Morgunblaðið - 09.01.1969, Side 16

Morgunblaðið - 09.01.1969, Side 16
16 MORGrUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1969. Sigurjón Einarsson, skipstjóri - Minning SIGURJÓN EINARSSON fædd- ist í Gesthúsum í Hafnarfirði, 25. janúar 1897. Foreldrar hans voru hjónin, Sigríður Jóhsdóttir og Einar Ólafsson. Sigríður var fædd í Lækjarkoti í Mosfellssveit en Einar að Eyvindarkoti á Álftanesi. Þau hjón hófu 1893 búskap í Gest- húsum, þar sem nú er Vestur- gata 16 í Hafnarfirði. í Gesthús- um bjuggu þau hjón allan sinn búskap og þar fæddust þeim fimm börn og var Sigurjón næstelztur. Einar Ólafsson var skútusjómaður, lengi stýri- maður, og þótti afburða sjómað- ur og frá honum hafði sonur hans síðar þá skoðun sina, að óaðgæzla og kunnáttuleysi hafi fremur or- sakaði þau tíðu sjóslys, sem voru á kútterunum 'en það, að skipin hafi verið svo aftaka lé- leg sem slysin gáíu til kynna. Þeir feðgar, Einar og Sigurjón voru saman til sjós fyrstu ár Sig urjóns á skútum og kastaðist stundum í kekki með þeim feðg- um, þegar þeim eldra fannst kappið vera meira en forsjáin hjá þeim yngra framan af og urðu þessar samvistir feðganna Sigurjóni, að hann 'sagði, sá skóli sem hann síðar á ævinni kunni vei að meta og jafnan gat hann föður síns að góðu og þótti mikið til hans koma. En þó að kært væri með þeim feðgum og leiðir þeirra lægju saman í starfi um hríð var móður minningin Sigurjóni kærari, svo sem eðli mannsins er. Á skútutím an-um var það siður í Hafnarfirði, að skúturnar drógu upp flagg, þegar þær voru lagstar á leguna, til merkis um að allir vænu heil- ir á húfi um borð. í landi var beðið með mikillí eftirvæntingu eftir því að flaggið væri dregið upp, þegar sikúta kom inn úr túr. Slysin á skútunum voru um tíma svo tíð, að aldrei hefur slysa'saga íslenzkrar sjósókna-r verið hörm-ulegri -en um skeið á þeim útvegi. Á hraunbarði fyrir ofan Gesthús var gott útsýni út fjörðinn. Sigurjón minntist margra spora þangað sem krakki, ýmist eftir beiðni móður sinnar eða af eigin hvötum, að hyggja að skútu, 'sem var seint á ferð. Minningin frá þessum árum lifði með honum alla tíð og fáir hafa lofað sjómannskonuna í ræðu sem riti og Sigurjón. Han-n segir á einum stað: — Þær áttu oft erfitt sjómanns konurnar og margri þeirra var tíðum þungt í skapi á dögum skútualdarinnar, þegar stórviðri geisuðu. Þeim varð ekki svefn- samt í slíkum veðnum og stu-ndu þá við í stormhviðunum og bilj- unum, sem buldu á bæjarþekj- unni. Þetta gekk inn í börnin, þegar þaiu höfðu aldur til að skilja það.“ Þegar Siltholm strandaði í for- áttuveðri og þeir feðgar, Einar og Sigurjón, voru báðir kallaðir til að fara út á lítilli og fúinni bátkænu til að freista þess að bjarga áhöfninni, en hennar beið dauðinn við klettanna vesta-n við Hafnarfjörð, varð Sigríði að orði við son sinn, þegar þeir feðgar komu báðir til að búast til farar- innar: — Og þú líka . . . Hún sagði ekki fleira, en alla ævi m-undi Si-gurjón þessi orð og fann til þeirrar hryggðar, sem hann -olli móður sinni í þetta skipti, þó að hann hvorki gæti né vildi skorast undan að fara út. Einar Ólafsson var mikill drátt armaður og börn hans höfðu nóg að bíta og brenna í æsku, þó að