Morgunblaðið - 14.11.1968, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.11.1968, Qupperneq 17
MORGUN'BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1968 17 Kommúnistar hafa með ofbeldi brotið undir sig Alþýðubandalagið Einar Björnsson frá Mýnesi KOMMÚNISTAR hafa nú látið til skarar skríða og rutt úr vegi þeim mönnum sem höfðu við þá samstarf í Alþýðubanclalaginu. Ábyrgðarmaður að því að atlaga kommúnista að frjálshuga mönn- urn sem vildu gera Alþýðu- bandalagið að lýðræðislegum stjórnmálaflokki vinstri manna hefur nú gerzt, er Hannibal Valdimarsson sem hefur með þrásetu sinni og hringlanda- hætti auðveldað kommúnistum að færa sig um set með nýrri nafnbreytingu og hrifsa úr hönd- um hans Alþýðubandalagið. Sem gerðist með þeim hætti að ganga út úr Tjarnargötu 20 í annað hús til að klæða sig í hið nýja gervi. Nú stendur Hannibal á eyði- skeri hugmyndasnauður og ráð- villtur vegna framkomu sinnar við þá aðila sem vildu fara með honum hans leið til sameiningar vinstri manna ’56. Þar sem hann fullvissaði fylgjendur Alþýðu- bandalagsins um að það yrði gert að vinstri manna flokki, sem laus væri við veilur og kreddur kommúnista, sem gerðu sósíal- istaflokkinn að óvirkum kreddu- mannaflokki eftir að Héðinn Valdimarsson yfirgaf hann rösku ári eftir stofnun hans vegna svipaðra aðferða og þeir hafa nú beitt þá sem störfuðu með þeim í Alþýðubandalaginu. Sósíalistafélögin voru að öðr- um þræði gerð að Alþýðúbanda- lagsfélögum þar sem kommúnist- ar höfðu öll ráð í hendi sér. Þegar sósíalistaflokkurinn rauf nýsköpunanstjórnina 1947 var mörkuð sú utanríkisstefna á þingi flokksins það ár sem tróð slóð Stalins í utanríkismálum, sem brotið hafði undir sig níu þjóðir í Auistur-Evrópu, sem lot- ið hafa kúgun og járnaga sem valdhafarnir í Kreml beita sam- anber innrás þeirra í Tékkósló- vakíu og ofbeldisverk þeirra þar, sem hefur orðið þeim þungt í skauti vegna einhuga samstöðu þeirrar ágætu þjóðar og mót- mæla um gjörvallan heim, sem valdhafarnir óttast meira en vopnin. Það er á slíkum tímamótum, isem kommúnistar reyna að hressa við gamalt flokkshró með nafnbreytingu, sem á að hylja þeirra nekt og villa um fyrir ungu fólki í landinu, sem ekki þekkir vinnubrögð þeirra og fer- il og algjört þýðingarleysi í ís- lenzkum stjórnmálum. Vegna þrenginga eftir upp- ljóstranir „Krussjofs" 1956 á ó- dæðisverkum Stalins og hans manna fór hrollur um allan hinn siðmenntaða heim. Þá gerði Lúð- vík Jósepsson leynisamning við Hannibal Valdimarsson um stofn un samtaka vinstri manna og lýsti því yfir á fundi með stuðn- ingsmönnum Alþýðubandalags- ins á Egilsstöðum er framboð þess var ákveðið 1956 að mein- ing þeirra félaga væri að gera upp við Brynjólf Bjarnason og fylgjendur hans. Það voru fyrstu fórnardýr Lúðvíks í valdabar- áttu hans sem nú bitnar á „vini“ hans Hannibal og Birni Jómssyni, sem ekki vilja samþykkja enn eina aðför að vinstri mönnum í landinu sem vissulega eru marg- ir ef tækist að vinna að sam- stöðu þeirra án tilkomu komm- únistaforkólfanna. Eftir innrás ráðamanna í Kreml og fylgiríkja þeirra í fjór- um löndum Austur-Evrópu inn í Tékkóslóvakíu þorðu leiðtogar kommúnista hér á landi ekki annað en mótmæla innrásinni