Morgunblaðið - 19.03.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19, MARZ 1969
7
Rœtt við Bolla
Gunnarsson, for-
mann Sjóstanga-
veiðifélags
Reykjavíkur
Allir þekkja binn mikla á-
huga fslendinga á lax- og sil-
ungsveiði í ám og vötnum, og
hversu margir sækja í þá í-
þrótt heilsubót og stundum mik
inn ábata, þegar vel veiðist
Hitt vita færri, að sjóstanga-
veiði er vaxandi íþrótt meðal
íslendinga, og fjölmargir sjó-
stangaveiðimenn sækja sjóinn um
hverja helgi, og njóta þess að
renna i saltan sjó, fyrir ýsu,
þorsk og keilu, auk fjölmargra
annarra fisktegunda.
Það þykir í góðu veðri sönn
heilsubót að njóta sólar og
seltu úti á hinum gjöfulu fiski-
miðum okkar og okkur er
sagt, að þetta sé mun ódýr-
ari veiðiskapur en Iaxveiði í
dýrum ám.
í fyrri viku vorum við stödd
með glöðum hópi sjóstangaveiði
manna og kvenna á skemmti-
Bolli Gunnarsson formaður Sjó
stangaveiðifélags Reykjavíkur.
kvöldi þeirra. Voru þar sýnd-
ar myndir frá veiðiferðum, bæði
svarthvítar og i lit, og magt
fleira var til skemmtunar, enda
er það reynsla okkar af fyrri
kynnum af sjóstangaveiðimönn
um, að það er glaðlegur og
samstilltur hópur, og þarna var
svo sannarlega glatt á hjalla.
Við tókum þarna tali for-
mann Sjóstangaveiðifélags
Reykjavíkur, Bolla Gunnars-
son, og spurðum hann helztu
tiðinda, sem framundan væru
hjá Sjóstangaveiðimönnum í
vor og sumar.
„Eitt ber þar eðlilega hæst“,
svaraði Bolli, „og það er Ev-
rópumeistaramótið i sjóstanga-
veiði, sem haldið verður að
þessu sinni í Stavanger í Nor-
egi daganna 3.—8. ágúst í sum-
ar. Norskir sjóstangaveiðimenn
ætla að gera úr móti þessu
Matthías Einarsson, margfaldur Evrópumeistari, tekur
móti aðalverðlaunum mótsins, „Decantelle“-bikarnum.
heljarmikla hátíð M. a. verður
haldið í sambandi við mótið
— laxveiðimót og fleira og mun
hátíðin standa í hálfan mánuð
Við munum samt einbeita okk
ur að sjóstangaveiðinni, og ætl
um endilega að reyna að fjöl-
menna á þetta mót. Meistararn
ir okkar verða allir að fara, og
auk þess ieikur grunur á, að
ýmsir, sem misstu þann stóra
á síðasta móti, hugsi sér gott
til glóðarinnar á þessu móti,
enda hafa sumir haft á orði,
að Evrópumeistaramótið, sem
haldið var hérlendis síðastliðið
sumar, hafi aðeins verið „upp-
hitun“ eins og Friðrik stórmeist
ari orðar það.
í ráði er að leigja Esju til
fararinnar, og verður búið um
borð, meðan á mótinu stendur,
dansleikir á hverju kvöldi og
margt fleira gert þátttakendum
og gestum þeirra til skemmt-
unar og afþreyingar. Við höf-
um kosið eina geysilega fjár-
öflunarnefnd innan félagsins og
hefur hún margt á prjónunum
til að standast kostnað i sam-
bandi við mót þetta.“
„En hvað með Hvítasunnu-
mótið í ár, Bolli?“
„Jú, rétt er að minnast á það.
Stjórnin hefur rætt það mál all-
mikið, hvort hér skuli efnt til
Hvítasunnumóts í einhverju
formi. Margar áskoranir hafá
borizt erlendis frá að við stæð-
um fyrir Alþjóðamóti hér um
Hvítasunnuna. Af 50 erlendum
þátttakendum á EM-mótinu hér
í fyrrasumar, skrifuðu sig strax
30 á lista til þátttöku í næsta
móti, sem yrði haldið hér í
sumar. Við leggjum samt aðal
áherzlu á góða þátttöku í
Stangaveiðimótinu, en Alþjóða
sambandið hefur samt eindregið
óskað eftir að reynt yrði að
halda Alþjóðamót hér I sum-
ar, og vonir standa til að hægt
verði að halda slíkt mót hér
um Hvítasuinnuna."
