Morgunblaðið - 09.01.1969, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1969.
Tékkarnir vðldu
að leika hérlendis
Neituöu Dönum um landsleiki
Handknattleiksliðið sem mæta á Tékkunum á sunnudaginn hefur
verið við æíingar sinar af fullum krafti. Allir vonast til þess að
veikindafaraldur eða önnur óhöpp skaði liðið ekki því vissulega
er ástæða til að ætla að góður árangur náist ef allt fer fram sem
horfir.
Heimsmeistaralið Tékka hefur
nú þegar lagt upp í íslandsförina.
Liðið leikur tvo landsleiki við
Svía í Gautaborg og Málmey
áður en það kemur hingað.
Því hefur verið haldi'ð fram í
dönskum blöðum að liðið sé nú
veikara en þá er það vann hekns
meistarakeppnina og er í þeim
ummælum stuðst við umsagnir
bæði tékkneskra leikmanna og
Könings þjálfara liðsins.
Tékkar hafa um áraraðir verið
fremstir eða í fremstu röð hand-
knattleikslþjóða. Leikirnir um
helgina eru því einhverjir þeir
stærstu sem leikmenn eða leik-
endur geta óska'ð sér — og að
sjálfsögðu fyllum við húsið i
bæði skiptin. Engin íþrótt á ís-
landi hefur fram til þessa náð
jafn langt á alþjóðamælikvarða
og handknattleikurinn.
Danir báðu Tékka um leiki í
þessari „Norðurlandaferð“ þeirra,
VELJUM ÍSLENZKT
Um sama leyti barst tilboð ís-
lenzka handknattleikssambands-
ins. Tékkarnir tóku boðinu héðan
en neituðu Dönum. Þeir leika
því í þessari ferð aðeins vfð Svía
og íslendinga.
Það er sannarlega heiður við
ísl. handknattleiksmenn. Og við
áhorfendur ættum ekki að láta
okkar eftir liggja.
Lech í Sviss.
íslendingar í hópum til
skíðaiðkana í Sviss
Útsýn með skipulegar ferðir þangað í vetur
VIÐ höfum aldrei selt eins mik-
ið af skíðum og nú og skíðaáhugi
fólks hér á landi er alveg ótrú-
legur miðað við það, að aldrei
er hægt að treysta á nokkurt
snjóatímabil eða stöðuga skíða-
iðkun. Það er af þeim sökum að
mér er það bæði ljúft og skylt að
mæla með utanferð til beztu
skíðastaða Evrópu þegar hennar
er völ.
Eitthvað á þessa leið komst
Kristinn Benediktsson að orði er
hamn á fundi með fréttamönnum
í gær skýrði frá fyrirhuguðum
hópferðum til úrvalsskíðiastaða í
Sviss og sýndi kvikmynd frá
Lech í Svisslandi sem orðið hef-
ur fyrir valinu hjá Útsýn í vet-
ur. Krisitinn sagði m.a.:
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur
nú ákveðið að hefja skíðaferð-
ir til skíðastaða í Evrópu og hef-
ur hún leiitað til mín og beðið
rriig um að skipuleggja fyrir sig
þessar ferðir, þar sem ég hef
síðastliðna 10 vetur dvalizt meira
og minna á flestöllum bezitu
skíðaStöðum Bvrópu bæði við
skíðakeppnir og mér til fróðleiks.
Var mér mikið gleðiefni að fá
tækifæri til þess að geta kynnt
þessa dásamlegu staði og íþrótt,
eins og hún er iðkuð í Mið-Ev-
rópu. Það færist nú mjög í vöxt
að taka hluta af fríinu sínu á
veturna, og kemur sér vel bæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Að þessu sinni hefur orðið fyr
ir valinu staður I Arlberg í Aust
urríki, sem heitir Lech. Lech er
einn af beztu s'kíðastöðum Ev-
rópu og þaðan hafa margir af
beztu skíðamönnum Austurríkis
komið t.d. Egon Zimmermann og
Opmar Schneider.
