Morgunblaðið - 14.11.1968, Page 7

Morgunblaðið - 14.11.1968, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1968 7 Londbúnoðurinn leggur til mestun vurninginn Fyrir skömmu vorum við á gangi í Hafnarstræti, og oft höf- um við á förnum vegi mætt ýmsu fólki, en í þetta sinn sá- um við jólasvein, sem kinkaði til okkar kolli úr glugganum Rammagerðarinnar, glaðlegur a svip. Ekki fór það á milli máal að jólasveinninn minnti mann kyrfilega á það, að jólin eru á næsta leyti, og þá koma jóla- gjafir, kortasendingar og ann að sem jólahaldi okkar á norð- urslóðum tilheyrir upp í hug- ann. Við brugðum okkur upp gaml ar tröppurnar inn í Rammagerð ina, og hittum að máli verzl- unarstjórann, Hauk Gunnarsson. — Er jólasveinninn í glugg- anum merki um það. Haukur að jólin séu nálægt? — Einmitt, svaraði Haukur. — Hann er í glugganum til að minna fólkið á að senda jóla- pakka til útlanda tímanlega. Flugfragt er nefnilega dýr, en fólk gerir sér sjaldnast grein fyrir því fyrr en of seint. Það munar miklu á skipspósti og flug pósti í verði. Þegar fólkið sér jólasveininn í glugganum háj okkur, man það eftir því, að nú er kominn tíminn til að senda vimim og ættingjum er- lendis jólapakka. — Hvað er það nú helzt, sem fólk sendir til vina og ættingja erlendis? — Það er nú margt og mis- jafnt, enda höfum við varning við allra hæfi hér á boðstólum. Eitt held ég samt, að ég geti fullyrt, að einhverskonar land- búnaðarvörur séu vinsælastar. Á ég þar sérstaklega við varning úr ull. Það er ekki að ófyrir- synju, að íslenzka ullin hefur verið talin sú bezta í heimi. Lopa peysurnar renna út, sömuleiðis herðasjölin og hyrnurnar. Þetta er þar að auki allt saman hand- unnið, og þær eru margar hend urnar, sem koma við sögu við þessa framleiðslu, sumar lúnar af elli, aðrar fullfrískar úr saumaklúbbum. Elíkan heimilis iðnað er sjálfsagt aldrei hægt að borga fullu tímakaupsverði, enda liggur mikil ánægja oft- ast í framleiðslunni í bland. Þá er að minnast á silfurmun ina. Við erum hér með 5 nælu- eftirlikingar frá grárri fom- eskju. Björn Th. Björnsson hef ur valið mynstrin á Þjóðminja safni, en Bárður Jóhannesson hefur smíðað af hreinu silíri. t kassanum utan um nælurnar, er komið fyrir ýtarlegum skýring- um á ensku til fróðleiks. Þetta eru hálfgerð galdramunstur. Þá er hér mikið um allskyns vefnað, bæði myndvefnað og annars kyns. Guðrún Vigfúsdótt ir frá ísafirði vefur mikið fyrir okkur, en auðvitað fjöldinn all- ur af konum úr Reykjavík og annarsstaðar að af landinu, því að markaðurinn fyrir ofinn hlut er alltaf mjög stór. Hér sérðu líka í hillunum alls kyns íslenzkan útskurð. Hér eru eftirlíkingar af íslenzkum rokk- um, smíðáðar af Friðriki Frið- leifssyni, hér eru spænir úr hvalskíðum smíðaðir af Sveini Ólafssyni myndskera. Allt er þetta eftirsóttar vörur. En svo kem ég hér að alls- kyns kerum og vösum úr hrauni og leir, blandað saman. Þessi varningur hefur a.m.k. gengið 1 augun á ferðamanninum. Það er Glit, sem framleiðir það, en að sjálfsögðu á Funi og Listvina húsið einnig muni hér. En Glit framleiðir galdrabakka með gömlum galdrarúnum á, og lætur fylgja skýringar hverjum bakka. Þeir virðast falla útlend ingum sérlega vel í geð. — Einhversstaðar hef ég heyrt því fleygt að húðir hrossa og sauðkinda, séu að verða