auðvitað stæði ekki útaf hjá þeim í Gesthúsum fremur en áöðrum sjómannsheimilum þeirra tíma. Æskiuleikvangur Sigurjóns var fja-ran og bryggjan. Allt líf barna sem fullorðinna á þessum stað var bundið sjónum. Athafnalíf var blómlegt í Hafnarfirði um miðbik kútteratímans og þaðan sóttu Norðmenn á línuveiðurum og Fransmenn komiu þar oft. Síð- ar, eink-um á öðrum áratug ald- arinnar, eftir að Sigurjón var sjálfur faxinn að stunda sjó, höfðu Hollendingar, Englend- ingar og Þjóðverja-r bækistöð ■sína í Hafnarfirði og fylgdi þeirri útgerð mi-kil umsvif. Sigurjón segir í ævisöguh-andriti, sem hann lét eftir si-g: — Það var snemma farið að lát-a okkur börnin létta undir, sem kallað var, í mínu ungdæmi. Við vorum ekki gömul, þegar við vorum send út á saltfiskreit- ina til að vinna'að saltfisksþurrk un og fengum 5 aura á tímann. Kvenmannskaupið var þá 12% eyrir, en karlmannskaupið 18 aurar um tímann. Það var talið okkur hollara að vinna einhvern hluta dagsins að alvarlegum störfum með flullorðnum en það, að allur dagurinn færi í tóm ærs’l eða leiki.“ Það var Man-nskaðaárið 1906, þegar Sigurjón var 9 ára gamall, að hann fór til sjós í skjóli föð-ur síns á Morgunstjörnunni, kútter, en Ein-ar var þar stýrimaður. Sigurjón var þá ekki hávaxnari -en svo, að ha-nn varð að stök-kva upp á nálabekkinn, ef hann ætl- aði að sjá fisk, sem flaut við borðs'tokkinn. Sigurjón var sjó- veiku-r og sjóaðist seint, en hann mátti ekki til þess h-ugsa að vera lá-tinn í land o-g reyndi að leyna vei-kinni eins og honum var unnt. Hann var snemma fi'skinn og féklk að fljóta með áfram. Han-n var næstu árin eða fram að ferming-u með föður sínum fyrst þarna á Morgunstjörnunni, en s'íðan á kútterunum, Gunnu og Róbert. Sumarið sem hann fermdist var hann á Ró-bert, en fór í Flensborgans-kóla um haust- ið 1911 og var þar veturinn 1912. Árin 1913 og 1914 v-ar h-ann á þýzkum togurum en síðan aftur á kú-tter-um, þeim Akron og Reaper. Hann fór í Stýrimanna- skólannhaustið 1915, var um vet- urinn 1916 á togaranum Ými með ólafi Þórðarsy-ni og lenti þvi í þeim mannraunum sem fylgdu strandi togarans 1916 og víða hefur verið sagt frá. Hann lau-k farmannaprófi frá Stýrimanna- skólan-um vorið 1917 og fór þá á hákarlaveiðar um vorið, en var stýrimaður á Ölvi, rúmlega 30 tonna báti, á síldveiðum. 1918 var hann stýrimaður á Þóri, 30 tonna mótorbáti eða svo, en á þeim báti hafa mar-gir þekktir menn í fiskiflotanum verið, enda happafleyta. Um haustið kvæntist hann Rannveigu Vigfúsdóttur frá Búðum á Snæfellsnesi. Þau höfðu ky-nnzt seinna ár Sigurjóns i skólanum og verið heitbundin síðan.-aÞu voru gefin saman 26. október 1918 af Árna presti Björnssyni á Görðum á Álftanesi „í hæg-um útsynningi“, sagði Sig- urjón og kallaði það veðurfar táknrænt fyrir samlíf þeirra hjóna. „Útsynningurinn var svo væg- ur, að okkur kom saman um, að ekki benti veðrið til þess að stórviðrasamt yrði í hjúskapn- um.