Morgunblaðið - 14.11.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.11.1968, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. NÓVBMBER 1968 r Látbragðslist kynnt í skólum LEIKLISTARKYNNING í skól- um á vegufn menntamálaráðu- neytisins stendur nú yfir. í þetta sinn er það látbragðslist, sem kynnt er, og henni stjórnar Teng Gee Sigurðsson, kínversk kona gift til íslands, sem hefur sér- staka menntun í þessari list- grein. Og með henni eru þrír af fyrri nemendum hennar í list- inni úr leikskóla Leikfélags Reykjavíkur, þau Þórunn Sig- urðardóttir, Kristín Magnús Guð bjartsdóttir og Guðmundur Magnússon. Þau skýrðu blaðamönnum frá þessari kynningu, ásamt Erlingi Gíslasyni, leikara sem var einn aðalfrumkvöðull að leiklistar- kynningu í skólum. Hugmyndin var runnin frá Leikfélaginu Grímu og hófst í fyrra og var mjög vel tekið. Af látbragðs- kynningunni hefur nú verið ákaf lega vel tekið í þeim skólum, sem búið er að fara í, en það eru Menntaskólarnir báðir, Kenn araskólinn, Hagaskóli og nú í morgun væntanlega Gagnfræða- skóli Austurbæjar. Hefur verið leitað eftir tveimur sýningum í sumum skólunum. En mennta- málaráðuneytið gerir ráð fyrir 10 leiklistarkynningum alls af þessu tagi í skólunum nú. Ef aðrir skólar en þeir sem á skrá eru fara fram á það, eða sömu skólar biðja um endurtekningu á sýningum, mun það standa op- ið. Hópurinn kynnir þessa merku listgrein og litt þekktu hér á landi á þann hátt, að fluttar eru skýringar. Útskýrt hvað sé lát- bragðslist með dæmum og síðan fluttir þættir er Teng Gee hefur samið. Eru það 3 sólóleikþætt- Guðmundur Magnússon í lát- bragðsleik. Þórunn Sigurðardóttir, Kristín Magnús Guðbjartsdóttir og Teng Gee Sigurðsson að æfa látbragðsleik. ir í dramatískum stíl og svo tvær komedíur. Ltbragðsleikur er, sem kunugt er, sérstök listgrein, sem túlkuð er með hreyfingum, en án orða og hver hreyfing þarf því að þjóna vissum tilgangi og vera einföld og skýr. í kynning- unni er farið yfir sögu látbragðs- leiksins á Vesturlöndum og þró un hans og með dæmum sýnt hvaða gildi tónlistin hefur fyr- ir þessari listgrein. — Það veitir mér mikla á- nægju að geta túlkað á þennan hátt fyrir allar manngerðir og allar þjóðir jafnt, sagði Teng Gee. Og hún bætti því við, að skólakrakkarnir hér hafi tekið látbragðsleiknum einstaklega vel og skilið hvað fram var fært. Teng Gee Sigurðsson er frá Singapore, en stundaði nám í leiklist og látbragðsleik í Eng- landi. Hún giftist og flutti til íslands fyrir 10 árum. Fyrir 3 árum byrjaði hún að kenna lát- bragðslist í leikskóla Leikfélags Reykjavíkur fyrir tilmæli Sveins Einarssonar og hefur gert það síðan. Kvaðst hún mjög þakk- lát fyrir að fá tækifæri til að leggja stund á listgrein sína á þennan hátt. Auk listkynningar í skólum á látbragðslist, er Teng Gee nú að undirbúa sérstaka kynningu á lát bragðslist fyrir nemendur Heyrn leysingjaskólans, og munu fyrri nemendur hennar úr leikskóla L.R. sýna þar. Einnig er áform- að að undirbúa þátt fyrir unga og gamla í sjónvarpi. Samvinnufélagið Hreyfill 25 ára