út- gengilegasta varan til gjafa og til mingjagripa erlendra manna? — Það er rétt. Verðlagið á húðunum, t.d. tryppahúðum, -r hérlendis langt fyrir neðan það, sem er algengt erlendis. Satt að segja eigum við aldrei neitt fyrirliggjandi af þessari vöru. Hún selzt alltaf um leið. Við fáum húðir þessar fyrst og fremst frá Akureyri. Satt bezt að segja er hægt að vinna mark aði fyrir vöru þessa að mikluro mun meir en gert er. Hvítu gæruskinnin seljast að jafnaði langbezt, þótt stundum sé eftirspurn í lituðum skinn- um. Svo mætti auðvitað bæta því hér við, að það eru ekki einasta húðirnar og skinnin óunnin, eða því sem næst, sem hér eru á boðstólum, því að við höfum hér alls kyns varning úr þeim, sem rennur út. Áður hef ég minnzt á lopapeysur, hyrnur og langsjöl, en hér eru líka lopa- vettlingar, gestabækur úr gæru, hiifur karla og kvenna, og síð- ast en ekki sízt gömlu sauð- skinnsskómir, svartir, þvl að of erfitt reyndist að lita þá með blásteini. Á þessari upptalningu sérðu, að landbúnaðurinn íslenzki legg ur okkur til velflestan varning inn. Heimilisiðnaður er svo sann arlega ekki dauður úr öllum æð um á íslandi í dag, og við mætt um eiginlega þakka fyrir að svo er ekki. Hann er stór hluti af menningararfleið okkar, og vel sé konunum, sem halda honum við. Þessi iðnaður veitir að auki mikla atvinnu, og þá sérstaklega öldruðum konum, sem lítið eða ekkert annað geta til búdrýg- inda, og það er sannarlega erfitt að meta hann réttilega til pen- inga í þjóðarbúskapnum. — Ég hef heyrt að þið sendið um heim allan jólagjafir. — Rétt er það, og það mætti gjarnan koma fram að við sjá- um um alla pökkun viðskiptavin inum að kostnaðarlausu fyrir sama flutningsgjald og pósthús in, og varningurinn er á ábyrgð Rammagerðarinnar, þar til hann er kominn í hendur viðtakanda óbrotinn og óskemmdur. Við llm um allskyns jólamiða á þann varning á mörgum tungumálum, þannig að hann sleppur yfirleitt allsstaðar við tollgreiðslu, þvi að jólagjafir á ekki að greiða toll af hjá sæmUega siðuðum þjóðum. — Fr.S. A þcssari mynd sést Haukur Gunnarsson innan um allskyns góða hluti til jólagjafa handa vinum erlendis. (Sv. Þorm. tók myndina). Hafskip hf.: Langá fór frá Kaup mannahöfn í gær til Gdynia. Laxá er væntanleg til Bordeaux í dag. Rangá fór frá Vestmannaeyjum 13. til Napoli. Selá er væntanleg til Vestmannaeyja á morgun. Riber- hus er væntanleg til Reykjavíkur á morgun frá Hamborg og Khöfn. Skipadeild SÍS: Arnafell er í Reykjavík. Jökulfell fór 11. þ.m. frá Keflavik til New Bedford. Dís- arfell er á Húsavík. fer þaðan til Kópaskers, Austfjarðahafna og R- víkur. LitlafeU er í oUuflutningum á Faxaflóa. Helgafell væntanlegt til Helsingfors 15. þ.m., fer þaðan til Hangö og Abo. Stapafell er vænt anlegt til Reykjavfkur 16. þ.m. Skipaútgerð ríkisins: Esja er I Reykjavík. Herjólfur fer frá R- vík kl. 21.00 í kvöld til Vestmanna eyja. Herðurbreið fór frá Reykja- vik kl. 20.00 í gærkvöld austur um land í hringferð. Árvakur er á Austurlandshöfnum á suðurleið. Baldur fer frá Reykjavík kl. 20.00 i kvöld til Vestfjarðahafna. Il.f. Eimskipafélag íslands: Bakkafoss kom til Reykjavíkur í gær frá Húsavík og Kristiansand. Brúarfoss fór frá New York 11.11. til Reykjavikur. Dettifoss fór frá ísafirði í gær til Keflavíkur, Hull, Grimsby, Bremerhaven, Cuxhaven