Á þessu svæði, Arlberg, sem
nefnd hefur verið „hin hvíta
skíðaparadís“, er meðal annars
skíðastaða Zurs, St. Christoph,
Stuben, St. Anton og Lech. Milli
allra þessara staða er hægt að
ferðast á skíðum. Skíðailyftum
er alveg sérstaklega vel fyrir kom
ið og þær gera skíðaiðkendum
það kleift að ferðast frá fjalli til
fjalls. Til ga.mans má nefna að
samanlögð lengd skíðabrautanna
er ca. 150 km.
Aðalástæðan til þess að þessi
staður var valinn er að snjór er
þar alveg öruggur á þesisum tíma
og einnig mjög sólríkt. Þá hef-
ur Lech einnig margt annað upp
á að bjóða fyrir ferðamenn t.d.
Opið bréf til Skíðasa mbands Islands
EKKI þykir mér óeðlilegt þó að
íslendingar séu hissa á vangetu
íslenzkra skíðamanna og jafn-
vel íslenzkra íþróttamanna í
heild, á undanförnum Olympíu-
leikum.
Ég hef kynnzt mjög náið þjálf
un íslenzkra skíðamanna fyrir
siðustu tvo Olympíuleiki og eft-
ir þá reynslu segi ég:
íslenzkum skíðamönnum er
alls ekki gefinn kostur á að
standa sig. Það er ekki annað
hægt að sjá en að stefnan sé sú
að kalla saman lið tæpu ári eða
ári fyrir leikana, svona til mála
mynda, þá er hægt að senda
nokkra úr liðinu á Olympíuleik-
ana og þá kemur aðal tilgang-
urinn, því hann er sá, að for-
ystumenn Skíðasambandsins og
Olympíunefndar geti farið sem
fararstjórar og þar með séð Ol-
ympíuleikana á fullu kaupi. En
á síðustu vetrar Olympíuleikum
munu fararstjórar hafa verið
orðnir á tímabili mun fleiri en
keppendur. Þess vegna spyr ég
hve miklu fé hafi verið varið í
íararstjórn? Einnig spyr ég for-
mann Skiðasambandsins hvort
hann geti virkilega ekki birt
skýrslu þjálfara landsiliðsins? En
hún átti að liggja frammi á síð-
asta skíðaþingi, en formaður S.
K.í. afsakaði það vegna anna og
sagðist senda fulltrúum þings-
ins hana strax að loknu þingi.
Síðan hafa liðið sjö mánuðir, en
skýrslan hefur enn ekki séð dags
ins ljós.
Einnig spyr ég stjórn S.K.f.
hvort hún ætli að halda sömu
stefnu gagnvart boðurn erlendra
aðila til íslenzkra skíðamanna?
Sem dæmi get ég nefnt að það
hefur sannast að S.K.Í. hefur
fengið boð um að senda göngu-
roann á mót í Svíþjóð, en þau
boð hafa aldrei farið lengra en
til S.K.Í. og þar niður í neðstu
skúffu, svo ekki sé minnst á boð-
ið til íslenzfcra sfcíðamanna, um
þjálfun með austurríska ungl-
ingalandsliðinu um áramótin
1965—1966. En S.K.f. glopraði
þessu boði til Skíðaráðs Reykjia-
vífcur, en þar var það fram-
kvæmt þannig að aðeins tveim
utanbæjarmönnum var boðið að
fara, en hin öll Reykvífcingar eða
alls um niu rnanns. Þessi för
varð hneyksli því aðeins utan-
bæjarfólkið féfck að vera með
landsliðinu, en hinum vísað frá.
Á meðan sátu flestir beztu skíða
menn landsins heima. Þetta varð
ábyggilega efcki til heilla fyrir
íþróttina svo ekki sé meira sagt.
Ég hélt að S.K.Í. myndi nú
vafcna til lífsins og byrja strax
á þessum vetri að æfa upp lið,
en þar hefur mér skjátlast, því
að ekfcert hefur heyrzt um það
og fjárhagsáætkm S.K.f. fyrir
næsta ár efcki nema 81.000.00
fcrónur, svo allir geta séð að ekki
verður mikið gert fyrir þá veltu.