“ Það varð heldur ekki. Þau hjón áttu -g-ull'brúðkaup i haust eins og ljóst er af framansögðu og voru þá eins og nýtrúlofað par. Sigurjón sagði oft að sjó- mannsstarfið gerði hjónabandið að samfelldu trúlofunargilli. — Hjónin voru um margt skaplík, bráðlynd bæði en hjartahlý, og vafala-ust hefur hann stu-ndum gengið á með éljum í þessari fimmtíu ára samveru, líkt ag gerist í útisynningi, en sólskinið þó miklu meira og síðustu tíu árin, eða eftir að Sigurjón kom í la-nd var sólríkasti tíminn. Um fjör-utíu ára s-keið höfðu þau orð ið að þola aðskilnað langtím-um saman, sum árin stanzaði hús- bóndinn ekki nema nokkra daga í landi — þeim varð því síðasti áratugurinn nýtt trúlofunarskeið, því bæði voru ung í andanum. Það var lærdómsríkt að sjá þessi öldruðu hjón koma eins og tvö ástfangin ungmenni á leið á ball í fyrsta skipti, en ekki það síð- asta eins og raunin varð á. Mik- ið hefur guð gefið slíku fólki í veganesti. Það var undarlegt með Sigur- jón, en er þó ek-ki eins dæma með sjómönnum, einkum þeim sem miklir eru fyrir sér hvað hann var rómantískur öðr- um þræði, einkum í af- stöðunni til konunnar, en þó kom þetta víðar fram. Þennan þátt tilfinningalífsins ha-fðí hann varðveitt innra með sér í öllu skútu- og togarasvalkinu. Hann lét ekkert tækifæri ónotað til að lofa ágæti kon-u sinnar, sem hús- móður og eiginkonu og síðasta ræða hans var eins konar ástar- óður til móður han-s og eiginkon un-nar, þessara tveggja kvenna, sem hann hafði einar elskað í lífinu Það bli-kaði á tár í auga þessa gamla togarajaxls, eins og hann kallaði sjálfan sig stundum, ef hann minntist móður sinnar, en bjart og hlýtt bros breiddist yfir andlitið, þegar honum varð litið til konunnar við hlið sér. Veiturinn 1919 var Sigur- jón stýrimaður á mótorbátnum Hermóði á línuveiðum og var að hugsa um að stunda heldur veið ar framvegis á mótorbátum en togurum, en kunni ekki við sig, en það er svo oft, hvort heldur er um þá, sem aldir eru upp á togurum eða hina sem alast upp á bátum, að þeir kunna ekki við slg á þeirri skipagerðinni, sem þeir koma á fullorðnir. Sigur- jón sneri sér því aftur að tog- urunum og var á þeim óslitið eftir það að heita mátti, að und- anskildum nokkrum sumrum á síld. Hann var háseti á Ymi 1919, fór út sem háseti á Ymi í spönsku veikinni 1918 og má nefna það sem dæmi um það, hve þessi af- taka pest var skæð, að Ymir þurfti fjórar skipshafnir til að klára túr. í eitt skiptið komst hann ekki nema út í Flóann, þá voru allir orðnir veikir og hann mátti snúa til sama lands aftur að sækja nýj-a áhöfn. Sigurjón var á Ymi, þar til hann fór á vertíðinni 1921 fiskiskipstjóri á lítinn skozkan togara, Dewsland. Þó að margt gengi með endem- um á Dewsland, og skipið væri bæði lítið og lélegt og m-ann- skapurinn það af hon-um sem út- lenit var, ekki á borð við það, sem þá tíðkaðist á íslenzkum togur- um, náði Sigurjón að afla sæmi- lega og heldur hann að hann hafi notið þessa síðar, þegar honum var falið skip næst. Sigurjón var nú enn á síldveið um um sumarið á 50 tonna gufu- báti, Hadfísi en umha-ustið fór hann á Leif heppna til þess fræga kappa, Gísla Oddssonar. Alllir Ijúka upp einum munni um það, sem voru með Gísla að hann hafi verið afburðasjómaður og aflamaður með afbrigðum. Gísli var einn af fyrstu íslenzku togaraskipstjórunum sem var al- inn upp á togurum og kunni full skil á togveiðunum. Sigurjón bar Gísla mjög gott orð, þó að ör- lögin höguðu því svo að þeirra samvistir yrðu ekki langar, og