „Nú veit ég ekki hvort ég hefi skilið prestinn rétt, en er hann ekki að höggva nokkuð nærri sjálfum sér og stétt sinni með þessum tilfærðu orðum, ef þau eru athuguð? Er kennimaðurinn ekki sjálfur „sérfræðingur" og leiðbeinandi? Eða er hann þar fyrir þarflaus eða þarflítill? Vill hann með þessu segja, að maður sem aldrei hefur lesið annað en fyrstu bók Móse og þjóðsögur íslenzka Álfélagið h.f. Jóns Árnasonar, og trúi því af tilfinningu og brjóstviti, sem þar stendur, hafi enga þörf leiðbein- inga einhvers, sem sérfræðing mætti kalla? Ég er ekki að reyna að snúa útúr orðum prestsins. Ég er að- eins að vekja athygli á því, sem oft hefur verið nefnt, að listdóm- endur og gagnrýnendur, eða hverju nafni, sem slíkir menn eru nefndir (t.d. prestar), eru jafnframt leiðbeinendur — eða eiga að vera það. Þeir eru eins nauðsynlegir fyrir menningarþjóð (líka presta) og bragðlaukarnir manni, sem ekki vill neita hvaða ómetis sem er, jafnvel þótt sult- ur og brjóstvit segi honum að hann GETI étið ruslið. fslendingar eiga fátt góðra list dómara, sem jafnframt eru leið- beinendur, því er verr, og er mikið mál og óútrætt. Má vera það sé af því, að menn yfirleitt ekki sízt listamenn, hafa mörgum hnöppum að hneppa, ólíkum og óskyldum, og gagnrýni að gagni er hreint ekkert áhlaupaverk og óvinsælt ofan í kaupið. í fámennu þjóðfélagi, þar sem venzl, vinátta og hagsmunir tvinnast margfald lega og ótrúlega saman, getur jafnvel hófleg gagnrýni verið hættuleg — eins og fjallganga hjá Tómasi, eða stólræða hjá presti." 0 Gamall bóndi hættir Hér er svo bréf frá Sv. Þ.: Mig langar að biðja þig Vel- vakandi góður að lofa mér að segja stuttlega frá samtali sem ég átti um daginn við gamlan Reykvíking, en vegna þess að gamli og nýi tíminn rekast svo hver á annars horn, hefur hann orðið að hætta sínu lífsstarfi. Þessi maður er Ragnar bóndi á Bústöðum við Bústaðaveg. Hann er borinn og barnfæddur þar og hefur alla sína tíð stundað fjár- búskap þar. í gamla daga var flest fé á húsi að Bústöðum 120. Fyrir alllöngu var svo sauð- fjárhald bannað hér í Reykjavík og er búið að skrifa og ræða um það mál. Ragnar sagði að það væri skoðun sín, að ef allir þeir sem sauðfjárræktarmálið heyrði undir, hefðu af einlægni viljað leysa það, hefði það verið hægt. Þó ég verði að leggja niður sauð fjárhald — þeir tóku rollurnar mínar 36 á mánudaginn, — nauð ugur mjög, leggja niður bú mitt og ævistarf á efri árum, þá er það mál í sjálfu sér miklu alvar- legra. Slík eigna- og umráðasvipt ing sem átt hefur sér stað gagn- vart mér og fleirum, er ekkert einkamál sauðfjáreigenda. Tel ég þetta mál vera stórmál sem þjóð ina alla varði. — Mér finnst það minna á aðgerðir stjórnarvalda úti I löndum þar sem bændur hafa verið sviptir búum sínum. — Slíkt hefur I mínum augum alltaf verið óhugnanlegt, sagði Ragnar, og því finnst mér málið stórmáL Ragnar á Bústöðum er nú senni lega elzti fjárbóndinn í Reykja- vík, en hann er nú 77 ára, og sagði að lokum: Þú getur spurt þá sem komu og sóttu kindurn- ar mínar, hvort ekki séu liðnir áratugir síðan kvartað hefur verið yfir ágangi kindanna frá Bústöð- um, nema þá heimalinganna sem stundum hafa rölt út á veginn, en slíkt hefur þá kostað þá líf- ið — beint í sláturhúsið. Þetta var það sem Ragnar á Bústöðum vildi segja er hann nú verður að hætta með fjárbú- ið sitt á eignarjörð sinni og ættaróðali. Sv. Þ. Vissulega er sárt fyrir aldraða menn að verða fyrir sliku. En tímarnir breytast og þetta er göm ul saga um allan heim — þótt hún sé tiltölulega ný hjá okkur — borgirnar þenjast út og gleypa nálægar sveitir. Og búfjárhald sveitanna verður því miður aldrei sameinað borgarlífinu. Æskilegt hefði þó verið, ef gamlir búhöld- ar hefðu fengið að halda sínu meðan þeirra naut við, en það voru margir fleiri farnir að stunda búskap hér í borginni — og eitt varð yfir alla að ganga. HÁDEGISVERDAR- FUNDUR FUNDARST AÐUR Laugardagur 16. nóv. kL 12.30. Matthías Johannes- sen, ritstjóii rgðiLr um BLAÐAMENNSKU. HÖTEL VERZL. OG SKRIFSTOFUFÓLK, FJÖLMENNIÐ OG TAKIÐ MEÐ YKKUR GESTL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.