vegna þeirrar mótmælaöldu sem reis um allan heim. En í leið- inni unnu þeir að því að gera innrás á Vestfirði til að ná tök- um á Alþýðubandalagsfélögun- um þar og afkróa Hannibal og hans menn. Vonandi hrinda Vestfirðingar innrás kommúnista í byggðarlög þeirra til að forða þeim frá þeirri plágu sem lítið hefur herjað þann landshluta fremur en „karakúlpestin". — Klíka kommúnista undir forystu Lúðvíks og Magnúsar Kjartans- sonar hefur í mörg ár unnið að þeirri atlögu, sem nú hefur verið gerð og fengið hefur staðfestingu á þingi „Alþýðubandalagið“, sem kommúnistar hafa náð með svik- um og nýlega er lokið. Þeir félagar reyndu leynt og ljóst að koma höggi á mig þegar ég aðvaraði fólkið í Aiþýðu- bandalaginu við fyrirætlunum kommúnista eftir flokksþing þeirra 1960. Þá vann Hannibal með þeim Ijúðvík og Magnúsi Kjartanssyni gegn mér og Alfreð Gíslasyni þáverandi þingmanni Aiþýðubandalagsins í leyni og lét þá véla sig til að eyðileggja þá miku möguleika sem þá voru fyrir henidi til isamstöðu vinstri manna án þátttöku kommúnista. Enda voru kommúnistar ekki upplitsdjarfir í þann tíð. Nú sér Hannibal árangur iðju sinnar og brölti í samkrulli við kommún- ista þar sem hann hefur beint og óbeint hjálpað þeim til að brjót- ast út úr þeirri hnappheldu, sem Alþýðubandalagið vissulega var, ef vimstri menn hefðu skipulagt samtök sín í tíma til að hrinda ofbeldi kommúnista. Um þetta hef ég áður skrifað blaðagreinar og gefið út rit sem margir hafa séð. Niú ætti Hannibal að líta í það þá getur hann fullvissað sig um, að völd og eiginn metnaður eru minna virði en aimannaheill og gagnleg vinnubrögð. Hannibal Valdimarsson hefur 'skrifað Lúðvík Jósepssyni bréf þar sem hann tilkynnir að hann mæti ekki sem formaður Alþýðu- bandalagsins á þingi þess og segi þar með af sér. Ja, þvílík reisn í stjórnmólabaráttu. Er það kannske í ætt við karlmennsku Jóns sterka í „Skugga-Sveini". „Sjáið þið hvemig ég tók hann piltar". Sú þróun sem nú hefur orðið í Alþýðubandalaginu er síðasta tilraun kommúnista til að reyna með hjálp annarra að hafa áhrif á framvindu stjórnmálanna undir fölsku flaggi. En er dæmt til að mistakast. Kommúnistar verða nú Mtill flokkur hér á landi og áhrif þeirra mun dvína í verka- lýðshreyfingunni. I stefnuyfirlýsingu nýafstaðins þings þeirra, þar sem óskapnað- ur kommúnista íklæddur gervi Alþýðubandalagsins var leiddur til sætis, búinn að vera í burðar- liðnum síðan 1956, segir að unn- ið verði að því að koma á isósíal- isma á íslandi. Er það sósíalism- inn sem ræður ríkjum í þeim löndum sem kommúnistar hafa brotið undir sig, og nú þrúgar nær hálfan heiminn. Ég held að íslenzka þjóðin kæri sig ekki um islíka þróun, svo ekki þarf að kalla kommúnistaflokk öðru nafni til slíkrar starfsemi. Þess vegna er brölt kommún- ista nú aðeins vandræða fálm á eyðimerkurgöngu þeirra. Lúðvík Jósepsson getur þess í viðtali að aðeins þrjú félög Alþýðubanda- lagsins hafí ekki sent fulltrúa á þing þess, „en þau muni koma seinna. Þar á hann við félögin sem vildu byggja upp Aliþýðu- bandalagið «em vinstri manna flokk lausan við yfirráð harða kommúnistakj arnans. Björn Jónsson alþingismaður hefur neitað að taka þátt í hrá- skinnsleik Lúðvíks og