við kveðjum því nú Sigurjón í dag en ekki á Leifi í Halaveðr- inu í febrúar 1925. Sigurjón fór stýrimaður á togarann íslending um veturinn 1922 en var stýri- maður á Hugo, 74 tonna gufu- báti á sfld um sumarið. Um haust ið fór hann á Gylfann með Haf- stei-ni Bergþórssyni. Og enn fór hann á síld um sumarið og nú á ísafold 111 tonna gufubát, en á Gylfann aftur um haustið. Stýri maður var hann á Hettlyerstog- aranum General Birdwood, 1924, um veturinn en stýrimaður á Eugo um sumarið á síldveiðum og síðan enn á Gylfa-nn og þar var hann 2. stýrimaður í Haláveðr- inu. Sumarið 1925 var Sigurjón á þorskanetum með e.s. Paul, línuveiðara en um haustið fór hann á Imperialist með Tryggva Ófeigssyni og var þar ýmist báts maður eða stýrimaður þar til að hann tók Surprise í maí 1927 og hófst þar með það tímabil í sjósókn Sigurjóns, sem unnið hefur honum frægð meðal togara sjómanna. Sigurjón var með Surprise til vors 1930, að hann fór af hon- um til að taka við Garða-ri nýj- um, þá stærsta togara okkar. Á Garðari átti Sigurjón sitt blóma- skeið og var jafnan við hann kenndur. Margar sögur lifa með sjómönnum um afla Sigurjóns á Garðari, end-a hæfði þar allt hvað öðru, skipstjóri, skipið og mannskapurinn. Sem einstakt dæmi má nefna 1600 mála kastið 1936, en það var þá stærsta kast, sem íslenzkt skip hafði fengið. Frægt var það einnig, þeg- ar Sigurjón fékk 72 poka í 10 hölum eða 12 klukku- stundum álls á Selvogsbanka ár ið 1932. Mannskapurinn gerði að þessum afla um það bil 140 tonn um í salt á 24 tímum eða um 6 tonnum til jafn-aðar á k'lukkustund. „Það var ekki vandi að fiska með svona mann- skap,“ sagði Sigurjón. En því aðeins var nú mannskapu-rinn góð ur og samvalinn að skipstjórinn var aflasæll, og er svo jafnan. Ekki varð Sigurjón með öllu samur maður eftir að Garðar fórst niður við Engliand vorið 1943. Hann sagði: „Garðar átti enga veika hlið . . eftir að Garðar fórst v-ar mér skapi næst að láta af sjómennsku ég vissi, að ég myndi aldrei koma um borð í skip, sem mér þætti jafn mikið til um og njóta mín jafnvel u-m borð í . . Mér fannst ég vera orðinn of gamall til að breyta um, en þó of ungur til að hætta og svo fór, að ég hélt áfram í 17 ár í viðbót og var með þessi og hin skip, en Garð- ar skyggði á þau öl'l, hversu góð sem þau annars voru . . Sigurjón lét sem sé ekki deig- -an síga og eftir að Garðar var far inn, var Sig-urjón um hríð með togarann Óla Garðar en næst Faxa, sem hann gerði út að nokkru, síðan Siglufjarðartogar ann Elliða og þá Ask vorið 1952, sem flotv-arpan var almennt tek- in í notkun og þá sýndi Sigur- jón enn einu sinni hversu glögg ur hann var og mikill kunnáttu maður á togveiðar, því að hann fixaði flotvörpu um borð í Aski eftir upplýsingum, sem hann fékk hjá öðrum togaraskipstjórum, er voru komnir með flotvörpuna og farnir að róta í hana fiski á Bankanum. Sigurjón fékk síðan metafla í þessa vörpu sína, þó að hann yrði að haga veiðunum með nokkuð öðrum hætti en þeir sem komið höfðu með Breiða íjörðsvörpuna fulltilbúna úr landi Síðasta skip, sem Sigurjón var með, var togarinn Jörundur. Á því skipi stundaði hann síldveið- ar með síldartroili í Norðursjó og var það nýjung hérlendis. Þó að Sigurjón þyrfti að þreifa sig áfram við þeSsar veiðar með nýtt tæki á ókunnri ölóð, en þarna eru straumar harðir, þegar dreg ur suður í Ermasund, gaf hann Þjóðverjunum sem voru þessum veiðum orðnir vanir ekkert eftir og mun hafa verið hæstur þeirra skipa, sem veiðarnar stunduðu frá Hamborg. 