og Hamborgar. Fjallfoss fór frá Bayonne 9.11. til Keflavíkur. Gull foss kom til Khafnar í gær frá Thorshavn og Reykjavík. Lagar- foss fór frá Vestmannaeyjum 9.11 til Gloucester, Cambridge, Norfolk og New York. Mánafoss fer frá Hull í géer til Rvíkur. Reykjafoss fór frá Þorláksröfn í gær til Rvik- ur, Hamborgar, Antverpen og Rott erdam. Selfoss fór frá Eskifirði í gær til Norðfjarðar og Rvíkur. Skógafoss kom til Hafnarfjarðar 12.11 frá Rotterdam. Tungufoss fór frá Leith 12.11 til Færeyja og R- víkur. Askja fer frá Rvík I gær tU Akranes, London, HuU Leith og Rvikur. Polar Viking fór frá Vest mannaeyjum 9.11 til Murmask. By mos kom til Murmask 5.11 frá Reykjavík. Loftleiðir hf.: Guðríður Þorbjam ardóttir er væntanleg frá New York kl: 1000. Fer til Luxemborgar kl. 1100. Er væntanleg til baka frá Luxemborg kl. 0215. Fer til New York kl. 0315. VÍSUKORN Hirði ég hvorki um stund né stað, studdur fárra griðum. Þannig fer ég aftan að öllum mannasiðum. Jón S. Bergmann. Spakmœli dagsins Ýmsir þvaðra heilmikið, þegar þeir eru saman, án þess að segja hver öðrum nokkurn skapaðan hlut. — K. Gjesdahl Spakmœli dagsins Fyrlr þann, sem verður að klæð- ast lörfum, er eina ráðið að ganga með sigurbros á vörum. — Sv. Lidman. Sófasett Sófasett með nælonáklæð- um, greiðsluskilmálar. Nýja bólsturgerffin, Laugavegi 134, sími 16541. Borðstofuhúsgögn Vönduð, gamaldags borð- stofuhúsgögn óskast til kaups. Tilboð sendist Mbl. merkt „6690“. íbúð til leigu Til leigu er 4ra herb. glæsileg íbúð að Kleppsv. 120, 6. hæð t.v. Verður til sýnis í dag og á morgun milli kl. 16 og 20. Keflavík Forstofuherbergi með að- gangi að baði óskast. Tilb. sendist afgr. Mbl. í Kefla- vík fyrir sunnudag merkt „900“. Lítið snúinn vandaður harðviðarstigi til sölu. U.pplýsingar í síma 24321 eða 23989. 2ja—3ja herbergja íbúð óskast nú þegar. Uppl. í síma 33195 eftir kl. 20. Keflavík — Njarðvík Hef kaupendur að 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðum. Jón Einar Jakobsson, hdl. Tjarnargata 3, Keflavík. Símar 2660 og 2146. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Vörubifreið óskast Tilboð er tilgreini verð og ásigkomulag skilist á af- greiðslu Morgunbl. fyrir 20. nóv. n.k. merkt: „Mikil útborgun — 6739“. Eldri árgerð en 1966 kemur ekki til greina. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 3. ársfjórðung 1968 svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagi 15. þ.m. Dráttarvextirnir eru 1%% fyrir hvem byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. okt. s.l. Eru því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16. þ.m. Hinn 16. þ.m. hefst án frekari fyrirvara stöðvun at- vinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa þá skilað skattinum. Reykjavík, 11. nóv. 1968. Tollstjóraskrifstofan, Amarhvoli. ÚTBOÐ Tílboð óskast í gatnagerð og lagnir í Fellunum, I hluta (Breiðholt III). Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 3.000.00 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 2. des. n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800 HðSMÆÐUR! HÚSMÆÐUR! Fimmtudagar — innkaupsdagar Matvörur — hreinlœtisvörur Aðeins þekkt merki — Flestar vörur undir búðarverði OPIÐ TIL KLUKKAN 10 í KVÖLD Bezt að aug/ýsa i Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.