Magnúsar Kjartanssonar og hefur á bak við «ig sterkt lið í kjördæmi sínu, sem hefur enn sem komið er hrundið innrás kommúnista þar. Vonandi tekst Birni Jónssyni og hans mönnum að efla samtök sín ef vera kynni að það leiddi til þess að heilbrigðari iskipan kæm- ist á í verkalýðshreyfingunni, og hún losnaði undan oki kommún- ista, sem hefur þrúgað hana síð- an 1955. Verst var farið með hana þegar kommúnistar komu því til leiðar að þing Al- þýðusambandsins rauf samstöðu vinstri manna haustið 1958 og forystumenn þeirra sigldu öfug- um seglum og gerðu þar með að engu vonir manna um samstöðu þeirra. Nú hefur Hannibal Valdi- marsson innsiglað þetta með bréfi til Lúðvíks Jósepssonar sem Ríkisútvarpið færði upp sem stórfrétt. Ég bjóst við útfarar- isálminum á eftir með viðeigandi þögn. Jarðarförin hafði farið fram í kyrrþey. En Alþýðu- bandalagið var orðið að vofu, sem kommúnistar reyna að blása lífsanda í og koma á Birni Jóns- syni fyrir kattarnef, og stökkva Hannibal á flótta. Frjálshuga menn í þessu landi munu ekki óttast vofu komm- únista. Hún mun fylgja þeim á vegferð þeirra þar til máttur hennar dvínar og verður að 'sögu sem innsiglar þá staðreynd að stjórnmálabarátta verður rekin með öðrum hætti á tækniöld tuttugustu aldar, en afturhalds- stefnu kommúnista vikið til hlið- ar. Ragnar Arnalds nýkjörinn formaður „Alþýðubandalagsins", sem kommúnistar brutu undir sig með ofbeldi, dirfist að halda því fram að þar sé nýr stjórn- málaflokkur á ferðinni þar sem aðalmenn eru Magnús Kjartans- son, Lúðvík Jósepsson, Eðvarð Sigurðsson og Páll Bergþórsson ásamt ýmsum minni spámönnum kommúnista. Og leyfir sér síðan að skora á vinistri menn og vinn- andi fólk, að fylkja sér um þenn- an óskapnað. Þetta eru hroða- legustu vinnubrögð sem beitt hefur verið í stjórnmálasögu þjóðarinnar, og er öruggt að margt það ágætisfólk sem stutt hefur Alþýðubandalagið í góðri trú mun snúa við því baki og vinna með öðrum frjálshuga mönnum í landinu að endurnýj- un stjórnmálabaráttu þjóðarinn- ar með þeim hætti, að íslending- ar komist yfir þær þrengingar, sem nú steðja að í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar, og léttast verður að leysa með því að ísland táki virkarj þátt í sam- starfi og 'samtökum vestrænna þjóða sem kommúnistar berjast Einar Björnsson. á móti af öllu afli en tala samt fjálglega um lausn á efnahags- vanda þjóðarinnar. Þeir lifa enn í þeirri trú að alþýðan sé þeim fylgispök í sýndarmennsku þeirra og ofbeldisverkum. fer frá Reykjavík mánudaginn 18. nóvember til ÍSAFJARÐAR og AKUREYRAR. Vörumóttaka verður í A-skála á föstudag og til hádegis á laugardag. H. f. Eimskipafélag íslands. Uarfoiðarh urðit INNI ■J TI BÍLSKÚRS SVALA ýhhi- tftikurfif' h ö . VILHJALMSSON RANARGQTU 12. BIMI 19669 Tilboð óskast í nokkrar fólks- og sendiferðabifreiðir, er verða til sýnis föstudaginn 15. nóv. 1968, kl. 1 til 4 e.h. í porti bak við skrifstofu vora, Borgartúni 7. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 5 e.h., að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140 -K Stjörnu- smjörlíki í næstu verzlun. Heildsölubirgðir DAVÍÐ ÓLAFSSON & CO. H.F. Sími 24150.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.