1957 um vorið lauk ferli Sig- urjóns á sjónum og hann fór í land til að taka við stjórn Hrafnistu. Félagsmálaferill Sigur jóns verður rakinn af öðrum en mér. Sigurjón bjargaði mörgum úr sjávarháska og hlaut tvívegis fyrir það verðlaun, einkum þótti björgunin á enska togaranum er strand-aði við Dálatanga fræki- leg. Hann bjargaði einnig, nokkr um einstaklin-gum einum fimm er ég man eftir ýmist með því að fleygja sér í sjóinn, eða með snörum handtökum. Hér verður að láta staðar numið við að rekja sjómannsferiil Sigurjóns. Margt er en-n ósagt og öllu g-erð of lítil skiL Það vita -allir ísl-enzkir sjómenn að Sigurjón var einn af merkustu mönnum sjómannastéttarinnar. Hann var skapmikill dreng- skaparmaður, annálaður sjósókn ari og afl-amaður, harðduglegur verkmaður, bráðvel greindur, og hraustménni, ritfær vel og ræðu maður skörulegur og í öllu hinn ágætasti miaður. Ásgeir Jakobsson. f DAG verður til moldar borinn 'Sigurjón Einarsson, skipstjóri í Hafnarfirði. Að kvöldi þriðja þessa mánað- ar sat hann, ásamt eftirlifandi konu sinni, í vinahópi til þess að minnast 75 ára amælis Skip- stjóra- og stýrimannaféla.gsins öldunnar. Þá kenndi hann las- leika, svo að hann fór heim til sín og lézt um 1-eið og þangað kom. Sigurjón var fæddur 25. janú- ar 1897 að Gestshúsum í Hafn- arfi-rði. Forel-drar hans voru þau hjónin Sigríður Jón-sdóttir og Einar Ólafsson skipstjóri. Á barnsaldri fór Sigurjón á skútu, og sjómennskan varð ævi- starf hans í um nær hálfrar ald- ar skeið. Árið 1917 lauk hann prófi frá Stýrimannaskólan-um, 'þá aðeins tvítugtur að aldri, og þremur árum -síðar, eða árið 1920, hóf hann skipstjórn, sem hann gegndi að mestu óslitið til ársi-ns 1957. í s-kipstjórnarstarfi sínu var Sigurjón farsæll. Hann var mik- ill aflamaður, ávállt með afla- hæstu mönnum, hvaða veiðar sem hann stundaði. Hann átti líka því láni að fag-na að geta komið öðr.um til hjálpar á neyð- arstundu og bja-rgað úr svjávar- háska við hin erfiðustu skilyrði. Með Sigurjóni Einarssyni er horfinn af sjónarsviðinu einn rismesti forystumaður sjómanna- stéttarinnar. Hann var ávállt í broddi fylkingar fyrir bættum 'kjör-um, öryggismálum og auk- inni menntun sjómanna, enda voru honum falin ótal trúaaðar- störf af þeirra hendi. Hann var einn aðalhvatamanna að stoifnun Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands og í stjóm þess um árabil. í stjórn Sjómann-a- dag-sráðs átti hann lengi sæti og barðist fyrix stofnun þess. Auk þess var hann fyrsti forstöðu- maður Hrafnistu, Dvalarheimilis aldraðra sjómann-a. Að slysavarnarmálum vann Sigurjón mikið -starf, ásamt konu sinni, frú Rannveigu Vigfúsdótt- -ur, og áttu þau -hjónin sæti í stjórn Slysavarnarfél-ags íslands um áraraðir. Þar -unnu þau fórri- fúst starf, sem ber að þakka og virða. Sigurjón var lengi formaður Skípstjóra- og stýrim-annafélag-S-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.