Samvinnufélagið Hreyfill varð 25 ára mánudaginn 11. nóvember og boðaði stjórn þess til fundar með fréttamönnum í tilefni af því. Sagði Ingjaldur Isaksson, for- maður, m.a.: Fyrir 25 árum voru 9 bifreiða- stöðvar í Reykjavík, þá flestar í eigu einstaklinga eða olíufélaga, og höfðu bifreiðastjórar enga til hlutun um skipulagningu vinnu nesi. Fyrsta bílasímann opnaði félagið í Kleppsholtinu, en nú eru þeir orðnir sautján talsins. Nú í dag nær þessi gjaldtaxti upp í Grafarholt, upp að Rauða- vatni og su'ður að Kópavogslæk. I framtíðinni er takmarkið að gjaldið nái yfir alla Stór-Reykja- vík og Hafnarfjörð. 1950 var sú nýbreytni tekin upp, að hafa opna stöðina allan sólarhringinn, og er töluvert ör- Núverandi stjórn Samvinnuféla gsins Hreyfils. Fremri röð: Ingi- mundur Ingimundarson, varafo rm„ Stefán O. Magnússon, fram- kv.stj., Ingjaldur ísaksson, for m. Aftari röð: Gestur Sigurjóns- son, rit., Guðbjartur Guðmundsson, gjaldk., Þorleifur Gíslason, meðstj. yggi í því fvrir viðskiptavinina. Geta þeir hvenær sem er sólar- hringsins pantað sér leigubíl. Einnig veitir stöðin þá þjónustu að hringja og vekja þá sem þess óska, og hefur þetta mælzt sér- lega vel fyrir hjá ferðafólki. 1951 var settur gjaldmælir í alla bíla. Árið 1960 var félaginu úthlutað góðri lóð vi'ð Grensás- veg og Fellsmúla, og er þar nú þvottastöð, en verið er að byggja þar stórhýsi, fimm hæða hátt, sem hýsa mun alla starfsemi fé- lagsins, einnig félagsheimili, þvi félagslíf er mjög blómlegt. Talstöðvar eru komnar í nær alla bíla, og er að því mikið ör- yggi bæði fyrir farþega og bíl- stjóra. Félagið hefur reist þrjár stórar íbúðarbyggingar fyrir fé- lagsmenn, og eru nú í byggingu tvær stórar blokkir í Breiðholti. Nú hefur verið efnt til happ- drættis, vegna afmælisins, og verður dregi’ð í því í janúar. Vinningar verða um 300 eins- dagsferðir. Formaðurinn vildi gjarnan þakka öllum viðskiptavimun fé- lagsins á liðnum árum fyrir við- skiptin, og kvað stjórnina myndu reyna að vera áfram á verði og staðna ekki í starfi. Hann sagðist sjálfur ekki á þeim 39 árum, sem hann hefði ekið leigubifreið hafa þurft að fara me'ð nema tvo farþega til lögreglunnar, og að hann áliti, að með lágmarkskurteisi mætti komast vel af við alla. og eigið starf. Þá var valin nefnd til að vinna að stofnun félags- ins, er síðar keypti bifreiðastöð- ina Geysi fyrir 225 þúsund krón- ur. 1. des. 1943, tók til starfa bif- reiðastöð undir Hreyfils-nafninu og voru þar 40 bílar. í dag eru 330 bifreiðar á stöð- inni. Mesta átaki'ð hefur verið að skipuleggja starfið og koma til móts við þarfir viðskipta- vina, t.d. í því að færa einfalt gjald yfir stærra svæði, en áður var. Þá náði gjaldtaxti þessi að- eins inn að Tungu, Þóroddstöð- um og Vegamótum á Seltjamar- Halnarfförður Til sölu nokkrar 3ja og 4ra herb. íbúðir í fjölbýlishúsi sem er í byggingu í Suðurbænum. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk með frágenginni sameign. Sér- þvottahús fylgir hverri íbúð, hagstæðir greiðsluskil- málar. ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, HRL., Strandgötu 25, Hafnafirði, sími 51500. BíLAKAUP^s, Vel með farnir bílar til sölu og sýnis f bflageymslu okkar að Laugavegi 105. Tækifæri til að gera góð bilakaup.. — Hagstæð greiðslukjör. — Bílaskipti koma til greina. Taunus 12 M (ný vél) árg. 64. Skoda Octavia árg. 64. Taunus 17 M, árg. ’65. Renault R 8 árg. 63. Skoda 1000 MB árg. 68, ekinn 6 þús. Fairlane 500, árg. ’66. Cortina árg. 64, 67. Dafodile árg. 63. Chverolet, árg. ’64. Benz 180, árg. ’57. Trabant, nýr. Ford F 500 árg. (mjög góð ur bíll) árg. 65. Opel Record árg. 62, Bronco árg. 66. Rambler American 400 sjálfskiptur árg. 62. Benz 220S, árg. ’60, ’62. Taunus Transit, árg. ’62. Zephyr 4, árg. ’65. Taunus 17 M statinn, árg. ’60, ’66. PMC, árg. 67. Commer sendif.b., árg. ’66. Chevy II (greiðslukjör), árgerð ’67. Moskwitch, árg. ’64. Reno Dauphine árg. 61. Skoda 1202 árg. 63. Rambler Ambassador, árg. ’66. Volvo Duett árg. 63. Zodiac, árg. ’60. ódýrir bílar, góð gr.kjör. Willys, árg. ’64, kr. 45 þús. Renault Dauphine, árg. ’62, kr. 40 þúsund. Tökum góða bíla í umboðssölu | Höfum rúmgott sýningarsvæði innanhúss. mzttm UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SIMI 22466 Hefi til sölu ma. EinstaklingsíbúS í Kópavogi, útborgun 200 þús. kr., sem má skipta. 2ja herb. íbúð við Laugaveg, innarlega. 3ja herb. íbúð við Lyng- brekku í Kópavogi. íbúðin er á fyrstu hæð í tví- býlishúsi með sérinngangi. 4ra herb. íbúð við Hverfis- götu. 5 herb. íbúð við Kleppsveg íbúðin er á fimmtu hæð með stórum vesturgluggum. Lyfta er í húsinu. Einbýlishús í Silfurtúni, Garðahreppi. Húsið er fimm herbergi með stórum og góðum bílskúr. Kirkjutorgi 6. Sími 15545 og 14965. Til sölu 3ja herb. íbúð við Öldugötu. laus strax, útb. 200 þús., sem má skipta. 2ja herb. risíbúð í góðu standi við Silfurteig. Nýjar og nýlegar 3ja herb. við Álftamýri, Hjarðhaga. Stór glæsileg 4ra herb. 3. hæð endaíbúð við Stóragerði. íbúðin er með tvennum svölum, vandaðar harðvið- arinnréttingar, bílskúr. 5 herb. efri hæð við Freyju- götu, laus. 6 herb. hæðir við Goðheima, Stóragerði, Laugarnesveg. 7 herb. raðhús við Miklu- braut í góðu standi. Raðhús í smíðum við Sævið- arsund, Barðaströnd og í Fossvogi og víðar á góðu verði. Einar Sigurðsson, hdl. Ingólfsstræti 4. Sími 16767. Kvöldsími 35993. Fasteignasalan Hátúni 4 A, Nóatúnshúslð Símar 21870-20998 3ja herb. góð risibúð í Kópa- vogi, útb. 200 þús. 3ja herb. góð íbúð við Sól- heima. 3ja herb. góð kjallaraíbúð við Tómasarhaga. r I smíðum 2ja—5 herb. íbúðir í Breið- holtshverfi seljast tilb. und- ir tréverk með sameign allri frágenginni, sumar til af- hendingar strax, en aðrar í marz-apríl í vetur. 2ja—4ra herb. íbúðir seljast fullgerðar með sameign og lóð fullfrágenginni. Verða afhentar á næsta sumri. Raðhús í Breiðholtshverfi, Fossvogi og Seltjarnarnesi. Einbýlishús í borginni, Kópa- vogi og Garðahreppi, á mis- munandi byggingarstigum. Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaðnr Hilmar Valdimarsson fasteignaviðsklptl. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.