„Hvernig stóðu islendingarn
ir sig á síðasta Evrópumeist
aramóti."
„Þeir stóðu sig með mikilli
prýði. íslendingar unnu alls 19
fyrstu verðlaun af 23 möguleg-
um. Sigursælasti einstaklingurinn
í þessu móti varð Matfhías
Einarsson frá Akureyri, og varð
margfaldur Evrópumeistari, bæði
í einstaklings- og sveitakeppn-
um. Erla Eiríksdóttir frá Kefla
vik varð Evrópumeistari kvenna
og Evrópumeistari unglinga-
varð Einar K. Einarsson frá
Reykjavík, en Keflvíkingar
unnu svokallaða „Borga og
bæjakeppni", en í þeirri keppni
tóku þátt rúmlega 20 borgir og
bæir.
Evrópumeistari unglinga í sjó-
stangaveiði, Einar K. Einars-
son, tekur á móti verðlaunum
sínum.
Enginn vafi er á því, að
sjóstangaveiði er eitt af þvi,
sem sennilega á eftir að laða
fjölmarga útlendinga til lands-
ins á komandi árum. íþróttin
að draga fisk úr sjó á stöng
er afar vinsæl meðal flestra
þjóða Evrópu og reyndar
Ameríku líka. ísland hefur sér-
stöðu í þessu sambandi. Hér
við land eru einhver fengsæl-
ustu fiskimið í heimi, enda var
það álit hinna erlendu þátttak-
enda, að hér væri sannkölluð
Paradís sjóstangaveiðimanna,“
sagði Bolli Gunnarsson formað-
ur að lokum. Stjórn Sjóstanga-
veiðifélags Reykjavíkur skipa
nú þessir menn: Bolli Gunnars-
son, formaður. Hákon Jóhanns
son varaformaður, Ragnar Ing
ólfsson ritari, Ásgeir Þ. Óskars
son gjaldkeri og Jón B. Þórð
arson, meðstjórnandi. Fr S.
Það er oft þröng á þingi við borðstokkinn hja sjostangaveiðimönnum, þegar fiskurinn er
„kominn undir". í þessum hóp má þekkja margan frægan sj óstangaveiðimann.
Skipstfóra
vantar á m/s BÚÐAKLETT GK 251 til veiða með þorska-
netum og m/s GtSLA LÓÐS GK 130 til veiða með botn-
vörpu.
Upplýsingar í símum 24203 og 50250.
Til sölu
vifc Síðumúla 2. og 3. hæð fyrir skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði
hvor 200 ferm.
Ennfreinur við Laugaveg á góðum stað stór eignalóð með
húsum í góðri leigu. — Upplýsingar í síma 15795 eftir kl. 5.
Til leigu
tvær 500 ferm. hæðir. Möguleikar að breyta hvorri hæð í 20
herbergi (með frárennsli og vatni frá hverju herbergi). Mjög
sanngjörn leiga.
Upplýsingar í síma 21800 kl. 10—12 og 2—6 í dag.
Tilkynning
Nýtt símanúmer Sementsverksmiðjunnar í Ártúnshöfða verður
8-34-00
frá og með deginum í dag 19. marz.
SEMENTSVERKSMIÐJA RfKISINS.
Föroyingur
Eins og undanfarin ár verður efnt til föroysk kvöld á Sjo-
mannsheiminum við Skúlagötu 18 hóskvöldið kl. 20.30.
öll vælkomin, takið gestir við.
Föroyingafélagið — Trúboðin.
Tukið eltir!
Óskum eftir að taka á leigu verzlunarhúsnæði fyrir kjöt- og
nýlenduvöruverzlun í Reykjavík eða nágrenni.
Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. eigi síðar en 25. þ.m. merkt:
„2848".
Kvennaskólastúlkur
gangast fyrir kaffisölu ásamt skemmtiatriðum í Súlnasal
Hótel Sögu sunnudaginn 23. marz kl. 3 síðdegis.
M.a. syngur kór skólans ný lög eftir dr. Pál isólfsson.
Miðasala hefst á laugardag kl. 1.30—4 í anddyri Súlnasals
(gengið inn að norðanverðu),
Allur ágóðinn rennur til Bandalags kvenna í Reykjavík.
Mætið vel og takið með ykkur gesti.