Forráðamenn íþróttarinnar eru
ekki í vandræðum með að fegra
sína hlið og prédika íþróttaand-
ann við hátíðleg tækifæri, en í-
þróttaandinn er nú ekki nema
í orðunum hjá þessum mönnum,
það er ekki svo langt síðan S.K.Í.
sýndi á sér annað andlit og var
það andlit íþróttamannliegt. *
Ég held nú að S.K.Í. ætti að
sína í verki hvað hægt er að gera
Það vanitar mikið af mótum við
erlenda skiðamenn hérna heima
svo og erlendis, einnig þarf allt-
af að vera langslið í fullri æf-
ingu, lið sem er opið í báða enda,
út. fyrir þá sem ekki standa sig
inn fyrir efnilega skíðamenn og
og auðvitað þarf að vera ráðinn
þjálfari hjá S.K.f.
Það væri nú gott verkefni fyr-
ir S.K.f. að koma á Norðurlanda-
móti á skíðum. Það væri ekki
svo lítil lyftistöng fyrir íþrótt-
ina að fá að halda slífct mót hér-
lendis.
Það þarf ekki að segja nein-
um manni að handknattleikur
eigi betur við íslendinga en aðr-
ar íþróttir. Það er bara haldið
rétt á málunum end-a hiafa þeir
staðið sig glæsilega. Ég held, að
aðrir íslenzfcir íþróttafrömuðir
geti margt lært af þeim.
Nú virðist Knattspyrnusam-
bandið ætla að fara á gtað, með
hinum nýkjörna formanni sín-
um. Þess vegna spyr ég: Telur
stjórn S.K.Í. röðina ekkert vera
farna að nálgast sig?
Með þökk fyrir birtinguna
Hafsteinn Sigurðsson, ísafirði
P. S.
Þetta bréf barst nokkru fyrir
jólin en varð þá að bíða vegna
rúmleysis. Skíðasambandið hélt
blaðamannafund skömmu fyrir
jól og nú þegar er svarað nokkr-
um atriðum bréfsins en rétt er
að raddir lesenda komi fram og
Skíðasambandið hefur frjálst
rúm til svana.
Sfcautaiðkanir, keiluspil, göngu-
túra í sérstökum göngubrautum,
kvifcmyndahús og næturlífið er
mjög fjölbreytilegt.
Perðin hefst föstudaginn 24.
janúar og er brottför frá Kefla-
vífcurflugvelli með flugvél Loft-
leiða kl. 11.00 til Luxemburgar
og þaðan áfram til Zúrich, sem
ekur farþegum til Lech, en það
er u.þ.b. 4 fclst. ferð og til Lech
verður komið um miðnættið.
Dvalizt verður í Lech í 8 daga, en
flogið til bafca frá Zúrich til Lux-
emburgar sunnudaginn 2. febrú-
ar. Þeir, sem þess óska geta orð-
ið leftir í Luxemburg og tekið
flugvél Loftleiða nofckrum dög-
um seinna, en daglegt flug er
milli Luxemburgar og Keflavík-
ur.
Eins og áður er sagt sér Perða
skrifstofan Útsýn um allan undir
búning ferðarinnar og gefur einn
ig allar upþlýsingar og selur far
seðla. Hægt er að leigja allara
Skíðaútbúnað í Lech og einnig
má geta þess að hægt er að kaupa
sér vegabréf, sem gildir í viku
og tekið er sem greiðsla í allar
Skíðalyfturnar.
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur
einnig á prjónunum Skipulagn-
ingu skíðaferða innanlandis bæði
fyrir hópa og einstaklinga um
lengri eða skemmri tírraa.
Skiðastaðurinn sem íslending
arnir fara til.
Kristinn sagði að þegar væru
bókaðir í fynstu ferð 35 farþeg-
ar og vonir stæðu til að áfram-
hald yrði á þessum hópferðum.
Ferðin kostnar nú 23.600 kr.
Úrslit í
gærkvöld
Jafrateflisleikirnir úr 3. um-
ferð í ensku bikarkeppninni sl.
laugardag, voru leifcnir í vikunni
og urðu þessi úrslit:
Á mánudag:
Millwall — Middlesbrough 1-0
Á þriðjudag:
Arsenal — Cardiff City
2-0
f gærkvöldi:
Crystal Palace — Charlton 2-0
Leeds Utd. — Sheffield Wed. 1-3
Leicesiter Cify —Barnsley 2-1
Kettering — Bristol Rovers 1-2
Southampton — Oxford Utd. 2-0